Fréttablaðið - 04.12.2008, Page 72
52 4. desember 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Handboltakempan Bjarki Sigurðsson tók óvænt fram skóna á dög-
unum og lék með Víkingi gegn Val í N1-deildinni. Víkingur mætir FH
í kvöld í Kaplakrika en með liði FH leikur sonur Bjarka, Örn Ingi, en
hann er með efnilegri handboltamönnum landsins og hefur staðið
sig vel með FH síðan hann gekk í raðir félagsins.
Það hefðu margir haft gaman af því að sjá þá feðg-
ana etja kappi á handboltavellinum en af því verður
ekki þar sem hinn 41 árs gamli Bjarki er nýkominn
úr aðgerð og ekki þeirri fyrstu á ferlinum.
„Ég er allur að koma til en það þurfti aðeins að
lappa upp á mig eins og áður. Ég er byrjaður
að styrkja mig og er að reyna að halda mér
í góðu líkamlegu formi. Ég hef ekkert
tekið neina ákvörðun um hversu
mikið ég ætla að vera með Víking-
um. Ég ætla bara að sjá til hvernig
ástandið verður á mér. Ég þarf fyrst að komast
í stand til þess að geta spilað með utandeild-
arliðinu mínu,“ sagði Bjarki léttur, en hvernig
stóð á því að hann byrjaði að spila aftur með Víkingunum? „Ég tók
að mér að þjálfa 2. flokkinn hjá Víkingi og svo var ég beðinn um að
koma inn og hjálpa liðinu. Það eru margir ungir drengir í liðinu sem
gætu hugsanlega notið góðs af þeirri reynslu sem ég bý yfir. Ég
var alveg til í að kíkja á það og athuga hvort ég gæti
eitthvað hjálpað til,“ sagði Bjarki sem segist vera nokk-
uð svekktur yfir því að geta ekki spilað í kvöld.
„Ég á því miður ekki von á því að geta verið með. Það
hefði samt verið helvíti gaman að vera með og
taka svolítið á stráknum,“ sagði Bjarki og hló
létt en hann telur að það myndi samt vera
ójöfn viðureign. „Ég veit ekki hversu
mikinn möguleika ég hefði átt. Hann
hefði örugglega tekið mig og snýtt
mér. Ég er ekkert rosalega snöggur í
vörninni lengur. Ég hefði frekar viljað
spila með honum en ég veit ekkert
hvort það verður einhvern tíma af því.“
HANDBOLTAKAPPINN BJARKI SIGURÐSSON: NÆR EKKI AÐ MÆTA SYNINUM Á VELLINUM Í KVÖLD
Hefði verið til í að taka svolítið á stráknum
HANDBOLTI Svo gæti farið að
íslenski landsliðsmaðurinn Logi
Geirsson yfirgefi herbúðir Lemgo
í sumar og gangi í raðir spænska
stórliðsins Barcelona. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins eru for-
ráðamenn Barcelona mjög áhuga-
samir um að fá Loga í sínar raðir
strax næsta sumar.
Logi á eitt og hálft ár eftir af
samningi sínum við Lemgo en
hefur ekki farið leynt með að hann
sé ósáttur í herbúðum félagsins og
hugsi sér til hreyfings. Er ekki að
sjá að hann sé í áætlunum þjálfar-
ans, Markus Baur.
Barcelona er ekki eina spænska
liðið sem sýnir Loga áhuga en
Portland San Antonio hefur einnig
verið að bera víurnar í Loga en
þessi tvö lið eru þau stærstu á
Spáni ásamt Ciudad Real sem
Ólafur Stefánsson leikur með.
„Ég get staðfest það að bæði
þessi lið hafa verið í sambandi.
