Fréttablaðið - 04.12.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
4. desember 2008 — 332. tölublað — 8. árgangur
AÐALBJÖRG ERLENDSDÓTTIR
Klæðir sig í kolsvart en
skreytir sig með litum
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Fatastíll Aðalbjargar Erlendsdótt-ur, textíl- og fatahönnuðar sem
hannar undir merkinu Budda
design, er að eigin sögn kolsvart-ur. „Ég á nú ekki mikið af fötum og
get lofað því að þau eru öll svört.
En ég kaupi þá frekar vönduð föt.
Það er alveg sama hvað ég reyni
að kaupa annað, það endar alltaf í
svörtu,“ segir Aðalbjörg glaðvær
og bætir við að hún reyni þá frek-ar að lífga upp á með litum í fylgi-
hlutum og skartgripum. Aðalbjörgheldur mikið
og nefnir að sjalið passi sérstak-lega vel við svartan klæðnað. „Ég
hef verið með sjalið á tveimur
sölusýningum undanfarið og það
selst eins og heitar lummur. Þetta
hentar vel í kreppunni þar sem
hægt er að sveipa sjalinu utan um
gamla kjólinn og breyta þannig
um stíl,“ segir Aðalbjörg brosandi
og bætir við að þannig megi skapa
nýja flík auk þess sem nota megisjalið á ýmsan máta H
kjólaefni, myndverk og gardínur.
„Ég hef einna mest verið í að útbúa
gardínufleka upp á síðkastið úr
ýmiss konar efnum. Ég vinn úr
bómull, hör og silki með ákveðinni
pressutækni og þetta er rosalega
smart,“ útskýrir Aðalbjörg. Hún lærði fatahönnun árið 1992
og leiddist meira út í textílinn upp
frá því. „Núna er ég að flytj itil Si ú
Kryddar klæði með litum
Bjartir litir og dimm nótt mætast í silkislæðum Aðalbjargar Erlendsdóttur, textíl- og fatahönnuðar, og er
það að vissu leyti lýsandi fyrir fatastíl hennar sem er kolsvartur en Aðalbjörg skreytir sig með litum.
Aðalbjörg Erlendsdóttir er sums staðar betur þekkt undir nafninu Budda Design. Hún vinnur mikið með bjarta og fallega liti þegar
hún gerir silkislæðurnar sínar.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STEIKARPOTTUR og aðrir góðir pottar eru eitthvað
sem þeir sem eru að fara að halda sín fyrstu jól sjálfir
þurfa að eignast fyrir hátíðarnar. Ekki er gott að lenda í
pottavandræðum þegar verið er að elda jólamatinn.
TónleikaríViðeyjarstofu
íkvöld Dúettinn PIKKNIKK
LeiðsögnaðImaginePeaceTowerTilboðáléttumveitingumíViðeyjarstofuSigltfráSkarfabakkakl20:00Miðaverð2.000kr
ATH:PantaþarffyrirframSími555 3565
veljum íslensktFIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008
Veigar Páll til
Nancy?
Franska úrvalsdeildarfé-
lagið Nancy
vill kaupa
Veigar Pál
Gunnarsson
frá Stabæk.
ÍÞRÓTTIR 52
VEÐRIÐ Í DAG
VELJUM ÍSLENSKT
Hangikjöt og aðrar
kræsingar um jólin
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Tíu ára afmæli Eflingar
Stéttarfélagið Efling var
stofnað í desember
árið 1998 og tók til
starfa um áramótin
1999.
TÍMAMÓT 34
Hlíðasmári 1 - Kópavogi - S. 554 6969
Frábær
Jólatilboð
Opið til 21
Snemma
á föstudags-
morgni
www.postur.is
Á morgun er síðasti
öruggi skiladagur
fyrir jólapakka
utan Evrópu
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri ætlar að sitja í nokkur
ár í viðbót sem seðlabankastjóri og
hætta svo á eigin forsendum með
sama hætti og þegar hann hætti
sem forsætisráðherra. Ef hann
verður neyddur til þess að segja af
sér ætlar hann aftur í pólitík.
„Ég er bara 60 ára og fullkom-
lega heilbrigður svo að ég hef
hugsað mér að sitja í nokkur ár í
viðbót og draga mig svo í hlé af
fúsum og frjálsum vilja eins og ég
gerði sem forsætisráðherra,“ segir
Davíð í viðtali við Fokus, fylgiblað
danska blaðsins Fyens Stift-
stid ende, sem á sunnudag var helg-
að þróuninni á Íslandi.
„Ef ég verð neyddur til að segja
af mér lítur málið allt öðruvísi út.
Þá ætla ég að snúa aftur í pólitík,“
segir hann. Bent A. Koch, fyrrver-
andi aðalritstjóri Fyens Stiftsti-
dende, sem tók viðtalið, bætir við:
„Enginn þarf að vera í vafa um að
Davíð er tilbúinn í baráttu.“
Viðtalið við Davíð birtist undir
fyrirsögninni „Blóraböggull fólks-
ins: Ég varaði við en enginn vildi
hlusta“. Í undirfyrirsögn segir:
„Maðurinn, sem Íslendingarnir
telja að beri alla sökina, hættir
ekki af fúsum og frjálsum vilja.“
Í viðtalinu er Davíð spurður að
því hvernig það sé að vera sá
maður sem mest sé gagnrýndur á
Íslandi. „Það er auðvitað ekki
skemmtilegt að vera skammaður.
