Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 16
16 7. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR Mikil ólga er í baklandi Sjálfstæðisflokksins vegna andstöðu formanns við að- ild að Evrópusambandinu. Formaður og varaformaður eru ekki samstiga. Helm- ingur sjálfstæðismanna styður aðild samkvæmt könnunum. Ólíkar áherslur formanns og vara- formanns Sjálfstæðisflokksins varðandi Evrópumál hafa vakið athygli. Þótt segja megi að ekki sé um grundvallarmun að ræða, er þó ljóst að Þorgerður Katrín er mun opnari fyrir samstarfi – og jafnvel inngöngu – í ESB en Geir. Oft hefur verið sagt að Sjálf- stæðisflokkurinn sé samsettur úr mörgum smærri flokkum sem beri gæfu til að halda saman í kosning- um. Það hafi orðið til þess að flokk- urinn hefur verið stærstur í gegn- um tíðina; mun stærri en systurflokkar hans á Norðurlönd- um. Saga flokksins sýnir þó ólíkar áherslur allt frá stofnun. Stjórnarsáttmáli Ólík afstaða ríkisstjórnarflokk- anna gagnvart ESB var ljós fyrir kosningar. Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um skipan nefndar til að kanna Evrópumálin. Svo segir: „Skýrsla Evrópunefndar verði grundvöllur nánari athugunar á því hvernig hagsmunum Íslend- inga verði í framtíðinni best borg- ið gagnvart Evrópusambandinu.“ Stefna Sjálfstæðisflokksins kemur skýrt fram í samþykkt síð- asta landsfundar. Vísað hefur verið í hana og stjórnarsáttmálann um að ekki standi til að sækja um aðild að ESB á þessu kjörtímabili. Ljóst er hins vegar að margir greiddu þessari ályktun atkvæði gegn eigin sannfæringu. Innan atvinnulífsins hefur lengi verið þrýst á um aðild að ESB. „Líklegast er að þrýstingurinn komi frá atvinnulífinu og þing- flokkurinn hlýði kallinu þaðan. Ég tel litlar líkur á að þingflokkurinn hafi frumkvæði að breytingum á Evrópustefnunni,“ sagði einn heimildamaður Fréttablaðsins. Kreppan Ýmis ummæli Þorgerðar Katrínar benda þó til að þingmenn séu nú opnari fyrir Evrópusambandsaðild en áður. Kreppan hafi beint sjónum manna til Evrópu. Í grein í Fréttablaðinu 12. októ- ber sagði hún að Íslendingar hefðu komist frá mörgum áföllum ef þeir hefðu átt aðild að ESB. „Hitt er ljóst að við sjálfstæðismenn höfum ávallt sagt að stefna okkar eigi að ráðast af köldu mati á því hvar og hvernig hagsmunum Íslands er best borgið til lengri tíma. Umhverfið er nú breytt, forsendur hafa breyst. Breyttar forsendur kalla á endurnýjað hagsmuna- mat.“ Þrátt fyrir að talað sé um Geir og Þorgerði sem tvo póla er raunin sú að forsætisráðherra er mun opnari í Evrópumálum en hann hefur áður verið og sumar yfirlýs- ingar hans hefðu þótt sæta tíðind- um við aðrar kringumstæður. Á opnum fundi í Valhöll 17. maí sagðist hann ekki vilja ganga í Evr- ópusambandið. „Við þurfum ekki að vera með minnimáttarkennd yfir að vera ekki í Evrópusam- bandinu.