Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 54
34 7. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÁNÆGÐ MEÐ BÍTLALEIK
Yoko Ono, ekkja Johns
Lennon, er ánægð með að
Bítlarnir hafi samþykkt að
taka þátt í nýjum Rock Band-
tölvuleik, sem kemur út í lok
næsta árs. „Þegar svo margt
ungt fólk hefur áhuga á
Bítlunum verður nýr kafli
skrifaður í sögu hljómvseit-
arinnar,“ sagði Yoko.
„Kannski fara krakkarnir að
búa sjálfir til tónlist í stað þess
að hlusta bara á hana.“
Leikstjórinn Steven Spielberg
syrgir mjög rithöfundinn
Michael Crichton, sem samdi
skáldsögurnar Jurassic Park og
The Lost World sem Spielberg
kvikmyndaði við frábærar und-
irtektir. Chricton lést á þriðju-
daginn úr krabbameini 66 ára að
aldri.
„Hæfileikar Michaels voru
ennþá umfangsmeiri en hans
eigin risaeðlur í Jurassic Park,“
sagði Spielberg. „Hann var best-
ur í því að blanda saman vísind-
um og stórum málefnum og í
hans meðförum var það trúverð-
ugt að risaeðlur gengu um jörð-
ina á nýjan leik. Michael var
rólynd sál sem notaði hina áber-
andi hlið sína í skáldsögur sínar.
Það mun engum takast að fylla
skarð hans.“
Crichton, sem fæddist í Chi-
cago, samdi sínar fyrstu bækur
á meðan hann var í læknanámi
í Harvard. Sama ár og hann
útskrifaðist, 1969, kom út
fyrsta metsölubók hans, The
Andromeda Strain.
Sú bók var kvikmynduð rétt
eins og aðrar bækur hans á
borð við Congo, Rising Sun og
Disclosure. Chrichton samdi
einnig handritið að myndinni
Twister, auk þess sem hann var
höfundur læknaþáttanna ER
sem njóta ennþá mikilla vin-
sælda. Vann hann til fjölda
Emmy-verðlauna fyrir
þættina.
Spielberg syrgir Crichton
MICHAEL CRICHTON
Rithöfundurinn heims-
frægi lést úr krabba-
meini, 66 ára gamall.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES.
Fjórða plata Singapore Sling er
komin út og heitir Perversity,
Desperation and Death,
Öfuguggaháttur, örvænting og
dauði. „Þetta eru þau þrjú atriði
sem hressa mig alltaf við, sama
hvað á bjátar,“ segir Henrik
Björnsson, söngvari og gítarleik-
ari hljómsveitarinnar. „Það er allt
búið að vera svo svart, neikvætt
og ömurlegt, en mér hefur aldrei
liðið betur. Ég lifi á neikvæðri
orku.“
Ellefu lög eru á nýju plötunni,
öll frumsamin. „Þessi plata er
töluvert nýrri en hinar plöturnar
okkar, en að öðru leiti finnst mér
asnalegt að ég sé að tjá mig
eitthvað um hana,“ segir Henrik.
Best er auðvitað að drífa sig á
útgáfutónleikana, sem verða á
Grand Rokk í kvöld og hefjast
upp úr kl. 22. Ný bráðefnilega
hljómsveit, Kid Twist, hitar upp
og hljómsveitin Reykjavík verður
með gjörning. Það kostar þúsund
kall inn. - drg
Neikvæð
orka hressir
SINGAPORE SLING Spilar á Grand Rokk.
STEVEN SPIEL-
BERG Leikstjór-
inn kvikmynd-
aði tvær af
sögum Michaels
Crichton, Jurassic
Park og The Lost
World.
Kreppan hefur ýmsar
aukaverkanir. Ein þeirra er
að hljómsveitin Þokkabót
hefur búið til nýjan texta
við vinsælasta lag sitt,
„Litlir kassar“. Núna heitir
það „Tómir kassar“ og er á
leið í spilun.
