Fréttablaðið - 04.12.2008, Side 78
58 4. desember 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. sigtun, 6. munni, 8. fyrirboði, 9.
fugl, 11. fyrir hönd, 12. flatfótur, 14.
kvk nafn, 16. skóli, 17. netja, 18. fugl,
20. tveir eins, 21. tangi.
LÓÐRÉTT
1. tarfur, 3. klaki, 4. ósigur, 5. lík, 7.
land í Evrópu, 10. flýtir, 13. angan, 15.
illgresi, 16. skammst., 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. síun, 6. op, 8. spá, 9. lóa,
11. pr, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma, 17.
mör, 18. önd, 20. ff, 21. oddi.
LÓÐRÉTT: 1. boli, 3. ís, 4. uppgjöf, 5.
nár, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15.
arfi, 16. möo, 19. dd.
„Ég skipti því nokkurn veginn
jafnt á milli að fá mér AB-
mjólk með eplum og músli og
svo gamla góða hafragrautinn.
Síðan býð ég okkur hjónunum
upp á afskaplega góðan ávaxta-
orkudrykk. Grunnurinn gæti
verið epli, appelsína og sítróna
en líka hvítlaukur, pipar, græn
ólífuolía og vatn.“
Arnar Jónsson leikari.
„Í fyrsta skipti síðan við tókum við
Durex-smokkunum fyrir fjórum
árum hefur salan dregist saman.
Þetta er í kringum 25 prósenta
samdráttur,“ segir Ásgeir Sveins-
son, deildarstjóri hjá Halldóri
Jónssyni ehf. sem flytur inn
Durex-smokka. Í erlendum vef-
miðlum hefur mikið verið gert úr
því að smokkar séu einhver vin-
sælasti varningurinn í verslunum
um þessar mundir enda sé kynlíf
fremur ódýr afþreying í því fjár-
málahruni sem nú ríkir á Vestur-
löndum.
Ásgeir staðfestir að sölutölurn-
ar stangist á við það sem er í gangi
í öðrum Evrópulöndum. Þá hafi
verð á smokkum hækkað um 45
prósent á einu ári og má vel vera
að það spili inn í sífellt færri
smokkakaup.
Gunnlaugur Grétarsson, for-
maður HIV-samtakanna á Íslandi,
segir að smokkar séu vissulega
áberandi í mörgum búðum og það
sé vel. „Mér finnst þeir hins vegar
persónulega alltof dýrir. Að ég tali
nú ekki um fyrir ungt fólk sem er
að stíga sín fyrstu skref í kynlíf-
inu,“ segir Gunnlaugur og viður-
kennir að þetta sé mikið áhyggju-
efni.
„Ég vona bara að fólk hætti ekki
að kaupa smokka, kannski finnst
fólki smokkar of dýrir en það er
líka dýrt að missa heilsuna.“ Gunn-
laugur segist ekki hafa þá tilfinn-
ingu að skyndikynni séu á undan-
haldi. „Nei, mín tilfinning er frekar
sú að fólk sé kærulausara.“
Verðkönnun Fréttablaðsins
leiddi í ljós að verð á Durex-smokk-
um hefur hækkað ansi mikið. Tólf
smokkar af Extra-safe Durex-
smokkum kosta 1.759 í Lyfju og
1.990 í verslunum 10/11. Reyndar
má benda áhugasömum á fremur
ódýra smokka á vefsíðunni smokk-
ur.is en þar má meðal annars kaupa
Atlas-smokka, tólf í pakka, á 390
krónur. - fgg
Smokkasala dregst saman í kreppunni
„Já, þetta hefur reyndar staðið til
lengi. Við vorum búsett úti á sínum
tíma og ætluðum alltaf að halda
áfram í námi og/eða gera eitthvað
skemmtilegt,“ segir Ásdís Olsen,
sjónvarpsmaður og aðjúnkt við
Háskóla Íslands.
Hjónin Ásdís og Karl Ágúst
Úlfsson, leikari og rithöfundur,
eru farin að horfa í fullri alvöru út
fyrir landsteinana með búsetu í
huga og hafa sótt um græna kortið
í Bandaríkjunum. Ásdís dregur
enga dul á að þar hafi hið hörmu-
lega efnahagsástand Íslands sitt
að segja. Þau hjón eru sannarlega
ekki ein um að huga að brottför.
