Fréttablaðið - 08.11.2008, Side 33
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég er að gera dálítið mjög
skemmtilegt um helgina,“ segir
Heiða með tilhlökkun í rómnum.
„Síðdegis í dag er ég að spila og
syngja í Byggðasafninu á Eyrar-
bakka. Hún Kristín Einarsdóttir
þjóðfræðingur er þar með erindi
sem heitir Þau minna á fjallavötn-
in fagurblá og snýst um þróun
íslenskra dægurlaga frá 1950 til
okkar daga. Hvernig samfélagið
speglast í textunum. Hverjar
vonir og þrár söguhetjanna eru og
hver staða konunnar er í því sam-
hengi. Ég flyt tóndæmi inn á milli.
Við höfum verið með svona dag-
skrá áður og það er mjög skemmti-
legt.
Svo hélt ég, þangað til rétt áðan,
að ég væri að fara í enn skemmti-
legri viðburð á morgun en nú var
ég að frétta að hann yrði ekki fyrr
en á mánudag. Það er pólitískur
fundur í Vestmannaeyjum með
vinstri grænum þar sem Stein-
grímur J. og fleiri fara yfir stöð-
una í þjóðfélaginu og fjalla um
leiðir til úrbóta. Þar verð ég að
spila og syngja baráttulög. Mér
finnst það vera það minnsta sem
ég get gert. Reyndar er ekkert
nýtilkomið að ég blandi mér í bar-
áttuna því lengi hef ég látið til mín
heyra. Það þarf ekki kreppu til. Ég
var búin að átta mig áður en góð-
ærið hvarf.“
Morgundaginn býst Heiða við
að taka afar rólega með manni og
barni, meðal annars til að safna
kröftum fyrir átökin á mánudag.
Skyldi hún ætla með Herjólfi til
Eyja? „Ég veit ekki enn hvort við
siglum eða fljúgum. Kannski fer
það eftir veðri.“
gun@frettabladid.is
Ekkert nýtilkomið að ég
blandi mér í baráttuna
Alltaf er eitthvað um að vera í kringum Ragnheiði Eiríksdóttur, sem oft er nefnd Heiða og kennd við
Unun. Helgin fram undan er þar engin undantekning. Hún var fús til að afhjúpa planið.
„Ég var búin að átta mig áður en góðærið hvarf,“ segir söngkonan Heiða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BETRA NÁM býður upp á alhliða ráðgjöf varðandi lestur og
nám. Auk ráðgjafar vegna lestrarörðugleika eru í boði námskeið
sem ætlað er að gera nám léttara, hnitmiðaðra og fljótlegra. Allari
nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.betranam.is. Þar
er líka að finna alls kyns fróðleik.
Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Maður Lifandi, Yggdrasill, Fjarðakaup
Lífsins lind í Hagkaup, Hagkaup Smáralind, Lyfja, Lyfjaval, Krónan,
Blómaval, Nóatún Hafnarfirði og Heilsuhornið Akureyri.
Vegna einstakra gæða nýtur SOLARAY
sívaxandi virðingar og trausts um allan heim
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Roma Plus
Roma
Bonn
Aspen
Aspen-Lux Leður
Verð kr. 69.900,-
Verð kr. 139.900,-
Verð kr. 153.900,-
Verð Kr. 174.900,-
Verð Kr. 269.900,-
Verðdæmi :
HELGARTILBOÐPatti lagersalalandsins mesta úrval af sófasettum
Yfir 200 tegundir af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
kr.69.900,-
verð frá
*Mynd af Bonn tungusófa