Fréttablaðið - 01.11.2008, Qupperneq 70
54 1. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. plat, 6. tveir eins, 8. næra, 9.
trjátegund, 11. bogi, 12. fáni, 14. svall,
16. átt, 17. lítill sopi, 18. mál, 20.
holskrúfa, 21. ókyrrð.
LÓÐRÉTT
1. viðlag, 3. samtök, 4. dimmgrár, 5.
krá, 7. andsvar, 10. óvild, 13. hola, 15.
málmur, 16. hlóðir, 19. kusk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gabb, 6. tt, 8. ala, 9. eik,
11. ýr, 12. flagg, 14. slark, 16. sv, 17.
tár, 18. tal, 20. ró, 21. órói.
LÓÐRÉTT: 1. stef, 3. aa, 4. blýgrár,
5. bar, 7. tilsvar, 10. kal, 13. gat, 15.
króm, 16. stó, 19. ló.
„Þetta eru fjörutíu manns. Tvær
áhafnir. Já, það er allt í volli
þarna í Rússlandi. Og kominn
tími til að gefa þeim að éta bless-
uðum. Ég hlýt að fá prik fyrir
þetta hjá Pútín,“ segir Ásgeir Þór
Davíðsson – betur þekktur sem
súlukóngurinn Geiri á Gold-
finger.
Fréttablaðið greindi frá því að
áhöfn á tveimur rússneskum tog-
urum, sem liggja við festar í
Hafnarfjarðarhöfn, eru stranda-
glópar á Íslandi. Þeim berast ekki
laun frá Rússlandi. Þeir hafa nú
verið í Hafnarfirði í þrjár vikur
eftir fimm mánaða karfatúr. Og
eru að vonum æfir út í útgerðina
Mary time Star. „Við erum fastir
hér og eina dægradvölin er að
eigra um bæinn,“ segir Eduard
Demidovich, þriðji stýrimaður á
togaranum Karachavaro sem
gerir út frá Kaliningrad.
Geiri á Goldfinger, sem er sér-
stakur vinur Rússlands og á
meðal annars rússneska konu, sá
í hendi sér að við svo búið mátti
ekki standa. „Ég finn til með
þessum sjómönnum. Maður þekk-
ir það hvernig er að vera blankur
sjómaður í erlendum höfnum.
Þar sem einmanaleikinn hellist
yfir mann,“ segir Geiri sem sjálf-
ur var sjóari og farmaður í
tuttugu ár áður en hann sneri sér
að veitingarekstri. Geiri segist
vel aflögufær og blæs á kreppuna.
„Engin kreppa hjá mér.“ Og hann
ætlar að gera vel við rússnesku
vini sína. Býður þeim upp á hlað-
borð og bjór með á sínum eigin
stað Steak’n Play. Þar er hann
með meistarakokk, Alex frá Kan-
ada, sem eldað hefur fyrir sjálfa
Elísabetu Englandsdrottningu.
Og góðvinur Geira, sjálfur Sverr-
ir Stormsker, ætlar að leika dinn-
ertónlist fyrir rússnesku stranda-
glópana og skemmta þeim með
rammíslenskum íslenskum sjó-
mannalögum eftir sjálfan sig.
Ekki er laust við að greina megi,
í gegnum góðvildina, að Geiri sjái
sér leik á borði. Og vilji styrkja
enn tengsl sín við Rússland.
„Já, þeir eru að fara að lána
okkur fullt af peningum. Er það
búið? Nei, nei, Björgóflur hringdi
sjálfur í Pútín. Sem er persónu-
legur vinur þeirra Björgólfs-
feðga. Eða, ég veit ekki betur.“
jakob@frettabladid.is
GEIRI Á GOLDFINGER: HLÝT AÐ FÁ PRIK FYRIR ÞETTA HJÁ PÚTÍN
Súlukóngur býður fjörutíu
rússneskum sjóurum í mat
GEIRI OG RÚSSARNIR Þeir tóku honum fagnandi Rússarnir, hinum gjafmilda veitingamanni, þegar hann mætti niður á kæja í
Hafnarfirði og bauð þeim í dinner. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson
Aldur: 34.
Starf: Fræðslu-
stjóri KSÍ og
landsliðsþjálfari.
Fjölskylda:
Eiginkonan
heitir Íris Björk
Eysteinsdóttir og
þau eiga þriggja
ára dóttur,
Emblu Björg.
Foreldrar: Eyj-
ólfur Þór Georgs-
son blikksmiðameistari og Halldóra
Ólafsdóttir skrifstofukona.
Búseta: Fagraþing, Kópavogi.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta
sem komst í úrslit á EM er liðið sigraði
Íra.
„Þetta var heldur óskemmtileg
uppákoma og ég varð eiginlega
hvumsa. Enda nýbúinn að reyna að
blása á þær sögur að Íslendingar
yrðu fyrir aðkasti erlendis,“ segir
Róbert Marshall, aðstoðarmaður
samgöngumálaráðherra.
Hann og kona hans, Brynhildur
Ólafsdóttir, voru að leggja af stað
heim til Íslands núna í vikunni frá
Heathrow-flugvellinum í London
þegar þau afhentu landamæraverði
vegabréf sín. Þegar landamæra-
vörðurinn sá frá hvaða landi þau
komu breyttist tónninn hjá honum
heldur betur. „Hann spurði hvort
við ynnum fyrir íslenska banka.