„Það er verið að setja allt liðið á
hausinn. Unga fólkið okkar er að
gefast upp á þessu landi. Þetta er
svona í grófum dráttum það sem
er í gangi. Og mér heyrist ótrú-
lega margir vera í þessum pæling-
um. Hvernig megi haga sínu lífi
miðað við þær aðstæður sem hafa
skapast. Og niðurstaða margra
virðist vera sú að flytja til
útlanda.“
Ásdís boðaði nýverið fastagesti
þáttar síns Mér finnst í sjónvarps-
sal INN. Þar var þessi umræða
uppi og flestir voru á því að eina
leiðin í stöðunni væri að flýja land.
Sigríður Klingenberg spákona er
að horfa til Vancouver í Kanada,
Ellý Ármanns var með svipaðar
hugmyndir og Guðrún Bergmann
lýsti með átakanlegum hætti
reynslu sinni af því hvernig var að
sækja um atvinnuleysisbætur.
„Mjög áhrifaríkt var að hlusta á
Guðrúnu, komna á sjötugsaldur-
inn og þarf nú að standa í þessu.
Hún hefur haft það gott alla ævi,
hefur rekið fína starfsemi á Snæ-
fellsnesi að undanförnu og þarf nú
að sækja um atvinnuleysisbætur.
Fólki, heiðarlegu, ábyrgu og dug-
legu finnst það óþolandi að þurfa
að vera á bótum til að lifa hér af.“
Ásdís og Karl Ágúst voru fyrir
nokkrum árum við nám í Ohio í
Bandaríkjunum og lýsir Ásdís því
sem yndislegum tíma. Þau eiga
fimm börn, tvö uppkomin en þrjár
stelpur eru heima enn og ein
þeirra er fædd í Bandaríkjunum
og því með ríkisfang þar. „Við
héldum alltaf að við gætum fylgt
henni eftir til Bandaríkjanna en
það virkar víst ekki þannig,“ segir
Ásdís og hlær. Hún segir það
svekkjandi að vera komin á gam-
als aldur og þurfa stanslaust að
standa í harki til að halda sjó. Nú
hefur stefnan verið tekin til
útlanda á ný. Karl Ágúst var á
sínum tíma kominn með stöðu í
Cornell-háskóla í Bandaríkjunum
og hefur lengi haft hug á því að
fara í doktorsnám. Þá var Ásdís
ekki til í að yfirgefa Ísland en nú
er sú stund upp runnin.
jakob@frettabladid.is
ÁSDÍS OLSEN: ÓTRÚLEGA MARGIR SEM ERU AÐ FLÝJA LAND
Ásdís Olsen og Karl Ágúst
sækja um græna kortið
ÁHYGGJUEFNI Gunnlaugur Grétarsson segir það áhyggjuefni að smokkasalan sé að
dragast saman. Það geti vel verið að þeir séu dýrir en að missa heilsuna sé líka dýrt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ef þetta verður til að ég verð að
segja af mér sem keisari í
Rokk landi mun ég axla þá
ábyrgð,“ segir útvarpsmaðurinn
Ólafur Páll Gunnarsson – betur
þekktur sem Óli Palli á Rás 2.
Á mánudag kom Óli Palli inn í
beina útsendingu þar sem sat við
stjórnvölinn félagi hans Guðni
Már Henningsson og sagði honum
af því að hann hefði heyrt að
starfsmenn Stöðvar 2 hefðu skál-
að í kampavíni á föstudaginn
þegar þeir fréttu af uppsögnum á
RÚV. „Já, þetta sagði ég,“ segir
iðrandi Óli Palli.
„Ég er bara mannlegur eins og
Bjarni Harðar og félagar. Og
vanur að trúa því sem mér er
sagt. Ég var þarna í miklu stuði
að halda upp á 25 ára
afmæli Rásar 2. Þá
kemur til mín kona
og segir mér þetta.
