Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 62
HVAR ER ÞÍN AUGLÝSING ?
Allt sem þú þarft... ... alla daga
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2009
BEST SKREYTTU HÚSIN
Ljósin loga áfram
HÖNNUN
Hápunktar ársins 2008
KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR
Á mörkum draums
og veruleika
fasteignir
15. SEPTEMBER 2008
Fasteignasalan Perla Investments og RE/MAX
Bær eru með til sölu íbúðir við Punta Prima
strönd á Spáni.
Í búðirnar eru í blokk við Punta Prima-strönd, sem hefur notið mikilla vinsælda og er bæði í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli
og Murcia-flugvelli.
Íbúðin á myndinni til hliðar skiptist niður í opið
eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðher-
bergi og verönd. Íbúðunum fylgir sameiginlegur
garður með tveimur sundlaugum auk sameiginlegs
púttvallar.
Þær eru í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá
ströndinni, þar sem óviðjafnanlegt útsýni er út á
Miðjarðarhafið.
Þá er öll þjónusta innan seilingar. Hægt er að rölta
á nærliggjandi veitingastaði og eins eru kjörbúðir,
veitingastaðir, apótek, barir og fleira staðsett
í þjónustukjarna í tíu mínútna göngufjarlægð.
Að auki er stutt í ýmiss konar afþreyingu fyrir
alla fjölskylduna, þar á meðal golf, tívolíferðir,
vatnagarð og fleira.
Þess skal getið að íbúðirnar kosta frá 201.160
evrum.
Þessi eign ásamt fleirum verður kynnt í opnu húsi
á Spánareignum hjá Remax Bæ Malarhöfða 2, helg-
ina 20. og 21. september á milli klukkan 12 til 16
báða daga.
Nánari upplýsingar veitir RE/MAX Bær, um-
boðsaðili Perla Investments á Íslandi. Snorri Sig-
urfinnsson í síma 864 8090, ss@remax.is. Magnús
Ninni Reykdalsson í síma 694 9999, maggi@remax.
is. Frekari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni
eru fáanlegar á vefsíðunni www.perla.is.
Fyrsta flokks íbúðir
fáanlegar á Spáni
Íbúðin í blokkinni skiptist í opið eldhús, stofu/borðstofu,
tvö svefnherbergi, baðherbergi og verönd. Íbúðunum fylgir
sameiginlegur garður með tveimur laugum auk sameiginlegs
púttvallar. Öll þjónusta og afþreying eru innan seilingar frá
þeim.
Fr
u
m
Smærri fjármálafyrirtæki
Þrengingar
kalla á
samþjöppun
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Óli Kristján Ármannsson og Björn Ingi Hrafnsson
skrifa
Seðlabanki Íslands ætti að lækka stýrivexti um
0,25 prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum
á morgun, samkvæmt áliti skuggabankastjórnar
Markaðarins. Að þessu sinni voru skiptar skoðanir
innan bankastjórnarinnar. Tveir vildu fremur horfa
til væntinga erlendra greinenda og hættunnar á
frekara gengisfalli og halda vöxtum óbreyttum.
Hinir vildu hefja lækkunarferli stýrivaxta nú þegar
og forða með því frekara kreppuástandi.
Sameiginleg niðurstaða er svo varfærnisleg
lækkun sem undirbyggja þarf rækilega með gögn-
um, svo sem með því að birta nýjan stýrivaxtaferil.
Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykja-
vík, segir stöðuna í efnahagslífinu einkennast af
mikilli óvissu og hættu, meðal annars vegna skorts
á lánsfé. Þá hafi ekki tekist að styrkja gjaldeyris-
forða Seðlabankans nema að takmörkuðu leyti.
„Það lán sem tilkynnt var um í síðustu viku, en
hefur reyndar ekki enn verið tekið, er auðvitað
aðeins sem lítið skarð í stórri ísaldarstæðunni og
var af kurteisisástæðum ekki hlegið beint út af
borðinu,“ segir hann.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar,
segir mestu skipta nú að vega saman verðbólgu-
hættuna annars vegar og hættuna á kreppu hins
vegar. Hann horfir meðal annars til reynslunnar af
fyrri samdráttarskeiðum, svo sem þegar lækkun
stýrivaxta hófst síðla árs 2001, skömmu áður en
verðbólga náði hámarki.
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar
Glitnis, segir verðbólguhorfur jafnframt góðar og
líkur á að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði
náð á þriðja fjórðungi næsta árs. „Í þessu háa
vaxtaumhverfi og í ljósi þessarar verðbólguspár tel
ég rétt að bankinn lækki vexti sína í nokkuð stórum
stökkum á næstu mánuðum,“ segir hann.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, telur einnig að Seðlabankinn þurfi að
bregðast hratt við með örum stýrivaxtalækkunum
þegar verðbólgan tekur að hjaðna og þá jafnvel
með fjölgun vaxtaákvörðunardaga. Lækkunarferlið
segir hann hins vegar kalla á góðan undirbúning og
telur vart hægt að hefja það nema í tengslum við
útgáfu Peningamála, efnahagsrits Seðlabankans, á
vaxtaákvörðunardegi í nóvember. Þar hafi bankinn
vettvang til að skýra ákvörðun sína og sýn á efna-
hagsframvinduna.
Skuggabankastjórnin
vill 25 punkta lækkun
Skuggabankastjórn Mark aðarins áréttar að tími sé kominn
á lækkun stýrivaxta. Hættara sé við kreppu en verðbólgu.
Olíuverð lækkar | Verð á hrá-
olíu hefur lækkað nokkuð hratt
upp á síðkastið og lá við 102 dali
á tunnu þegar best lét í gær. Í júlí
stóð verðið í hæstu hæðum, fór í
rúma 147 dali á tunnu.
Kauphöllin sprakk | Fjárfestar
í Bretlandi komu að lokuðum
dyrum hjá Lundúnamarkaðn-
um í Bretlandi á mánudag. Tvö-
falt meiri velta með hlutabréf en
aðra daga varð til þess að kaup-
hallarkerfið brann yfir. Þetta er
alvarlegasta kerfisbilun á bresk-
um hlutabréfamarkaði í átta ár.
Þjóðnýting gleður | Gengi
hlutabréfa tók kipp upp á við
víða um heim á mánudag eftir
að Henry Paulson, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, greindi frá
yfirtöku ríkisins á hálfopinberu
fasteignalánasjóðunum Fannie
Mae og Freddie Mac á sunnu-
dag. Þetta eru umfangsmestu
björgunaraðgerðir í sögu fjár-
málageirans.
Mikið atvinnuleysi | Atvinnu-
leysi mældist 6,1 prósent í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði,
samkvæmt nýjustu tölum banda-
rísku vinnumálastofnunarinnar.
Atvinnuleysi hefur ekki verið
meira í tæp fimm ár.
Óbreyttir vextir | Bæði Eng-
landsbanki og evrópski seðla-
bankinn ákváðu í síðust viku að
halda stýrivöxtum óbreyttum. Að-
stæður í efnahagslífinu og yfir-
vofandi samdráttur í hagvexti lá
til grundvallar ákvörðununum.
Þóra Helgadóttir
Verðleiðrétting
ekki alslæm
6
Starfsmenn vilja kaupa
Heitt í holunum
hjá Enex
2 2
Hlutabréf í Eimskipafélaginu
voru færð á athugunarlista í
Kauphöllinni í gær, vegna um-
talsverðrar óvissu varðandi verð-
myndun vegna hættu á ójafnræði
meðal fjárfesta, líkt og segir í til-
kynningu.
„Þetta er ábending til fjárfesta
um að verðmyndun sé óvenju óviss
um þessar mundir og felur því í
sér hvatningu til þeirra að kynna
sér málið vel áður en ákvarðanir
eru teknar,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, í samtali við Markaðinn.
Verð á hlutabréfum í Eimskip
hefur nánast verið í frjálsu falli
síðustu vikur og mánuði. Á einni
viku hefur gengi bréfanna til að
mynda lækkað um ríflega þriðj-
ung. Fyrir um ári var gengið um
43, en var komið niður fyrir 10 kr.
á hlut í gær.
Eins og fram hefur komið í
Markaðnum situr Eimskip enn
uppi með ábyrgð upp á 25 millj-
arða króna vegna sölu á bresku
ferðaskrifstofunni XL Leisure
Group fyrir tveimur árum. Unnið
hefur verið að endurfjármögnun,
en henni er ekki lokið og herma
heimildir Markaðarins að skyndi-
legt fall nú geti tengst óvissu um
lyktir þeirrar vinnu. - bih
Eimskip í
frjálsu falli
www.trackwell.com
Vistvænn
kostur!
