Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 53
Ert þú 50+
Við leitum eftir fl eiri liðsmönnum
í úthringiverið okkar. Hvetjum
sérstaklega konur 50 ára og eldri til
að sækja um, en hentar öllum þeim
sem vilja sveigjanlegan vinnutíma.
Góður “mórall” og góð vinnuaðstaða.
Tímakaup og bónus eftir árangri.
Námskeið og þjálfun áður en byrjað
er.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist
á netfangið axel@tryggir.is
eða í síma 590 1600
Ráðgjafi í málefnum fatlaðra
Félags- og skólaþjónusta A-Hún auglýsir lausa til um-
sóknar 75% stöðu ráðgjafa í málefnum fatlaðra.
Í starfi nu felst meðal annars:
• Fagleg ábyrgð á þjónustu við fötluð börn og fullorðna
• Samskipti við aðstandendur og við samstarfsaðila
• Þáttaka í sífelldri mótun og uppbyggingu á innra
skipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Próf í þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða sambærileg
menntun á sviði félagsvísinda.
• Reynsla, þekking og yfi rsýn varðandi málefni fatlaðra
• Hæfni í samskiptum, samstarfi og skipulagi
• Jákvæð viðhorf og drifkraftur til góðra verka
Í boði eru spennandi framtíðarstarf, öruggt starfsum-
hverfi , faglegur stuðningur og samstarf við aðra stjórn-
endur í málefnum fatlaðra á Norðurlandi Vestra. Nánari
upplýsingar veitir Auður Herdís Sigurðardóttir, félagsmála-
stjóri, audurh@felahun.is, S:4554100.
Vegna kynjasamsetningar eru karlmenn hvattir til að
sækja um. Ef ekki tekst að ráða fagmenntaðan ein-
stakling í störfi n verður litið til annarrar menntunar,
starfsreynslu og persónulegra eiginleika umsækjanda.
Æskilegast væri að umsækjandi gæti hafi ð störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt samningum sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skrifl eg-
ar umsóknir ásamt ferilskrá berist til Félags- og skólaþjón-
ustu A- Hún fyrir 31 jan, Flúðabakka 2, 540 Blönduósi.
Félags- og
skólaþjónusta
A-Hún
- Lifið heil
www.lyfja.is
Lyfjafræðingur – Lyfja Höfn í Hornafirði
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum
lyfjafræðingi til að veita lyfjaútibúi í flokki 1 á
Höfn í Hornafirði forstöðu.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Forstöðumaður ber ábyrgð á faglegum rekstri lyfjaútibúsins, annast
daglegan rekstur og umsýslu og ber ábyrgð á að unnið sé samkvæmt
lögum og reglugerðum um lyfjaútibú.
Hæfniskröfur
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan
lyfjafræðing.
Í boði er krefjandi og spennandi starf, flutningsstyrkur, ódýrt húsnæði,
samkeppnishæf laun og skemmtilegur vinnustaður í vaxandi bæjarfélagi.
Nánari upplýsingar veitir Þorgerður Þráinsdóttir, starfsmannastjóri,
í síma 530 3800, thorgerdur@lyfja.is
Sækja má um starfið á vefsetri okkar www.lyfja.is eða senda umsókn til
starfsmannastjóra á netfangið thorgerdur@lyfja.is
Umsóknafrestur er til 31. janúar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. júní 2009.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. eru karlar jafnt sem konur hvattir
til þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að
starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns. Lykillinn að árangri er
starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði
þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi.
Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
47
35
0
1.
20
09
Sveitarfélagið Höfn í Hornafirði
hefur um 2500 íbúa, þar er
öflugt félags- og menningarlíf og
aðstæður til uppeldis barna
hinar ákjósanlegustu.
Í sveitarfélaginu er framhalds-
skóli, grunnskóli, tveir leikskólar,
tónlistarskóli og öflug
heilbrigðisþjónusta auk
allrar almennrar þjónustu.