Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 51
N ýverið valdi vefmiðill frímerkja-safnara, www.StampNews.com,
frímerkið með friðarsúlunni í Viðey
þriðja áhugaverðasta frímerki ársins
2008.
Merkið þykir óhefðbundið þar
sem það lýsir í myrkri en frímerkið er
prentað í 4-lita offset með pantone-
silfri, UV-bleki og fosfór. Ef lýst er á frí-
merkið með útfjólubláu ljósi birtist
einnig mynd af John Lennon.
Orðin „að hugsa sér frið“ eru skrif-
uð á 24 tungumálum á stall friðar-
súlunnar í Viðey. Með því að tvö-
falda rifgötunina á köntum frímerk-
isins komast öll tungumálin fyrir og
fylgja 10 merkja örk leiðbeiningar um
hvernig má nota kantana til að búa til
friðarljós með því að líma þá saman.
Örn Smári Gíslason, grafískur
hönnuður, hannaði frímerkið.
Friðarsúlan
áhugaverð
Friðarsúlufrímerkið var valið þriðja
áhuga verðasta frímerki ársins 2008 af
StampNews.com.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari að
störfum í vinnustofu sinni við Sigtún.
Í s afnverslunum Listasafns Reykja-víkur eru fáanlegar afsteypur
af verkum Ásmundar Sveinssonar
myndhöggvara. Á árunum 1930 til
1940 bjó hann til umdeildar myndir
af íslensku alþýðufólki við störf sín,
en fólkið var tekið úr réttum hlut-
föllum svo úr urðu feitar, ólaglegar
konur, sem og tröllvaxnir karlar.
Ásmundarsafn stendur við Sigtún.
Húsið minnir á arabískt kúluhús og
egypskan píramída og í garðinum
eru listaverk, eins og Helreiðin sem
Ásmundur sótti í íslenska þjóðtrú.
Það sá hann fyrir sér fyrir ofan Ár-
túnsbrekku og átti að vera svo risa-
stórt að bílar gætu keyrt undir það,
en Ásmundur var þeirrar skoðunar
að höggmyndir ættu að sjást úti þar
sem þær væru fyrir allra augum.
Fígúrur úr
huga Ásgríms
SODA STREAM-TÆKIN SNÚA AFTUR Soda stream-tækin sem áttu gríðarlegum vinsældum
að fagna á Íslandi á níunda áratugnum eru komin aftur til landsins. Byggt og búið selur tækin, sem
nú eru framleidd af Wasser-Maxx. Sem fyrr gegna þau því hlutverki að búa til kolsýrt vatn. Þannig
geta unnendur sódavatns sparað sér peninga með því að búa það til heima hjá sér. Útlit tækjanna
hefur hins vegar breyst töluvert og fást þau í ýmsum litum. Eins er hægt að fá flösku sem minnir á
rjómasprautu og er svipuð í notkun. Hún er fyllt af vatni, en stóra kolsýruhylkinu hefur verið skipt út
fyrir minna. Sódavatninu er svo sprautað í glös eða önnur ílát. Í Byggt og búið fást svo ýmis bragð-
efni sem má bæta út í, þannig að úr verði ljúffengir, heimalagaðir gosdrykkir.
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 2009 7