Fréttablaðið - 02.10.2008, Qupperneq 46
34 2. október 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
MAHATMA GANDHI, ÞJÓÐAR-
LEIÐTOGI INDVERJA, FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1869.
Lærðu eins og þú eigir að
lifa eilíflega. Lifðu eins og
þú eigir að deyja á morgun.
Mohandas Mahatma Gand-
hi fór fyrir friðsamlegri baráttu
tugmilljóna Indverja fyrir sjálf-
stæði frá Bretum.
Tólf ár eru liðin frá því að gríðarlegt eldgos
braust upp úr Vatnajökli, milli Bárðarbungu
og Grímsvatna. Gufubólstrar risu í svim-
andi hæð og eldtungur sáust leiftra. Tveim-
ur dögum fyrr höfðu sést merki um gos
undir jöklinum og voru jarðvísindamenn á
tánum. Mikið magn bráðnaði af ís eins og
vænta mátti í þessum hita svo úr varð sig-
ketill er fékk nafnið Gjálp. Úr honum rann
bræðsluvatn yfir til Grímsvatna. Þar safnað-
ist það saman og beið útrásar. Hækkaði yf-
irborð Grímsvatna um níutíu metra á fimm
dögum en eftir það hægar.
Bjuggust jarðvísindamenn við stóru
hlaupi niður Skeiðarársand og var reynt að
verja mannvirki þar, brýr og vegi sem þóttu í mikilli hættu. Hlaupið
lét bíða eftir sér lengur en vænta mátti og voru vísindamenn á vakt-
inni nætur og daga. Leið meira en mánuður þar til hlaupið braust
fram og var það mikið að vöxtum.
ÞETTA GERÐIST: 2. OKTÓBER 1996
Gos braust út í Gjálp
„Markmið samtakanna er í stuttu máli það að skapa fag-
leg tengsl sem efla menntun og undirbúa meðlimi sína í að
starfa á alþjóðasviði,“ segir Eva Margrét Kristinsdóttir um
samtök evrópskra laganema, European Law Students Ass-
ociation, skammstafað ELSA.
Eva Margrét, sem er á öðru ári í lögfræði við Háskólann
í Reykjavík, er ein þeirra sem hafa undirbúið aðalfund Ís-
landsdeildar ELSA. Hann verður í kvöld á Hverfisbarnum í
Reykjavík. „Við teljum mikilvægt fyrir íslenska laganema
og unga lögfræðinga að eiga aðgang að samtökunum og ég
vona að sem flestir mæti,“ segir hún.
Félagar í Evrópusamtökunum eru um 30 þúsund í 200
háskólum en þeir starfa líka með samtökum laganema í
Norður-Ameríku, Japan, Ástralíu, S-Afríku og á Fílabeins-
ströndinni. „ELSA stendur fyrir alls konar rannsóknum og
málþingum um lögfræðileg efni, heimsóknum og stúdenta-
skiptum. Þannig er hægt að fá starfsreynslu í öðrum lönd-
um í gegnum samtökin. Það er þýðingarmikið að vera hluti
af svona stóru tengslaneti og komast í tæri við reynslu og
þekkingu í öðrum ríkjum,” segir Eva Margrét og tilhlökk-
unin leynir sér ekki.
Íslenska félagið skráði sig í Evrópusamtökin 1989 en
hefur ekki verið virkt síðustu árin, að sögn Evu Margrétar.
