Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 43
Viltu styrkja stöðu þína á vinnumarkaði?
Stór hluti íslensks atvinnulífs notar hugbúnað og þjónustu Skýrr í daglegum rekstri. Með því að sækja
þér þekkingu á þessu sviði ertu hæfari til að mæta vaxandi kröfum á vinnumarkaði.
Kíktu á vefinn okkar skyrr.is og kynntu þér þjálfun og kennslu færustu sérfræðinga okkar.
Allt á
einum stað
F
í
t
o
n
/
S
Í
A 569 5100
skyrr.is
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir vel menntuðum einstaklingi með frumkvæði og áhuga á viðfangsefnum sem varða stöðugleika
fjármálaker sins. Forstöðumaðurinn hefur umsjón með viðbúnaðar- og rannsóknareiningu á fjármálasviði bankans.
Viðfangsefni fjármálasviðs lúta að öryggi og virkni fjármálastofnana og -markaða og greiningu á grunnþáttum fjármálaker sins.
Þá annast fjármálasvið verkefni bankans á sviði greiðslumiðlunar og fjárhirslur bankans heyra undir það.
Helstu verkefni forstöðumannsins:
• að stjórna viðbúnaðar- og rannsóknareiningu innan fjármálasviðs,
• að taka þátt í viðbúnaðarstar innan Seðlabankans og í samstar við aðra,
• að fylgjast með samspili efnahagsþróunar, hagstjórnar og fjármálalegs stöðugleika,
• að þróa álagspróf og önnur áhættumatstæki fyrir fjármálastöðugleika,
• að vera leiðandi í mótun og hafa umsjón með rannsóknaráætlun sviðsins,
• að taka þátt í fræðilegri þróun rannsókna og samstar seðlabanka á þessu sviði,
• að skrifa um fjármálastöðugleika í rit Seðlabankans og kynna verkefni á öðrum vettvangi.
Áskilið er að umsækjendur ha a.m.k. meistarapróf í hagfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða öðru sambærilegu námi sem nýtist
í star . Þeir þurfa að geta sinnt sjálfstæðum rannsóknum og hafa víðtæka þekkingu á helsta hugbúnaði í því sambandi.
Leitað er eftir einstaklingi með víðtæka þekkingu á umhver og starfsemi fjármálafyrirtækja og -markaða. Gerð er krafa um
þekkingu á rannsóknum og áhættumati auk þess að umsækjendur geti tjáð sig í vönduðu máli jafnt á íslensku sem ensku. Kun-
nátta í dönsku, sænsku eða norsku er æskileg. Samskipta- og aðlögunarhæfni eru nauðsynlegir eiginleikar í þessu star .
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 569 9647. Umsóknum skal skilað
fyrir 2. febrúar 2009 til rekstrarsviðs Seðlabanka Íslands.
Forstöðumaður á fjármálasviði
Seðlabanka Íslands
Atvinnuráðgjafi
Austur Húnavatnssýsla
• SSNV atvinnuþróun óskar eftir að ráða framsýnan og
metnaðarfullan einstakling í starf atvinnuráðgjafa. Um er
að ræða mjög fjölbreytt og spennandi starf sem gefur m.a.
ómetanlega innsýn í atvinnumál landsbyggðarinnar.
• Starfsstöð ráðgjafans verður á Blönduósi
Starfssvið
• Samstarf með fyrirtækjum, einstaklingum og sveitarfélögum
að atvinnuþróun og nýsköpun á svæðinu
• Gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana
• Almennar úttektir, aðstoð og endurskipulagning á rekstri
fyrirtækja
SSNV atvinnuþróun hvetur konur jafnt sem karla til að sækja
um starfi ð.
Menntun og hæfniskröfur
• Menntun á sviði hag- og/eða viðskiptafræða, verk-og/eða
tæknifræði.
• Góð þekking, innsæi og áhugi á atvinnu- og efnahagslífi
á landsbyggðinni
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Færni í ræðu og riti
• Frumkvæði, framsýni og metnaður
Nánari upplýsingar veitir Jón Óskar Pétursson.
Framkvæmdastjóri (ssnv@ssnv.is) hjá SSNV
Umsóknarfrestur er til og með 31.janúar. nk.
Vinsamlegast sendi umsóknir til Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra, Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga merktar:
“ Atvinnuráðgjafi – Austur Hún “
SSNV atvinnuþróun í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Meginhlutverk SSNV
atvinnuþróunar er að sinna almennri ráðgjöf á sviði viðskipta- og atvinnumála
til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga, ásamt því aðstoða fyrirtæki og aðila sem
hyggjast hefja atvinnurekstur. Atvinnuráðgjafar aðstoða einnig við greiningu þörf
fyrir frekari sérfræðiaðstoð og veita upplýsingar hvar slíka aðstoð er að fá. SSNV
atvinnuþróun er tengiliður milli tækni- og þjónustustofnana og þeirra sem starfa
að atvinnurekstri og atvinnumálum á Norðurlandi vestra. SSNV atvinnuþróun skip-
uleggur námskeiðahald og aðra fræðslustarfsemi og stuðlar að aukinni samvinnu
fyrirtækja.
Veitingastaður á Spáni - meðeigandi
Meðeigandi, sem jafnframt gæti orðið starfsmaður, óskast að
opnun veitingareksturs að íslenskri fyrirmynd við Alicante á Spáni.
Verkefnið er vel á veg komið.
Viðkomandi myndi leggja fram 12 m.kr. í hlutafé og eignast með
því umsaminn hlut í fyrirtækinu. Fyrirtækið hyggst hasla sér völl á
Íslendingaslóðum á Spáni og hefur nú þegar alla aðstöðu og leyfi til
rekstursins.
Allar nánari upplýsingar hjá fulltrúum Ráðgjafa
ehf. í síma 544 2400.
VÉLAMAÐUR / AÐSTOÐAR-
VERKSTJÓRI Í FISKVINNSLU
AG Seafood ehf Reykjanesbæ óskar eftir góðum
vélamanni á Baader 184 fl ökunarvél & Baader
413 hausara. Starfsvið vélamanns er að annast
hausun og fl ökun inn á fl æðilínu ásamt því að
vera með yfi rumsjón fi skvinnslu í fjarveru verk-
stjóra. Framtíðarstarf fyrir réttan aðila.
AG Seafood ehf starfrækir útfl utning & fi skvinnslu
í Reykjanesbæ og eru helstu afurðir fersk- og
frosin fi skfl ök inn á Evrópu og Bandaríkjamarkað.
Vinsamlegast sendið tölvupóst með ferilskrá og
upplýsingum um viðkomandi til:
agseafood@simnet.is
Fótaaðgerðafræðingur óskast
Snyrti-, nudd-, og fótaaðgerðastofana Mizú óskar eftir að
ráða fótaaðgerðafræðing til starfa strax. Upplýsingar í síma
660 1792 eða thorunn@mizu.is
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441