„Ég sá á netinu að áttundi áratugur-
inn væri að koma aftur. Að hér yrði
óðaverðbólga, við í stríði við Breta
og Abba og Villi Vill vinsælasta
poppið. Þá hugsaði ég með mér að
kannski yrði Þokkabót bara vinsæl
aftur, enda var þetta okkar tíma-
bili. Þá fór ég að hugsa um alla
þessa tómu kassa í tómum bönkum
fullum af dingaling,“ segir Ingólfur
Steinsson, einn Þokkabótar-manna.
Hljómsveitin gerði fjórar plötur á
áttunda áratugnum, þar á meðal
Fráfærur, sem jafnan er talið meist-
araverk bandsins. Mest spilaða
lagið með bandinu er þó „Litlir
kassar“, íslensk útgáfa af vinsæl-
um slagara Petes Seeger.
„Diskóið fór langt með að drepa
bandið á sínum tíma, en pönkið
gekk endanlega frá því,“ segir
Ingólfur. „Okkar vinstri sinnaða
þjóðlaga-progg varð alveg úr takti
við stemninguna í pönkinu. Núna
hafa tímarnir hins vegar breyst í
einu vetfangi og það er komin
stemning sem passar okkur vel. Ég
meina, við áttum meira að segja
nokkur lög á safnplötunni „Í
kreppu“ á sínum tíma.“
Eins og margir horfði Ingólfur
upp á góðærið í forundran. „Maður
botnaði ekkert í því hvað sumir
voru rosalega sniðugir og ríkir og
alltaf að græða og græða. Það þótti
ekkert sniðugt að gagnrýna þetta.
Nú er hins vegar sannleikurinn að
koma í ljós og þá getur maður
komið og sagt: Við höfðum rétt
fyrir okkur! Svona svipað og
Hannes Hólmsteinn gat gert þegar
kommúnisminn féll.“
Þokkabót hefur komið fram
annað slagið undanfarin ár, en um
eiginlegt „kombakk“ hefur ekki
verið að ræða. Ingólfur útilokar þó
ekkert í því sambandi: „Kannski
verðum við bara að byrja aftur á
fullu til þess einfaldlega að eiga
fyrir salti í grautinn og komast ein-
staka sinnum út í búð!“
drgunni@frettabladid.is
Litlir kassar orðn-
ir tómir kassar
ÞOKKABÓT Á ÆFINGU Í HAUST Gylfi, Halldór, Ingólfur og Magnús spila „Nýríki Nonni“.
TÓMIR KASSAR
Tómir kassar í tómum banka
tómir kassar af dingalingaling,
tómir kassar, tómir kassar,
tómir kassar, allir eins.
Einn á hausnum, annar valtur,
þriðji skuldsettur og fjórði gjald-
fallinn,
allir galtómir af dingalinga
enda eru þeir ei til neins.
Og í bönkunum bankastjórar,
hafa milljónir á mánuði
en enda allir með tóma kassa
tóma kassa, alla eins.
Og ungu mennirnir fara í útrás
í einkaþotum og stunda viðskipti
en tapa öllu í tóma kassa,
tóma kassa og ei til neins.
Þeir stunda sólböð og sigla á
skútum
og fara í kappakstur í kringum
jörðina.
Og fá sér allir fínar hallir,
fyrir fé sem var aldrei til.
Og litlu börnin byrja í skóla
og fara síðan beint í bankana
og taka til við að tæma kassa
og út úr því fara allir eins.
Tómir kassar, þrotakassar,
tómir kassar af dingalingaling,
tómir kassar, tómir kassar
tómir kassar, ei til neins.
Tómir kassar, í tómum banka
um tíma fyllast af okkar pening-
um,
en verða að sjálfsögðu seldir aftur
svo að allt verði aftur eins.
Ingólfur Steinsson/ Halldór Gunnarsson
Stórdansleikur aðeins þessa einu helgi
í tilefni að 50 ára starfsafmæli sextettsins.
Sjóræningjar, leyniblek og
pappírsskutlur, kofar og kassa-
bílar, vatnsbombur, orrustur
og einstæð hreystiverk.
Stappfull bók af fróðleik
og skemmtun fyrir stráka
á öllum aldri.
bönnuð stelpum!