Fréttablaðið - 17.01.2009, Blaðsíða 74
42 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Góð vika …
... Fyrir sjávarút-
veginn. Útgerðar-
menn fá að veiða
30 þúsund tonn-
um meira en í
síðustu viku!
… Friðrik Þór
Friðriksson.
Heimildarmynd-
in hans Sólskins-
drengurinn hefur
fengið góða dóma og
mikla aðsókn og þykir
besta mynd leikstjórans í háa herrans tíð.
Leikstjórinn, sem hefur
margoft þótt sýna besta
takta með umfjöllun
um hópa sem tilheyra
jaðrinum, gefur í
myndinni einstaka
sýn inn í heim ein-
hverfra.
… fyrir Framsókn-
arflokkinn. Það
fjölgar í flokkn-
um og her manns
er í framboði til for-
manns flokksins sem
hlýtur bara að vera
jákvætt fyrir flokk sem
sumir töldu í andaslit-
runum. Í dag kemur
svo í ljós hvaða
karl tekur við af
Valgerði Sverr-
isdóttur, sem
hefur tíma-
bundið setið
við stjórnvöl-
inn í flokkn-
um, en það er
kannski ekki
svo góð frétt
fyrir áhugafólk
um aukinn hlut
kvenna í stjórnmál-
um.
… fyrir Loga Geirsson.
Handboltakappinn
hefur verið í sviðs-
ljósinu undanfarið
og var til umfjöll-
unar í þættinum
Atvinnumenn-
irnir okkar á
Stöð tvö sporti
í v i k u n n i .
Ekki leiddist
Loga það því
hann leigði sal í
Smárabíói til þess
að hann og fjöl-
skylda hans og vinir
nytu betur þáttarins.
Slæm vika …
...fyrir Sigurbjörgu
Sigurgeirsdóttur
stjórnsýslufræð-
ing. Sigurbjörg
byrjaði sem
hálfgerð
hetja í byrjun
vikunnar þegar
hún talaði gegn
Guðlaugi heil-
brigðisráðherra
og lét í veðri vaka
að „ónefnur ráðherra“
hefði hótað henni fyrir
mótmælafund. En þegar kom í ljós
að ráðherrann sem hafði hótað
henni var vinkona að gefa
henni góð ráð kom Sigur-
björg ekki sérlega vel út.
…fyrir Simma í Kast-
ljósinu. Brotist var
inn í bíl Sigmars Guð-
mundssonar sjónvarps-
manns í vikunni og
ekki einfölduðust málin
þegar kollegi hans Helgi
Seljan játaði verknaðinn
á Facebook síðunni sinni.
Ekki er þó ljóst hvort um
sanna játningu er að ræða.
… fyrir Sinfóníuhljóm-
sveitina. Fjármála-
kreppan bitnar á
Melabandinu eins
og mörgum öðru í
menningarlífinu en
ljóst er að Sinfón-
ían hefur úr minni
peningum að spila
en áður eftir að
styrktaraðilar fóru
á hausinn og verð-
ur því að fækka tón-
leikum.
… fyrir leigu-
sala. Stöðugar fréttir af því
að leiga fari lækkandi
gera líklega ekki
annað en að lækka
leiguverð enn
frekar leigu-
sölum til lít-
illar ánægju.
Þetta hlýt-
ur að velgja
þeim einkum
undir uggum
sem eru að leigja
út íbúðir sínar í von
um að þær standi undir
afborgunum á lánum sem gera ekkert
annað en að hækka. Leigjendur gleðjast
hins vegar á meðan …
X
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA
Ímyndum okkur í augnablik að erlendar fréttir sem hingað berast væru
allar skrifaðar af sómakærum og hlutlausum fréttariturum sem hefðu
engra sérstakra hagsmuna að gæta, til dæmis í Palestínu. Sérstaklega
fréttariturum frá ríkjum sem ekki setja „öryggi Ísraels“ ofar réttlæti
og mannréttindum. Einhverjum lesandanum brygði líklega í brún að
lesa slíka frétt:
„Herskáar vígasveitir Zíonista réðust í gær á þá fáu innfæddu íbúa
Palestínu sem enn neita að flýja heimkynni sín, þrátt fyrir sex áratuga
helför gegn þeim. Meðal skotmarka að þessu sinni voru skólar, kirkjur,
spítalar og slökkvistöðvar.
Þungvopnaðir Zíonistarnir segjast ætla að vega alla þá sem hafa reynt
að stýra samfélagi, og þar með mótspyrnu, hinna fátæku Palestínumanna
á svæðinu. Sérstaklega skuli gera höfðinu styttri þá sem hafa verið
lýðræðislega kjörnir til forystu. Því
miður ættu þessir leiðtogar börn
og byggju í íbúðarhverfum. En
þetta væri fórnarkostnaður
heilags stríðs.
Zíonistar hafa lengi haft
það að markmiði að sölsa
allt landið undir þann
hóp manna sem „guð
reiði og hefndar“ á að
hafa valið til að eiga
staðinn fyrir mörg
þúsund árum. Ríkið
er skilgreint sem ríki
gyðinga. Í því samfé-
lagi skiptir trúhneigð
einstaklinganna
meira máli en annað,
svo sem ríkisborgara-
réttur.
Hernaðarráðherra
Zíonista segir að aðrar
þjóðir en öfgakristnar
eigi ekkert með að skipta
sér af því sem gerist í Pal-
estínu. Aðrar þjóðir geti ekki
skilið hlutskipti gyðinga og séu
yfirleitt andsnúnar þeim. Þetta
hafi sannast fyrir fullt og allt í seinni
heimsstyrjöldinni.
Ráðherrann bendir jafnframt á að heimavarnarsveitir Palestínumanna
hafi síðustu ár með frumstæðum flugskeytum drepið hátt í tuttugu öfga-
menn Zíonista, sem fá frítt húsnæði og ríkisstyrki fyrir að búa upp við
aðskilnaðarmúrinn. Palestínskir íbúar og frelsisherir þeirra geri þess-
um „landnemum Jahve“ erfitt fyrir. Samkvæmt heimildum blaðsins telja
stjórnvöld að engin þjóð muni gera nokkuð fyrr en Obama tekur við völd-
um og því sé nú lag að hreinsa til.“
Svona einhvern veginn hefðu fréttir vikunnar getað hljómað, ef mál-
stað Palestínumanna væri sýnd sama virðing og málstað Ísraelsmanna
er sýndur. En í hinum raunverulega heimi sýna áróðursmeistarar Ísra-
els allt aðra hlið á málunum, og sú hlið er á ýmsum bæjum talin sönn.
Þeir segjast vera að verja land „sitt“ en taka hvorki fram að fólk bjó á
þessu landi áður en Zíonistar komu þangað né að landtökubyggðir gyð-
inga eru ólöglegar.
Og það er óneitanlega hægt að ylja sér við þá draumsýn, ef við hefðum
flokka í stjórnarráðinu sem gætu séð að ein hlið mála getur verið réttari
en hin. Þá þyrfti utanríkisráðherra vor ekki alltaf að fordæma þá jafnt;
rasíska hernámsliðið og ofsótta smælingja.
En hvers vegna var á sínum tíma lýst yfir stuðningi við árásarstríð
Bandaríkjamanna á Írak, en ekki við Saddam og ekki heldur við and-
spyrnusveitir súnníta og sjíta?
Ef fréttin kæmi hinum megin frá
HORFT ÚT Í HEIM
Klemens Ólafur ÞrastarsonVELJUM
ÍSLENSKT