Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 22
22 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Ferðaþjónustan í upphafi árs
UMRÆÐAN
Erna Hauksdóttir skrifar um ferða-
þjónustuna
Í upphafi árs velta menn jafnan fyrir sér horfum fyrir árið og
hafa Íslendingar sjaldan horft
með jafn mikilli óvissu á árið
fram undan. Bankahrunið og
afleiðingar þess hefur sett til-
veru bæði fólks og fyrirtækja
í nýja stöðu sem í raun er óljós
þótt ljóst sé að hún er mun verri
en við höfum áður séð. Staða fyrirtækj-
anna í ferðaþjónustu er býsna misjöfn
enda eru margvísleg fyrirtæki í atvinnu-
greininni. Mörg fyrirtæki hafa fjárfest
mikið síðustu misseri og tekið til þess
lán í erlendri mynt og er skuldastaða
þeirra nú mjög slæm. Við fáum gjarn-
an þá spurningu núna hvort ekki sé fínt
fyrir ferðaþjónustuna að fá þessa miklu
gengislækkun! Það má að sönnu svara
því til að vitaskuld geta erlendir ferða-
menn keypt ýmsar vörur og þjónustu
á lægra verði í erlendri mynt en áður,
a.m.k. tímabundið. Það er þó ljóst að
gengislækkunin veldur mikilli verð-
bólgu og hækkun lána sem enda auðvit-
að í hærra verðlagi. Á árinu 2007 var
gengi íslensku krónunnar reyndar allt-
of hátt, það var augljóst að það gat ekki
gengið til lengdar. Samtök ferðaþjónust-
unnar hafa í mörg ár bent á að það skipti
ekki öllu hvort gengisvísitalan sé 10-20
stigum fyrir ofan eða neðan meint jafn-
vægisgengi, það skiptir öllu máli að hún
sveiflist ekki jafn mikið og hún hefur
gert í gegnum tíðina. Það er mjög erf-
itt fyrir fyrirtækin, sem þurfa að verð-
leggja þjónustu sína langt fram í tímann,
að vita aldrei hvað muni koma upp úr
kassanum þegar ferðamaðurinn greiðir
reikninginn. Sveiflur sem þessar koma
í veg fyrir virka áætlanagerð innan fyr-
irtækjanna og hafa mjög neikvæð áhrif
á afkomu þeirra. Það kom því ekki á
óvart að í niðurstöðum könnun-
ar sem SAF gerðu nýlega meðal
félagsmanna sinna um afstöðu
þeirra til Evrópusambandsins,
að 83% þeirra voru mjög eða
frekar hlynnt því að evra yrði
tekin upp. Það skiptir nefnilega
mestu að hafa kostnað og tekjur
í sömu mynt.
Alþjóðleg barátta
um ferðamanninn
Við hverju ætli megi búast á
næsta ári? Samkvæmt upplýs-
ingum frá ferðaskrifstofum sem flytja
ferðamenn inn til landsins er gríðarleg
óvissa ríkjandi. Bókanir hópa eru svip-
aðar og á sama tíma á síðasta ári en það
á eftir að koma í ljós hvort erlendum
ferðaskrifstofum tekst að selja í ferð-
irnar. Það er líka mikil óvissa um þá
ferðamenn sem koma á eigin vegum með
stuttum fyrirvara, en slíkt ferðamynst-
ur hefur verið að færast í aukana síðustu
árin. Það er mjög mikill samdráttur í
hvataferðum þar sem fyrirtæki um allan
heim halda að sér höndum í þeim efnum
og almenn fækkun fólks í viðskiptaerind-
um. Enn fremur verða mun færri ráð-
stefnur á þessu ári en í fyrra og hefur
það ekki aðeins með efnahagsástandið að
gera, það var fyrirséð. Það sem stjórnar
eftirspurn erlendra ferðamanna er fyrst
og fremst efnahagsástandið í heima-
landinu, þótt fleira komi til. Gengisstaða
krónunnar virðist ekki hafa úrslitaáhrif
á ákvörðun um ferðalagið til Íslands en
hefur áhrif á eyðsluna þegar til lands-
ins er komið. Ísland er ekki áfangastað-
ur sem valinn er árlega eins og suðræn-
ar strendur eru fyrir marga. Því hefur
staða gengisins ekki sömu áhrif. Þess
vegna hafa samtökin fyrst og fremst
kallað á stöðugleika í gengismálum.
