Fréttablaðið - 07.11.2008, Blaðsíða 56
36 7. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
16
14
14
L
L
QUANTUM OF SOLACE kl. 6 - 8 - 9 - 10.10 - 11.20
QUARANTINE kl. 6
12
16
QUANTUM OF SOLACE kl. 4- 5.30- 6.30- 9-10.30 -11.20
QUANTUM OF SOLACE LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
QUARANTINE kl. 10.10
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.40 - 8 - 10.20
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 3.45
LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
10
L
14
16
16
L
QUANTUM OF SOLACE kl. 6 - 8.30 - 11
WHERE IN THE WORLD IS OSAMA BIN LADEN kl. 6 - 8 - 10
THE WOMEN kl. 5.30 - 8
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 10.15
MAX PAYNE kl. 8 - 10.15
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
14
16
L
16
QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 8 - 10.20
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAX PAYNE kl. 10.15
HOUSE BUNNY kl. 5.50 - 8
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
KOMIN Í BÍÓ
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍKKRINGLUNNI
HOW TO LOSE... kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
HOW TO LOSE... kl. 8 - 10:20 VIP
RESCUE DAWN kl. 8 - 10:30 16
FERÐIN TIL TUNGLSINS 3D kl. 4(3D) - 6(3D) L
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 3:30 - 5 - 6 - 8:30 L
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 12
EAGLE EYE kl. 5:40 VIP
SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 12
NIGHTS IN RODANTHE kl. 3:40 síð sýn L
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 3:40 L
RESCUE DAWN kl. 5:50 - 8 - 10:30 16
HOW TO LOSE FRIENDS... kl. 3:30 - 8 - 10:30 12
FERÐIN TIL TUNGLSINS 3D kl. 4(3D) L
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 3:40D - 5:50D L
EAGLE EYE kl. 10:20D 12
SEX DRIVE kl. 8:20 12
JOURNEY 3D kl. 5:50(3D) L
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 L
EAGLE EYE kl. 10 16
BANGKOK DANGEROUS kl. 10 16
NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 L
HAPPY GO LUCKY kl. 8 L
QUANTUM OF SOLACE kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 L
MY BEST FRIEND’S GIRL kl. 8 12
EAGLE EYE kl. 10:20 12
JAMES BOND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40 L
THE HOUSE BUNNY kl. 8 L
MAX PAYNE kl. 10:10 16
SparBíó 550kr
Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR
MEÐ APPELSÍNUGULU
- bara lúxus
Sími: 553 2075
QUANTUM OF SOLACE kl. 5, 7.30 og 10 - POWER 16
QUARANTINE kl. 8 og 10 16
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 10 12
LUKKU LÁKI kl. 4 L
MAMMA MIA kl. 4, 6 og 8 L
M Y N D O G H L J Ó Ð
TEKJUHÆSTA MYND ALLRA
TÍIMA Á ÍSLANDI
ATH! 650 kr.
POWERSÝNINGKL. 10:00DIGITAL MYND OG HLJÓÐ
Alls ekki fyrir viðkvæma!
Daniel Craig snýr aftur sem njósn-
ari hennar hátignar, James Bond, í
Quantum of Solace, og tekur
myndin við þar sem áhorfendur
voru skildir eftir í Casino Royale,
fyrir rúmum tveimur árum. Mark-
ar það fyrsta skiptið í 60 ára sögu
Bond-myndanna þar sem um beint
framhald er að ræða.
Eftir dapurt tímabil var Bond
endurreistur í Casino Royale til að
uppfylla kröfur nýrra bíófara og
áhugamanna. Nýr leikari var ráð-
inn í hlutverkið og var áhersla
lögð á sterkan og góðan söguþráð,
sem og hasaratriði í takt við
Bourne-myndirnar, en það má
segja að þær hafi tekið hasar-
myndir á æðra plan. Þessi áætlun
aðstandenda svínvirkaði og var
útkoman ein besta Bond-myndin
frá upphafi sem skaut öðrum
hasarmyndum ref fyrir rass.
Leikstjórinn Marc Forster fékk
það erfiða hlutverk að gera beint
framhald af kvikmynd sem hann
leikstýrði ekki, en hann hefur áður
leikstýrt myndum á borð við
Stranger Than Fiction og The Kite
Runner. Forster þreytir hér frum-
raun sína sem hasarleikstjóri og
leysir hann það vel af hendi. Opn-
unaratriði myndarinnar er sann-
kölluð sprengja sem ýtir manni á
ystu brún sætisins. Og það má
segja það sama um restina af
hasaratriðunum.
Handrit myndarinnar er ólíkt
því sem búast mætti við af Bond-
mynd en er á réttum nótum miðað
við endann á Casino Royale. Í raun
og veru snýst söguþráður mynd-
arinnar um að Bond nái fram
hefndum. Skúrkurinn í myndinni
er jarðbundnari en áhorfendur
þekkja úr fyrri myndum sem á
eflaust eftir að slá einhverja út af
laginu, en er í takt við myndina. Í
byrjun myndarinnar eru samtök
kynnt til sögunnar sem Mr. White
(úr endinum á Casino Royale) er
meðlimur í og er Quantum of Sol-
ace einungis undirbúningur fyrir
það sem koma skal.
Það verður ekki frá Craig tekið
að hann stendur sig frábærlega í
hlutverki Bonds og er ekki fjarri
lagi að hann sé eftirlætis Bond-
leikarinn minn ásamt Sean Conn-
ery. Angist og reiði skín í gegn hjá
Craig og er þróun persónunnar
rökrétt og jaðra aðgerðir hans við
að vera réttlætanlegar. Leit Bonds
að sálarró með því að svala hefnd-
arþorsta sínum er ný nálgun á
þessa elskuðu og dáðu persónu.
