Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 50
● heimili&hönnun
1. Allt á einum stað Skólataska
frá Acme Made er útbúin vasa
fyrir fartölvu og hólfum fyrir
skólabækur og fylgihluti fyrir tölv-
ur. Fæst í Apple-búðinni við Lauga-
veg á 15.990 krónur.
2. Mundu mig Time Capsule er
500 GB utan á liggjandi, þráðlaus
harður diskur sem geymir öll gögn
án þess að þurfa að vera tengdur
heimilistölvunni. Því þarf engar
áhyggjur að hafa af Time Capsule
þótt svo illa færi að tölvan gæfi
fyrirvaralaust upp öndina. Fæst
í Apple búðinni við Laugaveg á
59.990 krónur.
3. Listrænt frelsi Bamboo Fun frá
Apple er hálfgert teikniforrit. Það
má tengja við bæði Macintosh og
Windows tölvur og er sniðugt fyrir
listamennina á heimilinu. Með því
má laga ljósmyndir, teikna eftir
ljósmyndum eða koma eigin hand-
skrift í tölvutækt form. Fæst í
Apple-búðinni við Lauga-
veg á 19.990 krónur.
4. Ótæmandi
fjársjóður Sony
UX70 diktafónn
með 1GB inn-
byggt minni,
sem samsvarar
290 klukkustund-
um í upptöku. Einn-
ig með MP3 spil-
ara, upptöku og afspil-
un, innbyggðum víðóma
hljóðnema og baklýstum
LCD skjá. Fæst í Sony-búð-
inni í Kringlunni á 24.990 krónur.
5. Tónlist örvar hugann 8GB
iPod nano, sem er til í ýmsum
litum, og gúmmíhulstur utan
um hann fást í Apple-búðinni
við Laugaveg. iPod kost-
ar 39.990 krónur og
hulstrið er á 4.590
krónur.
6. Góður viðauki
Góður stóll er
mikilvægur fyrir
námshestinn enda
oft mörgum klukku-
stundum eytt í lær-
dóm. Fæst í Ikea
á 14.950 kr.
7. Verði ljós Skemmtilegur og
öðruvísi borðlampi frá Ikea setur
svip sinn á aðstöðu námsmannsins.
Kostar 2.990 krónur.
Nauðsynjar námsmannsins
● Góð birta, stóll í réttri hæð og vandað skrifborð eru meðal nauðsynja sem námsmenn
hafa reitt sig á í gegnum árin. Nýjasta tækni kemur ekki síður að góðum notum, eins og
diktafónar, minniskubbar og fartölvur, sem ratar nú flest inn á nauðsynjalista námsmanna.
4
7
3
5
2
6
1
Hönnunarmiðstöð Íslands, versl-
unin Kraum og Listasafn Reykja-
víkur boða hönnuði til fundar í
Hafnarhúsinu sunnudaginn 25.
janúar klukkan 12.
Tilefnið er hönnunarsam-
keppni þar sem hanna á nytja-
hlut, innblásinn eða með tilvís-
un í verk listamannsins Erró, en
tuttugu ár eru síðan listamaður-
inn gaf Reykjavíkurborg mikið
safn verka sinna. Til mikils er að
vinna en vinningshönnunin hlýt-
ur 500.000 krónur í verðlaun sem
Kraum, Listasafn Reykjavíkur og
Samtök iðnaðarins leggja til auk
þess sem hluturinn verður seldur
í Hafnarhúsinu og í verslunum
Kraums í Aðalstræti og á Kjar-
valsstöðum.
Sérstakt fagráð mun velja úr
innsendum hugmyndum en það
skipa: Halla Bogadóttir í Kraum,
Soffía Karlsdóttir frá Listasafni
Reykjavíkur, Þórey Vilhjálms-
dóttir frá Hönnunarmiðstöð Ís-
lands, Pálmar Kristinsson arki-
tekt, Gunnar Þór Vilhjálmsson,
grafískur hönnuður, og Egill
Sveinbjörn Egilsson, formaður
Félags vöru- og iðnhönnuða.
Keppnin er ætluð fagmennt-
uðum hönnuðum og verða úrslit
keppninnar kynnt á Hönnunar-
dögum 27. mars 2009. Fleiri munir
í samkeppninni verða síðan jafn-
vel valdir til framleiðslu á næstu
mánuðum. - rat
Nytjahönnun innblásinn af Erró
Blásið er til hönnunarsamkeppni um
nytjahlut með tilvísun í verk eftir Erró en
tuttugu ár eru síðan listamaðurinn gaf
Reykjavíkurborg safn verka sinna.
MYND/LISTASAFN REYKJAVÍKUR
O ft er val á flísum fremur hefðbundið nú til dags þar sem fólk velur skynsamlegar flísar í þægilegum lit. Einlitar, ljósar flísar má
finna víða eða andstæður þeirra, dökkar steinflísar.
En hví ekki að krydda tilveruna aðeins og velja eitthvað skraut-
legra? Arabískar flísar með fallegu mynstri geta sett framandi svip á
umhverfið og ef híbýlin eru innréttuð á alþjóðlegan máta getur slíkt
komið skemmtilega út. Finna má flísar af öllum stærðum og gerðum
og ef fólk er einhvers staðar á ferðinni úti í hinum stóra heimi getur
verið gaman að grípa með sér nokkrar fallegar flísar frá spennandi
slóðum. Ekki er nauðsynlegt að flísaleggja allan vegginn eða heilu
lengjurnar með sömu flísunum heldur má líka blanda saman mismun-
andi flísum, þá helst einlitum og skrautlegum, svo smekklegt sé. - hs
Skrautlegar flísar hressa upp á umhverfið og geta gefið því alþjóðlegan svip.
GETTY/NORDICPHOTOS
Fríkað út með flísum
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
Tímarnir breytast en saliskurinn frá
Ekta ski, þessi gamli góði með
íslenskum kartöum og smjöri, stendur
alltaf fyrir sínu.
Sérútvatnaði saliskurinn er sérstaklega
hentugur í seiðandi saliskré Fæst um allt land. Hafðu samband!
466 1016
www.ektafiskur.is
17. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR6