Fréttablaðið - 22.11.2008, Side 60
44 22. nóvember 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Ath kl. 14
á morgun mun Halldór Björn
Runólfsson safnstjóri vera með
leiðsögn á sýningunni Ást við fyrstu
sýn í Listasafni Íslands. Hann mun
fjalla sérstaklega um verk þjóðverj-
ans Gerhards Richter sem talinn er
einn helsti listmálari samtímans en
jafnframt beina sjónum sínum að
einstökum verkum á sýningunni.
> Ekki missa af …
síðustu sýningar-
helgi á firnagóðri
yfirlitssýningu
á verkum Gylfa
Gíslasonar í
Ásmundarsal við
Freyjugötu sem
bætir mann og
kætir.
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika á Café
Rosenberg, Klapparstíg 25, annað kvöld, og
hefjast þeir kl. 20. Þar mun hljómsveitin flytja
stóra efnisskrá verka eftir Thad Jones (1923–86),
einn helsta meistara „big
band“-tónlistar síðustu
áratuga.
Jones var trompetleik-
ari með hljómsveit
Count Basie á
árunum 1954–63.
Ásamt trommuleik-
aranum Mel Lewis
stofnaði hann árið
1965 The Thad
Jones/Mel Lewis
Jazz Orchestra,
en sú hljómsveit
leikur enn á hinum
þekkta jazzklúbbi
The Village Vanguard
í New York undir nafninu The Village Vanguard
Jazz Orchestra. Jones yfirgaf sveitina árið 1978
og flutti til Danmerkur. Þar stjórnaði hann m.a.
Stórsveit danska ríkisútvarpsins og stofnaði
Eclipse-stórsveitina.
Eftir lát Count Basie árið 1984 tók
Thad Jones við stjórn
þeirrar sveitar og starfaði
með henni til dauðadags
árið 1986. Thad Jones
er almennt talinn í hópi
mikilvægustu tónskálda
stórsveitasögunnar og
hafa tónsmíðar hans og
útsetningar haft gríðarleg
áhrif. Kraftmikil og áleitin
tónlist hans hefur oft skap-
að magnaða stemningu,
ekki síst á klúbbum. Sigurð-
ur Flosason stjórnar nú hljómsveitinni í
fyrsta sinn á heilum tónleikum.
Tónlist Thad á Rósenberg
Í tilefni þess að Óttar M. Norðfjörð
sendir frá sér þrjár bækur fyrir þessi jól
verður efnt til útgáfugleði í Máli og
menningu Laugavegi, í dag klukkan
13:30.
Frábært tilboð í þetta eina skipti.
Kauptu Sólkross, nýjustu skáldsögu hans,
og fáðu með í kaupbæti:
1. Hníf Abrahams,
metsölubók hans frá því í fyrra;
2. Tíu litla bankastráka,
nýútgefna teiknimyndasögu hans um
útrásarvíkingana;
3. Jón Ásgeir og afmælisveisluna, bók
hans frá því í fyrra um útrásina;
4. Gissurson – Hver er orginal?,
þriðja og síðasta bindið í ævisögu hans
um Hannes Hólmstein Gissurarson.
Ekki láta þetta einstaka tækifæri til að
fá mm bækur á verði einnar renna þér
úr greipum. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Hrafnaspark spilar djass.
Kaf á boðstólnum. Allir velkomnir.
Skilaboðaskjóðan
Þorvaldur Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
sun. 23/11, örfá sæti laus
Síðustu sýningar
Gjafakort á Kardemommubæinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Utan gátta
Sigurður Pálsson
Snarskemmtileg sýning. JVJ, DV
lau 22/11, örfá sæti laus
Sýningum lýkur 13. desember!
Sá ljóti
Marius von Mayenburg
Er hægt að vera of fallegur? EB, FBL
lau. 22/11 örfá sæti laus, síðasta sýning
Hart í bak
Jökull Jakobsson
Verk sem snertir okkur öll. EB, FBL
lau. 22/11 uppselt
Aukasýningar í sölu
Leitin að jólunum
Aðventusýning Þjóðleikhússins
Sýningar hefjast 29/11
Tryggðu þér sæti
Gefum góðar stundir
Kardemommubærinn
Jólatilboð á gjafakortum
Sætið á aðeins 2.000
(fullt verð 2.800)
DAGUR
HARMONIKUNNAR
Verið velkomin á tónleika
Harmonikufélags Reykjavíkur í
Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun,
sunnudag, kl. 15:00.
