Fréttablaðið - 11.12.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 11.
desember, 346. dagur ársins.
11.10 13.21 15.32
11.24 13.06 14.47
Aumingja homo sapiens að vera svona ófullkominn. Hér
velkjumst við á þrautagöngunni
á milli lífs og dauða, hallærislega
mannleg og asnaleg eithvað. Stór-
ar líkur eru á að við förum okkur
að voða á einn eða annan hátt. Því
er reynt að afstýra mannlegum
harmleikjum með forvörnum.
EFLAUST kom einhver dópist-
inn eða drykkjurúturinn og sagði
okkur í menntaskólanum að það
væri rugl, en ég man bara óljóst
eftir þeim sem kom og fræddi
okkur krakkana um alnæmi. Það
eina sem ég man er að hann sagði
að sjúkdómurinn hefði byrjað í
öpum í Afríku. Mig langaði rosa-
lega til að spyrja hvernig þetta
hefði smitast frá öpum í menn en
þorði það ekki í bælingu minni.
Líklega vissi ég svarið en langaði
bara til að heyra það frá fagað-
ila.
Í TILEFNI af jólahátíðinni eru
svínin frá ÁTVR farin að rúlla í
auglýsingatímunum. Áhugaleik-
arar sýna stórleik með svínstrýni
og minna okkur á að drekka ekki
frá okkur vit og rænu. Það er
svakalegur tvískinnungur í því
að ÁTVR kosti auglýsinguna. Við
sköffum búsið, en elskan mín
góða, þú verður að passa þig á að
drekka ekki of mikið. Ef þú
drekkur passlega verðurðu svona
mátulega hress og kátur og það
er alveg æðislegt, en ef þú drekk-
ur of mikið fer allt til helvítis.
ÉG HEF EKKI HUGMYND um
hvort hægt sé að hafa hemil á
mannlegum brestum með auglýs-
ingaherferðum. Ef bara einn
hættir við að skemma jólin heima
hjá sér með drykkjurugli eftir að
hafa séð svínin frá ÁTVR er þó
herferðin vissulega réttlætan-
leg.
NÚ er miklu meira lagt á okkur
en sammannlegu brestirnir. Að
auki leggst á okkur sú smán að
hafa klúðrað því að vera pínkulít-
ið og forríkt krúttþjóðfélag í að
vera pínkulítið, illa stjórnað og
svívirðilega skuldsett þjóðfélag
þar sem misskiptingin grasserar
og venjulegt fólk er að verða vit-
laust af pirringi og reiði. Kannski
hefði verið hægt að koma í veg
fyrir hrunið með forvörnum.
Jakkafataklæddir áhugaleikarar
með svínstrýni hefðu velst um í
peningahaugum slefandi og rýt-
andi undir slagorðinu „Ekki láta
græðgina breyta ykkur í svín“.
Herferðin hefði verið keyrð
skömmu fyrir ársfjórðungsupp-
gjör bankanna. Sjálfsstæðis-
flokkurinn hefði náttúrulega
borgað brúsann – það er gott að
græða, en samt ekki of mikið.
Forvarnir
3.500 kr. 3.700 kr. 2.600 kr.
3.500 kr. 2.800 kr.
2.900 kr.
3.700 kr.
3.500 kr. 1.300 kr.
Allar bækur í Eymundsson eru með
skiptimiða þannig að hægt er að skipta
jólagjöfunum til 10. janúar 2009.
Góðar gjafir
á góðu verði
1.300 kr.
3.800 kr. 2.800 kr.
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is