Fréttablaðið - 01.11.2008, Page 50

Fréttablaðið - 01.11.2008, Page 50
34 1. nóvember 2008 LAUGARDAGUR GÍRAFFI LJÓN SEBRAHESTUR FÍLL BJÖRN HREFNA SELUR HÖFRUNGUR FROSKUR API SNÁKUR REFUR BRODDGÖLTUR HUNDUR KÖTTUR Á Á B B B D D D D EE E E E F F F F F F F F FF G G G G G G H H H H H H H I I I I I J J J J K K K K K L LL L L M MM N N N N N N N NN A A AÉ Í Í Í O O O O O Ó Ó Ó P P P Q Q R R R R R R R R R R R R R R R RR S S S S S T T T T T T U U U U U U U U U U Ú Ú V V V X Y Y Ý Ý Þ Þ Þ Æ Æ Æ Ö Ö Ö Ö Ö Ð Á B B B C D D E E F G G G G G G G H H H HH H H H H H H H H II J J J K K K M M M M M É Í Í Í Í O O O O P RR S T T U Ú V V V XX Y Y Ý Z Þ Þ Þ Æ Æ Ö Ö Ð 1. Hver er nýkjörinn forseti Alþýðusambandsins? 2. Hvað heitir nýjasta James Bond- myndin? 3. Hvað mælist verðbólgan nú? 4. Hvað slösuðust margir unglingar í gassprengingu í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík? 5. Hver er fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu? 6. Hvernig lauk landsleik Íslend- inga og Belga í handknattleik? 7. Hver gerði stuttmyndina Auga fyrir auga? 8. Hver leikstýrir leikritinu Utan gátta sem sýnt er í Kassa Þjóðleik- hússins? 9. Hver er lögmaður Færeyja? 10. Hver sagði í aðsendri grein í breska blaðinu Times að stjórnmál hefðu vakið áhuga sinn „vegna þess að stjórnmálamenn virtust ákveðnir í að eyðileggja náttúru Íslands“? 11. Hvaða Íslendingur var beðinn um að afhenda ein verðlaun á bresku BAFTA-hátíð- inni í lok nóvember? 12. Hverjir munu leika aðalhlutverk í lögfræði- dramanu Réttur sem Saga film er að hefja tökur á? 13. Hvaða stjórnmálaflokkur nýtur nú mests fylgis, samkvæmt könnunum Fréttablaðsins og Capacent? 14. Hver var heildaryfirdráttur íslenskra heimila og fyrirtækja í lok ágúst? 15. Hvaða Íslendingur skoraði þrennu í leik Stabæk og Vålerenga, þegar Stabæk varð norskur meistari í fótbolta? Svör: 1. Gylfi Arnbjörnsson 2. Quantum of Solace 3. 15,9% 4. 6 5. Katrín Jónsdóttir 6. Með sigri Íslendinga 40-21 7. Árni Beinteinn Árnason 8. Sigurður Pálsson 9. Kaj Leo Johannesen 10. Björk 11. Magnús Scheving 12. Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir, Magnús Jónsson og Víkingur Kristjánsson 13. Samfylkingin 14. 189,6 milljarðar króna 15. Veigar Páll Gunnarsson FINNDU ORÐIN Orðin geta verið á ská, upp, niður, afturábak eða áfram. AUGNABLIK GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA FRÉTTAGETRAUN VIKUNNAR SELIR SÁTU Á STEINI Sólarlagið var fagurt þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Leyfi maður sér að skella stimplum á heilu þjóðirnar er víst óhætt að segja að Japanar séu hugvitssöm þjóð. Ófáar fréttirnar hafa borist af nýjum uppfinningum þeirra og trauðla finnast mörg heimili hér á landi – og mun víðar – sem ekki búa yfir japönsku hugviti í einhverri mynd. Kannski er það bara ég, en einhvern veginn finnst mér eins og japanskir vísindamenn eyði mestri orku sinni í að smækka alla hluti. Pínulítil sjónvörp, tölvur, bílar, svefnpláss í lestum og jafnvel pínulítil hólf fyrir ösku hinna framliðnu; í milljónasamfélagi virðist allt snúast um að koma sem flestum og flestu fyrir á sem minnstu plássi. Það er þó engan veginn algilt, enda fátt í heiminum algilt síðan Marx gamli var og hét. Þvert á móti eru til dæmi um að Japanar hugsi