Fréttablaðið - 31.12.2008, Page 6
6 31. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
GAZA, AP Hamas-samtökin sögðu í
gær að opnun landamæra Gaza-
svæðisins væri skilyrði þess að
samið yrði um vopnahlé við Ísrael.
Þrátt fyrir harðar loftárásir Ísraela
á svæðið hafa Hamas-liðar þar síð-
ustu dagana skotið fleiri og öflugri
sprengjuflaugum yfir landamærin
til Ísraels en nokkru sinni.
Fjórir Ísraelar höfðu síðdegis í
gær fallið fyrir sprengjuflaugum
Palestínumanna síðan árásirnar á
Gaza hófust síðastliðinn laugardag.
Nærri 400 Palestínumenn hafa hins
vegar látið lífið vegna árása Ísra-
ela, þar á meðal meira en sex tugir
almennra borgara, samkvæmt taln-
ingu Sameinuðu þjóðanna. Heilu
fjölskyldurnar hafa fallið fyrir
sprengjum Ísraela.
Eldar loguðu víða í Gazaborg í
gær, meðal annars í fimm stjórnar-
byggingum sem sprengjum var
varpað á þennan fjórða dag árás-
anna. Engin leið er að segja til um
hve margir liggja lífs eða liðnir
undir rústum húsa.
Stjórnarbyggingarnar í Gaza
voru mannlausar þegar árásirnar í
gær voru gerðar og íbúar í næstu
húsum höfðu einnig farið að heiman
af ótta við yfirvofandi árásir.
„Meira en sautján flugskeytum
var varpað á mannlausar stjórnar-
byggingar, alveg án tillits til íbúa í
nágrenninu,“ sagði Ziad Koraz, einn
nágrannanna sem hafði forðað sér í
tæka tíð, en hús hans skemmdist í
árásunum. „Ef einhver hefur fram-
ið glæp, þá eiga þeir að draga hann
til refsingar en ekki heila þjóð.“
Ísraelskir ráðamenn hafa sagt að
árásunum sé ætlað að eyðileggja
Hamas-samtökin og koma í veg
fyrir sprengjuflaugaárásir þeirra
yfir landamærin til Ísraels, en að
öðru leyti er óljóst hvað Ísraelar
ætlast fyrir.
Stutt er í þingkosningar í Ísrael
og svo virðist sem stjórnarflokk-
arnir óttist að harðlínuflokkur
Benjamins Netanyahu geti náð hylli
kjósenda.
Þjóðarleiðtogar víða um heim
hafa fordæmt árásirnar, sem eru
þær mannskæðustu síðan 1967, og
hvatt til þess að samið verði um
vopnahlé sem fyrst.
Athygli vakti í gær að Karel
Schwarzenberg, utanríkisráð-
herra Tékklands, sem tekur við
formennsku í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins um þessi
áramót, sagðist telja að Ísraelar
hafi fullan rétt til að verja sig
gegn sprengjuflaugaárásum frá
Gaza.
gudsteinn@frettabladid.is
Opnun landamæra
skilyrði vopnahlés
Nærri 400 manns, þar af tugir almennra borgara, hafa fallið í loftárásum Ísra-
ela á Gaza síðan um helgina. Hamas-samtökin svara með æ fleiri heimagerðum
sprengjuflaugum, sem hafa kostað fjóra Ísraela lífið síðustu daga.
SYSTUR BORNAR TIL GRAFAR Tvær systur, fjögurra og tólf ára, voru bornar til grafar
í gær í bænum Beit Hanoun á Gazasvæðinu, þar sem þær féllu fyrir ísraelskri
sprengju. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HEILBRIGÐISMÁL Bætur slysatrygg-
inga almannatrygginga og
sjúkradagpen-
ingar hækka
um áramótin
samkvæmt
reglugerð
Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar
heilbrigðisráð-
herra sem gefin
var út í gær.
Samkvæmt
reglugerðinni
hækka fjárhæð-
ir slysatryggingabóta almanna-
trygginga um 9,6 prósent frá 1.
janúar 2009. Sama máli gegnir
um sjúkradagpeninga sem hækka
um 9,6 prósent frá áramótum. - hhs
Reglugerð heilbrigðisráðherra:
Slysabætur
hækka í janúar
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
HEILBRIGÐISMÁL Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra og
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarstjóri í Reykjavík,
undirrituðu í gær samning þess
efnis að rekstur miðstöðvar
heimahjúkrunar höfuðborgar-
svæðisins verði fluttur frá ríkinu
til borgarinnar.
Í tilkynningu frá heilbrigðis-
ráðuneytinu kemur fram að með
þjónustusamningnum hefjist
tilraunaverkefni til þriggja ára
sem felst í að reka heimahjúkrun
og sameina hana rekstri félags-
legrar heimaþjónustu í Reykja-
vík.
Heildarupphæð samnings um
heimahjúkrun til þriggja ára er
2,8 milljarðar króna. - kg
Undirritun samnings:
Borgin rekur
heimahjúkrun
Vegna greinar í blaðinu í gær um útskriftar-
gjald Skjásbíós, sem hækkar leigða mynd
um 250 krónur, vill Friðrik Friðriksson,
rekstrarstjóri Stafræns sjónvarps, koma
eftirfarandi á framfæri:
„Öllum viðskiptavinum Skjásbíós
stendur til boða að fá reikninga fyrir
þjónustunni með rafrænum hætti og
sleppa þar með við útskriftargjaldið.
Skjárbíó hvetur fólk til þess að nýta
sér þann möguleika, það eina sem
þarf er að hringja í 800 7000 og láta
breyta reikningum yfir í netreikninga.
