Fréttablaðið - 08.11.2008, Side 78
62 8. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. verkfæri, 6. í röð, 8. landspilda, 9.
tækifæri, 11. ónefndur, 12. grastopp-
ur, 14. skokk, 16. málmur, 17. skordýr,
18. að, 20. belti, 21. tigna.
LÓÐRÉTT
1. líkamshluti, 3. bor, 4. áttfætla,
5. starf, 7. afturhluti, 10. hlaup, 13.
útdeildi, 15. íþrótt, 16. svif, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. haki, 6. áb, 8. lóð, 9. lag,
11. nn, 12. skegg, 14. hlaup, 16. ál, 17.
fló, 18. til, 20. ól, 21. aðla.
LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. al, 4. kónguló,
5. iðn, 7. bakhlið, 10. gel, 13. gaf, 15.
póló, 16. áta, 19. ll.
Seðlabanki Íslands hefur frestað
árshátíð sinni sem átti að fara
fram með pomp og prakt á Hótel
Nordica í kvöld. Davíð Oddsson og
annað starfsfólk bankans fær því
ekki tækifæri til að sletta úr klauf-
unum í þetta sinn, enda kannski
lítil ástæða til miðað við erfiðleik-
ana í þjóðfélaginu.
Hljómsveitin Buff hafði verið
bókuð á árshátíðina en fyrir nokkr-
um vikum var ákveðið að fresta
henni fram í janúar og þurfti Buff
því að bóka sig á Sjallann á Akur-
eyri í staðinn.
„Það var búið að bóka þetta en
eins og þjóðfélagsástandið er þá
eru mörg fyrirtæki sem sjá sér
ekki fært að halda einhverja stór-
fenglega mannfagnaði. Það eru
allir að leggjast á eitt, nema
kannski helst ráðamenn, um að
bjarga þjóðfélaginu,“ segir Páll
Eyjólfsson hjá umboðsskrifstof-
unni Prime sem hefur Buff á sínum
snærum. „Þau í Seðlabankanum
ásamt svo mörgum öðrum fyrir-
tækjum held ég að séu að íhuga
allt aðra hluti en þetta, skiljanlega.
Við gerum ekkert annað en að sýna
fólki skilning. Ég sendi ekkert
reikninga og segi: „Við erum með
samning.““
Prime hefur í gegnum árin
útvegað Seðlabankanum skemmti-
krafta á árshátíðir sínar og hefur
samstarf þeirra verið með miklum
sóma. Núna eru aftur á móti
óvissutímar og þurfa mörg fyrir-
tæki að draga saman seglin þegar
kemur að skemmtanahaldi eins og
öðru.
Páll játar að nokkuð hafi verið
um að fyrirtæki hafi frestað sínum
árshátíðum að undanförnu. „Hér
innandyra sýnum við okkar við-
skiptavinum, sérstaklega á þröng-
um tímum, skilning, sama hvort
það er Seðlabankinn eða Frétta-
blaðið. En það er vonandi að þetta
fari að lagast.“
Hallgrímur Ólafsson, formaður
starfsmannafélags Seðlabankans,
segir að frestun árshátíðarinnar
tengist lítið sem ekkert efnahags-
ástandinu og þeirri ólgu sem hefur
átt sér stað í bankakerfinu. „Það er
langt síðan það var ákveðið innan
stjórnar starfsmannafélagsins að
halda hana frekar seinna,“ segir
Hallgrímur um hátíðina. „Þetta
var ákveðið áður en bankakrísan
varð algjör.“ Hann útskýrir að
tímasetningin hafi einfaldlega
ekki hentað þannig að allir gætu
mætt. „Þetta var alfarið ákvörðun
skemmtinefndar starfsmannafé-
lagsins og kemur bankanum ekki
neitt við. Það var ekki hvatning um
þetta hjá neinum hér innanhúss,“
segir hann. freyr@frettabladid.is
PÁLL EYJÓLFSSON: SÝNIR VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM SKILNING
Árshátíð Seðlabankans
frestað fram í janúar
