Fréttablaðið - 25.11.2008, Blaðsíða 26
18 25. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ÞÓRÐUR HALLDÓRSSON FRÁ
DAGVERÐARÁ FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1905.
„Sterkasta aflið er andans
ró sem allt getur fyrirgefið.“
Þórður frá Dagverðará undir
Jökli á Snæfellsnesi var þekkt-
astur sem refaskytta og mál-
ari. Hann var náttúruunnandi
og heilsufrömuður og hafði
mikla trú á ölkelduvatni.
„Þetta var mjög flottur fundur þar sem fjöldi kvenna var
samankominn að fylgjast með þegar félags- og trygginga-
málaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, afhenti tíu hæstu
styrkina,“ segir Ásdís Guðmundsdóttir, ráðgjafi í atvinnu-
málum kvenna hjá Vinnumálastofnun, um styrkveitingar til
atvinnureksturs kvenna á blaðamannafundi í bókasal Þjóð-
menningarhússins í gær. Vinnumálastofnun hafa aldrei bor-
ist jafn margar umsóknir og í ár, eða 246 talsins, og eins
hefur aldrei jafn miklu fé, 50 milljónum króna, verið varið
í verkefnið.
Að sögn Ásdísar var það sett á laggirnar árið 1991 af þá-
verandi félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, til að
ýta undir atvinnurekstur kvenna og hefur Vinnumálastofn-
un haldið utan um það síðan 1997. „Þetta var hugsað sem
mótvægisaðgerð við atvinnuleysi sem var sérstaklega hátt
meðal kvenna á þeim tíma. Atvinnuleysi hefur reyndar ekki
verið mikið í hópi kvenna síðustu fimm ár en þeim hefur á
móti ekki gengið sérstaklega vel að fjármagna verkefni sín.
Þær hafa kannski ekki heldur verið duglegar að sækja um í
hefðbundna sjóði.“
Alls hafa um 400 verkefni hlotið styrki frá upphafi og segir
Ásdís fjölbreytni í fyrirrúmi í ár. „Þarna eru fyrirtæki innan
félagsmála- og heilbrigðisgeirans, framleiðslufyrirtæki og
menningartengd ferðaþjónusta. Fjölbreytnin sést af því að
hvíldarinnlagnir ætlaðar Alzheimer-sjúklingum og mið-
stöð fyrir geitaræktun eru meðal þeirra verkefna sem hlutu
hæstu styrkina að þessu sinni, eða tvær milljónir hvort. Inn-
lagnirnar eru dæmi um hversu mikið konur sækja í þjón-
ustugeirann. Þær sjá oft tækifæri í þjónustu sem hefur ef
til vill ekki verið sinnt sem skyldi. Við erum því að reyna
að mæta konunum á heimavelli og auka aðgengi þeirra að
fjármagni.“
Fyrirtækin eru flest á frumstigi að sögn Ásdísar. „Sumar
eru bara að sækja um að gera viðskiptaáætlun og vita ekki
alveg hvernig hefjast á handa. Þær eru kannski að sækja
um styrk til markaðssetningar eða vöruþróunar,“ útskýrir
hún og bætir við að þær geti svo leitað til sín eftir ráðgjöf
og handleiðslu. „Ég hóf störf sem ráðgjafi í júní, sem var
ekki áður fyrir hendi. Við opnuðum líka heimasíðuna www.
atvinumalkvenna.is í september, sem á að vera vettvangur
fyrir þessi mál. Nú get ég hellt mér út í að móta síðuna betur
og hlakka til að geta gert það með þessum góðu konum. Nú er
bara að nýta orkuna.“ roald@frettabladid.is
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ: STYRKIR KONUR
Nú er bara að
nýta orkuna
GÓÐAR VIÐTÖKUR Ásdís rekur fjölda umsókna til vel heppnaðs kynn-
ingarstarfs Vinnumálastofnunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björn K. Örvar
úrsmiður
er lést 19. nóvember sl. á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
28. nóvember kl. 15.
