Fréttablaðið - 07.01.2009, Side 31

Fréttablaðið - 07.01.2009, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 7. janúar 2009 19 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 7. janúar ➜ Tónleikar 19.30 Vínartón- leikar Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í Háskóla- bíói við Hagatorg þar sem flutt verða verk eftir Strauss, Lehár og fleiri. Ein- söngvari á tónleik- unum er Dísella Lárusdóttir. ➜ Dans 20.00 Tangókvöld verður haldið á Kaffitári, Bankastræti 8. Opinn tími fyrir byrjendur milli kl. 20-21. Aðgangseyrir kr. 500, kennsla innifalin. ➜ Sýningar Ull er gull Kolbrún Hjörleifsdóttir sýnir myndverk unnin úr íslenskri ull á Geysi bistro/bar við Aðalstræti. Opið sun.-fim. 11.30-22, fös.-lau. 11.30-22.30. Í Gerðarsafni stendur yfir sýning á verk- um úr safneign eftir ýmsa listamenn. Meðal verka eru nýleg aðföng, vatns- litamyndir og veggmyndir úr vinnustofu Kjarvals. Opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Gerðar- safn, Hamraborg 4, Kópavogi. Á Sjávarbarnum við Grandagarð stendur yfir sýning á átta lágmyndum eftir Tedda. Opið mán.-fös. kl. 10-21, lau. 11-22 og sun. 16-22. ➜ Ljósmyndasýningar Atli Már Hafsteinsson er með sýningu í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu 15, 6. hæð. Opið virka daga kl. 10-16 og um helgar kl. 13-17. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Sænski raftónlistarmaðurinn Familjen, sem heitir réttu nafni Johan T. Karlsson, ætlar að troða upp á skemmtistaðnum Nasa föstudagskvöldið 6. febrúar. Familjen sló í gegn á síðustu Airwaves-hátíð og var að mörgum talinn einn af hápunktum hennar. Lagið Det snurrar i min skalle hefur verið að gera góða hluti á öldum ljósvakans að undanförnu og nýverið hlaut Familjen sænsku Grammy-verðlaunin fyrir besta myndbandið. Miðasala á tónleikana hefst í næstu viku á Midi.is. Upplýsingar um miðaverð og upphitun verður tilkynnt innan tíðar. Familjen til Íslands FAMILJEN Familjen, sem heitir réttu nafni Johan T. Karlsson, spilar á Nasa 6. febrúar. Plötusnúðurinn Ásmundur Sveinsson, eða Ási diskó, er með böggum hildar þessa dagana eftir að geisladiskamöppu með tæp- lega tvö hundruð merktum disk- um var stolið úr bíl hans. „Ég er að fara næsta föstudag að spila í útvarpinu, á X-inu, og það er skemmtilegra að vera með möppuna með sér,“ segir Ási. Hann hefur starfað sem plötu- snúður í tvö ár og hefur hingað til sloppið vel frá fingralöngum þjófum. „Ég hef aldrei lent í því að einhverju hafi verið stolið frá mér.“ Kannski þess vegna hafði hann ekki varann á því bíll hans var ólæstur þegar mappan var hrifs- uð úr honum. Telur hann að þjófn- aðurinn hafi átt sér stað í Laugar- dalnum. Ási býður tíu þúsund króna fundarlaun fyrir möppuna og hefur einnig heitið því að kæra ekki þjófinn eða þjófana. Þeir sem geta gefið vísbendingar um málið skulu hringja í hann í síma 6623094 eða senda honum tölvu- póst á netfangið asisveinss@ gmail.com. - fb Diskum stolið frá Ása diskó ÁSI DISKÓ Ásmundur vill endur- heimta geisladiskamöppu sína sem var stolið úr bíl hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Útón stendur fyrir fræðslukvöldi í Norræna húsinu í kvöld. Hjörtur Smárason, leiðsögumaður um frumskóga veraldarvefjarins, flytur erindi um hvernig hægt er að byggja upp sterkt orðspor á netinu og leitast við að svara spurningum um hvernig við getum haft áhrif á leitarvélar eins og Google og verndað nafn/vöru- merki okkar. Gestir kvöldsins verða Ólafur Arnalds, Sólrún Sumarliðadóttir úr Amiinu og óperusöngvarinn Kolbeinn J. Ketilsson. Þátttöku- gjald er 500 krónur fyrir félags- menn FTT, FÍH, FÍT, TÍ og FHF og 1.500 krónur fyrir aðra. Skráning- ar fara fram í síma 511 4000 eða greta@utflutningsrad.is. Útón fjallar um netið ÓLAFUR ARNALDS Verður á meðal gesta í Norræna húsinu í kvöld. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -2 3 8 7 Starfsfólk Glitnis svarar fyrirspurnum í dag milli kl. 17 og 21 í síma 440 4000 Starfsfólk Eignastýringar Glitnis, Almenna lífeyrissjóðsins og Glitnis Fjármögnunar svara spurningum viðskiptavina ásamt ráðgjöfum Glitnis. Á glitnir.is getur þú einnig pantað fjármálaviðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.