Fréttablaðið - 17.01.2009, Page 84
52 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> EKKI AÐ SKILJA
Jennifer Lopez segir skilnað ekki vera í
vændum. Söng- og leikkonan hefur
lengi mátt þola orðróm um að fjög-
urra ára hjónaband hennar og tón-
listarmannsins Marcs Anthony sé
á enda, en hún segir það fjarri
sanni. Í viðtali við tímaritið Touch
Weekly segir Lopez sögusagnirnar
fyrst og fremst fara af stað þegar
hún er ekki með giftingahringinn.
Hvað er að frétta? Það er mikið um góðar fréttir á Hönn-
unarmiðstöðinni, erum að kynna hönnunarsamkeppni í
næstu viku í samstarfi við Kraum og Listasafn Reykjavíkur.
Auk annarra spennandi verkefna sem eru atvinnuskapandi
fyrir hönnuði og vekja athygli á þeirri miklu grósku sem er í
íslenskri hönnun.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Framkvæmdarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Fjölskylduhagir: Sambúð og tvö börn.
Hvaðan ertu? Reykjavík.
Ertu hjátrúarfull? Já frekar.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fréttir.
Uppáhaldsmaturinn: Indverskur matur og grænt te, þó ekki
saman.
Fallegasti staðurinn: Get ekki gert upp á milli útsýnisins frá
Sveinstindi og Vesturvatns í Hangzou í Kína.
iPod eða geislaspilari: ipod.
Hvað er skemmtilegast? Vilhjálmur og Ragn-
heiður eru skemmtilegust.
Hvað er leiðinlegast? Að skúra og þrífa
klósett.
Helsti veikleiki: Óþolinmæði.
Helsti kostur: Framkvæmdagleði.
Helsta afrek: V-dagur.
Mestu vonbrigðin? Gamla
Ísland.
Hver er draumurinn? Nýja
Ísland.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Ragnheið-
ur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Leti.
Hvað er mikilvægast? Íslensk hönnun.
HIN HLIÐIN ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI.
Finnst íslensk hönnun mikilvægust.
Tónlistarmaðurinn George
O‘Dowd, betur þekkur sem Boy
George, var í gær dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi, en hann var
fundinn sekur um að hafa hand-
járnað norskan fylgdarpilt við
vegg og barið hann með járnkeðju
í apríl 2007.
George, sem er 47 ára og fylgd-
arpilturinn, Audun Carlsen, kynnt-
ust í gegnum vefsíðu Gaydar, en
atvikið átti sér stað í íbúð George
eftir að hann ásakaði hinn 29 ára
Carlsen um að hafa stolið myndum
úr fartölvu sinni þegar þeir hittust
þremur mánuðum fyrr. Söngvar-
inn mun þá hafa handjárnað Carls-
en við járnkrók sem var festur í
vegg í íbúðinni og barið hann með
keðju. Carlsen náði hins vegar að
losa sig með því að skrúfa krók-
inn lausan með handjárnunum og
hljóp út úr íbúð George og kallaði
á hjálp.
George neitar ásökununum og
segir Carlsen eingöngu hafa lagt
fram kæru peninganna vegna.
Dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi
BREYTT ÚTLIT Boy George er nánast
óþekkjanlegur þessa dagana og hefur
nú verið dæmdur í fimmtán mánaða
fangelsi.
Madonna og Guy Ritchie hafa eytt
dágóðum tíma saman upp á síð-
kastið eftir að Lourdes, tólf ára
dóttir Madonnu, bað þau um að
vera „ekki vond við hvort annað“.
Samkvæmt heimildum dagblaðs-
ins New York Daily News sást Guy
fara inn í íbúð söngkonunnar þar
í borg á þriðjudaginn og ýtti það
undir sögusagnir þess efnis að
parið ætli að taka aftur saman, en
heimsókn Guy mun einungis hafa
verið í því skyni að gleðja Lour-
des.
Madonna og Guy, sem tilkynntu
um skilnað sinn í október í fyrra,
eru sögð vera staðráðin í því að
gera skilnaðinn eins auðveldan og
á verður kosið, barna sinna vegna,
en auk Lourdes eiga þau soninn
Rocco sem er átta ára og David,
þriggja ára.
Poppdrottningin hefur leit-
að eftir stuðningi vina sinna sem
aðhyllast kabbalah-lífsspekina
og eru þeir einnig sagðir hafa ýtt
undir góð samskipti hennar og
Guy. Skilnaður er ekki vel liðinn í
söfnuðinum og því hafa vinir henn-
ar þar reynt að ýta undir að þau
taki aftur saman, eða haldi góðum
vinskap í það minnsta.
Madonna og Guy
saman í New York
ALLT Í GÓÐU Madonna, Guy og börnin.
Rokkarinn Ryan Adams hefur
ákveðið að hætta tónlistariðkun
um óákveðinn tíma. „Kannski spil-
um við aftur saman einhvern tím-
ann og kannski fikra ég mig aftur
inn í tónlistina,“ skrifaði hann
á bloggsíðu sína. „En núna ætla
ég að draga mig í hlé og ég óska
öllum friðar og hamingju.“
Adams hefur á ferli sínum gefið
út ellefu plötur á átta árum, þá síð-
ustu í fyrra með The Cardinals.
Núna ætlar hann að snúa sér
að rithöfundar-
ferli sínum
og hygg-
ur á útgáfu
þriggja bóka
á næstunni.
Hættur í
tónlistinni
RYAN ADAMS
Rokkarinn kveður
tónlistarbrans-
ann.
18.08.1972
K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T
HÁSKÓLABRÚ
Háskólabrú er samstarfsverkefni Keilis og Háskóla Íslands og býður deildin upp á aðfararnám
á vegum HÍ fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla nemendur
almenn inntökuskilyrði innlendra háskóla og telst námið almennt sambærilegt stúdentsprófi
samkvæmt samningi Keilis, HÍ og menntamálaráðuneytisins.
Námið er lánshæft hjá LÍN og má stunda jafnt í staðnámi sem fjarnámi.
Nánari upplýsingar á www.keilir.net. Umsóknarfrestur er til 20. janúar.
Markviss og góður undirbúningur fyrir háskólanám