Okkar mat til þessa hefur verið að óhöndug-
legt sé að setja upplýsingar um seðilgjöld og
aðra greiðslukosti við valmöguleikann þegar
pantað er. En við munum þó skoða það
betur.“
Friðrik segir að samkvæmt ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins nr. 10/2005 sé
Símanum og Skjánum óheimilt að inn-
heimta sameiginlega gjöld fyrir
annars vegar Sjónvarp Símans og
hins vegar Skjábíó. Af því leiðir að
reikningarnir verða fleiri en einn.
„Í ljósi efnahagsástandsins og
þeirrar hagræðingar sem sameig-
inleg innheimta felur í sér, bæði
fyrir fyrirtækin og neytendur, mun
Skjárinn leita eftir því að fá þessu
breytt,“ skrifar Friðrik. „Eins og gefur að
skilja er það okkar hagur að viðskiptavinir
Skjásbíós njóti allra kostanna með þjónust-
unni án viðbótargjalda sem koma eftir á.“
Neytendur: Enn um Skjábíó
Sleppa má við útskriftargjaldið
■ Júní 1967 Ísrael hertekur í sex daga
stríðinu Gazasvæðið, sem áður var
undir stjórn Egyptalands. Ísraelar
töldu íbúana 360 þúsund, og var um
helmingur þeirra flóttamenn frá Ísra-
el. Nú eru íbúarnir þar um ein og hálf
milljón. Samkvæmt Sameinuðu þjóð-
unum er ein milljón þeirra flóttamenn
eða afkomendur flóttamanna.
■ Desember 1987 Átök í Jebaliya-
flóttamannabúðunum leiða af sér
allsherjaruppreisn meðal Palestínu-
manna sem stóð til ársins 1993, en þá
höfðu átökin kostað meira en 2.000
Palestínumenn og innan við 200 Ísra-
ela lífið. Hamas-samtökin eru stofnuð
á fyrstu vikum uppreisnarinnar.
■ September 2005 Ísraelsher og 8.500
ísraelskir landtökumenn yfirgefa Gaza-
svæðið. Ísrael lætur þó ekki af hendi
yfirráð sín yfir lofthelgi, landhelgi við
ströndina og landamærastöðvum.
■ Júní 2007 Hamas-samtökin hrekja
Fatah-samtökin frá Gazasvæðinu í
kjölfar mannskæðra átaka milli þess-
ara tveggja helstu fylkinga Palestínu-
manna.
■ Júní 2008 Hamas og Ísrael semja
um vopnahlé, sem felur í sér að
sprengjuflaugaárásum á Ísrael linni
gegn því að Ísraelar hætti árásum á
Hamas-samtökin og leiðtoga þeirra.
■ Nóvember 2008 Palestínumenn
hefja á ný sprengjuflaugaárásir yfir
landamærin, í beinu framhaldi af inn-
rás Ísraelshers inn á Gazasvæðið.
■ 19. desember 2008 Hamas-sam-
tökin segja vopnahléssamkomulag-
ið runnið út og verði ekki framlengt
vegna brota Ísraela gegn því.
■ 27. desember 2008 Ísraelar hefja
loftárásir á Gazasvæðið, þær mann-
skæðustu síðan í stríðinu 1967. Strax
á fyrsta degi falla meira en 200 Pal-
estínumenn.
AFSKIPTI ÍSRAELA AF GAZASVÆÐINU
EFNAHAGSMÁL Unnið er að varanlegri lausn á
málum einstaklinga og fyrirtækja sem eru
með húsnæðislán bundin í erlendri mynt.
Meðal annars er til skoðunar að skuldbreyta
lánum úr erlendri mynt yfir í krónur.
Hópur skipaður fulltrúum frá viðskipta-,
fjármála- og forsætisráðuneytum, Seðla-
banka og Fjármálaeftirliti hefur unnið að
þessu að undanförnu. Er niðurstaðna að
vænta frá honum á næstu dögum eða vikum.
„Frysting erlendra lána var ekki hugsuð
til frambúðar,“ segir Jón Þór Sturluson, sem
starfar í hópnum fyrir hönd viðskiptaráðu-
neytisins.
Algengt er að fjármálastofnanir bjóði
frystingu lána til fjögurra mánaða. Jón Þór
segist búast við því að fjármálastofnanir
framlengi slíka samninga, verði lausn ekki
fundin áður en tímabili frystingar lýkur.
Hann segir allt kapp lagt á að lausn finnist
áður en samningarnir renna út. Ekki sé þó
hægt að taka ákvörðun um hvaða leið verður
farin fyrr en eiginfjárstaða og lausafjár-
staða ríkisbankanna liggi ljós fyrir. - hhs
Unnið er að varanlegri lausn fyrir þá sem eru með lán í erlendri mynt:
Hugsanlega breytt í krónur
JÓN ÞÓR
STURLUSON
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta hyggst
hefja viðræður um framtíð Árvak-
urs, útgáfufélags Morgunblaðsins,
á næstu dögum. Þetta segir Einar
Sigurðsson, forstjóri Árvakurs.
Rætt verður við Glitni, við-
skiptabanka og stærsta kröfuhafa
félagsins. Unnið hefur verið að
endurfjármögnun Árvakurs
undanfarið og hafa um 20 aðilar
sýnt því áhuga. Félagið skuldar
ríflega fjóra milljarða. Engin
fyrirheit hafa verið gefin um
niðurfellingu skulda, segir Einar.
Lausafjárstaða Árvakurs er
betri en um síðustu áramót og
mun starfsfólk fá laun greidd á
réttum tíma, segir Einar. - bj
Endurskipulagning Árvakurs:
Viðræður við
Glitni hefjast
Ætlar þú að sækja áramóta-
brennu á gamlársdag?
JÁ 34%
NEI 66%
SPURNING DAGSINS Í DAG
finnst þér 2008 hafa verið gott
ár?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN