Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 77

Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 17. janúar 2009 Hulda Hákon listakona heitir upphaflega Hulda Margrét Hákonar- dóttir. „Ég heiti Hulda út í loftið en Margrét í höfuðið á ömmu minni,“ útskýrir Hulda og segir Margrétarnafnið algengt í fjölskyld- unni. „Þegar ég fór í nám úti í New York breytti ég nafninu í Hulda Hákon,“ segir Hulda en það nafn þótti henni þægilegra enda Margrét og Hákonardóttir miklir tungubrjótar fyrir útlendinga. Hulda segist þó hafa þurft að skylmast svolítið við umhverfið þegar hún kom aftur heim með þetta breytta nafn. „Ég er alltaf betur og betur að sjá hvað það var gott hjá mér að taka upp þetta nafn því það heitir enginn annar sama nafni. Svo finnst mér líka svolítið gaman að karlkenna mig svona í aðra röndina með því að vera ekki dóttir,“ segir Hulda og telur það tengjast ömmu sinni Margréti. „Hún var skáld og skrifaði undir dulnefninu Ómar ungi,“ útskýrir hún en á þriðja áratugnum voru skrifaðir dómar um ömmu hennar í blöðum þar sem talað var um þennan unga mann. NAFNIÐ MITT: HULDA HÁKON Enginn tungubrjótur HULDA HÁKON Listakonan er ánægð með nafnið sitt. Nú stendur yfir ljósmyndasýning Jónatans Grétarssonar í Hafnarborg þar sem hann sýnir fjörutíu portrett. Undanfarið ár hefur Jónatan Grétarsson unnið að því að ljósmynda íslenska listamenn úr ýmsum greinum. Hluta af- raksturins má berja augum í Hafnarborg til 15. febrúar en sýningin hófst 10. janúar síðastliðinn. Þar gefur að líta fjörutíu portrett af íslenskum listamönnum. Sýningin ber einfaldlega heitið Íslenskir listamenn og er langtímaverkefni ljósmyndarans. Hann hefur leitast við að skrásetja íslenska listamenn og hefur í aðdraganda sýning- arinnar tekið fjölda ljósmynda af meira en hundrað lista- mönnum úr öllum listgreinum og á ýmsum aldri. Sýning- in í Hafnarborg er sú fyrsta í röð sýninga um íslenska lista- menn og fyrsta skref Jónatans í þessu verkefni. Hafnarborg er opin daglega frá klukkan 11 til 17, fyrir utan þriðjudaga en þá er lokað. Á fimmtudögum er þó opið lengur eða til klukkan 21. Portrett af listamönnum HAFNARBORG Hinn ungi ljósmyndari Jónatan Grétarsson heldur nú sýningu á fjörutíu portrettum í safninu. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð við andlát og útför elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu, Önnu Tryggvadóttur Hamraborg 32, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar K2 á Landakotsspítala og Hrafnistu Vífilsstöðum. Tryggvi M. Þórðarson Selma Þórðardóttir Agnes Þöll Tryggvadóttir Hjalti Lýðsson Þórður M. Tryggvason Egill Andri Tryggvason Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna and- láts og útfarar okkar ástkæra, Jónasar Jónssonar Vífilsstöðum, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilsstaða fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Systkinabörnin. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Guðbjörg Jónsdóttir Álfheimum 48, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 19. janúar kl. 13.00. Þórarinn Magnússon Sigrún Reynisdóttir Kristinn Magnússon Hanna Bjartmars Arnardóttir Lilja Nótt Þórarinsdóttir Magnús Þórarinsson Svala Ögn Kristinsdóttir Gríma Bjartmars Kristinsdóttir. Maðurinn minn, Agnar Jörgensson lést 15. janúar 2009. Jensey Stefánsdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðmundu Oddbjörgu Sigurðardóttur Bræðraborgarstíg 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar B-4 Landspítalanum Fossvogi. Halldór S. Aðalsteinsson Guðmundur Kr. Aðalsteinsson María Eydís Jónsdóttir Aðalsteinn R. Aðalsteinsson Bergrós Hilmarsdóttir Sigdóra Jóna Aðalsteinsdóttir Jóhann Guðmundsson Ingibjörg Guðrún Aðalsteinsdóttir Kristín Pálína Aðalsteinsdóttir Reynir Baldursson Halldór Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Oddný Guðrún Guðmundsdóttir Skógarbæ áður Lautasmára 12, lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. janúar. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudag- inn 19. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Neistann, félag hjartveikra barna. Vilborg Pétursdóttir Sigurður Haraldsson Guðmundur Pétursson Elsa Jónsdóttir Sigríður Pétursdóttir Heiðar Vilhjálmsson Hendrik Pétursson Marianne Hansen Halldóra Pétursdóttir Jóhann Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ásbjörg Guðgeirsdóttir Roðasölum 1, Kópavogi, lést þriðjudaginn 13. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hildisif Björgvinsdóttir Sigurður Ólafsson Kjartan Björgvinsson Björgvin Sigurðarson Daníel Sigurðarson Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigrúnar Sigurðardóttur frá Gvendareyjum, síðast til heimilis að Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Brynja Bergsveinsdóttir Theodór Guðmundsson Sigurður Bergsveinsson Helga Bárðardóttir Lára Bergsveinsdóttir Guðmundur Guðjónsson Alma Bergsveinsdóttir Guðni Magnússson Freyja Bergsveinsdóttir Guðlaugur Þór Pálsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar hjartkæra Ragna, Ragnheiður Benediktsdóttir frá Erpsstöðum, Laugavegi 39, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 11. janúar verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 20. janúar kl 13.00. Halldóra Benediktsdóttir Arndís Lilja Níelsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, Helga Guðrún Sigurðardóttir Dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis Stafholti 14, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi 9. janúar. Þórður Snæbjörnsson Snæbjörn Þórðarson Liv Gunnhildur Stefánsdóttir Helga Kristrún Þórðardóttir Karl Jónsson Haukur Þórðarson Kristbjörg Jónsdóttir Örn Þórðarson Ingibjörg Eyjólfsdóttir Hrafn Þórðarson Ragnheiður Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur, Gunnar Ólafur Skarphéðinsson frá Þingeyri, Hátúni 10, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss sunnudaginn 11. janúar sl., verð- ur jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju föstudaginn 23. janúar nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Dýra á Þingeyri eða Rauðakrossdeild Dýrafjarðar. Guðrún Markúsdóttir Sigríður Skarphéðinsdóttir Skarphéðinn Ólafsson Njáll Skarphéðinsson Pálína Baldvinsdóttir Guðbjörg Skarphéðinsdóttir Hilmar Pálsson Bjarki Skarphéðinsson Sigrún Lárusdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.