Frakkinn Mathieu Amalric er
góður í hlutverki skúrksins Dom-
inic Greenes. Líkt og La Chiffre úr
Casino Royale er Greene rólegur
og yfirvegaður undir álagi, sem
gæðir hann vissum sjúkleika og
siðblindu.
Casino Royale setti markið hátt,
ef ekki of hátt en þrátt fyrir það
reynist Quantum of Solace vera
verðugt framhald. Þessi nýju og
persónulegri kynni af Bond eru
áhugaverð og forvitnilegt verður
að sjá hvert það leiðir áhorfendur
í næstu mynd. Quantum of Solace
er frábær viðbót við lengstu kvik-
myndaseríu allra tíma og gefur
nýlegum hasarmyndum ekkert
eftir. Vignir Jón Vignisson - Topp5.is
James Bond í hefndarhug
KVIKMYNDIR
Quantum of Solace
Leikstjóri: Marc Forster. Aðalhlut-
verk: Daniel Craig.
★★★★
Rökrétt framhald af Casino Royale.
Daniel Craig er frábær í hlutverki
njósnarans sem er í hefndarhug.
Mér fannst fyrsta plata Sprengju-
hallarinnar, Tímarnir okkar,
ferskasta plata síðasta árs. Hljóm-
sveitin skoppaði inn á völlinn,
spilandi hressandi og gáfulegt
popp, syngjandi fína texta á
íslensku um eitthvað sem „skiptir
máli“. Í staðinn fyrir að hanga yfir
næstu plötu með ritstíflu og væl,
eins og alltof algengt er meðal
poppara, tóku þeir Bítlana á þetta
og mæta nú upplitsdjarfir með
næstum því klukkutímalanga
plötu númer tvö.
Fyrir utan viðbragðsflýtinn og
titillagið, sem er alltof líkt „Hey
Jude“, má finna frekari samsvör-
un við snillingana frá Liverpool.
Eftir að plötur Bítlanna fóru að
verða verulega góðar frá og með
Rubber Soul, voru þær fjölbreytt-
ar og lögin alls konar. Margir
halda að gæði felist í að plötur séu
„heilsteyptar“ (les: öll lögin hljóma
nánast eins), en ég, Bítlarnir og
Sprengjuhöllin blásum á svoleiðis
rugl. Því fleiri stílar og stefnur,
tilraunir og leit, því betra. Og
Sprengjuhöllin stendur í skilum.
Fimmtán lög, takk fyrir. Kannski
ekki öll algjör snilld, en fjölmörg
sem „húkka biggtæm“ og maður
er farinn að raula undir eins.
Að öðrum ólöstuðum er Snorri
Helgason aðalsprauta Hallarinn-
ar. Hann semur flest lögin og suma
textana. Snorri er enginn stór-
söngvari, heldur notalegur og
vænn eins og pabbi hans og jafn-
vel Villi Vill. Úr sarpi hans hrjóta
hér ófá gullkornin. „Vegurinn“ er
nánast hrottalega grípandi, hið
Stranglers-lega „Reykjafjarðar-
mein“ er fullkomið í látleysi sínu,
„Týnda mín“ er upplífgandi stuð-
lag og tilvalið næsta lag „í spilun“
og „Á Skólavörðuholti“ er val-
hoppandi gleðipopp þar sem Spil-
verkið svífur yfir vötnum eins og
vill gerast þegar popparar fjalla
um nánasta umhverfi sitt. Aðrir
meðlimir fá breik og rúmlega það.
Atli Bollason hljómborðsleikari á
frábært lag, „Deus, Bóas og/eða
kjarninn“ og Georg bassaleikari á
tvö góð, hið áleitna popplag „Kjart-
an nr. 26“ og vangalagið í lokin.
Bergi Ebba bregst bogalistin í
„Sumar í Múla“, sem mistök voru
að setja í spilun í sumar enda fullt
af betri lögum á plötunni, en nær
dampi á ný í tregafulla sagnabálk-
inum „Konkordíu“. Þá verður að
nefna „Með seríos í skálinni við
smælum endalaust“, þar sem leið-
beinandi stuðsöngur Bergs nær
nýjum hæðum í sniðugheitum.
Lagið hefði þó líklega orðið enn
betra ef maður skildi hvað er verið
að syngja um.
Með upptökumanninum Valgeiri
Sigurðssyni lágu strákarnir yfir
hljómnum. Strokhljóðfæraleikar-
ar og alls konar gúmmilaði sullast
í púkkinu. Stundum brestur á með
Disney- og Mercury Rev-legum
sándveggjum, en þegar sá gállinn
er á bandinu fær einfaldleikinn
bara að njóta sín.
Sprengjuhallaraðdáendur þurfa
ekki að hafa áhyggjur. Þetta er fín
plata. Flest lögin góð og pakkning-
arnar veglegar. Ég býst við plötu á
sama tíma að ári. Hún verður jafn-
vel enn betri. Dr. Gunni
Gáfupopp fyrir gleðifólk
TÓNLIST
Bestu kveðjur
Sprengjuhöllin
★★★★
Sprengjuhallaraðdáendur þurfa ekki
að hafa áhyggjur. Þetta er fín plata.
SPRENGJUHÖLLIN Plata númer tvö kemur út í dag og stendur vel fyrir sínu.
M
YN
D
/JÓ
I K
JA
R
TA
N
S