Fréttablaðið - 02.10.2008, Síða 12
12 2. október 2008 FIMMTUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Tæplega 300
starfsmönnum hjá sex fyrirtækj-
um í byggingariðnaði var sagt upp
fyrir síðustu mánaðamót. Fyrir-
tækin eru Ístak, Eykt, Bygg, ÞG
Verk, JB Byggingafélag og Mótás.
Ástæðurnar eru samdráttur í
verkefnum, óvissa í efnahagslífi
og erfiðleikar á markaði.
Ístak sagði upp 180 starfsmönn-
um, ÞG Verk sögðu upp 31 starfs-
manni, JB Byggingafélag um 25
starfsmönnum, Eykt fimmtán
mönnum, Mótás sextán og Bygg-
ingafélag Gylfa og Gunnars,
BYGG, rúmlega 20 mönnum. Í
öllum tilfellum er ástæðan sam-
dráttur, óvissa í efnahagslífið og
efnahagsástandið almennt.
Loftur Árnason, forstjóri Ístaks,
segir að uppsagnirnar séu fyrsta
lota í uppsögnum 300 manna sem
hafi verið tilkynntar í sumar.
Mennirnir séu verkamenn og
tækjamenn hafi eins mánaðar
uppsagnarfrest.
„Það er ekki gott að byggja
þegar gengisvísitalan er komin
yfir 200,“ segir Magnús Jónsson,
framkvæmdastjóri Riss, og telur
öllum ljóst að búið sé að loka fyrir
byggingar á íbúðarhúsnæði.
„Bankar og yfirvöld hafa saumað
það tryggilega saman. Svo var
sópað burt hundrað milljörðum úr
hagkerfinu í byrjun vikunnar og
þar hlupu þrír milljarðar sem við
ætluðum að byggja fyrir,“ segir
hann.
Gunnar Valur Gíslason, for-
stjóri Eyktar, segir að 15 mönnum
hafi verið sagt upp störfum, eink-
um erlendum starfsmönnum.
Hjá Mótási var 16 sagt upp fyrir
mánaðamót, bæði iðnaðarmönn-
um og verkamönnum á eins til
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Bergþór Jónsson framkvæmda-
stjóri segir að verkefnaskortur
hafi verið fyrirsjáanlegur og því
miður engin önnur leið. „Við
höfum byggt og selt íbúðir í mörg
ár og þar hafa hlutirnir breyst.
Þetta eru hálfgerðar hamfarir,“
segir hann.
Konráð Sigurðsson, sviðsstjóri
framkvæmdasviðs hjá Bygg,
harmar uppsagnirnar og segir að
það taki mjög á alla að segja upp
fólki með allt að sex mánaða upp-
sagnarfrest eins og margir hafi
verið. „Við vorum að bregðast við
válegum tíðindum, íbúðamarkaði í
lægð og þessum skelfilega mánu-
degi. Við hörmum þetta. Við fórum
með bréfin til allra okkar starfs-
manna úti á vinnusvæðunum og
skýrðum hvernig staðan væri og
svo hittum við þá flestalla aftur,“
segir hann. ghs@frettabladid.is
Um 300 starfsmönnum
sagt upp í byggingariðnaði
Tæplega 300 starfsmönnum í byggingariðnaði var sagt upp um síðustu mánaðamót, langflestum hjá Ístaki
en mörgum líka hjá ÞG Verk, JB Byggingafélagi og BYGG. Margir eru með sex mánaða uppsagnarfrest.
BRUGÐIST VIÐ VÁLEGUM TÍÐINDUM „Við vorum að bregðast við þessum válegu
tíðindum, íbúðamarkaði í lægð og þessum skelfilega mánudegi. Við hörmum þetta,“
segir Konráð Sigurðsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá BYGG.
Við vorum að bregðast
við þessum válegu tíðind-
um, íbúðamarkaði í lægð
og þessum skelfilega mánudegi.
KONRÁÐ SIGURÐSSON
SVIÐSSTJÓRI HJÁ BYGG
EID AL-FITR-HÁTÍÐ Í MEKKA Þúsundir
múslima biðjast fyrir í kringum Kabaa-
steininn í Mekka í tilefni af lokum
ramadan-föstumánaðarins, en sú hátíð
er kölluð Eid al-Fitr. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR „Lesendur Fréttablaðsins úti á
landi þurfa ekki lengur að bíða eftir að
verslanir opni til að nálgast blaðið,“ segir
Hannes Alfreð Hannesson, framkvæmda-
stjóri Pósthússins, en starfsmenn Pósthúss-
ins hafa undanfarna daga unnið að uppsetn-
ingu Fréttablaðskassa.
Tilgangur kassanna er meðal annars að
tryggja rétt húseigenda til að afþakka fríblað
og minnka áreiti. Þá er nýtt fyrirkomulag
umhverfisvænna að því leyti að öllum
umframblöðum verður komið til endur-
vinnslu.
Um tvær tegundir kassa er að ræða, til
innanhússnota í verslunum og fjölbýlishúsum
og til nota utanhúss þar sem kassarnir verða
festir á ljósastaura eða húsgafla.
Unnið verður að uppsetningu kassanna á
næstu vikum. Nú þegar hafa rúmlega
hundrað kassar verið settir upp í Garði,
Sandgerði, Vogum, Höfnum, háskólaþorpinu
Keili, Vestmannaeyjum og á Egilsstöðum.
Kassarnir eru settir upp í samvinnu við sveit-
arfélög um allt land þeim að kostnaðarlausu.
Hannes segir það fara eftir landshlutum
hvenær dags blöðin eru komin í kassana.
Flestir geti búist við að fá blöð milli klukkan
sjö og átta á morgnana á meðan aðrir eru
háðir flugi. Hann segir blaðið fara í fyrsta
flug og vera þá komið í kassana milli klukkan
níu og tíu á morgnana.
Þá segir Hannes lítið mál að setja upp
kassa, óski fólk eftir því. „Í raun þarf bara að
hafa samband við okkur hjá Póshúsinu og
kanna hvort við erum á ferð á viðkomandi
svæði.“ - ovd
Unnið að uppsetningu á dagblaðakössum í samvinnu við helstu sveitarfélög:
Fréttablaðskassar settir upp úti á landi
BLAÐAKASSAR Starfsmenn Pósthússins unnu að upp-
setningu Fréttablaðskassa á Egilsstöðum á föstudag-
inn. MYND/EINAR BEN
SVEITARSTJÓRNIR „Hafi eigendur
Selskarðs einhvern tíma átt
beitarrétt þá er hann löngu
fallinn niður fyrir tómlæti. Þar
hefur enginn búskapur verið
stundaður áratugum saman,“
segir Guðmundur Benediktsson,
bæjarlögmaður í Hafnarfirði. Í
tengslum við samninga um
vatnstöku í Kaldárbotnum og
vatnslagnir að fyrirhugaðri
átöppunarverksmiðju í Hafnar-
firði vilja eigendur jarðarinnar
Selskarðs fá hagsmuni sína
viðurkennda. „Búfjárhald og
lausaganga búfjár er óheimil í
lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar
og eigendur Selskarðs eiga engan
lögvarinn rétt á að beita búfé í
upplandi Hafnarfjarðar,“ ítrekar
bæjarlögmaður. - gar
Bæjarlögmaður Hafnarfjarðar:
Hafnar kröfum
um beitarrétt
KALDÁRBOTNAR Eigendur Selskarðs
segja vatnsból Hafnfirðinga á áhrifa-
svæði sínu.