Fréttablaðið - 17.10.2008, Síða 16
17. október 2008 FÖSTUDAGUR
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 42
644 -2,24% Velta: 34 milljónir
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI 2,69%
MESTA LÆKKUN
ALFESCA 11,11%
BAKKAVÖR 10,87%
ATORKA 10,00%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,00 -11,11% ... Atorka
0,90 -10,00% ... Bakkavör 5,00 -10,87% ... Eimskipafélagið 0,60
+0,00% ... Exista 4,62 +0,00% ... Icelandair Group 14,70 -1,67%
... Kaupþing 0,00 +0,00% ... Marel Food Systems 70,00 +0,00% ...
SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-Burðarás 7,08 +0,00% ... Össur
82,70 -2,13%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR: 199,9 -0,01%
Þýðingafyrirtæki í Reykja-
vík segir Spron halda tug-
þúsundum evra í gíslingu.
Forstjóri sparisjóðsins telur
málið orka tvímælis.
„Í mínum huga stal Spron fjár-
munum frá Skjali og gerir því
aðför að rekstrinum,“ segir Bogi
Örn Emilsson, framkvæmdastjóri
þýðingafyrirtækisins Skjals.
Fyrirtækið, sem er með um sex-
tíu prósent tekna sinna í erlendri
mynt, var með gjaldeyrisreikning
hjá SPRON en lokaði honum þegar
ljóst var hvert stefndi í gjaldeyr-
ismálum hér í síðustu viku.
Skjal er með tuttugu manna
fyrirtæki hér á landi en með aðskil-
ið fyrirtæki í sama rekstri í Portú-
gal. Bogi stofnaði reikning þar og
beindi viðskiptum fyrirtækisins
þangað. Jafnframt fór hann fram á
að Spron tæki ekki við innborgun-
um frá erlendum aðilum á reikn-
inginn hér auk þess sem erlendir
viðskiptavinir Skjals voru beðnir
um að greiða inn á portúgalska
reikninginn.
Skjali barst bréf frá Spron í
fyrradag. Þar sagði að sparisjóðn-
um hefði borist erlend greiðsla og
var spurt inn á hvaða reikning
ætti að millifæra upphæðina. Tut-
tugu þúsund evrur eru nú inni á
reikningnum en líkur á að þrjátíu
þúsund bætist við innan tíðar.
Spron gaf fjárhæðina upp í krón-
um. „Við sögðum sparisjóðnum að
hann hefði aldrei átt að taka við
greiðslunni en flytja ætti upphæð-
ina á reikninginn okkar í Portú-
gal,“ segir Bogi. Í svari spari-
sjóðsins kom fram að ómögulegt
væri að millifæra fjárhæðina þar
sem gjaldeyrisþurrð sé í landinu.
„Þetta er fáránlegt mál,“ segir
Bogi og bendir á að Spron haldi
fjármununum í gíslingu. Skjal geti
ekki ráðstafað þeim í Portúgal og
varla flutt þá inn á krónureikning
hér vegna rangrar gengisskrán-
ingar. Samkvæmt heimildum
blaðsins hafa önnur fyrirtæki hafi
lent í viðlíka málum í millilanda-
viðskiptum sínum við aðra banka.
„Ég get ekki tjáð mig um ein-
stök mál,“ segir Guðmundur
Hauksson, forstjóri Spron. Hann
telur málið orka tvímælis en bætir
við að gjaldeyrisþurrð sé í landinu.
jonab@markadurinn.is
GUÐMUNDUR HAUKSSON Þýðingafyrir-
tækið Skjal segir Spron ekki geta millifært
erlendar greiðslur inn á reikning í Portúgal
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Spron sakað um stuld
Breska fyrirtækið Equity Special Situations (ESS)
hefur fengið lögbann á sölu hlutabréfa í eigu fyrir-
tækisins sem liggur inni hjá Landsbankanum í Bret-
landi.
ESS er til húsa á Guernsey og skráð á AIM-hliðar-
markaðinn í bresku kauphöllinni. Fyrirtækið er með
langtímalán hjá Landsbankanum og hafði lagt inn
bréf sín í eignastýringarfyrirtækinu Syndicate
Asset Management sem veð. Þegar Landsbankinn
taldi ESS ekki standa við skuldbindingar sínar hóf
það sölu á bréfum Syndicate Asset Management
með þeim afleiðingum að markaðsverðmæti fyrir-
tækisins hrundi. Um svipað leyti fór Landsbankinn
í þrot.
Í tilkynningu ESS til kauphallarinnar bresku segir
að sýnt hafi verið fram á að félagið standi í skilum
og sala Landsbankans því ólögmæt.
Á mánudag í síðustu viku stóð gengi bréfa í
Syndicate Assets Management í 89 pensum á hlut.
Það var komið undir tólf pens á hlut í gær. Það jafn-
gildir 87 prósenta hruni á viku. - jab
Lögbann á sölu bréfa
Rekstur lyfjafyrirtækisins Acta-
vis hefur ekki orðið fyrir barðinu á
yfirstandandi hremmingum
íslensks efnahagslífs, samkvæmt
tilkynningu sem félagið sendi frá
sér í gær.
Þá kemur
fram að ein-
ungis eitt pró-
sent af tekjum
Actavis verði
til hér á landi
og eigi fyrir-
tækið engar
ábyrgðir inni
hjá íslensku
bönkunum. Þá
gerir félagið
upp í evrum og
er því sagt varið gegn falli krón-
unnar.
Novator, félag í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar, stjórnarfor-
manns Actavis, keypti meirihluta
bréfa í fyrirtækinu í fyrrasumar
fyrir 182 milljarða króna. - jab
Actavis í vari
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
Eignarhaldsfélagið Fons á enn
29,26 prósenta hlut í Ticket Travel
Group samkvæmt áréttingu sem
Ticket sendi
frá sér í gær.
Hluturinn var
keyptur af
Northern Tra-
vel Holding í
ágúst síðast-
liðnum.
Félagið
sendi frá sér
tilkynninguna
til að bregðast
við rangfærsl-
um sem borið
hefur á í fréttum.
Ticket er ein af stærstu ferða-
skrifstofum á Norðurlöndunum
með um 470 starfsmenn og árlega
veltu upp á um 76 milljarða króna.
- óká
MATTHÍAS IMSLAND
Matthias er stjórnar-
formaður Ticket.
Fons á enn 29
prósent í Ticket
Umsjón: nánar á visir.is
DeCode, móðurfélag Íslenskrar
erfðagreiningar, vinnur að viða-
mikilli endurskipulagningu með
sölu eigna og fleiri breytingum.
Haft er eftir Kára Stefánssyni,
forstjóra Íslenskrar erfðagrein-
ingar, í tilkynningu að horft sé til
þess að minnka umfang DeCode
og breyta áherslum í rekstrinum.
Hann gat ekki tjáð sig um málið
þegar eftir því var leitað í gær.
Breytingarnar munu ekki langt
á veg komnar. Uppsagnir 60 starfs-
manna í byrjun árs og sala á dótt-
urfyrirtækinu Encode í sumar eru
liður í endurskipulagningunni.
Fjallað verður nánar um skipu-
lagsbreytingarnar á uppgjörs-
fundi DeCode 6. nóvember næst-
komandi.
DeCode tapaði 45 milljónum
dala á fyrri hluta árs sem er tæp-
lega sextán prósenta aukning á
milli ára. Á móti tvöfölduðust
tekjurnar. Þá gerir félagið upp í
Bandaríkjadölum en greiðir um
helmingi starfsmanna sinna laun í
íslenskum krónum.
Handbært fé DeCode nam 49,4
milljónum dala í lok júní sem er
um 50 prósenta lækkun frá ára-
mótum. - jab
STARFSMAÐUR ÍE DeCode vinnur nú að
því að selja eignir og minnka umfang
rekstursins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DeCode stokkað upp
Kaupþing hefur ráðið alþjóðlegu
lögmannsstofuna Grundberg
Mocatta Rakison til að kanna
grundvöll fyrir lögsókn bankans á
hendur breska ríkinu vegna hugs-
anlegrar aðfarar yfirvalda þar
gegn Kaupþingi í Bretlandi fyrir
viku.
Þá hefur lögmaðurinn John Jar-
vis, sem er einn helsti sérfræðing-
ur í bankalöggjöf Bretlands, verið
ráðinn sem ráðgjafi.
Lögfræðistofan mun meðal ann-
ars kanna eignafærslu Singer &
Friedlander, banka Kaupþings í
Bretlandi, til breska bankans ING
Direct. ING hefur flaggað því að
það ætli að kaupa breska sparir-
eikninginn Kaupthing Edge og
Heritable Bank, sem var í eigu
Landsbankans.
Bresku lögfræðingarnir munu
vinna að málinu ásamt Lögmönn-
um Reykjavíkur og ráðgjafar-
fyrirtækinu Reykjavík Economics
ehf.
Ekki náðist í bresku lögfræðing-
ana sem funduðu um málið hér í
fyrradag þegar eftir því var leitað
í gær. - jab
KAUPÞING Breskir lögmenn kanna
grundvöll lögsóknar Kaupþings gegn
breskum yfirvöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kaupþing skoðar lög-
sókn á hendur Bretum