stórt, svo stórt raunar að varla er nokkur einasta von að ímynda sér fyrir- bærið. Það á við um þróunarverkefni Japönsku geimlyftusamtakanna. Samtökin, í hverjum eru um 50 vísindamenn, vinna nefnilega, eins og nafnið gefur til kynna, að því að koma upp lyftu út í geim. Hugmyndin er að koma upp risastórum gervihnetti fyrir utan gufuhvolf jarðar. Í hann væri tengdur kapall og eftir honum gengi lyfta. Hnötturinn yrði 100 þúsund kílómetra frá jörðu, en til að viðhalda jafnvægi þyrfti kapallinn að ná mun lengra en það. Lengd hans myndi samsvara einum fjórða af vegalengdinni til tunglsins. Lofthæð í venjulegu húsi, að teknu tilliti til þykktar gólfplatna, er 2,9 metrar. Það segir okkur að þessi 100 þúsund kílómetra lyftuferð jafngildi ferð upp um 34 milljónir 482 þúsund 7598 hæðir, gróft námundað. Hugmyndin um geimlyftuna á uppruna sinn í vísindaskáldsögu Arthurs C. Clarke, The Fountains of Paradise. Þetta hefur hingað til verið talið ómögulegt, þar sem kapall af þessari lengd yrði svo þungur að hann slitnaði. Nú hafa vísindamenn hins vegar fundið upp trefjar úr kolefnum sem eru mun sterkari en stál. Enn eru þær aðeins fjórðungur af þeim styrk sem þær þurfa að vera, en vísindamenn vinna að því að styrkja þær. Verkefnið verður kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu í Tókýó í næsta mánuði. Verði hugmyndin að veruleika er talið að geimferðir verði venjulegu fólki færar. Menn skelli sér bara til Japan og taki lyftuna upp á 34.482.759. hæð og sj: Þú ert kominn út í geim! Vonandi mun lyftan verða traustari en margar þær lyftur sem hökta um í heiminum í dag. Mikilvægast er kannski að hún verði hraðskreið- ari. Það er í það minnsta ávísun á kvalafullan dauðdaga, eða ævilanga brjálsemi, að hökta nokkra daga í lyftu út í geim með lyftutónlist Michael Bolton eða Céline Dion í eyrunum. Lyfta upp á 34.482.759. hæð HORFT ÚT Í HEIM Kolbeinn Óttarsson Proppé … Stelpurnar okkar Þær rótburstuðu frænkur sínar frá Írlandi sem áttu engin svör önnur en að væla yfir gaddfreðnum vellinum og kenna þannig árinni um. Nú er íslenska kvennafótboltalandsliðið komið á EM 2009 í Finnlandi – loksins eitthvað til að hlakka til. Áfram stelpur! … Birnu Einarsdóttur Nýja Glitnisbankastýran keypti sér hlutabréf fyrir 184 millur fyrir nokkru. Bréfin hríðféllu í verði og enduðu í núlli. Fyrir mis- tök gengu kaupin aldrei í gegn og Birna þurfti aldrei að borga krónu. Hún hlýt- ur því að prísa sig sæla. Og þar að auki búin að fá eitt feitasta djobb sem býðst nú á dögum. … unnendur IMF Slæm vika fyrir þá sem héldu að þau hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um yrðu góð og almennileg við okkur, háþróað og ríkt lýðræðisríkið, en ekki með nein leið- indi eins og við séum eitthvert þróunarríki innan úr svörtustu Afr- íku. Átján prósent stýrivextir, sem Davíð kynnti með gamalkunnugum grín- tökum, þaggaði snarlega niður í þessu fólki. … sjálfstæðismenn Gamla stórveldið er orðið minna en VG í skoðana- könnunum og verður eflaust enn þá minna ef eng- inn tekur af skarið og gerir það sem öllum er ljóst að þarf að gera. Fyrst þegar það er yfirstaðið má leggj- ast í nauðsynlega naflaskoð- un, endurnýjun og loks játn- ingar og iðrun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.