Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 36
10 föstudagur 7. nóvember
tíðin
✽ heima og heiman
LÍKAMI SÁLAR Guðrún Harpa Örvarsdóttir lista-
kona opnar sýninguna Líkami sálar í sal Rope Yoga-
setursins við Engjateig á morgun, þar sem hún sýnir
verk sem hún málar og sker í gler, myndir af nöktum
líkömum. Opnunin hefst klukkan 15.
VESTRIÐ EINA Björn Thors og Þröstur Leó fara
á kostum í Vestrinu eina sem er frumsýnt í Borgarleik-
húsinu í kvöld. Höfundur verksins er Martin McDon-
agh, en fyrri uppsetningar hans hafa fengið góðar við-
tökur. Skelltu þér í leikhús og sjáðu alvöru gamanverk.
TOPP 10
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona
MÁLVERK SEM PABBI MÁLAÐI og
foreldrar mínir gáfu mér í útskriftar-
gjöf þegar ég útskrifaðist sem leik-
kona.
KRAKKARNIR MÍNIR gáfu mér þessa eðal
íslensku og hlýju húfu í jólagjöf í fyrra.
ÉG FÆ ALDREI LEIÐ á
þessum diski með Eagles.
KJÓLL eftir Gusto frá Barcelona.
EIN AF FYRSTU JÓLAGJÖFUNUM
frá mömmu og pabba.
TOPP
10
ILMVATNIÐ DUNE
frá Christian Dior.
KEYPTI MÉR þennan
Ikona í Viliníus.
BASSI sem ég spila á með Heimilistónum.ÉG VEIT að steinninn
úr hringnum er týnd-
ur, samt er hann mér
mjög mikilvægur því
mamma mín heitin
gekk með hann
daglega.
ÍGULKER, steinar og krossfiskar.
MORGUNMATURINN: Bláberja-
múffa, kremkaka með bleiku, þykku
kremi eða annað dýrindisbakkelsi
sem rennur ljúflega niður með úr-
valskaffi og ævintýralega
góðri bók á teppi í ein-
hverjum almennings-
garði. (Um vetur koma
hægindastólar á kaffi-
húsi í staðinn fyrir al-
menningsgarð.)
SKYNDIBITINN: Mest fyrir
að detta inn í Sainsbury’s og kasta
mér á einhverja tilbúna rétti sem má
þar finna í tonnavís.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Þar sem
ég elska skapbráða kokkinn
Gordon Ramsay verð ég
að nefna veitingastað-
inn hans í borginni. Það
er reyndar nákvæm-
lega ekkert rómó við
þann stað eða kokk-
inn skapbráða ef út í
það er farið.
LÍKAMSRÆKTIN: Fer
fram utandyra á
iðandi stræt-
um borgar-
innar í formi
göngu. Hér á
afar illa við
að tala um
sveittar
líkamsræktarstöðvar eða Lundúnar-
laugarnar sem eru stútfullar af klór.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ:
Þegar þú fattar að allir staðirnir
sem þú tengir helst við London eins
og Oxford Street, London Eye og
China Town eru síst þeir staðir innan
borgar markanna sem fá hjartað til
að slá örar og þig til að trúa frekar á
gæði lífsins.
BEST VIÐ BORGINA: Breskur
hreimur innfæddra og andrúmsloftið
sem gerir mig svo glaða.
UPPÁHALDSVERSLUNIN: Allar
bókabúðirnar þar sem er hægt að
eyða heilu dögunum í og auðvit-
að Hamley’s. Síðan eru antík-
markaðir og klikkaða Cam-
den-stemningin eitthvað
sem ég tékka allt-
af á þegar huga þarf að
verslun.
AFÞREYINGIN: Almenni-
legt heimapartí einhvers
staðar í borginni er ídeal.
Síðan eru leikhús-
in alltaf mér að
skapi sem og
viðvera í al-
mennings-
görðum og
á strætun-
um.
LONDON
Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs
Það fer varla á milli mála hver stóra
systir Monicu Cruz er, enda líkjast þær
Penelope Cruz hvor annarri óneitan-
lega. Monica vakti athygli þegar
hún kynnti nýjan bol fyrir Mango-
Fero-samtökin í Mango-versl-
uninni í Madríd á dögunum.
Þar mætti hún með dökka
augnmálningu í seventís-
stíl, töff tjásulega klipp-
ingu og síðan topp.
Monica er menntuð leik-
kona og dansari, auk þess sem
hún hefur starfað sem fyrirsæta.
Aðeins þriggja ára aldursmunur er
á þeim systrum, en Monica er 31 árs
og Penelope 33 ára. Þær eiga einnig
bróðurinn Eduardo sem er 23 ára og
hóf tónlistarferil sinn sem söngvari
fyrir tveimur árum.
Mónica Cruz Sánchez vekur athygli:
Líkist stóru systur
Töff augnmálning og klipping
Monica Cruz var glæsileg við kynn-
ingu á nýjum bol í versluninni Mango í
Madríd á dögunum.
Vön fyrirsæta
Monica Cruz er
menntuð leik-
kona og dansari
auk þess að hafa
starfað sem fyrir-
sæta um árabil.
BORGIN
mín
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Árangur fer eftir gæðum
Gott fyrir ræktina og mikið álag.
Spirulina inniheldur mikið af blaðgrænu
og glyccogen, því meira glycogen sem er til
staðar í líkamanum við æfingar því betri árangur.
Blaðgræna eykur súrefnisflutning í blóðinu. Ef
Spirulina er tekið inn 1/2 tíma fyrir æfingar
eða annað álag gefur það aukið þrek, úthald
og einbeitingu.
Dregur úr pirringi, sleni og sætindaþörf, truflar
ekki svefn. Gæðastaðall ISO9001, ISO1401.
29 vítamín og steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega
GLA fitusýrur · SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni.
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
V
o
ttað
100 % lífræ
nt
www.celsus.is