Fréttablaðið - 01.11.2008, Qupperneq 4
4 1. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
Einstök bók um mann
sem mætt hefur meiri
mótbyr en gengur og
gerist, en býr þó yfir
fádæma lífsgleði og
baráttuþreki og horfir
ávallt fram á veginn.
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
-lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar
-í senn hugljúf og skemmtileg bók
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
20°
10°
15°
12°
14°
10°
11°
12°
9°
9°
22°
9°
16°
25°
3°
9°
21°
3°
Á MORGUN
Víðast 5-10 m/s
MÁNUDAGUR
5-13 m/s hvassast
norðvestan til
8
6
6
4
5 7
6 5
3
6
SÓL Í DAG, RIGNING
Á MORGUN
Enda þótt víðast sé
bjart í dag skyggir á
að víða blæs hann
hraustlega. Rétt er að
benda á að horfur
eru á hviðukenndu
veðri víða um land,
einkum norðan til
og austan en smám
saman lægir í dag,
síst við NA-ströndina.
Á morgun vex vindur
af suðaustri með
vætu og hlýindum
um mest allt land.
6
4
3
3 3
4
4
6
6
7
-2
7
9
5
5
10
13 10
15
10
5
5
15
18Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
ATVINNUMÁL Launafólk sem semur
um lækkað starfshlutfall við vinnu-
veitanda sinn kemur til með að eiga
rétt á bótum frá ríkinu, samkvæmt
frumvarpi félagsmálaráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra greindi frá því í
erindi á þingi Vinnumálastofnunar
í gær. Í frumvarpinu felst að heim-
ilt verði að greiða fólki tekjutengd-
ar atvinnuleysisbætur lengur en
áður í samræmi við lækkað starfs-
hlutfall; atvinnuleysisbætur vegna
launagreiðslna fyrir hlutastarf
verða ekki felldar niður og áunnin
réttindi starfsfólks verða tryggð.
Að sögn Jóhönnu er tilgangur
frumvarpsins sá að sporna við
frekari uppsögnum; í stað uppsagna
eða launalækkana, semji fyrirtæki
um lækkað starfshlutfall við starfs-
fólk. Á móti greiði Atvinnuleysis-
tryggingasjóður tekjutengdar
atvinnuleysisbætur vegna þess
starfshlutfalls sem skerðist.
Fyrir manneskju með um 315
þúsund krónur í mánaðarlaun
myndi þetta þýða að ef starfshlut-
fallið yrði lækkað úr 100 prósent-
um í 50 prósent héldi launþeginn 85
prósentum af fyrri launum í allt að
hálft ár.
Ríkisstjórnin hefur þegar sam-
þykkt frumvarpið og sent til með-
ferðar þingsins. Jóhanna sagði
kostnaðarmat munu liggja fyrir
eftir helgi. Hún vonar að frumvarp-
ið fái skjóta meðferð á Alþingi og
það komi til framkvæmda sem
fyrst. - bs
Tekjutenging atvinnuleysisbóta lengd úr þremur mánuðum í allt að sex:
Reynt að sporna við uppsögnum
FRUMVARPIÐ KYNNT Jóhanna Sigurðar-
dóttir kynnti hugmyndirnar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SKIPULAGSMÁL Forvígismenn
undirskriftasöfnunar gegn
byggingu slökkvistöðvar í
Elliðaárdal afhentu mótmæla-
bréfin í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gær. Að sögn Bergljótar Rist, eins
forsvarsmanna mótmælendanna,
rituðu 2.300 einstaklingar nafn
sitt á mótmælin. Í Ráðhúsinu hafi
