Fréttablaðið - 17.10.2008, Page 12

Fréttablaðið - 17.10.2008, Page 12
12 17. október 2008 FÖSTUDAGUR BANDARÍKIN Samkvæmt netkosn- ingu tímaritsins Economist myndi Barack Obama vinna yfirburðasig- ur á John McCain, ef íbúar allra ríkja heims fengju að taka þátt í kosningunum. Einungis á Kúbu og í Georgíu hefur McCain fengið atkvæði meirihluta þeirra, sem tekið hafa þátt í netkosningunni til þessa. Í fáeinum ríkjum er mjótt á mununum, en víðast hvar – einnig í Bandaríkjunum – hefur Obama yfirgnæfandi meirihluta. Þótt netkosning tímaritsins sé fremur til gamans gerð en af fullri alvöru, þá gefur hún engu að síður vísbendingar um afstöðu heimsins til frambjóðendanna. - gb Netkosning Economist: Heimurinn kýs Barack Obama EVRÓPUMÁL Sænski stjórnarþing- maðurinn Carl B. Hamilton, sem skrifaði grein í Fréttablaðið fyrr í vikunni þar sem hann skorar á Íslendinga að ganga sem fyrst bæði í ESB og myntbandalag- ið, birti á miðvikudag ítarlegri grein um sama efni í Svenska Dagbladet. Þar segir hann aðra eins kreppu ekki hafa getað skollið á nema vegna alvarlegra mistaka. Því sé það eðlileg krafa að „hausar fjúki – og það ekki bara í bankakerfinu“. Vísar hann þar til ábyrgðar Seðlabankans, FME og íslensku ríkisstjórnarinnar. - aa Sænsk skrif um Íslandskreppu: Eðlileg krafa að hausar fjúki CARL B. HAMILTON FERÐAMÁL Alls fóru tæplega 58 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð á tímabil- inu 1. september til 13. október en á sama tímabili í fyrra voru þeir um 50 þúsund. Þetta kom fram í upplýsingum Ferðamálastofu sem birt var í gær. Ferðamönnum fjölgar frá öllum svæðum nema Norður- Ameríku. Norðurlandabúum fjölgar um 11 prósent, Bretum um tæp 20 prósent og Evrópu- búum um 37 prósent. Mestu munar um 63 prósenta aukningu Þjóðverja og 43 prósenta aukningu Frakka. Samdráttur er hins vegar í brottförum Íslend- inga. Á þessu tímabili fóru 46.600 Íslendingar úr landi en 51.376 þúsund á sama tíma í fyrra. - kdk Erlendum gestum fjölgar: Íslendingar fara minna úr landi SVEITARSTJÓRNIR „Því var haldið mjög á lofti gagnvart sveitarfélög- unum að peningabréf væru mjög örugg ávöxtun og geymsla fyrir peninga,“ segir Ragnheiður Her- geirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar. Sveitarfélagið er með 350 milljónir króna lokaðar inni í peningamark- aðssjóði hjá Landsbankanum. Eyþór Arnalds, oddviti minni- hluta sjálfstæðismanna, sagðist á bæjarráðsfundi í gær telja að brot- ið hafi verið gegn samþykktum bæjarráðs frá í fyrra með því að setja andvirði hlutar Árborgar í Hitaveitu Suðurnesja inn á mark- aðsreikning hjá Landsbankanum í stað þess að greiða skuldir. „Sú ákvörðun að greiða ekki niður skuldir en halda eftir fjármunum að upphæð 350 milljónir inn á pen- ingamarkaðsbréfum gengur gegn samhljóða samþykkt bæjarráðs. Þetta er einfaldlega staðreynd. Það er vonandi fyrir íbúa sveitarfélags- ins að sem mest af þessum fjármun- um endurheimtist,“ bókaði Eyþór á bæjarráðsfundinum í gær. Þorvaldur Guðmundsson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokks, sem á aðild að meirihluta bæjarstjórnar sagði peningamarkaðsbréfin hafa verið rædd á fundum sem Eyþór hafi setið í vor. „Því vekur það undr- un að hann skuli ekki kannast við að sveitarfélagið eigi peningamark- aðsbréf í Landsbanka Íslands,“ bókaði Þorvaldur. Í áðurnefndri einróma samþykkt bæjarráðs frá í fyrra, um ráðstöfun þeirra 730 milljóna sem Árborg fékk fyrir sölu á sínum hlut í Hita- veitu Suðurnesja til Geysis Green Energy, segir að féð eigi að nýta til uppbyggingar og til greiðslu og lág- mörkun skulda sveitarfélagsins. Að sögn Ragnheiðar bæjarstjóra voru upphaflega lagðar um 730 milljónir króna inn á peningamark- aðsreikning um mitt sumar í fyrra og skila góðri ávöxtun. Hluti af fénu hafi síðar verið notaður til fram- kvæmda og skammtímaskuldir hafi verið gerðar upp snemma á þessu ári. Önnur lán hafi ýmist ekki verið hagkvæmt að greiða upp eða það hreinlega ekki verið hægt vegna skilmála þeirra. Ragnheiður hafnar því algerlega að hafa unnið gegn samþykktum bæjarráðsins. Allir bæjarráðsmenn sem fylgst hafi með á fundum hafi vitað um að Árborg ætti fé í pen- ingamarkaðssjóði. „Ef mönnum fannst þetta svona svakalegt áttu þeir að gera vart við það. Það eru allir að reyna að vanda sig að fá sem mest út úr peningun- um fyrir sveitarfélagið,“ segir bæj- arstjórinn sem nú bíður þess að í ljós komi hversu mikið stendur eftir af þeim 350 milljónum sem Árborg átti ennþá í peningamark- aðssjóði. „Það bendir allt til að það verði eitthvert tap en hversu mikið vitum við auðvitað ekki ennþá.“ gar@frettabladid.is Árborg tapar jafnvel 350 milljónum króna Oddviti minnihlutans í Árborg gagnrýnir bæjaryfirvöld fyrir að setja 350 millj- ónir króna í peningamarkaðsbréf en borga ekki skuldir eins og ákveðið var. Bæjarstjórinn segist hafa greitt skuldir sem hagkvæmt hafi verið að gera upp. RAGNHEIÐUR HERGEIRSDÓTTIR EYÞÓR ARNALDS Í SVARTSENGI Um 350 milljónir króna sem eftir voru af and- virði hlutar Árborgar í Hitaveitu Suðurnesja gætu verið gufaðar upp. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HJÁLPSAMUR Íraskur piltur hjálpar félaga sínum í heimasmíðuðum hjóla- stól í Dora-hverfinu í Bagdad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.