Efnahagsástandið í okkar helstu við-
skiptalöndum er ekki beysið og því kvíða
menn samdrætti í ferðalögum. Það verð-
ur þó bitist um ferðamennina á alþjóð-
legum mörkuðum og þá er eins gott að
Ísland verði ekki útundan vegna sparn-
aðar í markaðssetningu, en framlög til
landkynningar eru mjög góð fjárfesting
sem kemur margföld til baka. Þeir upp-
skera sem sá!
Mikilvægi ferðaþjónustunnar
Ég hef oft furðað mig á því að heyra
fólk, jafnvel þingmenn og framámenn
í atvinnulífinu, telja upp atvinnugrein-
ar án þess að minnast einu orði á ferða-
þjónustu. Hún er sífellt mikilvægari í
bæði gjaldeyrissköpun og atvinnusköpun
um land allt. Það hefur orðið gríðarleg-
ur vöxtur í greininni síðustu árin, 60%
aukning í komum erlendra ferðamanna
frá árinu 2000.
Samkvæmt nýjum ferðaþjónustureikn-
ingum Hagstofunnar (Tourism Satel-
lite Account) sem birtust nýlega og ná til
ársins 2006 kom í ljós að árið 2006 skil-
aði ferðaþjónustan 19% allra gjaldeyris-
tekna þjóðarinnar og var þó mikil fjár-
málaþjónusta það árið, en því er ekki að
heilsa nú. Heildarkaup á ferðaþjónustu í
landinu á sama tíma voru 135 milljarð-
ar eða 11,5% af landsframleiðslu sem er
tvöfalt meira en það sem áliðnaðurinn
skilaði en augu stjórnvalda hafa beinst
mikið að þeirri atvinnugrein síðustu
árin.
Við hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
höfum lengi haldið því fram að verðmæti
ferðaþjónustunnar séu mun meiri en fal-
ist hefur í hefðbundnum upplýsingum
Hagstofunnar fram að þessu og hefur
það nú komið í ljós með þessum nýju
ferðaþjónustureikningum þar sem bæði
beinar og afleiddar tekjur eru taldar.
Það eru þrjár burðarstoðir í gjald-
eyrissköpun á Íslandi – sjávarútvegur,
ferðaþjónusta og stóriðja. Ísland verð-
ur ekki í bráð fjármálamiðstöð heims-
ins eins og hugur margra stóð til en
það eru mýmörg önnur tækifæri fyrir
menntaða Íslendinga, vísindafólk, sér-
fræðinga í orkuiðnaði, hönnuði og annað
listafólk. Það er mikil þörf fyrir aukn-
ar gjaldeyristekjur á Íslandi núna og því
þurfa stjórnvöld að huga vel að þörfum
atvinnulífsins svo hámarka megi tekj-
urnar.
Það eru mikil tækifæri í íslenskri
ferðaþjónustu þrátt fyrir tímabundna
erfiðleika og mikla óvissu, það þarf að
þróa nýja ferðamannastaði og gæta þess
að leggja áherslu á að erlendir ferða-
menn geti bæði kynnst lífi þjóðarinnar
og notið náttúrunnar og menningu um
leið og við bjóðum þeim góðan mat úr
næsta umhverfi og góða þjónustu. Það
eru líka mikil tækifæri fólgin í aukinni
þjónustu við íslenska ferðamenn sem
munu trúlega stórauka ferðir um eigið
land nú þegar erlendur gjaldeyrir er orð-
inn mun dýrari en áður.
Við verðum að horfa með bjartsýni
fram á veginn og muna að viðhorf okkar
hafa áhrif á árangurinn. Vonast er til að
gengi krónunnar styrkist á næstu mán-
uðum, verðbólgan hjaðni og vextir lækki
og hægt verði að afnema gjaldeyrishöft
sem eru óþolandi bremsa á atvinnulífið.