Hanna Marta Vigfúsdóttir
Björg Örvar
Kjartan B. Örvar Anna Birna Björnsdóttir
Björn Lárus Örvar Unnur Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Svanhildur Stefánsdóttir
Aratúni 22,
andaðist 19. nóvember á Líknardeild Landspítalans í
Kópavogi. Útförin fer fram frá Garðakirkju miðviku-
daginn 26. nóvember kl. 13.00.
Guðmundur Rúnar Magnússon
Steinn Logi Guðmundsson Ingibjörg Erna Sveinsdóttir
Kristbjörg Guðmundsdóttir Magnús Árnason
Sigurjón Guðmundsson Kristbjörg Elídóttir
Hrönn Guðmundsdóttir Ásgeir Þór Eiríksson
Stefán Magnús Guðmundsson Alda Ragna Þorvaldsdóttir
og ömmubörn.
Frændi okkar og bróðir,
Jón Þ. Einarsson
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
17. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15.00.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
Einar G. Þorsteinsson
Suðurgötu 30, Hafnarfirði,
andaðist að St. Jósefsspítala 18. nóvember síðastliðinn.
Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
26. nóvember kl. 15.00.
Eiginkona, börn, tengdabörn, afa- og langafabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Marta María Jóhannsdóttir
er látin. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Skjóls.
Þuríður Halla Árnadóttir
Guðrún Árnadóttir Atli Vagnsson
Árni Ármann Árnason Ingibjörg Jónsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorvaldur Halldórsson
skipstjóri og útgerðarmaður,
Vörum, Garði,
lést laugardaginn 22. nóvember. Útförin verður auglýst
síðar.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Valgerður Þorvaldsdóttir Bragi Guðmundsson
Halldór Kristján Þorvaldsson Kolbrún Þórlindsdóttir
Ingimar Jón Þorvaldsson Elín Kjartansdóttir
Vilberg Jóhann Þorvaldsson Helena Rafnsdóttir
Þorvaldur Þorvaldsson Mikkalína Þ.K.
Finnbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulegi sonur, pabbi og bróðir,
Kristinn Ísfeld Andreasen
til heimilis að Laufengi 2, 112 Reykjavík,
lést sunnudaginn 16. nóvember sl. Útför hans fer fram
frá Laugarneskirkju, föstudaginn 28. nóvember
kl. 13.00.
Elsabet Sigurðardóttir
Hörður Sævar Hauksson
Sunna Ísfeld Andreasen
Þorbjörn Eiríksson
Hólmsteinn Harðarson
Elsabet Ósk Harðardóttir
Sigurður Skúli Harðarson
Guðlaugur Ísfeld Andreasen
Magnús Ísfeld Andreasen
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingvi Birkir Jónsson
matreiðslumaður
Hnotubergi 23, Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 20. nóvember, verður jarðsungin
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn
28. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Bergmál líknar- og vinafélag.
Melkorka Sveinbjörnsdóttir
Sigríður Ingvadóttir Oddur Sigfússon
María Emilía Ingvadóttir Kristján Pétur Sigmundsson
Kjartan Orri Ingvason Gunndís Ýr Finnbogadóttir
Elva Hrund Ingvadóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæri,
Valdimar Jörgensson
Laugarnesvegi 87, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, endur-
hæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur
fengið krabbamein.
Arndís Jónsdóttir
Jörgen H. Valdimarsson Björg Valsdóttir
Jórunn Valdimarsdóttir Sigurður Freysson
Gunnar Valdimarsson Lára Á. Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jórunn Ragnheiður
Brynjólfsdóttir
kaupmaður frá Hrísey,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
21. nóvember. Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurveig Inga Hauksdóttir
Jóhanna Hauksdóttir
Brynhildur Hauksdóttir
og Brynjólfur Karl Hauksson.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
Helgi Magnús Arngrímsson
Réttarholti, Borgarfirði eystri,
lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum laugardaginn
22. nóvember.
Bryndís Snjólfsdóttir
Birgitta Ósk Birgisdóttir Guttormur Pálsson
Hafþór Snjólfur Helgason Berglind Ósk Guðgeirsdóttir
Elsa Arney Helgadóttir Gunnlaugur Garðarsson
Eyrún Hrefna Helgadóttir
og barnabörn.