FIMMTUDAGUR 22. JAN.
LAUGARDAGINN 24. JAN.
MÁNUDAGUR 26. JAN.
MIÐVIKUDAGUR 28. JAN.
Þorrinn:
Fjölbreytt sérblað um Þorrann, Þorramat og Bóndadaginn
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Sigurðsson
í síma 512-5471 eða bjarnithor@365.is
Heimili & hönnun:
Vikulegt sérrit um heimili & hönnun, hugmyndir fyrir
öll rými heimilisins sem og áhugaverðar fréttir úr heimi
hönnunar jafnt innanlands sem utan.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Þ. Steingrímsson
í síma 5125439 eða hlynurs@365.is
Fasteignir:
Fasteignablað Fréttablaðsins - alla mánudaga.
Auglýsendur athugið að panta þarf auglýsingar
fyrir klukkan 12 föstudaginn 23. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Viðar Ingi Pétursson
í síma 512-5426 eða vip@365.is
Markaðurinn:
Vikulegt sérrit um allt er snýr að viðskiptum
og efnhagsmálum – alla miðvikudaga.
Nánari upplýsingar veitir Laila Awad
í síma 512-5451 eða laila@frettabladid.is
Eftirfarandi sérblöð fylgja Fréttablaðinu á næstunni
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
LEIKA FEÐGIN
Í ÞRIÐJA SINN
Sólveig Arnarsdóttir og
Arnar Jónsson leika feðgin í
fjölskyldudramanu Heiðri.
ÆVINTÝRA-
LEGA ÞJÓÐLEG
Ásthildur Sturludóttir
opnar heimili sitt og
sýnir uppáhaldshlutina.
16. janúar 2009
SETTU ÍBÚÐ-
INA Á SÖLU
Birgitta Haukdal og Bene-
dikt Einarsson selja glæsi
íbúð sína á Skólavörðustíg.
FÆR ÚTRÁS
Í GEGNUM LISTINA
Magnús Jónsson er
með sjónvarpsþátt,
tvær plötur og bíó-
mynd í vinnslu.
FÖSTUDAGUR 23. JAN.
Föstudagur:
Vikulegt sérrit á léttu nótunum. Viðtöl við þjóðþekkta
einstaklinga, allt það nýjasta í tísku, heilsu og hönnun
svo dæmi sé tekið.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
í síma 512-5462 eða sigridurdagny@365.is
ÞRIÐJUDAGURINN 20. JAN.
Vetrarlíf:
Sérblað um útivist- og tómstundir.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þór Sigurðsson
í síma 512-5471 eða bjarnithor@365.is
LAUGARDAGINN 24. JAN.
Ferðir
Sérblað Kópavogs um suður-amerísku
menningarhátíðina sem haldin verður í Kópavogi
4.-11. október 2008
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Freyr Jónsson
í síma 512-5411 eða á netfangið benediktj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2008
+ NÝÁRSFAGNAÐUR Í HONG KONG, FORSETASKIPTI Í BANDARÍKJUNUM OG ELDFLÓINN Í TASMANÍU
Almennt um námið
Námið tekur eina önn og veitir
svæðisleiðsöguréttindi. Kennt er þrjú
kvöld í viku frá mánudegi til miðviku-
dags, auk æfingaferða um helgar.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
stúdentsprófi eða öðru sambærilegu
námi. Æskilegt er að hafa gott vald á
einu erlendu tungumáli.
Nánari upplýsingar á www.mk.is, í síma: 594 4025 eða á netfanginu: lsk@mk.is
Þrælgott
Steiktur þorskur ásamt íslensku banka-
byggi og grænmeti að hætti Hákon-
ar Más.
Hákon Má Örvarsson og Rúnar Marvinsson þarf vart að kynna því báðir hafa
getið sér góðs orðstírs fyrir meist-
aralega takta í matreiðslu. Blaða-
manni Fréttablaðsins þótti því til-
valið að fá þessa mætu menn til að
elda mismunandi rétti úr verð-
mætasta nytjafiski þjóðarinnar,
þorskinum.
Ákveðið var að maturinn skyldi
eldaður á veitingastaðnum Gló þar
sem félagarnir skiptu fiskinum
bróðurlega á milli sín. Rúnar fékk
sporðstykkið og Hákon hnakkann.