Því er ekki að neita að þetta gætu
verið afar spennandi dæmi. Ann-
ars get ég afar lítið tjáð mig um
þessi mál á þessari stundu en það
er allt í vinnslu. Ég er með samn-
ing við Lemgo þannig að þeir stýra
í raun ferðinni,“ sagði Logi við
Fréttablaðið í gær og varðist ann-
ars allra frétta. „Ég ætla bara að
einbeita mér að því að spila hand-
bolta og það verða aðrir að sjá um
að klára þetta dæmi. Það er ekki í
mínum verkahring.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins gæti eitthvað skýrst með
framtíðarmál Loga í þessum mán-
uði eða í janúar. Ekki er vitað
hversu mikið Lemgo vill fá fyrir
Loga sem og hvað Barcelona væri
til í að greiða fyrir hans þjónustu.
henry@frettabladid.is
Barcelona vill fá Loga
Spænska stórliðið Barcelona hefur mikinn áhuga á að fá Loga Geirsson í sínar
raðir. Portland San Antonio hefur einnig lýst yfir áhuga á að næla í Loga.
TIL BARCELONA? Svo gæti farið að Íslendingar léku með handbolta- og fótboltaliði
Barcelona næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Norskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að franska
úrvalsdeilarfélagið Nancy væri á
höttunum eftir framherjanum
Veigari Páli Gunnarssyni hjá
Stabæk.
„Mér skilst að félögin séu bara
að reyna að koma sér saman um
verðmiða á mér, en ég veit ekkert
hvernig staðan á því er í augna-
blikinu,“ segir Veigar Páll í sam-
tali við Fréttablaðið.
Samkvæmt Nettavisen er kaup-
tilboð franska félagsins talið
nema allt að 15 milljónum norskra
króna eða um 314 milljónum
íslenskra króna en Stabæk vill fá
hærri upphæð og Lars Bohinen,
yfirmaður íþróttamála hjá Stab-
æk, segir félagið helst vilja halda
Veigari Páli áfram innan sinna
raða. Félögin munu líklega halda
áfram að semja um kaupverð
næstu daga.
Hinn 28 ára gamli Veigar Páll á
enn eitt ár eftir af samningi
sínum við Stabæk en hefur hins
vegar ekki farið leynt með vilja
sinn um að fá að spreyta sig í
sterkari deild en þeirri norsku.
Veigar Páll hefur reyndar reglu-
lega verið orðaður við félags-
skipti frá Stabæk eftir frábæra
spilamennsku undanfarin tímabil
en aldrei hefur orðið neitt af því
að hann færi. Veigar Páll viður-
kennir að hann sé spenntur yfir
áhuga Nancy en hefur þó allan
varann á og segir enn langt vera í
land hvað varðar félagsskipti.
„Ég hef alltaf sagt að ég hafi
áhuga á að koma mér eitthvað
áfram í fótbolta og Nancy er stórt
og flott félag í Frakklandi og
franska deildin er sterkari en sú
norska. Mér líður mjög vel hjá
Stabæk en nú finnst mér vera
kominn tími til þess að prófa eitt-
hvað nýtt og ég vona náttúrulega
að Stabæk standi ekki í vegi fyrir
mér með það. Þetta er hins vegar
enn langt frá því að vera í höfn og
ég er því alveg rólegur yfir þessu
ennþá. Það hefur óneitanlega
verið pirrandi þegar félög hafa
verið að sýna mér áhuga í gegn-
um tíðina að það verði aldrei neitt
úr því en mér finnst samt eins og
þetta Nancy dæmi sé svona næst
því að verða eitthvað af öllum
þeim tilfellnum,“ segir Veigar
Páll vongóður að lokum. - óþ
Franska úrvalsdeildarfélagið Nancy er í viðræðum við norska félagið Stabæk:
Nancy vill kaupa Veigar Pál
VEIGAR PÁLL Hugsanlega á leið til franska úrvalsdeildarfélagsins Nancy ef samn-
ingar um kaupverð nást. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> N1-deild karla í kvöld
Heil umferð fer fram í N1-deild karla í handbolta í kvöld.