“ Nýverið hefur hann hins vegar sagt að hann sé tilbúinn til að skoða aðild Íslands að ESB; þó alls ekki fyrr en kreppunni slotar. Þingflokkurinn Þorgerður Katrín hefur með ummælum sínum markað sér stöðu sem leiðtogi Evrópusinna í flokkn- um. Bjarni Benediktsson opnaði einnig meira en áður á ESB-aðild í Vikulokunum á RÚV fyrir nokkru. Þau tvö eru framtíðarforystumenn í flokknum. Þær Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Guðfinna Bjarnadóttir eru tald- ar fylgja Þorgerði og Bjarna að málum. Þá hafa þeir Ármann Kr. Ólafsson og Kristján Þór Júlíusson einnig verið orðaðir við þá skoðun. Þeir eiga hins vegar báðir rætur í sjávarbyggðum og -útvegi og hafa ekki orðað stuðning sinn. Í því ljósi eru ummæli Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á ársfundi LÍÚ fyrir skemmstu athyglisverð. Þar sagði hann aðstæður hafa ger- breyst hér á landi. „Þjóðfélagið okkar er orðið býsna ólíkt því sem það var fyrr á þessu ári. Þær for- sendur sem við gáfum okkur í Evr- ópuumræðunni fyrr meir, eru ein- faldlega ekki til staðar lengur, á því verðum við að átta okkur og umræðan verður að ná yfir víð- tækara svið en gjaldmiðilinn einan,“ sagði ráðherra. Þingmenn flokksins eru orðvar- ir. „Menn eru mjög varir um sig og opna ekki fyrir mikla umræðu um Evrópusambandið. Menn halda sig fast við flokkslínuna, sem er lands- fundarsamþykktin,“ segir heimild- armaður innan þingflokks Sam- fylkingarinnar. Heimildarmaður úr baklandi Sjálfstæðisflokksins segir hins vegar að Evrópusambandsaðild njóti töluverðs fylgis innan þing- flokksins. „Menn eru bara vanir því að opinbera ekki ágreininginn. Nú er staðan hins vegar þannig að flokkurinn á það á hættu að þjóðin fari langt fram úr honum ef hann ætlar að draga lappirnar í þessu máli.“ Baklandið Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi haft mikinn stuðning í atvinnulíf- inu. Þar á bæ eru menn fylgjandi ESB og hafa talað fyrir því um nokkra hríð. Heimildarmaður úr atvinnulífinu sagði að enn ríkti stefna Davíðs innan flokksins um að halda einni óbreyttri ESB-stefnu út á við. „Davíð gat bætt atvinnurekend- um upp óhagræðið af því að vera í ESB með hagstæðu skattaum- hverfi og ýmsum ívilnunum. Sú stefna hefur beðið algert skipbrot í þeirri efnahagskreppu sem nú gengur yfir. Þessi hugmynd um að halda hópnum saman, þetta er bara búið. Það þýðir ekkert að vísa í stjórnarsáttmálann.“ Ljóst er að sjávarútvegurinn er ekki fylgjandi aðild að ESB. For- ysta LÍÚ hefur mjög gagnrýnt fiskveiðistefnu sambandsins og varað við aðild. Þetta er samhljóða skoðun útvegsmanna, sem hafa varað við erlendu eignarhaldi í sjávarútvegi. Vægi sjávarútvegs- ins hafði minnkað jafnt og þétt undanfarin ár, en í efnahagsástand- inu nú hefur það aukist til muna. Evran Peningastjórnun Seðlabankans og staða gjaldeyrismála hefur einnig valdið deilum innan flokksins. Þor- gerður Katrín kallaði lengi vel eftir lækkun stýrivaxta Seðlabank- ans á meðan Geir hefur varið stefnuna. Þá sagði Ragnheiður Rík- harðsdóttir í grein í Morgunblað- inu á þriðjudag að skipta ætti um stjórn Seðlabankans. Staða krónunnar er mönnum eðlilega hugleikin nú. Árni Helga- son, framkvæmdastjóri þing- flokksins, skrifaði á vefritið Deigl- una að nú yrði að skipta um gjaldmiðil. „Við getum því tæplega litið framhjá upptöku annars gjald- miðils lengur og til þess að ná þeirri breytingu í gegn getum við ekki útilokað neinar leiðir, þar með talið aðild að Evrópusambandinu, þótt aðra kosti eigi auðvitað að skoða líka.