Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 79
LAUGARDAGUR 17. janúar 2009
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er lífið
Skráðu þig í netklúbbinn – VITAferðir.is
Ferðaklúbbur VITA
fyrir 60 ára og eldri
Stofnfundur á morgun kl. 14:30 í Víkingasal
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
46
76
0
1.
20
09
Fyrir marga er skemmtilegasta
skeið ævinnar eftir sextugt.
Ein af ástæðunum fyrir því er að
fáir ferðast jafnmikið og fólk á
þessum aldri en ferðalög eru ein
af forsendum þess að geta notið
lífsins til fulls.
Þess vegna stofnar VITA ferða-
klúbbinn Gott fólk 60+ með það
að markmiði að bjóða lífsglöðum
ferðalöngum á allra besta aldri
hagstæðar ferðir og góða
þjónustu.
Gott fólk 60+ stofnfundur
og ferðakynning á morgun, sunnudaginn
18. janúar, kl. 14.30 –17.00 í Víkingasal
Hótels Loftleiða.
• Kaffi og léttar veitingar.
• Birgir Ottósson og félagar leika fyrir dansi
og Kári litli og Lappi bregða á leik.
• Kynning á vorferðum fyrir Gott fólk 60+
– Kanarí 18. febrúar.
– Mallorca og sigling um Miðjarðarhafið 4. maí.
– Írland 9.–13. apríl, páskaferð.
• Ferðavinningar í boði.
• Skráning í klúbbinn.
Félagar í klúbbnum Gott fólk 60+ fá 5.000 kr.
afslátt af öllum ferðum á vegum klúbbsins
og áskrift að ársfjórðungslegu fréttabréfi.
VITA er ný ferðaskrifstofa
í eigu Icelandair Group.
GROUP
Dagskrá
21. janúar kl. 15:00 til 17:00
Opinn fundur um vísindamál
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar
- Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
- Þórarinn Guðjónsson, varaforseti Vísindafélagsins
- Einar Stefánsson, prófessor og yfi rlæknir Landspítala og frumkvöðull hjá Oxymap
- Þórdís Ingadóttir, dósent lagadeild Háskólans í Reykjavík
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
28. janúar kl. 15:00 til 17:00
Opinn fundur um tækniþróun og nýsköpun
15:00-16:00 Breyttar aðstæður, nýjar áskoranir
- Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar
- Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
- Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun Listaháskóla Íslands
- Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir á sviði upplýsingatækni
16:00-17:00 Pallborð og umræður
- Fundarstjóri: Leifur Hauksson
4. mars kl. 15:00 til 17:00
Kynning og umræður um drög að nýrri stefnu
Vísinda- og tækniráðs
Vísindanefnd og tækninefnd boða til opinna funda
um mótun nýrrar vísinda- og tæknistefnu í Nýja
Kaupþing banka hf, Borgartúni 19, Reykjavík
2009-2012
VÍSINDA &
TÆKNISTEFNA
Slumdog Millionare, eða Viltu
vinna milljarð eins og heitið hefur
verið íslenskað, fjallar um mun-
aðarleysingjann unga Jamal sem
hefur alist upp í mikilli fátækt í
Mumbai á Indlandi. Hann kemst
í indversku útgáfuna af spurn-
ingaþættinum Viltu vinna millj-
ón og stendur sig það vel að
hann er aðeins einni spurningu
frá stærstu peningaverðlaunun-
um. En þáttastjórnandinn grun-
ar hann um svindl og sigar lög-
reglunni á hann, svo til að sanna
mál sitt segir Jamal sögu sína um
hvernig hann, ómenntaður, hefur
lært svörin við öllum spurning-
unum fyrir tilviljun á sinni erf-
iðu lífsleið, og að lokum hvers
vegna hann hafi í raun tekið þátt
í keppninni.
Um er að ræða nýjustu mynd
Bretans Danny Boyle sem hefur
sannað sig sem einn fjölhæfasti
leikstjórinn í dag með myndum
á borð við vísindaskáldskapinn
Sunshine, uppvakningahrollinn
28 Days Later og fíkniefnamynd-
ina Trainspotting. Enn fer hann í
óvæntar áttir með sögu um harð-
neskju og ástir úr fátækrahverf-
um Indlands, en myndin er byggð
á skáldsögu Vikas Swarup sem
var aðlöguð af handritshöfund-
inum Simon Beaufoy (The Full
Monty).
Slumdog Millionare er byggð á
ótrúlegri sögu sem flakkar þannig
af einskærri færni á milli spenn-
unnar í sjónvarpsþættinum og
erfiðra uppvaxtarára Jamals, þar
sem bróðir hans og ástin koma
við sögu. Þetta er mjög upplífg-
andi saga, um leitina að glataðri
ást og fantasían um að komast frá
botninum upp á stjörnuhimininn.
En snilldin við myndina er hvern-
ig hún gengur upp með þessa for-
múlu, sem gæti virkað klisjukennd
í öðrum myndum, í köldum veru-
leika og ljótleika; hvernig það er að
lifa af í skugga fátæktar og heimil-
isleysi, eiga enga fjölskyldu að og
hrærast í undirheimunum. Þegar
hlutir ganga upp hjá honum verður
sælan því þeim mun sterkari.
Myndin er frábærlega tekin upp,
á líflegan og kraftmikinn hátt í
anda City of God, og nýtur góðs af
oft hröðum klippingum sem halda
keyrslunni gangandi. Aðalleikarar
eru að mestu óþekktir á heimsvísu,
þótt það bregði fyrir Bollywood-
leikurum á borð við Anil Kapoor
og Irrfan Khan, en þrátt fyrir það
er leikur óaðfinnanlegur.
Slumdog Millionare er þannig
mikið afrek, og þótt Boyle eigi
margar frábærar myndir að baki
er þetta líklega hans besta; þetta
er einhvern veginn mynd sem
höfðar til allra. Hún er þegar farin
að raka inn verðlaunum, og er ég
handviss um að hún verði tilnefnd
sem besta myndin og taki jafnvel
styttuna á Óskarnum í ár.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Og Óskarinn hlýtur...
KVIKMYNDIR
Slumdog Millionaire
Leikstjóri: Danny Boyle.
★★★★★
Upplífgandi saga gerð að frábærri
bíómynd, bestu mynd Dannys Boyle
og líklegum sigurvegara á Óskars-
verðlaununum.
„Við bjuggumst fastlega við því að
bílstjórinn sem ferjaði okkur út
á flugvöll New York-borgar hefði
ekki hugmynd um hvað Ísland
væri. Hann bað okkur þó um að
stafa nafnið á landinu. Ó, sagði
hann, gjaldþrota-landið.“ Svona
hefst frásögn blaðamanns AP-
fréttastofunnar, David Bauder, af
ferð sinni til Íslands sem birt er
á vef MSNBC.com. Ísland sé ekki
lengur eldfjallaeyjan sem er svo
þekkt fyrir náttúrufegurð. Mönn-
um dettur heldur ekki í hug líflegt
næturlíf Reykjavíkur, Björk eða
Sigur Rós þegar þeir heyra minnst
á landið, Ísland er gjaldþrotaland-
ið. Að minnsta kosti í huga leigu-
bílstjóra í New York.
Ferðasaga Bauder er ansi
skemmtileg. Hann sest niður á
kaffihús og hlustar á Íslendinga
ræða við blaðamann The New
Yorker sem er að
vinna að stórri
umfjöllun um
efnahagshrunið.
Bauder fer jafn-
framt á mótmæl-
in við Austur-
völl og þegar
hann útskýr-
ir fyrir einum
mótmælend-
anna að hann
ætli í Bláa lónið
þá er hann varað-
ur við. „Ekki fara,
þetta er túristagildra,“ eru við-
brögð Íslendingsins. Bauder segist
vera túristi og fer því í Bláa lónið.
Og sér ekki eftir því. Hann dásam-
ar jafnframt allar sundlaugarnar
sem finna má í Reykjavík og ráð-
leggur ferðalöngum að taka með
sér mörg pör af sundfötum. Þá
nefnir blaðamaðurinn einnig þann
fjölda af hálfkláruðum byggingum
sem beri vott um framkvæmda-
gleði Íslendinga.
Bauder segir að öryggi á vinsæl-
um ferðamannastöðum sé ábóta-
vant, slíkum stöðum yrði bara
lokað í Bandaríkjunum. „En ekki
á Íslandi, þar tryggir þú þitt eigið
öryggi. Ég sá konu renna á göngu-
stíg við Gullfoss. Ef hún hefði ekki
gripið í kaðal þá hefði hún steypst
niður í gilið,“ skrifar Bauder.
Að endingu fer blaðamaðurinn
á hestbak og íslenskur leið-
sögumaður útskýrir fyrir
honum að íslenski hestur-
inn njóti sömu virðing-
ar og kýrin á Indlandi.
„Nema að einu leyti
– við borðum hestinn
líka,“ bætir leiðsögu-
maðurinn við. Bauder
greinir síðan frá því að
sala á hrossakjöti hafi
aukist mikið síðan
kreppan hófst enda
sé það miklu ódýr-
ara en nautakjöt.
- fgg
Ísland ekki lengur eyja
Bjarkar og Sigur Rósar
ER EKKI LENGUR ÍSLAND Hvorki Björk né Sigur Rós eða eldfjöll eru þekktustu kenni-
leiti Íslands heldur er það gjaldþrotalandið sem einkennir íslenska þjóð.