Topplið Vals heimsækir Fram í slag Reykjavíkurliðanna
í Framhúsinu í Safamýri, Íslandsmeistarar Hauka fá HK
í heimsókn að Ásvöllum, spútniklið Akureyrar mætir
Stjörnunni í Mýrinni og þá verður boðið upp á nýliða-
slag í Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Víkingum en
félögin hafa átt ólíku gengi að fagna
til þessa í vetur. Toppbarátta
N1-deildarinnar er einstaklega
jöfn og aðeins þrjú stig eru
milli liðsins í efsta sæti og liðsins
í fimmta sæti. Allir leikir kvöldsins
hefjast kl. 19.30.
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
19
9 k
r/s
ke
yt
ið.
9. H
VER
VIN
NU
R!
VINNUR ÞÚPS3TÖLVU?
V E F V E R S L U N E L K O . i s
SENDU SMS EST PS3
Á NÚMERIÐ 1900
AÐALVINNINGUR PLA
YSTATION 3
ÁSAMT ÞREMUR LEIK
JUM!
I I
I
I !
AÐEINS Á
KARLALANDSLIÐIÐ
Jón Arnór Stefánsson (KR)
Jakob Sigurðarson (KR)
Helgi Magnússon (KR)
Fannar Ólafsson (KR)
Sigurður Þorsteinsson (Keflavík)
Hörður Axel Vilbergsson (Keflavík)
Páll Axel Vilbergsson (Grindavík)
Hlynur Bæringsson (Snæfell)
Sigurður Þorvaldsson (Snæfell)
Hreggviður Magnússon (ÍR)
Sveinbjörn Claessen (ÍR)
Magnús Gunnarsson (Njarðvík)
Logi Gunnarsson (Njarðvík)
KVENNALANDSLIÐIÐ
Ingibjörg Jakobsdóttir (Grindavík)
Pálína Gunnlaugsdóttir (Keflavík)
Kristrún Sigurjónsdóttir (Haukar)
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir (Keflavík)
Guðrún Ósk Ámundardóttir (KR)
Birna Valgarðsdóttir (Keflavík)
Petrúnella Skúladóttir (Grindavík)
Svava Ósk Stefánsdóttir (Keflavík)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir (KR)
Hafrún Hálfdánardóttir (Hamar)
Ragna M. Brynjarsdóttir (Haukar)
Fanney Guðmundsdóttir (Hamar)
FÓTBOLTI Þór/KA hefur náð
samningi við framherjann Mateja
Zver um að leika með félaginu í
Landsbankadeild kvenna næsta
sumar en þetta var staðfest á
heimasíðu Þórs í gær.
Zver er landsliðskona Slóveníu
og kom til Þórs/KA síðasta sumar
og lék þá níu leiki og skoraði tíu
mörk í Landsbankadeildinni. Það
er því mikill liðstyrkur fyrir
Akureyrarfélagið að fá hana aftur
í sínar raðir.
Ljóst er að Þór/KA teflir fram
öflugri framlínu næsta sumar þar
sem landsliðskonan Rakel
Hönnudóttir skrifaði nýverið
undir nýjan samning við Þór/KA
auk þess sem Vesna Smiljkovic er
gengin til liðs við félagið frá
Keflavík. - óþ
Liðstyrkur fyrir Þór/KA:
Mateja Zver
kemur aftur
DRAGAN STOJANOVIC Þjálfari Þórs/KA
getur glaðst yfir endurkomu Zver.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
KÖRFUBOLTI Landsliðsþjálfararnir
Sigurður Ingimundarson hjá
karlalandsliðinu og Ágúst
Sigurður Björgvinsson hjá
kvennalandsliðinu hafa valið
leikmannahópa sína fyrir leiki
gegn úrvalsliðum fyrir stjörnu-
leiki KKÍ.
Landsliðshóparnir er hér að
neðan. - óþ
Stjörnuleikir KKÍ:
Búið að velja
landsliðshópa