“ Klofningur? Stefna Sjálfstæðisflokksins í Evr- ópumálum er enn sú sama. Fjöl- margir sem Fréttablaðið ræddi við sögðust halda að Geir óttaðist að kljúfa flokkinn ef frá henni yrði hvikað. Þrátt fyrir að margir óttist það, telja sumir að því verði þá ein- faldlega að taka. „Ef hann klofnar, þá klofnar hann bara. Það mun koma að því að meirihluti sjálfstæðismanna telur rétt að ganga í ESB. Menn verða að átta sig á því að við höfum ekki tíma til að bíða eftir landsfundi 2009. Fyrir jól, eða í síðasta lagi um áramót, verður að liggja fyrir hvaða kúrs menn ætla að taka í þessum efnum.“ „Ef ég ætti að veðja á annað hvort mundi ég veðja að flokkur- inn tæki upp jákvæða stefnu gagn- vart ESB. Hvenær er hins vegar allt annar handleggur,“ sagði annar heimildarmaður úr atvinnulífinu. Samfylkingarmaður sem rætt var við sagðist halda að ríkisstjórn- arsamstarfið flýtti fyrir ákvarð- anaferlinu. „Flokkurinn verður einfaldlega að fara að hugsa sinn gang. Tónninn í Vinstri grænum er að breytast og með þeim og Fram- sókn væri hægt að ná samstöðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ætti að sækja um aðild. Þá stæði Sjálfstæðisflokkur einn utan stjórnar.“ Hvort þetta er raunhæft mat á ástandi í öðrum flokkum skal ósagt látið. Það er hins vegar ljóst að mikil ólga er innan Sjálfstæðis- flokksins og æ meiri þrýstingur er á að breyta um kúrs í Evrópumál- um. Hvort það þýði klofning er allt annað mál. FRÉTTASKÝRING: Sjálfstæðisflokkurinn Evrópumálin valda ólgu í flokknum Í SÁTT OG SAMLYNDI Vel fór á með nýkjörnum formanni og varaformanni Sjálf- stæðisflokksins á landsfundi 2005. Ólíkar áherslur þeirra í Evrópumálum nú hafa gefið vangaveltum um klofning flokksins byr undir báða vængi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÉTTASKÝRING KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ kolbeinn@frettabladid.is Sjálfstæðisflokkurinn telur aðild að ESB ekki þjóna hagsmunum íslensku þjóðarinnar eins og málum er háttað. Mikilvægt er að sífellt sé í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi Evrópuríkja. Áfram skal unnið að gerð tvíhliða samninga um fríverslun við önnur ríki og rækt lögð við eflingu ábatasamra viðskiptatengsla um allan heim. LANDSFUNDARSAMÞYKKT Staða körfuknattleiks á Íslandi hefur verið í umræðunni upp á síðkastið vegna fjárhagsörð- ugleika margra félaga og brotthvarfs erlendra leik- manna úr liðum sem keppa á Íslandsmót- inu. ■ Hvenær hóf körfu- knattleikur göngu sína hér á landi? Körfuknattleikur eins og hann er leik- inn í dag náði fótfestu á þremur stöðum hér á landi á árunum 1946 til 1950, á Laugarvatni, Í Reykjavík og á Keflavíkur- flugvelli. Fyrsta Íslands- mótið fór fram í Háloga- landi í Reykjavík vorið 1952. Aðeins var keppt í meistaraflokki karla og tóku fimm lið þátt; Íþróttafélag Keflavíkurflug- vallar, íFK, sem bar sigur úr býtum, ÍR, ÍS, Ármann og Körfuknattleiksfélagið Gosi. Árið eftir varð Ármann fyrsti Íslandsmeistarinn