Bifhjólasamtökin Ruddar birtu í gær óvenju-
skorinorta yfirlýsingu á heimasíðu sinni
Ruddar.com. Þar kemur fram að félagar í
samtökunum ætli að fjölmenna í mótmælin sem
haldin hafa verið undanfarna laugardaga á
Austurvelli og hefjast í dag klukkan þrjú að
loknum borgarafundi í Iðnó. Ruddar skora
meðal annars á önnur bifhjólasamtök að sýna
samstöðu og fjölmenna á Austurvöll. Það sem
vekur einna helst athygli er niðurlagið en þar
stendur: „Hvetjum alla til að mæta með skyr,
egg eða sambærilegar „kast“-afurðir.“
Atli Jóhannsson, einn aðstandenda Rudda,
staðfesti í samtali við Fréttablaðið að félagarnir
hygðust mæta með slíka hluti en vildi þó ekki
staðfesta að þeir yrðu notaðir til að grýta
Alþingishúsið. „Menn verða jú að hafa eitthvað
að borða í svona mótmælum,“ segir Atli en
miðað við yfirlýsinguna býr hér meira að baki.
Atli segist hafa heyrt af öðrum bifhjólasam-
tökum sem hyggist mæta og jafnframt hafi
félagar úr 4X4 lýst því yfir að þeir ætli að láta
sjá sig. Atli segir fullum fetum að það sé mikill
hiti í hans mönnum. „Það er varla nokkur
maður sem hefur ekki fengið nóg af þessu
aðgerðaleysi og baktjaldamakki. Ekki einu sinni
þingmenn fá að vita hvað er í gangi,“ útskýrir
Atli sem mætti á útifund Bubba Morthens en
hefur ekki mætt á mótmæli Nýrra tíma. „Menn
eru bara komnir með nóg, það verður bara að
fara að framkvæma eitthvað. Það er bara hlegið
að fólki sem er að mótmæla og talað niður til
þeirra eins og Davíð Oddsson gerir,“ segir Atli
og sparar ekki lýsingarorðin yfir stjórnvöld.
„Þetta eru bara heiglar og aumingjar.“ -fgg
Bifhjólasamtök boða eggjakast í dag
BANKARÁÐ SEÐLABANKANS Davíð Oddsson og félagar fá ekki tækifæri til að sletta
úr klaufunum í kvöld eftir að árshátíð bankans var frestað fram á næsta ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PÁLL EYJÓLFSSON Páll segir að nokkuð
hafi verið um það að fyrirtæki fresti
mannfögnuðum sínum.
REIÐIR BIFHJÓLAMENN Búast má við aukinni hörku
í mótmælunum á Austurvelli í dag. Bifhjólasamtök-
in Ruddar hvetja félagsmenn sína til að mæta með
„kast“-afurðir. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkru
að norski bílasalinn Trond Sandven hygð-
ist koma hingað til Íslands og skoða stöðu
íslenska bílaflotans með það í huga að
kaupa bíla og flytja þá til Noregs. Trond
hefur dvalist hér á landi í nokkra daga og
festi nýverið kaup á 150 notuðum bíla-
leigubílum og þremur Range Roverum.
Hann vildi þó sjálfur ekki staðfesta nein-
ar tölur í þessu sambandi, sagði að þær
myndu skýrast í næstu viku. „Við eigum
efir að sjá hver staðan á íslensku krón-
unni verður og ráðfæra okkur við flutn-
ingsfyrirtækið,“ útskýrir Trond.
Hins vegar var ekki annað á honum að
heyra en að hann hygðist koma til Íslands
nokkrum sinnum í viðbót. Og leggja sitt
af mörkum til að losa íslensku þjóðina
við allan þann fjölda bifreiða sem hér
þeysast um götur landsins. „Já, ég á eftir
að koma hingað oftar. Þetta er magnað,“
segir Trond sem rekur sjálfur bílasölu í
Bergen og selur þar meðal annars tákn-
mynd góðærisins á Íslandi, Range
Rover.
