Fréttablaðið - 02.10.2008, Side 48

Fréttablaðið - 02.10.2008, Side 48
36 2. október 2008 FIMMTUDAGUR NOKKUR ORÐ Sigríður Björg Tómasdóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Augu mín opnuðust fyrir stórmerkilegum hlut í vikunni. Undir lok níunda áratugarins lögðu stórtækir höfundar íslenskra ástarsagna pennann á hilluna og þá dó íslenska ástarsagan. Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk samdi fjölmargar ástarsögur sem eru meðal annars minnisstæðar fyrir snjalla titla á borð við Ráðskona óskast í sveit og Dægurlagasöngkona dregur sig í hlé. Ingibjörg Sigurðardóttir samdi ótal íslenskar ástarsögur sem áttu dyggan hóp lesenda, hennar bækur voru til dæmis alltaf í jólapakka ömmu minnar heitinnar. Í bókum hennar var starfs- fólk heilbrigðisstétta gjarnan í höfuðrullu, læknir í leit að hamingju fann hana í hjúkrunarkonu. En þegar þessar góðu konur hættu að skrifa tók af einhverri ástæðu enginn upp ástarþráðinn sem þó er mikill markaður fyrir hér á landi. Mörg þúsund manns eru áskrifendur að rauðu ástarsögunum sem eru þýddar og seldar nokkrar saman í pakka. Nú þykir ekki fínt og hefur aldrei þótt að lesa dæmigerðar ástarsögur. Fólk gerir það nú samt, eða ég ætti kannski að segja konur, þær hafa haldið þessum menningarkima gangandi og gera líklega enn. Framan af tuttugustu öldinni þótti líka lítið fínt að lesa glæpasögur og íslenskar glæpasögur voru álíka mikil neðanjarðarmenning og ástarsög- urnar, lítið um þær skrifað og illa varðveitt- ar. Eins og allir vita eru þær heldur betur komnar upp á yfirborðið. En ástin er enn neðanjarðar og kviknar ekki á Íslandi því íslenskir höfundar sinna henni ekki. Nægur er efniviðurinn auðvitað, Athafnakona í ástarbáli og Fasteignasali finnur hamingj- una, eru titlar sem mundu örugglega kveikja í lesendum. Nú er bara að vona að andinn komi yfir einhvern snjallan penna, við þurfum ást í kreppunni. Glæpur gegn ástinni Hreyfðu þig ekki, annars skýt ég! Símasölumaður? Það ætla ég að vona. Ég verð að fara að muna hvað mig dreymir. Við erum búin að fita okkur svo mikið fyrir veturinn að við komumst ekki upp í rúmið! Hvað eigum við að gera? Fáum okkur að borða! Við þurfum að ná okkur í meiri krafta. Mamma, ég finn ekki hinn skóinn minn. Hann er nú bara á fætinum á þér Sara. Nújá. Eru einhverjar aðrar skó-ráðgátur sem þarf að ráða fyrir þig? Var ég að fara í skóna eða úr þeim?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.