Fréttablaðið - 17.01.2009, Qupperneq 72
40 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
M
ig langaði að
gera verk sem
g e n g i a l l a
leið,“ útskýrir
Ástrós á kaffi-
húsi á Skóla-
vörðustígnum eftir að hafa lokið
kennslu í pilates-tíma í Kram-
húsinu. „Fólk er svo gjarnt á að
veigra sér við hlutunum hér á
Íslandi. Er hrætt og með tepru-
skap. Ég hafði engan áhuga á
því.“
Ástrós samdi verkið ásamt Láru
Stefánsdóttur dansara við texta
Hrafnhildar Hagalín og þær stöll-
ur nutu listrænnar ráðgjafar Þór-
hildar Þorleifsdóttur. „Upphaf-
lega hugmyndin var að láta verkið
fjalla um hugaróra og veruleika
tveggja kvenna. Við komum inn
á ýmis atriði sem tengjast konum
eins og sambönd þeirra við karla
og konur, losta, munúð, sektar-
kennd, trú og ást. Ég notast einnig
við myndbandsverk sem ég gerði
um limi karlmanna en þar sjást
alls kyns limir af mismunandi
stærðum og gerðum og í ýmiss
konar ástandi.“ Hefur myndskeið-
ið, dansinn og nektin sem birtist
í verkinu hneykslað áhorfendur?
„Viðbrögð hafa verið afar ólík,“
segir Ástrós og hlær. „Sumum
er mjög brugðið og aðrir stór-
hrifnir. En við vildum gera eitt-
hvað sem snerti fólk og innihéldi
bæði alvarleika lífsins og vænan
skammt af húmor. Ég hefði aldrei
getað sett svona verk á svið fyrir
fimmtán árum. Með aldrinum
öðlast maður sjálfstraust og meiri
dirfsku.“
Ekkert kynþokkafyllra en kona
sem veit hvað hún vill
Búningar í verkinu eru í kyn-
þokkafyllri kantinum því þar eru
á ferð undirföt frá búðinni Systr-
um á Laugavegi ásamt flíkum frá
tískuversluninni Kron. „Dýrleif
Örlygsdóttir sá um búningana
og við erum himinlifandi með þá
og hvernig þeir falla að verkinu.
Tengingin við búðina Systur er
ekki alfarið tilviljun því þegar
við sáum nafnið á búðinni fannst
okkur það einmitt algjörlega við-
eigandi við verkið okkar. Orðið er
svo margþátta, systur geta verið
blóðsystur, vinkonur eða systur í
klaustri, sumsé alls kyns möguleg
sambönd milli kvenna.“ Einnig er
sterkur kynferðislegur undirtónn
í verkinu en þess má geta að sam-
býlismaður Ástrósar, Þorfinnur
Ómarsson, kemur þar fram nak-
inn á sviði. Finnst henni sú kenn-
ing rétt að konur nái kynferðis-
legum hátindi sínum á miðjum
aldri? „Já, eflaust, en það hefur
örugglega mikið með sjálfstraust-
ið að gera. Þá þekkja konur sjálf-
ar sig og líkama sinn. Það er ekk-
ert kynþokkafyllra en kona sem
veit hvað hún vill.“ Sjálf segist
Ástrós vera heppin að eiga í mjög
hamingjuríku sambandi. „Það er
mjög mikilvægt, og þá sérstak-
lega á þessum síðustu og verstu
tímum, að hlúa að þeim sem
maður elskar og njóta samveru-
stunda og nándar með þeim. Ég
á yndislegar stundir með mínum
manni og hann dekrar óspart við
mig. Við erum jafnvel að huga um
að flytja okkur um set og ég er
að skoða atvinnutilboð erlendis,
þannig að hver veit hvað framtíð-
in ber í skauti sér.“
Systur eru sýndar hjá Leikfélagi
Akureyrar um næstu helgi ogí Iðnó
í febrúar
Hugarórar og
veruleiki kvenna
Dansverkið Systur, sem hlaut lofsamlega dóma í fyrra, er væntanlegt aftur á
leiksvið um næstu helgi. Anna Margrét Björnsson ræddi við Ástrósu Gunn-
arsdóttur, annan höfund verksins, um kynþokka, hamingju og heilbrigði.
VERK SEM HRÍFUR EÐA HNEYKSLAR „Mig langaði að skapa verk sem gengur alla leið,“ segir Ástrós Gunnarsdóttir um dansverkið Systur. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA
„Sauna, sund, heitir pottar undir beru lofti, kampavín … svo myndi ég gjarn-
an vilja kíkja á listaopnun, fá mér vínglas eða kampavín og enda daginn á
dásamlegum málsverði.“
Þrjú heilræði Ástrósar að lífshamingju og heilbrigði:
■ Að njóta ásta reglulega
■ Að njóta samverustunda með þeim sem þér þykir vænt um, njóta þess
að rækta líkamann sem þú hefur og gera það besta úr honum, eins og til
dæmis með Pilates!
■ Að njóta þess að rækta andlegu hlið líkamans með því að upplifa nýja
hluti í lífinu, listinni og menningunni, njóta þess að drekka gott vín og borða
góðan mat sem þér líður vel af.
Fullkominn dekurdagur Ástrósar