Fréttablaðið - 17.10.2008, Síða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Þórður Örn Kristinsson er heima-
vinnandi húsfaðir meðan hann
undirbýr doktorsnám. Hann er
veiðimaður af lífi og sál og dug-
legur í eldhúsinu.
„Ég elda langoftast á mínu heim-
ili. Það er ágætt skipulag hjá okkur
þar sem ég elda, þríf, tek til, hugsa
um börnin og konan skaffar pen-
inga á meðan. Fer þá ekki á milli
mála að ég er húsbóndinn.“
Þórður ólst upp við veiðar og
segir það forréttindi að geta stund-
að veiðiskap. „Sumir berja kúlu
ofan í holu, aðrir öskra sig hása
yfir boltanum en ég fer að veiða
með félögunum og hundinum.“
Þórður býður lesendum upp á
uppskrift að jólagæs sem hann
segir alla geta eldað. „Fyrst veiði-
félagar mínir geta græjað þessa
uppskrift ættu allir aðrir að geta
það.“ heida@frettabladid.is
Veiðir frekar en að spila golf
Þórður Örn Kristinsson ólst upp við veiðar með pabba sínum bæði á sjó og landi og fer reglulega á
skytterí með félögunum. Hann tekur veiðarnar fram yfir golf eða að horfa á boltann í sjónvarpinu.
1 stk. ung gæs, reytt og
sviðin.
Salt og pipar úr kvörn.
Fylling
2 stk. laukur
2 stk. epli
6 stk. döðlur
1 lúka salthnetur
1 msk. timian
1 msk. salvía (Sage)
1 msk. rósmarín
1 msk. steinselja
½ msk. sellerísalt
6-8 brauðsneiðar
50 g smjör
Meðlæti
4 stórar sætar kartöflur
Smjörklípa
Salt
Sósa er frjálst val. Knorr
villibráða er fín eða
bara bráðið rifsberja-
hlaup. Aðrir vilja eyða
öllu púðrinu í sósu-
gerðina en því nennum
við ekki.
Gatið gæsina með
gaffli og nuddið vel
með salti og pipar.
Sneiðið lauk og epli í
litla bita og rífið brauð-
ið. Bræðið smjörið og
blandið saman við
ásamt öllum kryddjurt-
unum. Steikið á pönnu
í stutta stund og troðið
svo í gæsina. Lokið
gæsinni með seglgarni
eða tannstönglum
og vefjið í álpappír.
Bakað við 160 gráður
í um það bil tvo tíma,
ausið nokkrum sinnum
yfir meðan á eldun
stendur. Síðustu 20
mínúturnar er hitinn
aukinn í 200 gráður og
pappírinn opnaður til
að fá skinnið stökkt.
Kartöflurnar soðnar
þar til þær eru alveg
mjúkar, flysjaðar og
stappaðar með smjöri,
salti og örlítilli mjólk.
JÓLAGÆS ÞÓRÐAR
Einföld uppskrift að jólagæs FYRIR 6
Þórður Örn
Kristinsson er
veiðimaður af lífi
og sál og mjög
hrifinn af villi-
bráð í matinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
LANDSMÓT Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar fer
fram í Ólafsvík um helgina. Markmið mótsins er að
unglingar eigi glaðar og uppbyggjandi stundir saman
og að skapa vettvang fyrir ungt fólk um land allt til að
skiptast á skoðunum og kynnast hvert öðru. Búist er
við um 360 þátttakendum.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
ri
n
g
b
ro
t
Verð 7.750 kr.
Villibráðar-
hlaðborð
16. október - 19. nóvember
Matreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum
heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt
er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í
villibráðarhlaðborði Perlunnar.
Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum
eðalvínum frá Chile og Argentínu.
Gjafabréf Perlun
nar
Góð tækifæris
gjöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 20. nóvember
Tilboð mán.-þri. 6.250 kr. — Verð: 7.250 kr.