jafnframt verið lesið eftirfarandi
úr bókinni „Elliðaárdalur, land og
saga“: „Skipulag Reykjavíkur er
ávallt í endurskoðun, breytt
viðhorf og nýjar forsendur verða
oft til þess að nýjar hugmyndir
fæðast. Með núverandi skipulagi
Elliðaárdals er þó mörkuð
ákveðin stefna, út frá samþykktri
heildarsýn, sem auðveldar alla
ákvarðanatöku og dregur úr
hættu á að vanhugsaðar skyndi-
ákvarðanir verði að veruleika.“
- gar
Mótmæli gegn slökkvistöð:
Yfir tvö þúsund
skrifuðu undir
MÓTMÆLIN AFHENT Bergljót Rist afhenti
Magnúsi Þór Gylfasyni, aðstoðarmanni
borgarstjóra, undirskriftalistann.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ATVINNUMÁL „Það er ljóst að margir
hafa misst vinnuna um þessi mán-
aðamót. Við fengum engar tilkynn-
ingar um hópuppsagnir í dag (í
gær) en hins vegar hefur lækkun á
launum og starfshlutfalli verið
mjög áberandi,“ segir Gunnar Páll
Pálsson, formaður VR. Hundruð
uppsagnarbréfa voru afhent lands-
mönnum síðustu dagana fyrir
fyrstu eiginlegu kreppumánaða-
mótin. Samkvæmt Vinnumála-
stofnun skiptir tala þeirra sem
fengu uppsagnarbréf í október
þúsundum.
Að sögn Gunnars hefur bygging-
ariðnaðurinn farið verst út úr hóp-
uppsögnum, en hann nefnir einnig
starfsmenn fjármálafyrirtækja og
bílainnflutningsfyrirtækja sem
algeng fórnarlömb uppsagna.
Að sögn Finnbjörns A. Her-
mannssonar, formanns Sambands
iðnfélaga, fékk sambandið tvær til-
kynningar um hópuppsagnir í gær.
Um miðjan dag í gær sagðist hann
áætla að tala starfsmanna í bygg-
ingariðnaðinum sem fengu upp-
sagnarbréf í október sé komin yfir
700. „Þetta eru svakaleg mánaða-
mót í þessum iðnaði. Nú tel ég bara
mínúturnar í mánaðamótin og von-
ast til að þessu fari að ljúka í bili.
Maður heyrir ekki af svona mikl-
um uppsögnum í öðrum greinum,“
segir Finnbjörn.
Spurður um hvað taki við hjá
atvinnulausu fólki í byggingariðn-
aðinum segir hann að sem betur
fer hafi það flest langan uppsagn-
arfrest, eða tvo til þrjá mánuði.
„Þetta er því ekki komið til fram-
kvæmda enn, og þegar það gerist
förum við eins og aðrir á tekju-
tengdar bætur fyrstu þrjá mánuð-
ina, sem eru þó að hámarki 227.000
krónur. Þá taka lágmarksbætur
við, þannig að þetta er ansi mikið
fall fyrir fólk sem hefur verið með
þokkalegar tekjur.“ Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra til-
kynnti í gær að hún hefði sent til-
lögu að lengingu tímabils
tekjutenginga bóta til þingflokka.
Meðal verktakafyrirtækja sem
gripu til hópuppsagna eru Bygg,
sem sagði upp 200 manns, Ris ehf.
og Ístak, sem sögðu upp sextíu
manns hvort fyrirtæki og Klæðn-
ing sem sagði upp fimmtíu starfs-
mönnum.
Uppsagnir gærdagsins tóku
einnig til ýmissa annara atvinnu-
greina. Yfir 20 starfsmenn úr öllum
deildum fjölmiðlafyrirtækisins 365
og 26 starfsmenn Árvakurs fengu
uppsagnarbréf í gær, en áður hafði
Skjárinn sagt upp öllum starfs-
mönnum sjónvarpsstöðvarinnar
Skjás eins.
