Fréttablaðið - 25.11.2008, Side 6
6 25. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
GRÆNLAND Yfirgnæfandi líkur eru
til þess að Grænlendingar sam-
þykki ný sjálfstjórnarlög í atkvæða-
greiðslu, sem haldin verður í dag.
Verði lögin samþykkt tekur græn-
lenska stjórnin að sér fleiri verk-
efni frá dönskum stjórnvöldum og
munar þar mestu um dómsmálin.
Auk þess er opnuð leið til þess að
Grænland fái fullt sjálfstæði frá
Danmörku. Sú leið er byggð á því
að tekjur Grænlendinga af náttúru-
auðlindum, einkum væntanlega af
olíuvinnslu, muni aukast svo mjög
að ekki verði lengur þörf á fjár-
framlagi frá Danmörku.
Í lögunum er ákvæði um að
tekjur af náttúruauðlindum á
Grænlandi renni að óbreyttu til
grænlensku heimastjórnarinnar,
en ef auðlindatekjur aukast í fram-
tíðinni, til dæmis ef olía finnst, eins
og verulegar líkur þykja til, þá
lækkar fjárframlag danska ríkisins
til Grænlands um helming af við-
bótartekjunum.
Verði tekjur af náttúruauðlind-
um helmingi meiri en núverandi
fjárframlög frá Danmörku, þannig
að danska framlagið fellur alveg
niður, þá skal semja upp á nýtt og
geta Grænlendingar þá sóst eftir
fullu sjálfstæði.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem voru birtar á
vefsíðu grænlenska dagblaðsins
Sermitsiak, ætlar 61 prósent að
samþykkja sjálfstjórnarlögin, en
19 prósent ætla að hafna þeim.
Fimmtán prósent kjósenda höfðu
ekki gert upp hug sinn, en 5 prósent
ætluðu ekki að greiða atkvæði.
- gb
Grænlendingar ganga til atkvæða í dag um breytt tengsl við Danmörku:
Kosið um ný sjálfstjórnarlög
FRÁ GRÆNLANDI Verði sjálfstjórnarlögin
samþykkt taka þau gildi 21. júní á næsta
ári, en um leið falla úr gildi grænlensku
heimastjórnarlögin frá 1979.
NORDICPHOTOS/AFP
Q1 2007 Q2 2007 Q3 2007 Q4 2007 Q1 2008 Q2 2008
4.
16
9.
18
1
2.
55
9.
12
1
2.
60
6
.1
07
3.
05
0.
67
0
3.
30
4.
40
8
3.
98
0.
74
9
1.
48
3.
88
7
1.
41
2.
50
4
1.
56
7.
89
5
1.
49
9.
08
0
1.
84
0.
58
4
1.
71
0.
23
4
2.
02
2.
73
8
1.
97
4.
90
7
2.
48
8.
16
5
2.
51
6
.1
83
2.
57
1.
47
0
2.
54
8.
16
4
0
1
2
3
4
61%
63%
64%
57%
60%
64%
62%
62%
65%
67%
66%
62%
63%
65%
65%
55
60
65
70
%
billjónir kr.
VIÐSKIPTI Útlán Kaupþings, Glitnis
og Landsbankans jukust um tæp-
lega 3.616 milljarða króna milli ann-
ars ársfjórðungs í fyrra og annars
fjórðungs þessa árs, samkvæmt
uppgjörum bankanna. Aukning
Kaupþings er mest, nemur rúmum
1.560 milljörðum króna. Svo kemur
Glitnir með tæpa 1.050 milljarða og
Landsbankinn með tæpa 1.004.
Sem hlutfall af heildareignum
var aukningin minnst hjá Glitni á
tímabilinu, eða tvö prósentustig.
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræð-
ingur hjá Landsbankanum, segir að
þegar bankarnir hafi tekið að fjár-
magna sig á ný eftir „Íslandskrís-
una“ svonefndu hafi um tíma verið
mjög mikil eftirspurn eftir skulda-
bréfum þeirra. „Þegar bankarnir
tóku svo að fjármagna sig á ný með
skuldabréfum þá gekk sú sala afar
vel. Svo hækkaði líka um tíma láns-
hæfiseinkunn bankanna hjá Mood-
y‘s og rosaleg eftirspurn varð til. Þá
báru skuldabréf þeirra hátt álag
miðað við aðra banka með sambæri-
legt lánshæfi,“ segir Edda, en þetta
stóraukna aðgengi bankanna að
fjármagni segir hún hafa kynnt
undir vexti á nýjan leik. „Menn
kunnu sér ekki hóf, sem var synd
eftir áfallið 2006.“
Þegar skoðaðar eru tölur um
útlán segir Edda Rós samt að hafa
verði í huga að gengi krónunnar
hafi áhrif, þar sem reikningar bank-
anna séu jú í krónum, þótt lán séu
að stórum hluta í annarri mynt.
