Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 28
28 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
F
áir efast um að einhverra breyt-
inga sé að vænta í bandarísk-
um stjórnmálum strax á næstu
dögum og vikum.
Á þriðjudaginn verður demó-
kratinn Barack Obama orðinn
forseti og á nýju þingi, sem kom saman í
fyrstu viku ársins, er Demókrataflokkurinn
kominn með meirihluta í báðum deildum.
Sextán ár eru síðan bandarískir demókratar
stóðu síðast jafn sterkt að vígi. Þeir hugsa sér
gott til glóðarinnar, en verkefnin sem bíða
verða að teljast fáránlega erfið.
George W. Bush skilur eftir sig stórskuld-
ugan ríkissjóð og efnahag þjóðarinnar í verra
ástandi en Bandaríkjamenn hafa áratugum
saman átt að venjast. Ímynd Bandaríkjanna
erlendis hefur beðið alvarlegan hnekki og
enginn hægðarleikur verður að komast, til
að mynda, út úr kviksyndinu í Írak eða loka
Guantanamo-fangabúðunum svo vel fari.
Heillandi
Væntingarnar sem bundnar eru við Obama
eru reyndar svo miklar að vandséð er hvern-
ig hann ætlar að standa undir þeim. Hann
hefur átt auðvelt með að heilla almenning,
bæði í Bandaríkjunum og um heim allan.
Meira að segja andstæðingar hans í Rep-
úblikanaflokknum, þar á meðal Bush for-
seti og mótframbjóðandinn John McCain,
gátu ekki annað en hrifist með þegar Obama
hrósaði sigri kosninganóttina í byrjun nóv-
ember.
Í kveðjuræðu sinni á fimmtudag sagði Bush
að arftaki sinn hljóti að vekja bæði vonir og
stolt í brjóstum allra Bandaríkjamanna.
Skrautsýning
Innsetingarathöfnin á þriðjudag verður mikil
skrautsýning og um leið mikill viðburður í
bandarísku þjóðlífi. Reiknað er með því að
tvær milljónir manna mæti í göngugarðinn
mikla í miðri Washingtonborg, þar sem hægt
verður að fylgjast með athöfninni á stórum
sjónvarpsskjám. Færri komast þó að en vilja,
því gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir
aðgöngumiðum á athöfnina.
Alla leið frá Kenía kemur amma forsetans
til Washington og fræga fólkið frá Hollywood
lætur sig ekki vanta á svona viðburð. Farið
verður í mikla skrúðgöngu um götur borgar-
innar og um kvöldið er svo reiknað með því
að Obama og Michelle mæti á eina tíu dans-
leiki sem haldnir eru í tilefni af innsetning-
arhátíðinni.
Hátíð blökkumanna
Dagurinn verður ekki síst hátíðardagur húð-
dökkra Bandaríkjamanna, sem ætla margir
að taka sér frí í vinnunni til að fylgjast með
þessum sögulega viðburði þegar Bandarík-
in eignast fyrsta þeldökka forsetann. Sumir
ætla að hittast í heimahúsum en aðrir safnast
saman í veitingahúsum eða kirkjum.
Stundin verður tvímælalaust tilfinninga-
þrungin og ekki dregur úr áhrifunum að dag-
inn áður, á mánudaginn kemur, verður dagur
Martins Luther King haldinn hátíðlegur í
Bandaríkjunum.
Réttindabarátta svartra hefur loksins skil-
að sér í því sem fáir ef nokkrir hefðu talið
mögulegt fyrir aðeins örfáum áratugum.
Alvaran
Síðan tekur alvaran við. Í vikunni sagði Bush,
á síðasta blaðamannafundi sínum, að fljót-
lega eftir að Obama tekur við muni hreinlega
þyrma yfir hann, þar sem hann situr einn á
forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu og áttar
sig loks almennilega á því að hann situr einn
uppi með ábyrgðina sem fylgir embættinu.
Obama ætlar greinilega að mæta til leiks
vel undirbúinn og taka strax til hendinni.
Hann hefur valið sér samstarfsfólk af kost-
gæfni og leggur áherslu á að fá til liðs við sig
fólk sem hefur meiri reynslu en hann sjálf-
ur og nýtur ekki aðeins trausts innsta kjarna
Demókrataflokksins heldur þvert á móti and-
stæðinganna líka. Hann vill sætta ólík sjón-
armið og fá sem flesta til liðs við sig.
Hann hefur boðað grundvallarbreytingar
á stefnu Bandaríkjanna jafnt innanlands sem
utan og heimsbyggðin bíður eftir því hvern-
ig til tekst.
Forsetaskipti í Bandaríkjunum
Á þriðjudaginn verða mikil hátíðarhöld í Bandaríkjunum þegar Barack Obama tekur við forsetaembætti af George W. Bush.
Sigurganga hans hefur verið ævintýri líkust en nú þarf að standa við stóru loforðin um gagngerar breytingar í bandarískum
stjórnmálum. Guðsteinn Bjarnason skoðar tímamótin í stjórnmálum vestra.
MIÐPUNKTUR ATHYGLINNAR Allra augu hvíla nú á Barack Obama sem tekur við forsetaembætti Bandaríkjanna þriðjudaginn 20. janúar. Heimsbyggðin bíður eftir
því hvernig honum tekst til að standa við stóru orðin. NORDICPHOTOS/AFP
Á SPJÖLD SÖGUNNAR Barack Obama ásamt núver-
andi og fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna, þeim
sem enn eru á lífi. Frá vinstri: George H. W. Bush,
forseti 1989-93, Obama, tekur við 2009, George W.
Bush, forseti 2001-2009, Bill Clinton, forseti 1993-
2001, og Jimmy Carter, forseti 1977-81.
NORDICPHOTOS/AFP
LEIÐTOGAR BANDARÍKJANNA NÆSTU ÁRIN Í ársbyrjun kom nýtt þing saman í Washington. Þau Nancy
Pelosi, forseti fulltrúadeildar, og Harry Reid, leiðtogi þingmeirihluta öldungadeildarinnar, sitja þarna hvort
sínu megin við verðandi forseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Utanríkisráðherra: Hillary Clinton, forsetafrú
1993-2001, síðan öldungadeildarþingmaður.
Varnarmálaráðherra: Robert Gates, repúblik-
ani, fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustunnar
CIA, hefur verið varnarmálaráðherra í ríkisstjórn
Bush síðan 2006.
Fjármálaráðherra: Timothy Geithner, yfirmaður
seðlabankans í New York, starfaði þar áður hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Heilbrigðisráðherra: Tom Daschle, var leiðtogi
þingmeirihluta demókrata í öldungadeild 2001-
2003.
Dómsmálaráðherra: Eric Holder, var næst-
æðsti yfirmaður dómsmálaráðuneytisins í
valdatíð Bills Clinton.
Heimavarnaráðherra: Janet Napolitano, ríkis-
stjóri Arizona.
Sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Susan
Rice.
Yfirmaður leyniþjónustunnar CIA: Leon
Panetta, var skrifstofustjóri Hvíta hússins í
valdatíð Bills Clinton.
Orkumálaráðherra: Steven Chu, Nóbelsverð-
launahafi í eðlisfræði.
Umhverfisráðherra: Lisa Jackson.
Húsnæðismálaráðherra: Shaun Donovan.
Menntamálaráðherra: Arne Duncan.
Innanríkisráðherra: Ken Salazar.
Landbúnaðarráðherra: Tom Vilsack.
Þjóðaröryggisráðgjafi: James Jones herforingi,
var um hríð æðsti yfirmaður herliðs Bandaríkj-
anna og Atlantshafsbandalagsins í Evrópu.
Starfsmannastjóri Hvíta hússins: Rahm
Emanuel, var ráðgjafi Bills Clinton 1992-1998.
Fjölmiðlafulltrúi: Robert Gibbs.
