Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 94
62 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR „Þetta passar, við fjölskyldan erum að dunda í þessu og þetta er að komast á lokastig núna,“ segir Sigurjón Brink tónlistar- maður. Hann hefur stofnað vef- verslun ásamt eiginkonu sinni, Þórunni Ernu Clausen, og syst- kinum sínum, þeim Árna Filipp- ussyni og Nínu Dögg Filippusdótt- ur leikkonu. Að sögn Sigurjóns er hugmyndin að selja útlendingum íslenska hönnun en vöruúrvalið mun ekki einskorðast við neinn einn hlut heldur er ætlunin að sýna alla þá miklu flóru sem þrífst á Íslandi um þessar mundir. Sigurjón segir upphaflegu hug- myndina komna frá Filippusi, fósturföður sínum. „Hann vildi endilega að fjölskyldan færi að vinna að einhverju saman,“ útskýrir Sigurjón og úr varð að stofna þessa vefverslun. „Það er enda aldrei betri tími en núna til að selja íslensk- ar vörur á erlendum mark- aði,“ Vefsíðurnar verða á slóð- unum boxid.is og n-icebox. com og segir Sigurjón að hugmyndin sé jafnvel að selja íslenska tónlist á vefsíðunum og jafnvel íslenskar bíómynd- ir. „Og svo ætlum við okkur bara að finna skemmti lega og spennandi íslenska hönnun til að setja á vefsvæðið.“ - fgg Listafjölskylda í útrás í miðri kreppu 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. lampi, 6. skóli, 8. blóðhlaup, 9. angan, 11. ekki heldur, 12. gafl, 14. espast, 16. karlkyn, 17. gerast, 18. umfram, 20. tveir eins, 21. fimur. LÓÐRÉTT 1. mismunandi, 3. kringum, 4. ef til vill, 5. viður, 7. skilyrðislaus, 10. blaður, 13. framkoma, 15. límband, 16. kóf, 19. bókstafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. lukt, 6. ma, 8. mar, 9. ilm, 11. né, 12. stafn, 14. æsast, 16. kk, 17. ske, 18. auk, 20. ii, 21. frár. LÓÐRÉTT: 1. ýmis, 3. um, 4. kannski, 5. tré, 7. altækur, 10. mas, 13. fas, 15. teip, 16. kaf, 19. ká. Indverskar auglýsingar síma- skrárinnar Já.is hafa vakið mikla athygli. Í auglýsingunum eru sýnd gömul brot úr indverskum kvik- myndum og undir er texti þar sem þjónusta já.is er auglýst með fremur skondnum hætti. Færri vita hins vegar að aðalpersón- an úr þessum myndum er eng- inn annar en Amitabh Bachchan. Nafn sem hringir kannski ekki mörgum bjöllum hjá Íslendingum en fengi indversk hjörtu til að slá ansi hratt. Amitabh Bachchan er stærsta Bollywood-stjarna Indlands fyrr og síðar. Hann hefur leikið í yfir 170 myndum og á metið yfir flest- ar tilnefningar sem besti leikari ársins á Indlandi. Kvikmynda- iðnaðurinn í Indlandi er einn sá stærsti í heimi, framleiðir jafn- margar kvikmyndir á ári hverju og Hollywood. Indverskir leikar- ar eru enda í guðatölu í sínu föð- urlandi og þeir eru jafn vinsæll fréttamatur og vestrænar stjörn- ur. Þetta sést kannski hvað best í Golden Globe-myndinni Slumdog Millionaire eða Viltu vinna millj- arð? sem tekin verður til sýningar hér á Íslandi um helgina. Aðalpers- óna myndarinnar, fátæklingurinn Dev Patel, leggur líf sitt að veði þegar hann reynir að fá eiginhand- aráritun hjá umræddum Amitabh Bachchan eftir að þyrla hans lend- ir í miðju fátækrahverfi. Gunnar Thorberg Sigurðsson, markaðsstjóri Já, sagðist ekki hafa haft hugmynd um hvaða maður þetta væri sem auglýsti já.is. Þegar það kom í ljós fannst honum það hins vegar alveg drepfyndið. Enda hálf fjarstæðukennt að svona þekkt indversk kvikmyndastjarna skyldi leika í íslenskri auglýsingu. „Þetta gerði alveg útslagið, varð aukakrydd í auglýsingaherferðina okkar,“ segir Gunnar en einhver starfsmaður símaskráarinnar hafði séð Slumdog Millionaire og kannaðist við kauða úr myndinni. „Við höfum fengið alveg ótrúlega góð viðbrögð við þessari auglýs- ingu á vefnum, athugasemdirnar á til að mynda Youtube.com hafa verið ótrúlega jákvæðar.