Fréttablaðið - 01.11.2008, Blaðsíða 56
40 1. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Kristján Jóhannsson syngur með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands á tónleikum í Reykjavík og
Akureyri í kvöld og á þriðjudag. Óþarft er að
kynna tenórinn og hans glæsta feril heima og
erlendis, en hann söng síðast með hljómsveit-
inni fyrir átta árum. Á efnisskrá tónleikanna eru
sígrænar íslenskar söngperlur eftir Karl O. Run-
ólfsson og fleiri og aríur úr óperum eftir Puccini
og Leoncavallo, þar á meðal hin fræga Vesti la
giubba úr óperu þess síðarnefnda, Pagliacci.
Auk söngverkanna verða á efnisskránni karni-
valforleikur eftir Antonín Dvorák, tveir þættir úr
hinni undurfögru leikhústónlist Edvards Griegs
við Pétur Gaut og sjálf fimmta sinfónía Beet-
hovens. Sinfónían er magnaðasta hljómsveitar-
verk allra tíma. Hljómsveitarstjóri er fyrrverandi
aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, Petri Sakari.
Tónleikarnir í kvöld hefjast í Háskólabíói kl.
19.30.
Þriðjudaginn 4. nóvember er síðan röðin
komin að „heimavelli“ Kristjáns, en þá verður
sama efnisskrá leikin í Íþróttahúsi Síðuskóla á
Akureyri kl. 20.00.
Tónleikarnir eru hluti af breytingum sem
gerðar voru á verkefnaskrá hljómsveitarinnar
í kjölfar þess að hætt var við ferð hennar til
Japans. Boðið er upp á þessa
veislu á algeru lágmarks-
verði í ljósi aðstæðna í
þjóðfélaginu. Miðaverð
verður einungis 1.000
kr. Vonast hljómsveitin
til að þessi kjör gefi
öllum kost á að
nota tækifærið
og njóta þessa
sýnishorns af
fegurstu og
áhrifaríkustu
tónlistar
allra tíma.
- pbb
Kristján og Sinfónían í kvöld
> Ekki missa af
Sýningu þeirra Libiu Castro og
Ólafs Ólafssonar í Hafnar-
húsinu en þar sýna þau á
fjórða tug viðtala við ólíka
þjóðfélagsþegna í því skyni að
varpa ljósi á stöðu samfélags
okkar í dag. Sýningin er í A-sal
Hafnarhússins og Libia og
Ólafur hafa þróað sýninguna
frá því hún var opnuð 18.
september og til dagsins í dag
og hafa nú tekið viðtöl við 33
aðila sem sýnd eru í Hafnar-
húsinu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 01. nóvember
➜ Tónleikar
21.00 Svona eru
menn KK spilar
á Draugasetrinu,
Hafnargötu 9,
Stokkseyri.
22.00
Hljómsveitirnar
Nögl, What about
og Reason to
Believe verða með tónleika á Café
Amsterdam, Hafnarstræti 5.
➜ Síðustu Forvöð
Kynjaskepnur Sýning á teikningum
Jóns Baldurs Hlíðberg úr bókinni
Íslenskar kynjaskepnur, lýkur um
helgina. Gerðuberg,
Gerðubergi 3-5.
Opið virka daga
11.-17., helgar
13.-16..
ath kl. 17.00
á morgun verður Carmina Burana
flutt í íþróttahúsinu í Varmahlíð í
Skagafirði. Sex kórar taka þátt undir
stjórn Garðars Cortes. Undirleikarar
eru Guðríður St. Sigurðardóttir og
Kristinn Örn Kristinsson. Slagverks-
sveit er úr Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands. Kórinn verður nær 180
raddir en einsöngvarar eru þau Þóra
Einarsdóttir sópran, Bergþór Pálsson
barítón og Þorgeir J. Andrésson
tenór.
Í dag kl. 15 verður opnuð í
Listasafni Alþýðusambands
Íslands í Ásmundarsal yfir-
litssýning á verkum Gylfa
Gíslasonar, listamanns og
lífskúnstners.
Gylfi Gíslason lést í febrúar 2006
langt fyrir aldur fram aðeins 65
ára að aldri. Sýningin er haldin til
að minnast hans. Gylfi kom fram
á sjónarsviðið á umbrotatímum í
íslenskri myndlist, var með í
SÚM-hópnum sem hóf sýningar-
hald sitt í Ásmundarsal, en kom í
hópinn úr annarri átt.
