Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 42
 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR4 „Ég hef nú alltaf verið pínulít- ið veikur fyrir djassi,“ segir Jón Stefánsson, stjórnandi Kammer- kórs Langholtskirkju sem heldur tónleika í kirkjunni annað kvöld klukkan 20. Tónleikarnir verða með djass- ívafi en nokkrir þekktir djasstón- listarmenn koma fram með kórn- um. Þetta eru þeir Einar Valur Scheving trommuleikari, Kjartan Valdemarsson píanóleikari, Sig- urður Flosason saxófónleikari og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari. „Það eru alger forréttindi að fá að spila með snill- ingum eins og þeim,“ segir Jón. Kórinn hélt svipaða tónleika fyrir ári síðan sem tókust að sögn Jóns ákaflega vel. „Ég hef alltaf reynt að vera ekki með einhæfa tónlist fyrir kórana mína. „Í fyrra sungum við til dæmis djass og svo Bach-mótettur sem er eins langt frá hvort öðru og hægt er,“ segir Jón. Hann segir einnig allt annan hljóm myndast í kórnum þegar sunginn er djass en þegar klass- íkin ræður ríkjum enda takturinn allt annar. Hljóðfæraleikararnir spila með kórnum í fimm lögum á tónleik- unum, þeir spila þrjú lög einir og önnur verk syngur kórinn undir- leikslaust. Jón segir prógrammið svipað og í fyrra þótt eitthvað bætist við. Til dæmis þrjár útsetningar Árna Ísleifssonar á klassískum djasslög- um. Þetta eru Take the „A“ Train, Satin Doll og Estate (In Summer). Önnur verk eru Michelle eftir Lennon og McCartney, verk eftir Nils Lindberg og fleiri vel þekkt verk. Jón segir alls ekki algengt að kór syngi djass þótt Langholtskór- inn hafi gert það svolítið í gegnum tíðina. „Söngfólkið hefur gaman af þessu líka,“ segir Jón sem um þess- ar mundir er að glíma við mótettur eftir Poulanc sem flytja á á föstu- daginn langa. „Djassinn er mjög gott mótvægi við það,“ segir hann glaðlega. Tónleikarnir vara í rúman klukkutíma og kostar 2.000 krón- ur inn en 1.500 fyrir námsmenn, eldri borgara og félaga í Listafélagi Langholtskirkju. solveig@frettabladid.is Ávallt veikur fyrir djassi Kammerkór Langholtskirkju flytur tónleika með djassívafi á sunnudaginn, 18. janúar, klukkan 20 í Lang- holtskirkju. Stjórnandinn Jón Stefánsson segir óvenjulegt að kórar syngi djass en að útkoman sé góð. Jón Stefánsson er stjórnandi Kamm- erkórs Langholts- kirkju sem heldur djasstónleika annað kvöld. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N 30% afsláttur Brauðbær • Hótel Óðinsvé • Þórsgata 1 • odinsve@odinsve.is • odinsve.is Við gerum veisluna þína Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir gæði veisluþjónustu okkar – vertu viss um að fá fyrsta flokks veitingar í veisluna þína. Pöntunarsími 552 0490 eða 511 6200 F í t o n / S Í A Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf- urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. SENDUM Í PÓSTKRÖFU. SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Gæða skór fyrir góða menn. Úrval af herramokkasíum úr leðri, skinnfóðraðir og á vönduðum sóla. Verð: 10.850.- 11.500.- 12.450.- Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178 • Sími: 551 2070 Opið: mán - fös: 10 -18, lau 10 -14 www.misty.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.