Fréttablaðið - 21.11.2008, Side 36
10 föstudagur 21. nóvember
Föstudagur 14. nóvember: TF-Stuð
Ákvað að sauma mér ABBA-samfesting fyrir kvöldið úr
pallíettuefni meðan ég sötraði romm með klaka. Þegar vin-
kona mín kom yfir var ég orðin vel full og svona líka svaka-
lega hress. Hún hafði orð á því að þessi pallíettusamfest-
ingur væri kannski of mikið „overkill“. Þá sagði ég að hún
hlýti bara að vera abbó. Kíktum niðrí bæ. Vorum ekki alveg
nógu fullar á Boston en þar var Ísgerður Elfa leikkona og
Raggi bassi úr Botnleðju. Kíktum því næst á b5. Þar voru
aðallega blindfullir karlar sem voru að koma af herrakvöldi
Fram ásamt slatta af sveittum útlendingum. Þar voru Rikki
Daða og Steini Kók. Útlendingarnir voru reyndar heit-
ir í kerlinguna en maður hefur náttúrlega sín takmörk og
beindi öllum gæjunum yfir á lögfræðinginn, Heiðrúnu Lind
Marteinsdóttur, á Lex. Næsti stoppistaður var Domo. Fór
óboðin í afmæli Arnþrúðar Daggar Sigurðardóttur. Þar
var kærastinn hennar, Sindri Kjartansson, og bróðir hans,
Sigurjón. Þar voru líka Silja Hauksdóttir, Hrönn Sveins-
dóttir og Greipur Gíslason, einn best klæddi maður Ís-
lands. Þegar líða tók á nóttina fann ég hvernig pallíettu-
samfestingurinn var eitthvað að gefa sig á saumun-
um og þegar ég beygði mig niður í ævintýralegum
dansi heyrði ég hvernig
saumarnir gliðn-
uðu á bossan-
um. Einhvern
veginn náði ég
að koma mér
út af staðnum
án þess að mikið
bæri á …
tíðin
✽ fylgist vel með
DÍANA MIST
HREFNA HALLGRÍMSDÓTTIR
leikkona
TÖLVAN MÍN GEYMIR
ALLA MÍNA VINNU.
MYND AF STRÁKUNUM MÍNUM TVEIMUR SEM VAR
TEIKNUÐ Í SUMARFRÍI Á TENERIFE.
TOPP
10
SLAGARAVEISLA Í kvöld munu Sprengjuhöllin,
Hjaltalín og Motion boys spila á Nasa og standa fyrir
sannkallaðri slagaraveislu. Húsið verður opnað klukk-
an 23 og miðinn kostar aðeins 1.500 krónur, svo nú
er bara að pússa dansskóna og skella sér á ball með
þremur af vinsælustu hljómsveitum landsins.
SIGUR RÓS Hljómsveitin lýkur vel heppnuðu tón-
leikaferðalagi sínu um heiminn í Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöld. Hljómsveitirnar For A Minor Ref-
lection og Parachutes hita upp fyrir þá Jónsa, Kjart-
an, Georg og Orra sem verða óstuddir á sviðinu í fyrsta
skipti á Íslandi síðan 2001. Ekki láta þig vanta.
NONI-BERJADJÚS
HELDUR HEILS-
UNNI Í LAGI.
BLÁ PATH OF LOVE-BUDDA EFTIR
RÖGNU FRÓÐA SEM ÉG GEYMI ALLT Í.
SKRÍTLUGALLINN HEFUR KOMIÐ
MEÐ ÓFÁ ÆVINTÝRI OG GLEÐI
INN Á HEIMILIÐ.
LAMPI SEM ELDRI SONUR MINN
FÖNDRAÐI OG GAF OKKUR FOR-
ELDRUNUM Í JÓLAGJÖF Í FYRRA.
ÁLFAR OG MENN
NÝ
SPIDERWICKBÓK!
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
ALGER
FREKJUDÓS!Hugljúft ævintýri um
samskipti manna og
álfa eftir Guðnýju S.
Sigurðardóttur. Dóttir hennar,
Júlía Guðmundsdóttir,
myndskreytti bókina þegar
hún var níu ára. Kemur út á
föstudaginn.
Frábær saga um litla
frekjudós sem lærir á
endanum mikilvæga lexíu.
Bráðskemmtileg saga um
stelpu sem veit ekkert
hvað hún á að gera við
skapið í sér.
NÝR SKELMIR
ENN BETRI!
Sjálfstætt framhald fyrstu bókarinnar um
Skelmi Gottskálks sem kom út í fyrra og
notið hefur mikilla vinsælda.
Hörkuspennandi unglingabók.
Nýjasta bókin í hinum
geysivinsæla Spiderwick-
bókaflokki. Æsispennandi
ævintýri handa krökkum á
aldrinum 7-14 ára.
NÝJAR BÆ
KUR
GAMALT V
ERÐ!