En ég hef reynt það áður og ég hef
hreina samvisku,“ svarar Davíð og
kveðst skilja vel að fólk finni fyrir
reiði gagnvart stjórnmálamönnum
og kerfinu öllu. Hann segist skilja
að „ég sem hef tekið þátt í að
stjórna í svo mörg ár og sit nú í
Seðlabankanum, sé gerður að skot-
skífu, táknmynd allra þeirra sem
fólk telur að hafi svikið það.“
Davíð segist hafa varað við þró-
uninni allan tímann en enginn hafi
viljað hlusta á viðvaranir. Hann
segir að fjölmiðlar á Íslandi séu
ekki sjálfstæðir og frjálsir. Enginn
geti neitað því að hann hafi verið
mjög gagnrýninn í garð nýju fjár-
festanna. Þeir hafi fengið stöðugt
meiri völd og meðal annars viljað
ráða yfir fjölmiðlunum.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra vildi ekki tjá sig um orð Dav-
íðs í Fyens Stiftstidende þar sem
hann var ekki búinn að sjá blaðið.
Í skoðanakönnun Fréttablaðsins
sem gerð var 22. nóvember sögð-
ust 4,7 prósent myndu styðja Davíð
í sérframboði. 7,8 prósent sögðust
myndu styðja Sjálfstæðisflokkinn
ef hann væri leiddur af Davíð.
„Stjórnvöld verða að endurvinna
trúna á peningamálastefnuna. Það
gerum við með því að endurvinna
traust á Seðlabankanum og eftir-
litsstofnunum,“ segir Tryggvi Þór
Herbertsson, fyrrverandi efna-
hagsráðgjafi forsætisráðherra.
„Það er um leið algerlega ljóst að
þeir sem nú stýra í Seðlabankan-
um njóta ekki trausts hjá þjóðinni.
Þaðan af síður erlendis. Til breyt-
inga þarf að finna rétta tímann.“
- ghs, -ss, -ikh / sjá síðu 18.
Davíð ætlar í pólitík
verði honum ýtt út
Davíð Oddsson seðlabankastjóri ætlar að sitja í Seðlabankanum í nokkur ár í
viðbót og hætta svo á eigin forsendum. Ef hann neyðist til að segja af sér ætlar
hann að snúa aftur í pólitík. Þetta segir hann við danskt dagblað.
Vekur athygli
Vegleg umfjöllun
um Arnald Ind-
riðason í nýjasta
hefti Time.
FÓLK 48
Bestu og verstu
Sérfræðingar velja bestu og verstu
plötuumslögin í jólaútgáfunni.
TÓNLIST 42
FÓLK Sala á Durex-smokkum
hefur dregist saman hér á landi
um 25 prósent á þeim tveimur
mánuðum síðan bankakreppan
dembdist yfir land og þjóð.
Þessi þróun engan veginn í
samræmi við tölur í öðrum
löndum en samkvæmt erlendum
fréttaveitum hefur smokkasala
aukist í kjölfar fjármálakrepp-
unnar. Vilja sumir meina að pör
kjósi frekar að skemmta sér
innan veggja hjónaherbergisins
en utan þess.
Ásgeir Sveinsson, deildarstjóri
hjá Halldóri Jónssyni ehf., sem
flytur inn Durex-smokkana,
segir ástæðuna að einhverju
leyti þá að verð á smokkum hafi
hækkað.
Tólf Durex-smokkar í pakka
kosta tæplega tvö þúsund krónur
úti í búð. - fgg / sjá síðu 58
Breyttar venjur í kreppunni:
Smokkasala
dregst saman
HANDBOLTI Silfurdrengurinn Logi
Geirsson er eftirsóttur þessa
dagana en
spænsku stórliðin
Barcelona og
Portland San
Antonio vilja
bæði fá hann í
sínar raðir fyrir
næsta leiktíma-
bil.
„Þetta gæti
verið mjög
spennandi dæmi
en ég er samn-
ingsbundinn Lemgo og því ekki í
mínum höndum hvort ég fer til
Spánar,“ segir Logi sem á eitt og
hálft ár eftir af samningi sínum
við þýska félagið Lemgo.
Logi virðist ekki vera í
framtíðaráætlunum Markus
Baur, þjálfara Lemgo, og því
ekki ólíklegt að félagið selji hann
til Spánar fyrir rétt verð.
- hbg / sjá síðu 52
Logi Geirsson eftirsóttur:
Barcelona á
eftir Loga
LOGI GEIRSSON
-1
1
-2
-4
-2
BJART SYÐRA Í dag verður
NA-strekkingur norðvestan til og
suðaustanlands annars hægari.
Dálítil él á norðurhelmingi landsins
en bjart syðra. Snjókoma við SA-
ströndina síðdegis.
VEÐUR 4
BJÖRNINN Á ÍSNUM Ungir ísknattleiksmenn Bjarnarins leituðu lags í gær og léku íshokkí á ísilagðri Tjörninni. Borgarbúar kipptu
sér ekkert upp við það að sjá Björninn á ísnum en þó er ekki þar með sagt að landinn sé orðinn vanur ísbjörnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ef ég verð neyddur til að
segja af mér lítur málið
allt öðruvísi út. Þá ætla ég að
snúa aftur í pólitík.
DAVÍÐ ODDSSON
SEÐLABANKASTJÓRI