Gylfi var, eins og Jón Gunnar
Árnason, iðnaðarmaður að mennt,
trésmiður, en hafði frá unga aldri
lifandi og sterkan áhuga á mynd-
list. Hann stundaði nám í Mynd-
listarskólanum í Reykjavík og
hélt sína fyrstu sýningu 1971 en
hafði þá vakið athygli fyrir teikn-
ingar sínar. Gylfi hélt fjölda
einka- og samsýninga frá 1971,
kenndi teikningu, stjórnaði sýn-
ingum og rak gallerí, mynd-
skreytti bækur og blöð og hann-
aði leikmyndir. Hann skrifaði
gagnrýni í dagblöð og annaðist
þáttagerð fyrir útvarp og sjón-
varp ásamt handritaskrifum og
flutti fyrirlestra um íslenska
myndlist. Gylfi var einn af höf-
undum verksins Kjarval sem Nes-
útgáfan gaf út á síðasta ári og
fékk Íslensku bókmenntaverð-
launin 2005 í flokki fræðirita og
bóka almenns efnis.
Gylfi var áberandi í miðborgar-
lífi Reykjavíkur, einn af föstum
póstum í því mannlífi sem þar
þreifst. Það var hægt að ganga að
honum vísum á sínum stað í kaffi-
húsalífinu og hann bjó í borginni
miðri, í Skólastræti ofan við gömlu
Bakarabrekkuna. Hann hafði enda
alið aldur sinn allan á þeim slóð-
um, fjölfróður um líf borgarinnar,
ávallt vakandi um velferð samfé-
lagsins sem ól hann. Myndlist hans
bar líka pólitískan blæ, sem kemur
skýrt fram í frægri endurvinnslu
hans á verki Kjarvals hér að ofan,
en Kjarval var sá meistari sem
hann dáði mest.
Á sýningunni eru sýndar teikn-
ingar, þrívíddarverk, myndskreyt-
ingar og málverk. Í dag kemur út
vegleg bók um listamanninn með
texta eftir Silju Aðalsteinsdóttur
og Hjálmar Sveinsson. Sýningar-
stjóri er Guðmundur Oddur Magn-
ússon (Goddur). Þeir félagar,
Hjámar og Goddur verða með sýn-
ingarleiðsögn næstu sunnudaga kl.
15 en safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 11 til 17 og sýn-
ingunni lýkur 23. nóvember. - pbb
Yfirlitssýning um Gylfa
➜ Opið Hús
Listamenn og hönnuðir á
Korpúlfsstöðum opna vinnustofur
sínar fyrir gesti og gangandi kl. 13.-17.
➜ Málþing
12.00 Grunngildi og verðmæta-
mat ReykjavíkurAkademían,
Skálholtsskóli og tímaritið Glíman
standa fyrir málþingi í húsnæði
Akademíunnar, Hringbraut 121.
Aðgangur ókeypis.
➜ Tónlist
14.00 Heklumót 2008 Átta karla-
kórar koma fram á Heklumóti sem
haldið verður í Íþróttahöllinni á
Húsavík, Stóragarði 8.
Íslenska óperan
hefur frestað
sviðsetningu á
Ástardrykknum eftir
Donisetti sem til stóð
að frumsýna í
febrúar. „Við verðum
að skera niður eins og
allir aðrir og frestum
frumsýningu,
mögulega fram á
haust. Við höfum
gengið frá málinu við
alla og horfur eru á
að þeir verði lausir í
sviðsetninguna síðar
á árinu,“ segir Stefán
Baldursson óperu-
stjóri. „Við erum með
fast framlag frá
ríkinu og allur
kostnaður er að
hækka. Við höfum
þegar samið við
starfsfólk um lægra
starfshlutfall næstu
mánuði. Frá okkur
hafa farið sterkir
styrktaraðilar sem
voru í burðarliðnum
sem bætir ekki
stöðuna.“
Önnur verkefni verða á dagskrá: tvö kvöld helguð Schubert eru
fram undan, Malarastúlkan fagra og Vetrarferðin, í báðum
tilvikum meira en venjulegir tónleikar. Og svo er Janis 27 sýnd
fyrir fullu húsi einu sinni í viku.
