Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 88

Fréttablaðið - 17.01.2009, Side 88
56 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Varnarmaðurinn Haraldur Freyr Guðmundsson hefur tekið nokkuð óvænta stefnu því hann mun skrifa undir eins og hálfs árs samn- ing við kýpverska félagið Apollon Limassol í dag. Eftir fjögurra ára veru hjá norska félaginu Aalesund ákvað Haraldur Freyr að stökkva á tækifærið þegar það gafst. „Þetta kom vægast sagt fljótt upp þar sem umboðs- maður minn lét mig vita af áhuga Apollon Limassol á mánudaginn og á þriðjudag var Aalesund búið að samþykkja kauptilboð og ég fór til Kýpur á fimmtu- dag og skoðaði aðstæður og fór svo í gegnum læknisskoðun. Ég mun skrifa undir eins og hálfs árs samning á morgun [í dag] með möguleikann á einu ári í viðbót ef báðir aðilar ná sáttum með það. Ég er bara mjög spenntur fyrir þessu og það er fjölskyldan mín líka en við flytjum fjögur þangað út,“ segir Haraldur Freyr. Kýpverskur fótbolti komst rækilega á landakortið þegar Anorthosis Famagusta komst inn í Meistara- deild Evrópu á yfirstandandi keppnistímabili og var meira að segja nálægt því að komast áfram í 16-liða úrslitin. Apollon Limassol, tilvonandi félag Haraldar Freys, er með stærri félögum í Kýpur og varð síðast meistari þar í landi keppnistíma- bilið 2005-2006 og komst þá í fréttirnar fyrir að vera eina félag- ið í Evrópu sem fór þá taplaust í gegnum keppnistímabilið. „Ég veit ekki hve mikið stökk þetta er hjá mér frá Noregi og því að spila í norsku deildinni en þetta er náttúrulega allt öðruvísi fótbolti sem er spilaður þarna. Í Noregi er spil- aður mjög mikill kraftafótbolti en ég held að þetta byggist meira upp á taktík þarna í kýpversku deildinni og miklu rólegri fótbolti spilaður. Apollon er með stærstu félögum deildarinnar og heimavöllur þess tekur rúmlega fjórtán þúsund í sæti,“ segir Haraldur Freyr. „Ég hitti þjálfara félagsins aðeins í gær og hann lagði mikla áherslu á að gengið yrði hratt frá öllum félagaskipta- pappírum þar sem Apollon mætir Anorthosis í bikarnum á miðvikudag eftir helgi þannig að ég er bara vongóður um að fá að spila.“ HARALDUR FREYR GUÐMUNDSSON: SKRIFAR UNDIR SAMNING VIÐ KÝPVERSKA FÉLAGIÐ APOLLON LIMASSOL Veit ekki hve mikið stökk þetta er frá Noregi Iceland Express deild karla Keflavík-KR 88-97 (36-50) Stig Keflavíkur: Sigurður Þorsteins. 27, Hörður Vilhjálms. 17, Sverrir Sverris. 14, Jón Hafsteins. 14, Gunnar Stef. 6, Gunnar Einars. 5, Þröstur Jóh. 5. Stig KR: Jón A. Stefáns. 28, Jakob Sigurðars. 21, Jason Dourisseau 13, Fannar Ólafs. 10, Pálmi Sigurgeirs. 7, Skarphéðinn Ingas. 7, Helgi M. Magnús. 7, Darri Hilmars. 4. Grindavík-Njarðvík 113-85 (69-48) Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 22, Páll A. Vilbergs. 21, Nick Bradford 18, Páll Kristins. 15, Þorleifur Ólafs. 13, Guðlaugur Eyjólfs. 6, Davíð Hermanns. 6, Björn Brynjólfs. 4, Nökkvi Jóns. 4, Arnar F. Jóns. 2, Helgi J. Guðfinns. 2. Stig Njarðvíkur: Logi Gunnars. 34, Magnús Þ. Gunnars. 21, Hjörtur Einars. 7,Hilmar Hafsteins. 6, Ágúst Dearborn 5, Grétar Garðars. 4, Friðrik E. Stefáns. 