“ freyrgigja@frettabladid.is GUNNAR THORBERG: HAFÐI EKKI HUGMYND UM HVER ÞETTA VAR Skærasta stjarna Bollywood leikur í íslenskri auglýsingu MEÐ GÓÐUM VINI Amitabh Bachchan og sir Richard Attenborough á kvikmyndahátíð í London. Bachchan er frægasta kvikmyndastjarna Indlands en hann auglýsir nú já.is, væntanlega án þess þó að vita af því. NORDICPHOTOS/GETTY Bjarni Haukur Þórsson. Aldur: 37 ára. Starf: Leikari og leikstjóri. Stjörnumerki: Hrútur og naut. Búseta: Vesturbærinn í Reykja- vík. Fjölskylda: Mjög góð. Ókvæntur og á einn strák. Bjarni Haukur hefur tekið yfir Loftkastalann og ætlar að setja þar upp söngleikinn Grease í vor undir leikstjórn Selmu Björnsdóttur. „Við steiktum saman borgara í þættinum hans og síðan hefur fólk komið og viljað fá Jóa Fel-borg- ara,“ segir konungur hamborgaranna, Tómas Tóm- asson í Búllunni. Hann hefur nú sett á matseðil sinn vegna fjölda áskorana sérstakan „Jóa Fel- borgara“, sem er beikonborgari í bbq-sósu. Tommi telur ekki útilokað að fleiri réttir verði nefndir eftir frægum Íslendingum. „Það verður þó að vera einhver ástæða fyrir því. Til dæmis ef einhver kæmi og fengi sér alltaf hunangssósu ofan á hamborg- arann sinn, þá væri hægt að nefna þannig hamborg- ara eftir viðkomandi. En annars eru þetta náttúrlega allt góðborgarar hjá mér.“ Jói er ánægður með framtakið. „Þá sjaldan að ég fæ mér skyndibita þá er það þessi borgari hjá Tomma,“ segir hann. „Svo fæ ég mér alltaf berna- ise-sósu með frönskunum. Maður lætur þetta sjald- an eftir sér og er þá auðvitað búinn að vera tvo tíma í ræktinni áður.“ Yfirleitt steikir Tommi borgara öll hádegi í Búll- unni á Bíldshöfða og stundum líka á kvöldin og um helgar. Hann fær alltaf sama kikkið út úr því að standa við grillið þrátt fyrir að hafa steikt borgara áratugum saman. „Það er bara einhver fílingur í því að fitla við spaðann, sjá borgarann steikjast og vita að hann verður góður. Ég gæti steikt allan daginn,“ segir Tommi í fullri einlægni. Og kreppan er ekki farin að bitna á hamborgara- bransanum. „So far so good, svo ég sletti,“ segir Tommi. „Maður þakkar bara fyrir hvern dag sem allt er í þokkalegu standi.“ - drg Jói Fel orðinn hamborgari TVEIR JÓAR FEL RENNA LJÚFLEGA NIÐUR Jói Fel og Tommi Tomm gæða sér á Jóa Fel-borgara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Sophia Hansen stendur nú í ströngu í málaferlum við sína fyrrum styrkustu stoð sem er Sig- urður Pétur Harðarson. Hann segir Sophiu skulda sér 20 milljónir en Sophia kannast ekkert við það. Og ekki vænkast hagur Sophiu, né Sigurðar ef því er að skipta, við þau tíðindi að íbúð sem hún var búsett í við Klapparstíg brann til kaldra kola aðfaranótt föstudags. Guðrún Guðlaugsdóttir fékk nýverið reisupassann frá Ólafi Þ. Stephensen, ritstjóra Morgun- blaðsins, þótt sú uppsögn hafi mætt nokkurri andspyrnu ákveðins hóps innan blaðsins sem Agnes Bragadóttir leiddi. Guðrún hóf störf á Morgunblaðinu árið 1984 og fer því nú eftir 25 ára feril þar. Guðrún þarf örugglega ekki að kvíða verkefnaleysi því hún hefur ritað nokkrar bækur auk þess að vera leikkona – sem mun örugglega nýt- ast henni vel en Guðrún mun vera með mannlífsþátt hjá Ingva Hrafni Jónssyni á ÍNN í undirbúningi. Leikkonurnar Hrefna Hallgríms- dóttir og Linda Ásgeirsdóttir eiga góðu gengi að fagna um þessar mundir því ekkert lát virðist vera á vinsældum kvikmyndarinnar um karaktera þeirra, Skoppu og Skrítlu. Fjöldi fólks hefur nú séð Skoppu og Skrítlu í bíó og um helgina er von á 10.000. gestinum. Af því tilefni verður sérstök hátíðarsýning á Akureyri, þar sem Linda mun taka á móti gestum í hlut- verki Skoppu ásamt fleiri leikurum, en Hrefna eignaðist litla dóttur aðeins fimm dögum fyrir frumsýningu og verður því eflaust fjarri góðu gamni. - jbg, ag FRÉTTIR AF FÓLKI SAMAN Í VEFVERSLUN Nína Dögg, Þórunn Erna og Sigurjón Brink hafa komið á fót vefverslun sem selur íslenska hönnun. Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í línu. NLP er öugasta sjálfstyrkingarnámskeið sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 13. - 15.feb. og 20. - 22.feb. 2009. www.ckari.com; Mail: rosa@ckari.com; Sími: 894-2992 Kári Eyþórsson MPNLP „Hugurinn ber þig alla leið“ - Er sjálfstraustið í ólagi? - Viltu betri líðan? - Skilja þig fáir? - Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu? - Gengur öðrum betur í línu en þér? - Gengur illa að klára verkefni? - Er ertt að höndla gagnrýni? © cKari.com w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r w w w .t h is .i s /k ro s s g a tu r 250 ÓKEYPIS KROSSGÁTUR NÝ GÁTA Í HVERRI VIKU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.