Fréttablaðið - 04.12.2008, Síða 64
44 4. desember 2008 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Ævintýramyndin Twilight
verður frumsýnd hérlendis
í kvöld. Myndin, sem fór
beint á toppinn í Bandaríkj-
unum, fjallar um ástar-
samband unglingsstúlku og
vampíru og er byggð á met-
sölubók Stephanie Meyer.
Bella Swan hefur alltaf verið dálít-
ið öðruvísi en aðrir og hefur aldrei
haft áhuga á að passa inn í stúlkna-
hópinn í menntaskólanum sínum.
Þegar móðir hennar giftist í annað
sinn og sendir hana í vist til föður
síns í smábænum Forks í Wash-
ington býst hún ekki við því að
margt muni breytast í sínu lífi. Þá
hittir hún hinn dularfulla Edward
Cullen sem er ólíkur öllum öðrum
strákum sem hún hefur hitt. Hann
er vampíra en fjölskylda hans er
óvenjuleg á þann hátt að hún kýs
að drekka ekki mannablóð.
Enginn vildi Twilight
Twilight, eða Ljósaskipti, kom
mjög á óvart þegar hún var frum-
sýnd í Bandaríkjunum. Hún kost-
aði aðeins 37 milljónir dollara en
þénaði strax á frumsýningarhelgi
sinni rúmar 70 milljónir. Hið
merkilega er að ekkert af stóru
kvikmyndaverunum framleiddi
myndina heldur var það hið smáa
Summit Entertainment, en aðeins
rúmt ár er síðan það hóf sjálft að
dreifa myndum í Bandaríkjun-
um.
Fjórar metsölubækur
Þegar hefur verið ákveðið að
kvikmynda framhald Twilight og
stefnir því allt í að nýr fram-
haldsmyndabálkur sé að verða
að veruleika, enda eru bækur
Stephanie Meyer þegar orðnar
fjórar talsins. Hafa þær allar
selst gríðarlega vel í Bandaríkj-
unum og víðar um heiminn, eða í
25 milljónum eintaka. Jafnframt
hafa þær verið þýddar yfir á 37
tungumál, þar á meðal á íslensku
undir nafninu Ljósaskipti.
Margir vilja meina að Twilight-
bækurnar séu að vissu leyti arf-
taki Harrys Potter-bókanna því
enginn af stóru bókaútgefendun-
um tók Harry Potter upp á sína
arma og það sama virðist hafa
gerst með Twilight, ekkert af
stóru kvikmyndaverunum áttaði
sig á möguleikum Twilight. Naga
þau sig eflaust í handarbökin
þessa dagana.
freyr@frettabladid.is
Óvæntar vinsældir Twilight
TWILIGHT Ástar- og ævintýramyndin Twilight fjallar um óvenjulegt ástarsamband unglingsstúlku og vampíru.
Vince Vaughn og Reese Wither-
spoon fara með aðalhlutverkin í
jólamyndinni Four Christmases
sem verður frumsýnd um helgina.
Þau leika parið Kate og Brad sem
ákveður að heimsækja fjölskyldur
sínar yfir hátíðarnar eftir að flug-
inu þeirra í jólafríið er aflýst.
Sá böggull fylgir skammrifi að
foreldrar þeirra beggja eru skilin
og hafa öll gift sig á nýjan leik.
Kate og Brad rembast því við að
heimsækja fjóra staði á jóladag og
fagna jólunum með fjórum foreldr-
um og fjölskyldum þeirra.
Um ekta jólamynd er að ræða
þar sem fjölskyldugríni og jólunum
er blandað saman á hressilegan
hátt. Leikstjóri er Seth Gordon sem
síðast sendi frá sér heimildarmynd-
ina The King of Kong sem fjallaði
um kostulegt einvígi tveggja
Bandaríkjamanna um heimsmetið í
tölvuleiknum Donkey Kong. Annar
þeirra, Steve Wiebe, leikur einmitt
lítið hlutverk í Four Christmases.
Myndin fær 5,7 af 10 mögulegum í
einkunn á síðunni Imdb.com.
Ferföld jólahátíð
FOUR CHRISTMASES Vince Vaughn og
Reese Witherspoon leika aðalhlutverkin
í gamanmyndinni Four Christmases.
> SÆKIR VÍGSLUATHÖFN
Leikarinn Tom Hanks verður við-
staddur vígsluathöfn Baracks
Obama sem forseti Bandaríkj-
anna í janúar. „Ég verð ein-
hvers staðar baka til,“ sagði
Hanks, sem er mikill stuðn-
ingsmaður Obama. „Svona
lagað hefur aldrei gerst áður.
Loksins vann náungi sem ég
kaus. Það hefur varla gerst í
mínu lífi.“
Framleiðslufyrirtæki Johnnys
Depp, Infinitum Nihil, hefur
tryggt sér kvikmyndaréttinn á
skáldsögu Nicks Tosches, In the
Hands of Dante. Depp mun líklega
fara með aðalhlutverkið.
Bókin gerist á tveimur mismun-
andi tímum. Annars vegar á
fimmtándu öld þegar Ítalinn Dante
reynir að ljúka við meistaraverk
sitt Hinn guðdómlega helgileik og
hins vegar í nútímanum þegar höf-
undurinn Tosches er beðinn um að
rannsaka handrit sem er hugsan-
lega upprunalegt handrit Dante.