Trond var annars gátt-
aður á öllum þeim
lúxusbílaflota sem
prýðir höfuðborg-
arsvæðið. „Þetta
er hreint út sagt
ótrúlegt. Annar
hver bíll er lúx-
uskerra,“ segir
Trond og bætir við:
„Þið hafið eytt alltof
miklum peningum
hérna.“ Trond segist
hins vegar hafa það full-
komlega á hreinu að
ástandið hér sé ekkert gamanmál.
„Við tökum það mjög alvarlega og
okkur er ekki hlátur í huga.“ - fgg
Norskur bílasali keypti 150 bíla á Íslandi
ÆTLAR AÐ KOMA AFTUR Trond hefur
undanfarnar vikur verið að
þræða íslenska bílamark-
aðinn. Hann er gáttaður
á fjölda lúxusbíla hér á
landi.
ÞRÍR RANGE Trond
keypti þrjá Range
Rovera og hyggst flytja
þá til Noregs.
Verðlaunaskáldið Sjón festi
fyrir nokkru kaup á húsnæði við
Melhaga þar sem áður var þekkt
og vinsæl ísbúð. Hafa hann og
kona hans, Ásgerður Júníusdóttir
söngkona, girt húsnæðið af en
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun Sjón ekki ætla að
endurreisa hina góðu ísbúð heldur
innrétta þar vinnustofu. Óhætt er
að segja að Sjón og skáldsystir
hans og samstarfskona úr
hinum forna Medúsa-
skáldahóp, Björk, setji
sannarlega svip sinn
á Vesturbæinn því
nýverið lét Björk
mála hús sitt
við Ægisíðu
svart.
Leikararnir Jói G. og Atli Þór hafa
bryddað upp á því í sínum ágæta
útvarpsþætti A–J að vera með sér-
leg uppboð sem tengjast aðalgesti
mánaðarins hverju sinni. Nú er yfir-
standandi uppboð á KR-treyju sem
Laddi klæddist ávallt þegar hann
hermdi eftir Bjarna Fel. árituð af
þeim báðum. Uppboðinu lýkur því
í lok mánaðarins og rennur féð til
góðgerðarmála. Heldur þykir þeim
umsjónarmönnum snaut-
leg upphæð komin sem
boð í þessa sögufrægu
treyju og vona að ein-
hver stöndugur KR-ingur
fari að taka við sér því
aðeins hefur verið
boðið tvö þúsund
krónur í flíkina.
Fréttablaðið sagði í vikunni frá
miklu Bond-einkapartíi sem Jón
Gunnar Geirdal og félagar hjá
Senu halda á B5 í kvöld. Sumir
virðast vera meiri Bond-menn en
aðrir og þannig hefur frést af sér-
stöku upphitunarpartíi sem verður
fyrir téð Bond-partí. Aðalmaðurinn
á bak við það er Guðjón Már
Guðjónsson, sem oftast
er kenndur við OZ.
Þema veislu Guðjóns
er Bond-illmenni svo
búningar gesta gætu
orðið ansi skrautleg-
ir.
- jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ólafur Indriði Stefánsson
Atvinna:
Atvinnumaður
í handknattleik
með Ciudad Real.
Fjölskylda: Eig-
inkonan er Kristín
Soffía Þorsteins-
dóttir og eiga þau
þrjú börn; Helgu
Soffíu, Einar
Þorstein og Stefaníu Þóru.
Foreldrar: Stefán Eggertsson
læknir og Helga Lilja Björnsdóttir
landvörður.
Stjörnumerki: Krabbi (fæddur 3.
júlí 1973)
Búseta: Spánn.
Ólafur Stefánsson, fyrrum fyrirliði íslenska
landsliðsins, skrifaði undir samning við
þriðju deildarliðið Glostrup í vikunni.