Það þarf sérstaklega að huga að rekstr-
arumhverfi fyrirtækjanna við þess-
ar aðstæður. Við þurfum á framsækni,
bjartsýni, skapandi hugsun og frum-
kvöðlakrafti á öllum sviðum að halda
– sama kraftinum og var hér í góðærinu
og skapaði svokallaða útrás en þarf nú að
beina í heilbrigðari farveg, heilbrigðari
útrás.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar.
ERNA
HAUKSDÓTTIR
Það er mjög erfitt fyrir fyrirtækin,
sem þurfa að verðleggja þjónustu sína
langt fram í tímann, að vita aldrei
hvað muni koma upp úr kassanum
þegar ferðamaðurinn greiðir reikning-
inn.
KynntuþérnámsframboðOpnaháskólansnánaráwww.opnihaskolinn.is ogskráðuþigápóstlista.
NánariupplýsingarveitirAuðurHrefnaGuðmundsdóttir,audurhg@ru.is,s.5996368
STYTTRI NÁMSKEIÐ
Gerðfjárhagsáætlana
Námskeiðfyrirþásemviljaaukafærnisínaígerð
fjárhagsáætlana.Námskeiðiðersamtals18klst. Námskeiðiðhefst26.Janúar.
Fjármálfjölskyldunnar
Fjallaðerumhelstuatriðisemvarðafjárhagheimilanna
viðnúverandiaðstæður.
Námskeiðiðferfram28.janúar.
Evrópuréttur
16klst.námskeiðfyrirþásemviljafáinnsýní
grundvallarþættiEvrópuréttarins,innleiðinguá
EvrópulöggjöfoghlutverkstofnanaESB.
Námskeiðiðhefst10.febrúar.
Samrunifyrirtækja
Hagnýttnámskeiðsemhentarvelþeimsemeruaðskoða
möguleikannásamrunaeðayfirtökufyrirtækja.
Námskeiðiðferfram11.febrúar.
Fjármálastjórnunfyrirtækja
Hagnýtt4raklst.námskeiðþarsemfariðeryfir
fjármálastjórnunfyrirtækjaínúverandiárferði.
Námskeiðiðferfram26.febrúar.
LENGRI NÁMSKEIÐ
Rekstrarogfjármálanám
Ánámskeiðinuerfjallaðumalltþaðhelsta
semtengistrekstriogfjármálum. Hagnýttfyrirþásemviljaaukafærnisínaí
fjármálumogrekstrilítillaogmiðlungsstórra
fyrirtækja. Námskeiðiðhefst10.febrúar.
Almennirbókarar
Hagnýtt48klst.námskeiðfyrirþásemhafa
einhverngrunníbókhaldioghyggjastsækja
umínámiðViðurkenndirbókarar. Námskeiðiðhefst3.mars.
Vefstjórnun
Námskeiðfyrirstarfandivefstjórasemvilja
aukafærnisínaogkynnastnýjumaðferðumí
vefmálumoghvaðeraðskilabestum
árangri.
Námskeiðiðhefst25.febrúar.
Diplómanám
FagMenntbýðuruppádiplómanám
samhliðavinnu.Fjölbreyttarleiðiríboði. Námiðtekureittár.
TUNGUMÁL / LANGUAGES
BasicSpokenEnglish
Participantsworksystematicallyon
increasingtheiruseofbasicvocabularyand
phrases.Suitableforbeginners. ThecoursestartsJanuary26. AdvancedSpokenEnglish
Thecourseisanadvancedcourseinwhich
participantsworkonadvancedvocabulary
andformalstructuresofcommunication. ThecoursestartsJanuary26. SpanishforProfessionals
Thisisacourseforallthosewhowishto
startstudyingSpanishinabusinesscontext. Itisafirstapproachtothelanguageandto
theculture.
ThecoursestartsJanuary26. SpokenSpanish
ThosewhowishtopractisetheirSpanish
speakingskillsandbuildontheirconfidence
inusingSpanishforprofessionaland travelpurposes. ThecoursestartsFebruary19. STYRKTU
STÖÐU ÞÍNA! Kynntuþérsóknarfæriáwww.opnihaskolinn.is