Yfirmaður stjórnarskiptanefndar: John
Podesta.
HELSTU VALDASTÖÐUR
Engum dylst að arftaka George W. Bush bíða
erfið verkefni. Hér eru nefnd nokkur þau
helstu.
Efnahagslífið
Brýnasta verkefnið fyrst í stað, í það minnsta
innanlands, er að takast á við kreppuna miklu.
Obama vonast til að geta strax eftir innsetn-
inguna undirritað lög um 775 milljarða dala
fjárveitingu, innspýtingu í efnahagslífið, sem
nýja þingið hefur strax fengið til umfjöllunar.
Íraksstríðið
Á erlendum vettvangi hefur Obama einsett sér
að ljúka Íraksstríðinu sem allra fyrst. Hvernig
til tekst með það ræður væntanlega miklu
um framtíðarálit jafnt Bandaríkjamanna sem
annarra til stjórnar Obama.
Afganistan
Í staðinn fyrir að beita hernaðarmætti Banda-
ríkjanna af fullum þunga í Írak ætlar Obama að
beina kröftum hersins meira að Afganistan, þar
sem árangur af jafnt stríðsrekstri sem upp-
byggingarstarfi Vesturlanda virðist hafa verið af
skornum skammti.
Guantanamo
Eitt af forgangsmálum Obama er að loka
fangabúðunum í herstöð Bandaríkjanna við
Guantanamo-flóa á Kúbu, þar sem hundruð
fanga hafa mátt þola ótrúlegt harðræði árum
saman án dóms og laga. Meira en 500 hefur
reyndar þegar verið sleppt og eru nú um 250
eftir.
Mið-Austurlönd
Áratugalangar deilur Ísraela og Palestínumanna
hafa enn náð hámarki með grimmilegum
árásum Ísraelshers á íbúa Gazasvæðisins. Nýr
forseti Bandaríkjanna gæti haft úrslitaáhrif á
framvindu mála þar.
Ímynd Bandaríkjanna
Á átta árum hefur George W. Bush eyðilagt
ímynd Bandaríkjanna erlendis svo gersam-
lega að varla verður neinn hægðarleikur fyrir
Obama að bæta þar úr.
BRÝNUSTU VERKEFNIN FRAM UNDAN
Fjölskylduhagir Obama-fjölskyldunnar breytast mikið
við flutninginn til Washington. Barack og Michelle
Obama, ásamt dætrum sínum Söshu, sem er sjö ára,
og Malíu, sem er 10 ára, dvöldust yfir jólin á Havaí,
þar sem Barack fæddist, en héldu til Washington
strax eftir áramótin. Þau flytja þó ekki inn í Hvíta
húsið fyrr en eftir innsetningarathöfnina 20. janúar.
Venjan hefur verið sú að nýr forseti kemur sér fyrst
fyrir í Blair-húsinu svonefnda, sem er rétt handan
Pennsylvania Avenue-götunnar sem Hvíta húsið
stendur við í Washington. Í ár stóð hins vegar svo á
að Blair-húsið var upptekið til 15. janúar þannig að
fjölskyldan þurfti til bráðabirgða að dvelja í tæpar
tvær vikur á lúxushótelinu Hay Adams sem er, eins
og Blair-húsið, í næsta nágrenni Hvíta hússins.
Dæturnar tvær eru þegar komnar í nýjan skóla en eftir að fjölskyldan er flutt í Hvíta húsið verð-
ur eitt fyrsta verkefni hennar að finna verðugan hund, sem stendur undir þeim væntingum sem
gerðar eru til hunds bandarísku forsetafjölskyldunnar.
➜ FJÖLSKYLDA FLYTUR Í HVÍTA HÚSIÐ
FYRSTI SKÓLADAGURINN Fljótlega eftir
komuna til Washington bjuggu dæturnar
Sasha og Malía sig undir fyrsta skóladag-
inn í nýjum skóla. NORDICPHOTOS/AFP