Harmonikufélag Reykjavíkur
Á morgun heldur Sardas-strengja-
kvartettinn tónleika í 15:15 tón-
leikasyrpunni í Norræna húsinu
til heiðurs Jóni Ásgeirssyni sem
nýverið átti áttræðisafmæli. Á
tónleikunum verður fluttur 2.
strengjakvartett Jóns, auk
strengjakvartetts Beethovens nr.
15 í a moll, op. 132. Tónleikarnir
hefjast kl. 15.15.
Sardas-strengjakvartettinn var
stofnaður 1996 og ætlaði sér að
koma fram við athafnir og hátíð-
legar uppákomur. Efnisskrá kvart-
ettsins telur yfir 1.500 titla. Þar er
að finna ýmsar tegundir tónlistar,
allt frá fegurstu tónsmíðum höf-
uðsnillinga tónlistarsögunnar til
frægustu popp- og söngleikjalaga
veraldar. Núna í kreppunni er lítið
framboð af fínum veislum og
uppákomum svo kvartettinn snýr
sér að alvarlegri
tónlist. Sardas skipa að þessu
sinni Martin Frewer og Kristján
Matthíasson fiðluleikarar Helga
Þórarinsdóttir víóluleikari og Arn-
þór Jónsson sellóleikari.
Jón Ásgeirsson hefur sagt um
fjórþættan strengjakvartett nr 2:
„Eftir að hafa notað og útsett
íslensk þjóðlög í strengjakvartett
nr 1, er
kvartett nr. 2 eins konar upp-
gjör við það sem kalla má íslensk
þjóðlög. Aðalstefið í fyrsta þættin-
um er í lýdískri tóntegund og að
miklu leyti í 7/8-takti en lagferlið
snýst mjög um trítónus-tónbilið
(stækkuð ferund) sem einnig er
kallað tónskratti. Annan þátt má
líta á sem fortíðareftirsjá. Þriðji
þátturinn er vikivaki og eins og í
þeim fjórða er lýdíska tóntegund-
in mjög áberandi.“
Ludwig van Beethoven samdi
stengjakvartett nr. 15 í a moll, op.
132, tveimur árum eftir að hann
kláraði níundu sinfóníuna árið
1825 og var hann frumfluttur 6.
nóvember sama ár af Schuppanz-
igh Kvartett. Þessi kvartett í a
moll var tileinkaður og pantaður
af áhugasellóleikaranum Nicolai
Galitzin fursta eins og strengja-
kvartettarnir op. 127 og 130. Þriðji
kaflinn er óvenju langur, 15–20
mínútur, og var hann saminn eftir
að Beethoven hafði jafnað sig eftir
alvarleg veikindi sem drógu hann
næstum því til dauða. Kaflinn er
miðpunktur verksins og Beet-
hoven gaf honum yfirskriftina
Þakkargjörð og lofsöngur aftur-
batasjúklings til guðdómsins.
Verkið flytur okkur úr moll í dúr,
frá myrkri til ljóss eins og í 5. og 9.
sinfóníu. pbb@frettabladid.is
Til heiðurs Jóni Ásgeirssyni
TÓNLIST Martin Frewer og Kristján Matthíasson fiðluleikarar, Helga Þórarinsdóttir
víóluleikari og Arnþór Jónsson sellóleikari.
Kammertónleikaröð Sinfóníunnar
er haldið áfram í dag. Þar ætlar
slagverksdeildin að spila tónlist
eftir tvö amerísk tónskáld sem
sækja innblástur sinn til indjána
Mið- og Suður-Ameríku. Það eru
þeir Lou Harrison (1917-2003),
Bandaríkjamaður sem sækir í tón-
mál Asíu og indjána, og mexíkóska
tónskáldið Carlos Chavez. Quetz-
alcoatl var guð sköpunarinnar hjá
Aztekum og varð Harrison yrkis-
efni í mögnuðum slagverksþætti
sem fluttur er í dag.
Mexíkóska tónskáldið Carlos
Chavez notaði einnig Azteka-stef í
verkum sínum, svo hér gefst
skemmtilegt tækifæri til að heyra
suður-ameríska slagverkstóna
með indjánaívafi. Þátttakendur
eru þeir Árni Áskelsson, Eggert
Pálsson, Frank Aarnink, Kjartan
Guðnason, Pétur Grétarsson og
Steef van Oosterhout. Tónleikarn-
ir í dag hefjast klukkan 17.
- pbb
Indjánaleikurinn