„Þegar það var stofnað var lögfræði bara kennd í Háskóla
Íslands en nú hafa Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Bif-
röst og Háskólinn á Akureyri bæst við þannig að aðstæð-
ur hafa breyst,“ bendir hún á. „Með endurlífgun félagsins
erum við að skapa samstarfsgrundvöll allra íslenskra laga-
nema, óháð því í hvaða skóla þeir eru. Á Facebook er síða
sem heitir ELSA Iceland sem laganemar geta skoðað. Þeir
fá ekki inngöngu þar í félagið en geta sótt sér upplýsingar.“
gun@frettabladid.is
ELSA: FÉLAG LAGANEMA ENDURVAKIÐ
Opið fólki úr
öllum skólum
LAGANEMINN Eva Margrét Kristinsdóttir hefur brennandi áhuga á
félaginu ELSA Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Guðmundsson
Aflagranda 40,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi, fimmtudaginn
25. september. Útför hans verður frá Fossvogskirkju,
föstudaginn 3. október, kl. 15.00. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Ásgerður Gísladóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir Brynjúlfur Sæmundsson
Gíslína Guðmundsdóttir Haraldur Dungal
Ólöf og Axel, Ragnar, Sigurður Ásar, Hrafn
og langafabörnin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Ásgrímur
Eyfjörð Antonsson
Stafnaseli 4, Reykjavík,
lést sunnudaginn 28. september á krabbameinsdeild
11E. Útför hans fer fram frá Seljakirkju mánudaginn
6. október kl. 13.00.
Hjördís Hjörleifsdóttir
Agnes Eyfjörð Kristinsdóttir Elías Örn Óskarsson
Ástþóra Kristinsdóttir Magnús Eiríksson
Anton Ásgrímur Kristinsson Helga Sveinsdóttir
Hjörleifur Kristinsson
Kristinn Ásgrímur Kristinsson Hrund Grétarsdóttir
Hulda Sjöfn Kristinsdóttir Jón Ólafur Jóhannesson
barnabörn, fjölskyldur og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erla Valdimarsdóttir
frá Ísafirði, Dofraborgum 9, Reykjavík,
lést mánudaginn 29. september á Landspítalanum
í Fossvogi. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík mánudaginn 6. október kl. 15.00.
Sigríður Þórunn, Lára Bylgja
Guðmundur Viðar, Valdimar Lárus
Kristinn Reynir, Sigurður Brynjar
Þórdís Elva, Hjörtur Sævar
Soffía Kristbjörg, Sigurbjörg Stella
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hjörtur Haraldsson
vélstjóri
Kleppsvegi 62, Reykjavík,
lést að heimili sínu laugardaginn 27. september.
Útför fer fram frá Áskirkju föstudaginn 3. október
kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent
á líknarstofnanir.
Sigrún Haraldsdóttir
Elsa Friedlaender
Haraldur Hjartarson Jenny Irene Sörheller
Walter Hjartarson Kristbjörg Steingrímsdóttir
Þorgeir Hjartarson Linda Guðmundsdóttir
Eyþór Hjartarson Klara Hansdóttir
Jónas Hjartarson Dagný Oddsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
90 ára afmæli
á í dag, 2. október,
Halldóra Ólafía
Bjarnadóttir
áður Selfossi, nú Sólvöllum
Eyrarbakka. Hún tekur á móti gestum
í Rauða húsinu Eyrarbakka
sunnudaginn 5. október kl. 15-17.
Halldóra afþakkar blóm og g jafi r.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Bróðir okkar,
Þór Pálsson,
Rangá,
sem andaðist 22. sept. sl. verður jarðsunginn frá
Skarðskirkju Landsveit laugardaginn 4. okt. og
hefst athöfnin kl. 14.00.
Systkinin.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Gísladóttir
frá Hvalsnesi, Borgarholtsbraut 73,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn
4. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Gjafasjóð Hvalsneskirkju, Sparisjóðnum í
Sandgerði sími: 423 8190.
Tómas Grétar Ólason
Margrét Tómasdóttir Matthías Guðm. Pétursson
Anna Guðrún Tómasdóttir Matthías Kjartansson
Guðlaug Þóra Tómasdóttir Daníel Þór Ólason
Magnea Tómasdóttir Pétur Gauti Valgeirsson
ömmubörn og langömmubarn.
Ástkær dóttir okkar, systir,
barnabarn og frænka,
Hrafnhildur Lilja
Georgsdóttir
sem lést 21. september sl. verður jarðsett frá
Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 4. október kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Björgunarsveitina
Tind í Ólafsfirði.
Líney Hrafnsdóttir Georg Páll Kristinsson
Hanna Stella Georgsdóttir Daníel Þór Gunnarsson
Alvilda María Georgsdóttir Heiðar Brynjarsson
Lilja Kristinsdóttir
Kristinn Georgsson
Líney Mist Daníelsdóttir