Fréttablaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 71
FIMMTUDAGUR 4. desember 2008 51
Brandon Flowers, forsprakki Las
Vegas-sveitarinnar The Killers,
segist hafa íhugað að fá sér Oasis-
húðflúr á sínum yngri árum.
„Þegar ég var tvítugur ætlaði ég
að fá mér Oasis-húðflúr annað
hvort á handlegginn á mér eða
bakið en gat ekki ákveðið mig
hvor staðurinn væri betri,“ sagði
Flowers. „Þegar ég hlustaði á
Don´t Look Back In Anger fannst
mér ég endurfæðast. Ég hugsaði
með mér: „Þetta er málið. Þetta
langar mig að gera í lífinu“,“
sagði hann. Þriðja plata The
Killers, Day & Age, er að koma
út, en tvö ár eru liðin síðan
síðasta hljóðversplatan Sam´s
Town kom út.
Vildi húðflúr
með Oasis
Þrjár hljómsveitir halda útgáfu-
tónleika á næstunni til að fagna
sínum nýjustu plötum. Fyrstu
tónleikarnir verða á Glaumbar í
kvöld þegar hljómsveitin Steini
treður þar upp. Sveitin gaf fyrir
skömmu út sína aðra plötu sem
nefnist Human Comfort. Hefur
hún að geyma níu glæný lög og
þrjú eldri. Annað kvöld halda The
Viking Giant Show og Singapore
Sling sína útgáfutónleika. The
Viking Giant Show, sem gaf út
plötuna The Lost Garden of
Hoolingans, verður á Hverfis-
barnum á meðan Singapore Sling
spilar á Grand Rokk. Sú sveit gaf
nýverið út plötuna Perversity,
Desperation and Death.
Þrjár sveitir
fagna útgáfu
THE VIKING GIANT SHOW Rokkararnir í
The Viking Giant Show halda útgáfutón-
leika annað kvöld.
Rokksveitin Agent Fresco, sem
vann Músíktilraunir í vor og und-
ankeppni Battle of the Bands fyrir
skömmu, hefur gefið út EP-plöt-
una Lightbulb Universe. Á henni
er lagið Eyes of a Cloud Catcher
sem var það vinsælasta á X-inu í
tvær vikur samfleytt í sumar.
Strákarnir tóku plötuna upp
alfarið sjálfir en njóta aðstoðar
Kimi Records við dreifinguna.
„Tóti gítarleikari er búinn að taka
sjálfur upp í tvö ár með pro-tools.
Nánast öll lögin voru búin til
heima hjá honum með tölvu og
gítar,“ segir söngvarinn Arnór
Dan Arnarson.
Agent Fresco er rétt að slíta
barnsskónum því hún hóf störf í
febrúar, vann Músíktilraunir í
mars og eftir það tók við stanslaus
spilamennska. „Við æfum aldrei.
Það er ekki út af því að við erum
svo góðir hljóðfæraleikarar held-
ur erum við bara alltaf að spila.
Lögin eru búin að þróast á tónleik-
unum og þess vegna höfðum við
meira sjálfstraust við að gefa þau
út,“ segir Arnór.
Til marks um þéttleika sveitar-
innar fékk hún fullt hús stiga hjá
breska rokktímaritinu Kerrang!
fyrir frammistöðu sína á Airwa-
ves-hátíðinni í haust. Þar var tón-
listinni lýst sem hræringi af poppi,
rokki, djassi og þungarokki; nokk-
urs konar blöndu af System of a
Down og The Dillinger Escape
Plan.
Úrslitakvöld Battle of the Bands
verður haldið í London 15. desem-
ber og stefnir Arnór vitaskuld á
sigur. „Ég ætla að rústa keppninni
og ætla að gefa mig 100% í þetta.
Ég ætla að fara út til að koma
Íslandi aftur á kortið.“
Síðustu tónleikar Agent Fresco
fyrir Lundúnaferðina verða á
Kaffibarnum í kvöld klukkan 21,
þar sem nýja EP-platan verður að
sjálfsögðu til sölu.
- fb
Spila stanslaust og æfa aldrei
AGENT FRESCO Rokkararnir í Agent Fres-
co hafa gefið út EP-plötuna Lightbulb
Universe sem hefur að geyma sex lög.
MYND/HÖSKARINN
Leikarinn Patrick Swayze hefur
neitað fregnum bandarískra
slúðurblaða um að hann sé á
dánarbeðinum. Í yfirlýsingu sem
var birt í tímaritinu People segir
hann að ásakanirnar séu rudda-
legar og ábyrgðarlausar.
Fregnir um að hann sé „á
síðasta snúning og kveðji nú
fjölskyldu sína með tárin í
augunum“, eru að hans sögn
helber lygi. Swayze, sem er 56
ára, greindist í mars síðastliðnum
með krabbamein í brisi. Segir
hann að veikindi sín séu bardagi
sem hann sé að vinna enn sem
komið er.
Fregnir slúðurblaðsins The
National Enquirer um að krabba-
meinið hafi breiðst út í lifur hans
virðast því ekki eiga við rök að
styðjast.
Swayze ekki
á dánarbeði
PATRICK SWAYZE Leikarinn góðkunni
hefur neitað orðrómi um að hann sé á
dánarbeðinum.
2 fyrir 1
í dag, 4.desember kl. 20:00
MasterCard korthafar fá tvo miða á verði eins á sérstaka MasterCard forsýningu
fimmtudaginn 4.desember kl. 20:00 í Laugarásbíó, Smárabíó,
Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri, Greiði þeir með kortinu
Meira á www.borgun.is/bio
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÞÉR Í JÓLASKAP