„Árið 2007 var gengið samt ekki
mikið að stríða. Aukning á þessu ári
skýrist hins vegar einvörðungu af
hreyfingu krónunnar. Bankarnir
voru allir að dragast saman í
evrum.“
Sveiflur á gengi krónunnar gera
að verkum að erfiðara er að bera
saman vöxt bankanna við aðra sam-
bærilega. Heimildir innan banka-
geirans telja að þegar leiðrétt hefur
verið fyrir krónunni komi í ljós að
vöxtur þeirra hafi líkast til verið
sambærilegur við aðra norræna
banka eftir að undirmálslánakrísan
kom upp í ágúst í fyrra, þótt áður
hafi þeir vaxið mun hraðar. Sér-
staða Glitnis sé þó að þar hafi
útlánavöxtur ekki tekið kipp fyrr
en á þriðja fjórðungi síðasta árs,
mun síðar en hjá hinum bönkunum.
Um leið er bent á að bankarnir hafi
aukið við lausafé sitt eftir 2006 og
því ekki farið jafngeyst og áður. Þá
hafi þeir staðið af sér 13 mánuði þar
sem fjármögnunarmarkaðir hafi
verið lokaðir. Stórir bandarískir
bankar á borð við Bear Stearns hafi
ekki þolað slíkt ástand nema í tvo til
þrjá mánuði. olikr@markadurinn.is
3,6 billjónum meiri lán
Útlán bankanna jukust hratt árið 2007 eftir þrengingar fyrra árs. Aukning á þessu
ári skýrist af falli krónunnar. Aukning Landsbanka og Glitnis er nærri jafnmikil.
ÚTLÁN BANKANNA Í TÖLUM OG SEM HLUTFALL AF HEILDAREIGNUM
Samkvæmt upplýsingum úr árshlutareikningum bankanna jukust útlán til viðskiptavina umtalsvert á árinu 2007.
Hækkun fyrstu tvo fjórðunga þessa árs er hins vegar rakin til áhrifa af veikingu krónunnar. Tölur eru í milljónum króna.
66%
65%
63%
H
EI
M
IL
D
: Á
R
SH
LU
TA
U
PP
G
JÖ
R
V
IÐ
SK
IP
TA
B
A
N
K
A
N
N
A
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
EVRÓPUMÁL Landssamband ís-
lensk ra útvegsmanna íhugar að
segja sig úr Samtökum atvinnu-
lífsins, ef þau beiti sér beint fyrir
inngöngu í Evrópusambandið. „25
til 30 prósent félagsmanna Sam-
taka atvinnulífsins eru andvíg inn-
göngu í Evrópusambandið. Að
samtökin ætli að beita sér í and-
stöðu við þennan hóp félagsmanna
er óeðlilegt og hefur aldrei gerst
áður,“ segir Adolf Guðmundsson,
formaður LÍÚ.
Samtök atvinnulífsins hafa nú í
vinnslu skoðanakönnun meðal
aðildarfyrirtækja um hvort fyrir-
tækin vilji að samtökin beiti sér
fyrir aðild að Evrópusambandinu.
Adolf segir ekki hægt að lesa
annað úr því en að samtökin ætli
sér að taka afstöðu, þótt það hafi
legið fyrir frá stofnun þeirra að
þau beiti sér ekki gegn
grundvallarhagsmunum aðildar-
félaga sinna.
Adolf segir algjöran einhug
ríkja innan LÍÚ um að ekki skuli
sótt um aðild að Evrópusamband-
inu. Hins vegar séu misjafnar
skoðanir um upptöku annars gjald-
miðils meðal aðildarfélaga. Sú leið
hafi þó ekki verið rædd á vett-
vangi sambandsins. Skýr stefna
þess sé að mikilvægasta verkefnið
nú sé að styrkja íslensku krónuna.
- hhs
Landssamband íslenskra útvegsmanna hótar úrsögn úr Samtökum atvinnulífsins:
Klofningur í aðsigi innan SA
ADOLF GUÐMUNDSSON Formaður LÍÚ
segir óviðunandi ef Samtök atvinnu-
lífsins ætli að beita sér fyrir inngöngu í
Evrópusambandið.
KJÖRKASSINN
Fannst þér lögregla ganga á
langt með því að nota piparúða
á mótmælendur á laugardag?
Já 45,9%
Nei 54,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fórst þú á eða fylgdist með
borgarafundi í Háskólabíói?
Segðu skoðun þína á visir.is
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í fjögurra
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að kúga samtals 130 þúsund
krónur út úr þremur mönnum.
Hann hótaði mönnunum þremur
að birta nöfn þeirra opinberlega,
myndir af nöktum kynfærum
þeirra á vefsíðu og saka þá um að
vera barnaníðinga. Myndirnar
höfðu mennirnir þrír tekið sjálfir
og sent í netsamskiptum til
mannsins, en hann kvaðst hafa sagt
þeim að hann væri unglingsstúlka.
Kona sem var einnig ákærð í
málinu fyrir að hafa tekið á móti
fjármunum inn á reikning sinn var
sýknuð. - jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Fjórir mánuðir
fyrir fjárkúgun