Þegar við þögðum sagði hann að
ef svo væri myndum við sennilega
ekki segja frá því,“ útskýrir
Róbert. Landamæravörðurinn lét
síðan dæluna ganga áfram. „Hann
sagði að ef við værum að vinna í
banka skyldum við skila honum
aftur peningunum sem við skulduð-
um honum.“
Róbert segist vera eldri en
tvævetur í þessum málum og hann
hafi ekki kippt sér upp við þessar
aðfinnslur frá landamæraverðin-
um. „Ég hef verið í pólitík og
fjölmiðlum þar sem svona lagað er
nánast daglegt brauð. En ég óska
þess ekki að samlandar mínir fái
svona móttökur,“ segir Róbert sem
lét það vera sitt fyrsta verk að fara
inn á heimasíðu Heathrow-flug-
vallarins.
Þar fann hann síðan vettvang til
að koma kvörtun sinni á framfæri.
„Ég skrifaði langt og ítarlegt bréf.“
Róbert hvetur jafnframt aðra
Íslendinga til að láta svona ekki
yfir sig ganga heldur eigi þeir að
rétta úr sér og byrsta sig til baka.
„Þetta er auðvitað bara fráleit
hegðun.“ - fgg
Þórhallur Gunnarsson segir að
RÚV muni kappkosta við að halda
dampi í framleiðslu á leiknu inn-
lendu efni. Fréttablaðið greindi
frá því í gær að fyrirtæki
Björgólfs Guðmundssonar, Ólafs-
fell, gæti ekki staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart fram-
leiðslufyrirtækinu Pegasus.
Hafði Ólafsfell skuldbundið sig
til að styrkja spennuþáttaröðina
Hamarinn um 25 milljónir sam-
kvæmt samkomulagi fyrirtækis-
ins og RÚV en hafði einungis
greitt átta.
Fjölmargir kvikmyndagerðar-
menn höfðu sett sig í samband
við Þórhall í gær og lýst yfir
áhyggjum sínum af stöðu mála.
„Við erum með fjölmörg verk-
efni í vinnslu, svo þarf bara að
athuga hvort okkur takist að fjár-
magna það.
Við eins og aðrir vitum ekkert í
hvaða stöðu við erum. Það eru
einfaldlega svo margir póstar
sem eru ófyrirséðir, meðal ann-
ars þátttaka annarra erlendra
sjónvarpsstöðva, sjóða og fé af
hinum frjálsa markaði.“
Þórhallur segir að RÚV eins og
önnur fyrirtæki verði að fara í
aðhaldsaðgerðir. Fram undan séu
tveir af vinsælustu dagskrárlið-
um Sjónvarpsins; Gettu betur og
Eurovision. Báðum þessum við-
burðum var gert hátt undir höfði
í fyrra en verða væntanlega
smærri í sniðum nú.
Þórhallur útilokar ekki að færa
báðar keppnirnar inn í sjónvarps-
húsið sjálft. „Slík ráðstöfun ætti
ekkert að rýra skemmtanagildi
þáttanna og sjónvarpsáhorfend-
ur ættu svo sem ekki að finna
mikinn mun. En þetta hefði eðli-
lega þau áhrif að umstangið yrði
minna og færri áhorfendur
kæmust að.“ - fgg
ÓVISSA Að sögn Þórhalls er
algerlega óvíst um ákveðna
pósta; fjármagn frá erlendum
sjónvarpsstöðvum, sjóðum
og fé af hinum frjálsa mark-
aði.
ÓSÁTTUR Róbert Marshall lét
hegðun landamæravarðarins
ekki yfir sig ganga og skrifaði
langt og ítarlegt bréf á kvörtun-
arsíðu Heathrow-flugvallarins.
Miklar áhyggjur af stöðu kvikmyndagerðar
Róbert Marshall áreittur á Heathrow
Einhver dáðasti leikari landsins,
Hilmir Snær Guðnason,
fór nokkra túra í haust á
línuveiðar. Honum líkaði
sjómennskan vel og
fann ekki til sjóveiki.
Hilmir Snær er nú
kominn í land enda
er nú bitist um
hvert pláss – en
næsta verkefni
er að leika í
mynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar,
Mamma Gógó, en
fjárhagsáætlun miðar
við að þar sé um 190
milljóna króna mynd.
Aðalhlutverkið er í
höndum Kristbjarg-
ar Kjeld.
Pétur Már Ólafs-
son og þeir hjá forlaginu Bjarti-
Veröld eru „kátir“ með að hafa
hitt óvart naglann á höfuðið með
útgáfu bókarinnar „Segðu skilið
við þunglyndið“ sem kom út fyrir
skömmu. Ekki óraði þá fyrir þeim
efnahagshremmingum sem biðu
þjóðarinnar þegar þeir ákváðu að
gefa út þetta ágæta rit en nú haga
aðstæður málum svo að miklum
mun meiri eftirspurn er eftir þessari
bók en gera mátti ráð fyrir.
Nokkuð er um að fólk
hringi í forlagið,
panti sér bókina
og segi um leið
forlagsfólki frá því
hvernig veruleikinn
sé nú orðinn dap-
urlegur og grár,
og leggist illa
í sig.
Einhverjir helstu forsprakkar Nýrra
tíma eru þau Orri Dýrason í Sigur
Rós og Lukka Sigurðardóttir
og því vakti það athygli glöggra
að þau teljast nú ekki lengur
meðal aðstandenda samtakanna
eða hreyfingarinnar samkvæmt
heimasíðu hennar. Nýr er hins
vegar listamaðurinn Jón
Sæmundur en
ekki er innganga
hans talin
tengjast
brotthvarfi
Orra og
Lukku hið
minnsta.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8.
1 Dóra María Lárusdóttir.
2 Magnús Pétursson.
3 Fimm.
í s k ó k a s s a
www.skokassar.net
t i l J ó l a ...
7 d a g a r