Iceland Express sagði upp níu
flugfreyjum og Úrval Útsýn til-
kynnti um 50 prósenta lækkun
starfshlutfalls hjá öllum starfs-
mönnum. Þá ætla tölvufyrirtækið
Nýherji og Skipti, móðurfélag Sím-
ans og Mílu, að lækka laun starfs-
fólks um tíu prósent, en áður hafði
meðal annars Mjólkursamsalan
valið sömu leið til þess að freista
þess að komast hjá uppsögnum.
kjartan@frettabladid.is
GENGIÐ 31.10.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,7121
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,05 120,63
194,2 195,14
153,07 153,93
20,555 20,675
17,902 18,008
15,413 15,503
1,2304 1,2376
178,74 179,8
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
UPPSAGNIR Í BYGGINGARIÐNAÐI Áætlað er að yfir 700 starfsmenn byggingariðnað-
arins hafi fengið uppsagnarbréf í október. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON
FINNBJÖRN A.
HERMANNSSON
Þúsundum sagt upp
og launin lækkuð
Hundruðum manna var sagt upp starfi síðustu dagana fyrir mánaðamót og
þúsundir fengu uppsagnarbréf í október. Einnig mikið um lækkanir á launum
og minnkað starfshlutfall. Byggingariðnaðurinn fer verst út úr hópuppsögnum.
Hvað gerir ríkið?
Jón Bjarnason vill vita hvort stjórn-
völd ætli að draga til baka kæru
bankanna á hendur Íbúðalánasjóði til
Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann vill líka
vita hvort ríkisstjórnin ætli að draga til
baka áform sín um uppskiptingu og
hlutafélagavæðingu Íbúðalánasjóðs.
ALÞINGI
NEYTENDUR Tvö olíufyrirtæki
lækkuðu verð í gær.
Bensínorkan lækkaði bensín-
lítrann um fjórar krónur og dísil
um tvær krónur lítrann. Almennt
verð á bensíni er eftir breyting-
arnar 153,10 krónur og á dísil
174,80. Lægsta eldsneytisverð á
Orkustöðvunum er á Dalvegi í
Kópavogi og Kænunni í Hafnar-
firði. Þar er verðið á bensíni
149,10 og á dísil 170,80.
Atlantsolía lækkaði verð á
bensíni um tvær krónur og á
dísil um eina krónu. Algengasta
verð á bensíni hjá Atlantsolíu
verður 155,20 og á dísil 175,90.
- hhs
Atlantsolía og Bensínorkan:
Bensíndropinn
lækkar í verði
STJÓRNMÁL Festa á í lög að í
stjórnum fjármálafyrirtækja
sitji sem næst jafnmargar konur
og karlar, að mati
Steinunnar
Valdísar Óskars-
dóttur og fleiri
þingmanna
Samfylkingarinn-
ar. Frumvarp þess
efnis var lagt
fram á Alþingi í
gær.
Í greinargerð
segir að atburðir
síðustu vikna sýni
að þörf sé á nýrri nálgun og nýrri
hugsun í stjórnun fjármálafyrir-
tækja. Á það er bent að í sam-
ræmi við jafnréttislög beri að
gæta kynjajafnréttis við stjórn-
arkjör í nýju ríkisbönkunum en
Steinunn og meðflutningsmenn
telja eðlilegt að reglan nái til
allra fjármálafyrirtækja. - bþs
Steinunn Valdís Óskarsdóttir:
Vill kynjakvóta
í bankastjórnir
STEINUNN
VALDÍS ÓSKARS-
DÓTTIR
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið dæmdur í sex
mánaða fangelsi fyrir ítrekuð
brot. Hann var sviptur ökurétti
ævilangt og ríkissjóður gerði bíl
hans upptækan. Það er í fyrsta
sinn sem lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu fer fram á
slíkt.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
að stela dekkjum og felgum
undan bíl. Jafnframt fyrir akstur
í níu skipti án ökuréttinda.
Þá hefur hann verið sakfelldur
fyrir að aka bifreið í fjögur skipti
undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna. Loks hefur hann verið
sakfelldur fyrir ölvunarakstur.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi.
- jss
Dæmdur fyrir fjölmörg brot:
Bíll upptækur
til ríkissjóðs