Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 77
LAUGARDAGUR 17. janúar 2009
Hulda Hákon listakona heitir upphaflega Hulda Margrét Hákonar-
dóttir. „Ég heiti Hulda út í loftið en Margrét í höfuðið á ömmu
minni,“ útskýrir Hulda og segir Margrétarnafnið algengt í fjölskyld-
unni.
„Þegar ég fór í nám úti í New York breytti ég nafninu í Hulda
Hákon,“ segir Hulda en það nafn þótti henni þægilegra enda
Margrét og Hákonardóttir miklir tungubrjótar fyrir útlendinga.
Hulda segist þó hafa þurft að skylmast svolítið við umhverfið
þegar hún kom aftur heim með þetta breytta nafn.
„Ég er alltaf betur og betur að sjá hvað það var gott hjá mér
að taka upp þetta nafn því það heitir enginn annar sama nafni.
Svo finnst mér líka svolítið gaman að karlkenna mig svona í aðra
röndina með því að vera ekki dóttir,“ segir Hulda og telur það
tengjast ömmu sinni Margréti. „Hún var skáld og skrifaði undir
dulnefninu Ómar ungi,“ útskýrir hún en á þriðja áratugnum voru
skrifaðir dómar um ömmu hennar í blöðum þar sem talað var
um þennan unga mann.
NAFNIÐ MITT: HULDA HÁKON
Enginn tungubrjótur
HULDA HÁKON
Listakonan er ánægð með nafnið sitt.
Nú stendur yfir ljósmyndasýning Jónatans Grétarssonar í
Hafnarborg þar sem hann sýnir fjörutíu portrett.
Undanfarið ár hefur Jónatan Grétarsson unnið að því að
ljósmynda íslenska listamenn úr ýmsum greinum. Hluta af-
raksturins má berja augum í Hafnarborg til 15. febrúar
en sýningin hófst 10. janúar síðastliðinn. Þar gefur að líta
fjörutíu portrett af íslenskum listamönnum.
Sýningin ber einfaldlega heitið Íslenskir listamenn og er
langtímaverkefni ljósmyndarans. Hann hefur leitast við að
skrásetja íslenska listamenn og hefur í aðdraganda sýning-
arinnar tekið fjölda ljósmynda af meira en hundrað lista-
mönnum úr öllum listgreinum og á ýmsum aldri. Sýning-
in í Hafnarborg er sú fyrsta í röð sýninga um íslenska lista-
menn og fyrsta skref Jónatans í þessu verkefni.
Hafnarborg er opin daglega frá klukkan 11 til 17, fyrir
utan þriðjudaga en þá er lokað. Á fimmtudögum er þó opið
lengur eða til klukkan 21.
Portrett af listamönnum
HAFNARBORG Hinn ungi ljósmyndari Jónatan Grétarsson
heldur nú sýningu á fjörutíu portrettum í safninu.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð við andlát og
útför elskulegrar móður, tengdamóður
og ömmu,
Önnu Tryggvadóttur
Hamraborg 32, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar K2 á
Landakotsspítala og Hrafnistu Vífilsstöðum.
Tryggvi M. Þórðarson Selma Þórðardóttir
Agnes Þöll Tryggvadóttir Hjalti Lýðsson
Þórður M. Tryggvason
Egill Andri Tryggvason
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna and-
láts og útfarar okkar ástkæra,
Jónasar Jónssonar
Vífilsstöðum, Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilsstaða fyrir
frábæra umönnun og hlýhug.
Systkinabörnin.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðbjörg Jónsdóttir
Álfheimum 48, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn
19. janúar kl. 13.00.
Þórarinn Magnússon Sigrún Reynisdóttir
Kristinn Magnússon Hanna Bjartmars Arnardóttir
Lilja Nótt Þórarinsdóttir
Magnús Þórarinsson
Svala Ögn Kristinsdóttir
Gríma Bjartmars Kristinsdóttir.
Maðurinn minn,
Agnar Jörgensson
lést 15. janúar 2009.
Jensey Stefánsdóttir
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðmundu Oddbjörgu
Sigurðardóttur
Bræðraborgarstíg 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar B-4
Landspítalanum Fossvogi.
Halldór S. Aðalsteinsson
Guðmundur Kr. Aðalsteinsson María Eydís Jónsdóttir
Aðalsteinn R. Aðalsteinsson Bergrós Hilmarsdóttir
Sigdóra Jóna Aðalsteinsdóttir Jóhann Guðmundsson
Ingibjörg Guðrún Aðalsteinsdóttir
Kristín Pálína Aðalsteinsdóttir Reynir Baldursson
Halldór Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Oddný Guðrún
Guðmundsdóttir
Skógarbæ
áður Lautasmára 12,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 11. janúar.
Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudag-
inn 19. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Neistann, félag hjartveikra barna.
Vilborg Pétursdóttir Sigurður Haraldsson
Guðmundur Pétursson Elsa Jónsdóttir
Sigríður Pétursdóttir Heiðar Vilhjálmsson
Hendrik Pétursson Marianne Hansen
Halldóra Pétursdóttir Jóhann Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Ásbjörg Guðgeirsdóttir
Roðasölum 1, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 13. janúar. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Hildisif Björgvinsdóttir Sigurður Ólafsson
Kjartan Björgvinsson
Björgvin Sigurðarson Daníel Sigurðarson
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigrúnar Sigurðardóttur
frá Gvendareyjum, síðast til heimilis að
Hrafnistu, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í
Reykjavík fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Brynja Bergsveinsdóttir Theodór Guðmundsson
Sigurður Bergsveinsson Helga Bárðardóttir
Lára Bergsveinsdóttir Guðmundur Guðjónsson
Alma Bergsveinsdóttir Guðni Magnússson
Freyja Bergsveinsdóttir Guðlaugur Þór Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar hjartkæra Ragna,
Ragnheiður Benediktsdóttir
frá Erpsstöðum, Laugavegi 39, Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 11. janúar verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 20. janúar kl 13.00.
Halldóra Benediktsdóttir Arndís Lilja Níelsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Helga Guðrún
Sigurðardóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis
Stafholti 14, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi 9. janúar.
Þórður Snæbjörnsson
Snæbjörn Þórðarson Liv Gunnhildur Stefánsdóttir
Helga Kristrún Þórðardóttir Karl Jónsson
Haukur Þórðarson Kristbjörg Jónsdóttir
Örn Þórðarson Ingibjörg Eyjólfsdóttir
Hrafn Þórðarson Ragnheiður Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og
mágur,
Gunnar Ólafur
Skarphéðinsson
frá Þingeyri, Hátúni 10, Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítala -
Háskólasjúkrahúss sunnudaginn 11. janúar sl., verð-
ur jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju föstudaginn 23.
janúar nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Björgunarsveitina Dýra á Þingeyri eða Rauðakrossdeild
Dýrafjarðar.
Guðrún Markúsdóttir
Sigríður Skarphéðinsdóttir Skarphéðinn Ólafsson
Njáll Skarphéðinsson Pálína Baldvinsdóttir
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir Hilmar Pálsson
Bjarki Skarphéðinsson Sigrún Lárusdóttir