Depp, sem myndi leika Toches, er
annars upptekinn þessa dagana
við tökur á Lísu í Undralandi í
leikstjórn Tims Burton.
Depp í Dante-mynd
JOHNNY DEPP Leikarinn snjalli mun
líklega fara með aðalhlutverkið í In the
Hands of Dante.
Leikstjórinn Roman Polanski,
maðurinn á bak við Rosemary´s
Baby, Chinatown og The Pianist,
hefur óskað eftir því að 31 árs
gömul ákæra á hendur honum
um kynferðislega misnotkun
verði felld niður.
Polanski gekk í gegnum mik-
inn harmleik árið 1969 þegar eig-
inkona hans Sharon Tate var myrt
af Manson-genginu í Bandaríkj-
unum. Leikstjórinn flutti þá til
Frakklands en sneri aftur 1974 til
að taka upp Chinatown. Eftir
hana virtust honum allir vegir
færir í Hollywood en Adam var
ekki lengi í Paradís því árið 1977
var Polanski ákærður fyrir að
hafa átt samneyti við þrettán ára
stúlku á heimili Jacks Nicholson.
Í miðjum réttarhöldum flúði leik-
stjórinn til Frakklands og hefur
ekki stigið niður fæti í Banda-
ríkjunum síðan. Stúlkan sem
hann svaf hjá hefur ítrekað óskað
eftir því að málið verði fellt niður
en án árangurs.
Núna hefur hinn 75 ára Pol-
anski óskað eftir því að málið
verði tekið upp aftur vegna nýrra
sönnunargagna. Fundust gögnin
við gerð nýrrar heimildarmynd-
ar sem nefnist Roman Polanski:
Wanted and Desired. Ellefu ár
eru liðin síðan Polanski reyndi
síðast að hreinsa nafn sitt í
Bandaríkjunum. Þá var kröfu
hans vísað frá. Bandarískir dóm-
stólar taka málið til athugunar í
janúar á næsta ári.
Polanski vill hreinsa nafn sitt
ROMAN POLANSKI Polanski við réttar-
höldin árið 1977. Honum er mikið í mun
að hreinsa nafn sitt í Bandaríkjunum.
Hver er þín eftirlætis kvikmynd?
Groundhog Day er sennilega sú sem ég
hef séð oftast um ævina. Það er í eðli
myndarinnar af hverju maður getur horft á
hana aftur og aftur. Mér finnst hún takast
skemmtilega á við mjög alvarlegt efni undir
niðri.
Hvort finnst þér betra að fara í bíó eða
að horfa heima? Heima, af því að þá get ég
fengið mér sígó og ýtt á pásu þegar ég vil.
Þá stjórna ég bíóinu.
Hver er þinn eftirlætis kvikmynda-
leikstjóri? Ég hugsa að það sé David
Fincher. Reyndar finnst mér Paul Thomas
Anderson fínn líka.
Hver er ofmetnasta kvikmynd allra
tíma? Good Will Hunting. Allt sem
viðkemur Ben Affleck finnst mér mjög
lélegt. Þetta er einhver lífstíðargremja
sennilega sem ég verð að berjast við. Það
er viss skítastimpill yfir öllu sem hann
tekur þátt í.
En hver er vanmetnasta kvik-
myndin? Mér fannst Four Rooms fá
litla athygli. Það er mynd eftir fjóra
leikstjóra sem leikstýra allir sínu
herbergi á hóteli. Robert Rodriguez og
Quentin Tarantino eru þar á meðal.
Hvaða kvikmynd myndirðu vilja
endurgera og hvernig myndirðu
breyta henni? Ég væri til í búa
til íslenska útgáfu af Ground-
hog Day. Hún myndi fjalla um
týnda borgarmanninn sem fer
út á land. Ætli það verði ekki
Fiskidagurinn á Dalvík. Páll
Magnússon fer til Dalvíkur og
finnur sig.
Fengirðu fjármagn og frjálsar hendur
til að gera hvaða kvikmynd sem er,
hvað myndirðu gera? Mig hefur
alltaf langað að sjá heimildarmynd
um æviskeið kveikjara og sjá hvert
hann ferðast alveg frá framleiðslu.
Ég hef aldrei klárað kveikjara og
þekki fáa sem hafa klárað kveikj-
ara. Ég væri til í að gera
heimildarmynd um
einn kveikjara og fá
að sjá hvað hann
sér og hlustar á.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN DAVÍÐ GUÐBRANDSSON LEIKARI
Vill gera heimildarmynd um kveikjara
SENDU SMS ESL DND Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU DARK NIGHT Á DVD ÁSAMT BÍÓMIÐA,
TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir
hj
á E
LK
O
Lin
du
m
–
Sk
óg
ar
lin
d
2.
M
eð
þ
ví
að
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S k
lú
bb
. 1
49
kr
/sk
ey
tið
.
9. HVERVINNUR!
Með hverjum disk fylgir
bíómiði á ævintýramyndina
City of Ember!
Dreifing
S T Æ R S T A M Y N D Á R S I N S
L O K S I N S Á D V D !
V E F V E R S L U N E L K O . i s