Ástardrykknum frestað
LEIKLIST Stefán Baldursson óperustjóri sker niður.
MYNDLIST Endurvinnsla Gylfa á Fjallamjólk eftir Kjarval.
17.00 Suðrænir tónar, blær að
austan og gamli Bach Ögmundur
Þór Jóhannesson heldur gítar-
tónleika í Salnum, Hamraborg
6, Kópavogi. Sigrún og Ólöf
Einarsdætur sýna gler- og textílverk
í andyrinu á undan tónleikunum.
Húsið opnar kl. 15.00.
➜ Ráðstefna
Lífleikniráðstefna
Menntavísindasvið HÍ og
Siðfræðistofnun standa fyrir ráð-
stefnu um lífsleikni í skólum fyrir
kennara á öllum skólastigum og
annað áhugafólk. Ráðstefnan fer
fram í húsakynnum Menntasviðs í
Stakkahlíð (áður Kennaraháskólinn),
kl. 10.15-16.00. Aðgangur er ókeypis.
➜ Myndlist
Vinnustofumyndir Elfar Guðni
Þórðarson er með yfirlitssýningu
á verkum sínum í Svarta-kletti,
sýningarsal í Menningarverstöðinni,
Stokkseyri. Sýningin er opin daglega
frá 14.00-18.00.
Glætan Haraldur Jónsson sýnir
í SuðSuðVestri, Hafnargötu 22,
Reykjanesbæ. Opið lau. og sun.
13.00-17.00.
➜ Blús
Blús- og jazzhátíð Akraness stendur
yfir í Bíóhöllinni, Vesturgötu 27, um
helgina.
21.00 Blúskvöld Fram koma The
Devil´s Train, Magnús, Ferlegheit, og
Landsliðið.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Stundum er nútímadansinn erfiður
áhorfs. Kona ráfar um gólfið og
stynur reglulega í míkrafón. Maður
vaknar ber á dýnu og stamar
nokkra grófa brandara í míkrafón.
Þriðji dansarinn fer í fjórgang
gegnum ósamstillt ráp hinna
tveggja þar sem ensk dægurlög eru
túlkuð í söng og dansi í mismun-
andi gervum. Þannig var nær
klukkutíma nýr dans, Private
dancer, sem frumsýndur var á
stóra sviði Borgarleikhússins á
fimmtudagskvöld. Hann var sýni-
lega sprottinn úr spuna þar sem
Margrét Sara gerði sitt, Sveinbjörg
Þórhalls sitt og pilturinn föngulegi
sitt. Og efnið var að sjálfsögðu sam-
skiptaskortur mannsins.
Það var út af fyrir sig gaman að
sjá dansarana í þessu rými: sviðið
opið fram í sal, rétt eins og Kjartan
Ragnarsson hugsaði sér fyrir svið-
setningu á lokaþætti Heimsljóss
þar sem salurinn væri jökullinn.
Hér var brunatjaldið notað með
áhrifaríkum hætti, hljóðkerfið var
gott og hljóðþátturinn spennandi.
Eina manneskjan sem var áhuga-
verð á sviðinu var Sveinbjörg, lík-
ast til vegna þess að félagar hennar
voru ekki áhugaverðir fyrir fimm-
aur.
Panik Productions kann vel að
vera tríó eða dúó sem á sér bjarta
framtíð í styrkjakerfinu og hugsan-
lega einhverja framtíð á fundi við
áhorfendur en á fimmtudag voru
viðtökur með því daufasta sem
maður hefur heyrt lengi – undrar
mann ekki. Páll Baldvin Baldvinsson
Panik á gólfi
LEIKLIST Sveinbjörg Þórhallsdóttir bar af
í tilraunasýningu Panik.
LEIKLIST
Private Dancer
eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur,
Jared Gradinger og Sveinbjörgu
Þórhallsdóttur
Leikmynd og búningar: Una Stígs-
dóttir, Malcolm James og Paul Todd
Tónlist: David Kiers. Lýsing: Þórður
Orri Pétursson og Reiner Eisenbraun
Leikarar: Margrét Sara Guðjónsdóttir,
Jared Gradinger og Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir
★
Lítilla sanda, lítilla sæva