Beðnir um að lýsa nálguninni á
hráefnið svarar Rúnar: „Ég ákvað
að fylla sporðstykkið með hrogn-
um þar sem hrognatímabilið
stendur yfir. Úr varð Norðurís-
hafsþorskur, bæði bragðgóður og
bráðhollur.“ Hákon valdi sömu-
leiðis þjóðlega nálgun þar sem
þorskhnakkinn er borinn fram
með byggi. Hann sótti svo örlítinn
innblástur til matargerðar við
Miðjarðarhaf með því að bæta við
hann tómötum, papriku og kryddi.
Útkoman eru tveir afar góðir
réttir sem þægilegt er að elda og
henta jafnt á matarborðið í miðri
viku sem við fínni tilefni. - rve
Rúnar Marvinsson og Hákon Már Örv-
arsson á veitingastaðnum Gló.
Hér sést hvernig
Rúnar hefur vafið
þorski utan um
hrogn og sneytt
hann niður svo
útkoman minnir á
litrík blóm.
RÉTTUR HÁKONAR
BYGG OG GRÆNMETI
200-300 g bankabygg
4 portobello-sveppir (eða
kjörsveppir)
2 stórir tómatar (eða askja af
kirsuberjatómötum)
Salt, eftir smekk
Strásykur, eftir smekk
Ólívuolía, skvetta
1 stór paprika
1 chili
½ laukur
3-4 hvítlauksrif
½ dós sýrður rjómi
½ box saxaðar kryddjurtir,
eftir smekk
Sjóðið íslenskt bankabygg
samkvæmt leiðbeiningum.
Snyrtið til og bakið heila
portobellosveppi í ofni við
175°C í um það bil 10 mínútur.
Kjarnhreinsið tómata og skerið í
fernt. Kryddið með salti og
hrásykri; skvetta af ólívuolíu.
Bakið við 175°C í 30 til 45
mínútur. Fínt að gera nokkru
fyrir máltíð eins og sveppina.
Skerið svo papriku, chili, lauk og
hvítlauk niður í smáa bita og
steikið rólega á pönnu í
ólívuolíu þar til allt verður
mjúkt. Bætið við salti og pipar.
Bætið soðnu byggi saman við
og smá sýrðum rjóma rétt í
lokin ásamt saxaðri kryddjurt og
hugsanlega smá rifinni piparrót.
Smakkið til.
ÞORSKUR
þorskhnakki (4 stk. 120-150 g)
Gullinsteikið þorsk í ólívuolíu.
Kryddið með salti og smá pipar.
PESTÓ
1 búnt basil
1 búnt steinselja
2-3 hvítlauksrif
50 g rifinn parmesanostur
1 lítill poki furuhnetur
sítrónusafi, smáskvetta
1 dl ólívuolía
Salt og pipar
Setjið allt í mixer og keyrið
saman í mauk. Bætið við
ólívuolíu ef pestó er of þykkt.
Smakkið til. Eins má gera pestó
með spínati til að drýgja jurtir.
Setjið portobello á disk. Blandið
mjúkri og fínni byggblöndu ofan
á. Setjið fiskinn og tómatana
ofan á. Toppið með kryddjurt
og berið fram með pestói.
RÉTTUR RÚNARS
ÞORSKVAFNINGUR
4 sinnum 200 g þorskflök
(sporðstykki)
1 stk. þorskhrognabrók
Fletjið út flök með því að
klappa á roðhliðina. Stráið salti
og kreistið sítrónu yfir. Látið
standa í 5 mínútur. Losið hrogn
úr brók, setjið matskeið á hvert
flak og rúllið upp frá breiðari
enda. Setjið ofan í sjóðandi vatn
í potti, setjið lok á og látið
standa í 10 mínútur. Berið fram
(niðurskorið) með bökuðum
hvítlauk, gufusoðnum gulrótum,
spínati og góðri hvítvínssósu.
TVEIR ÞJÓÐLEGIR ÞORSKRÉTTIR OG MEÐLÆTI
Fyrir 4
A M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
T0
N
og þægilegt
Íslendingar leita nú fremur í það þjóðlega og á það ekki síst við um matargerð.
Fréttablaðið fékk því tvo meistarakokka til að matreiða gómsæta og holla rétti úr
hráefni sem hefur fylgt þjóðinni um ómunatíð og reynst vel þegar harðnar í ári.