í kvennaflokki eftir sigur á ÍR í úrslitaleik, sem jafnframt var eini leikur mótsins. ■ Hvenær hófu útlend- ingar að leika með íslenskum félögum? Fyrstu útlendingarnir komu inn í deildina keppnistíma- bilið 1975 til 1976. Það voru þeir Jimmy Rogers, framherji sem varð Íslandsmeistari með Ármanni þetta tímabil. og Curtis Carter, miðherji hjá KR. Þessir tveir leikmenn slógust eftirminnilega í lok viðureignar Ármanns og KR í Laugardalshöllinni í desem- ber 1975 og fengu báðir eins leiks bann fyrir vikið. „Upp- gjöri toppliðanna lauk með hnefaleikum svertingjanna“ sló Dagblaðið upp í risafyrir- sögn daginn eftir. Bandaríski bakvörðurinn, Danny Shouse, vann það afrek að skora 100 stig fyrir Ármann gegn Skallagrími í næstefstu deild í desember 1979, fyrir daga þriggja stiga reglunnar. Decarsta Webster, sem breytti nafni sínu í Ívar þegar hann varð íslenskur ríkisborgari, varð fyrsti þeldökki maðurinn til að keppa með A-landsliði fyrir Íslands hönd í janúar árið 1984. Þegar Sovétmaðurinn Anatolíj Kovtoun og Bandaríkjamaðurinn Jonathan Bow léku saman með KR í Evrópuleik gegn Hemel frá Englandi árið 1989 var það í fyrsta skipti sem leikmenn frá þessum tveimur löndum voru saman í liði í Evr- ópukeppni, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðlega körfuknattleikssambandinu, FIBA. ■ Hvaða lið hafa reynst sigur- sælust? ÍR hefur oftast unnið Íslandsmótið í meistaraflokki karla, eða fimmtán sinnum, síðast árið 1997. Í kvennaflokki hefur KR vinningin með þrettán sigra. Árið 2001 var Pétur Guðmundsson, sem meðal annars lék með Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs í banda- rísku NBA-deildinni, kosinn leikmaður aldarinnar í karlaflokki, en Anna María Sveinsdóttir í kvennaflokki. Helsta heimild: Leikni framar líkams- burðum: Saga körfuknattleiks á Íslandi í hálfa öld eftir Skapta Hallgrímsson. FBL-GREINING: ÍSLENSKUR KÖRFUKNATTLEIKUR Vallarstarfsmenn fyrstu meistararnir Þjóðfélagið okkar er orðið býsna ólíkt því sem það var fyrr á þessu ári. Þær forsendur sem við gáfum okkur í Evrópuumræðunni fyrr meir, eru einfaldlega ekki til staðar lengur, á því verðum við að átta okkur og umræðan verður að ná yfir víðtækara svið en gjaldmiðilinn einan. EINAR K. GUÐFINNSSON Á ÁRSFUNDI LÍÚ MANNAMÓT „Land og heimili – samfélagsumræður á mannamáli“ var yfirskrift fundar hjá foreldrafélagi Melaskóla sem haldinn var á Háskólatorgi Háskóla Íslands í fyrrakvöld. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hagfræðiprófessor- inn Gylfi Zoëga og fjöl- skylduráðgjafinn Hafliði Kristinsson héldu erindi og einnig var boðið upp á pall- borðsumræður og umræður á sal. Erindi forseta Íslands fjallaði um mikilvægi bjart- sýni á erfiðum tímum. Gylfi Zoëga fjallaði um atburði síðustu vikna í efnahagslíf- inu og Hafliði Kristinsson beindi sjónum að stöðu fjöl- skyldunnar í samfélaginu. - kg Foreldrafélag Melaskóla: Forsetinn á foreldrafundi GÓÐIR GESTIR Ólafur Ragnar Grímsson, Gylfi Zoëga og Hafliði Kristins- son fluttu erindi á fundi foreldrafélags Melaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.