Hún hafði hitt frænda
sinn sem vinnur á
Stöð 2 að kvöldi föstu-
dags og hann hafði sagt
henni þetta. Þetta var
nokkrum mínútum áður
en ég fór í stúdíóið. Mér var
heitt í hamsi, stuð í mér og
allt í steik samtímis. Og
segi þetta svona við
Guðna Má, vin minn.“
Óli Palli tekur fram að
hálftíma síðar hafi hann
verið búinn að draga
þessi ummæli sín til baka
og biðjast afsökunar.
„Og ítrekaði afsök-
unarbeiðni
mína í
sam-
tali
við
sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, Pálma
Guðmundsson hálffrænda minn,
ættaðan frá Hvolsvelli.“
Óli Palli dregur enga dul á að
þetta hafi verið glórulaust. Þegar
hann fór yfir hópinn sem vinnur á
Stöð 2 þá eru þetta allt meira og
minna félagar hans, fyrrum sam-
starfsmenn og vinir.
„Eftir því sem ég hugsaði þetta
betur þá sá ég náttúrlega að þetta
er tómt bull og algjörlega galið.
En þetta sagði ég. Ég hef stund-
um fengið á baukinn, sérstaklega
í prívatlífinu, fyrir að segja eitt-
hvað sem ég hefði ekki átt að
segja. En hef reynt að passa mig
þessi átján ár sem ég hef fengið
að tala í útvarpið.“
- jbg
ÓLI PALLI Dró strax til baka
ummæli sín um meinta
skál og kampavíns-
drykkju Stöðvar
2-manna sem
dellu og bull.
ÁSDÍS OLSEN OG KARL ÁGÚST
Horfa af fullri alvöru út fyrir landsteinana með búsetu í huga
og hafa sótt um græna kortið. Stefnan er sett á Bandaríkin.
Ásdís segir marga vera að gefast upp á ástandinu og flýja
land.
Áhrif Kolbrúnar
Bergþórsdóttur,
blaðamanns Moggans
og bókmenntapáfa, eru
yfir allan vafa hafin enda
greip Félag íslenskra
bókaútgefanda til
þess bragðs að fá hana
og aðra gagnrýnendur sjónvarps-
þáttarins Kiljunnar til að lesa inn á
auglýsingar fyrir sig þar sem bækur
eru dásamaðar. Kolbrún kvaddi sér
hljóðs í Kiljunni og lýsti yfir aðdáun
sinni á Pollýönnu-bókunum og í
gær birtist frétt í Mogganum um að
Pollýanna væri uppseld. Útgefandi
Pollýönnu er einhver helsti skríbent
nýfrjálshyggjunnar, Jakob F. Ásgeirs-
son, sem telur nú Pollýönnu besta
fáanlega leiðarvísi út úr kreppu-
ástandinu.
Undirbúningur fyrir Listahátíð í
Reykjavík næsta vor er í fullum
gangi og mikil viðbrögð hafa orðið
við þeim efnisþætti sem varðar að
halda tónleika í stofunni heima
hjá sér. Hafa umsóknir komið
umsjónarmönnum í opna skjöldu
og skipta nú þegar tugum. Tónlist-
armennirirnir sem ætla að halda
tónleika heima hjá sér í vor eru af
ýmsu tagi. Meðal þeirra eru
Ragga Gísla, Diddú,
Bergþór Pálsson, FM
Belfast, Hjörleifur
Valsson, Kristjana
Stefánsdóttir, Tómas
R. Einarsson og
Felix Bergsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, frétta-
stjóri Stöðvar 2, má heldur betur
vel við una sé litið til nýjustu PPM
– rafrænna mælinga á sjónvarps-
áhorfi. Í fyrsta skipti í sögunni er
fréttastofa Stöðvar 2 komin yfir
Fréttir á RÚV í öllum aldurshóp-
um, eða frá 12 til 80 ára. Mælast
fréttir Stöðvar 2 í 25 prósentum
á móti 24 prósentum
frétta Ríkissjónvarps-
ins. Aðeins eru þrír
mánuðir síðan Óskar
Hrafn tók við stjórn
fréttastofu Stöðvar 2
og hefur leiðin legið
upp æ síðan. -jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Óli Palli iðrast og biðst afsökunar
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Karl J. Steingrímsson, betur
2. Víkingur Heiðar Ólafsson.
3. Færeyinga.
þekktur sem Kalli í Pelsinum.