3, Óli Alexanders. 3, Ólafur Jóns. 2. Snæfell-Skallagrímur 104-62 (43-34) Stig Snæfells: Sigurður Þorvalds. 20, Slobodan Subasic 17, Atli Hreins. 17, Hlynur Bærings. 14, Egill Egils. 11, Gunnlaugur Smáras. 11, Jón Jóns. 8, Daníel Kazmi 3, Arnór Hermunds. 3. Stig Skallagríms: Landon Quick 20, Sveinn Davíðsson 12, Sigurður Þórarins. 11, Trausti Eiríks. 6, Hermann Hermanns. 4, Egill Egils. 3, Igor Beljanski 3, Björgvin Ríkharðs. 1 Breiðablik-Þór Ak. 87-81 (42-42) Stig Breiðabliks: Nemanja Sovic 18, Þorsteinn Gunnlaugs. 17, Kristján Sigurðs. 16, Halldór Halldórs. 15, Emil Jóhanns. 9, Daníel Guðmunds. 6, Rúnar Erlings. 6. Stig Þórs: Konrad Tota 26, Guðmundur Jóns. 18, Óðinn Ásgeirs. 12, Jón Kristjáns. 9, Hrafn Jóhannes. 7, Baldur Stefáns. 6, Baldur Jónas. 3. ÚRSLIT FÓTBOLTI Sögunni um möguleg vistaskipti Brasilíumannsins Kaká er hvergi nærri lokið því nú hefur knattspyrnustjóri AC Milan, Carlo Ancelotti, viðurkennt að Kaká gæti farið til Manchester City eftir allt saman. „Von mín er að þjálfa Kaká í mörg ár í viðbót en við verð- um að vera meðvitaðir um stað- reyndir og hvernig félagið metur tilboðið. Það sem skiptir mestu máli í þessu er að markmið liðs- ins breytast ekki hvort sem Kaká verður áfram eða fari eitthvert annað,“ sagði Ancelotti í gær. City er talið hafa boðið 100 milljónir punda í Kaká og taki AC Milan tilboðinu verður Kaká langdýrasti leikmaður allra tíma. Frakkinn Zinedine Zidane er sem stendur dýrasti leikmaður í sögunni en hann kostaði Real Madrid litlar 46 milljónir punda þegar hann kom til félagsins frá Juventus árið 2001. Faðir og umboðsmaður Kaká, Bosco Leite, kemur til Ítalíu á mánudag til að ræða framtíð Kaká. Kaká lýsti því yfir í viðtali við Mediaset í vikunni að svo fram- arlega sem AC Milan vildi halda sér og félagið hefði háleit fram- tíðarmarkmið þá vildi hann vera áfram í Mílanó. Það gæti þó allt saman breyst ef kauptilboð City verður samþykkt. - hbg Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, í gær: Kaká gæti enn farið KAKÁ Gæti farið til Man. City þó svo að hann hafi lýst því yfir að hann vilji það ekki. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Rafa Benítez, stjóri Liverpool, hefur hafnað nýju til- boði frá félaginu. Ástæðan er sú að hann vill hafa meiri áhrif hjá félaginu. „Eigendunum finnst að fót- boltalegar ákvarðanir mínar eigi að bera undir aðra hæstráðend- ur. Ég veit sem er að staða mín veltur á úrslitum og stuðnings- mennirnir eru bestu dómararnir á mínum verkum,“ sagði Benítez sem hefur samt náð samkomulagi um fjárhæð og lengd samnings- ins. - hbg Rafael Benítez, Liverpool: Vill meiri völd RAFA Vill hafa meira að segja um hvaða leikmenn eru keyptir. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES > Bjarni Fritzson í raðir FH Landsliðsmaðurinn Bjarni Fritzson skrifaði í gær undir samning við nýliða FH. Samningur- inn við Hafnarfjarðarfélagið gildir út yfir- standandi keppnistímabil í N1-deildinni og Eimskipsbikarnum en hornamaður- inn knái fékk sig nýlega lausan frá samn- ingi sínum við franska félagið St. Raphael. Fyrsti deildarleikur Bjarna með FH verður því að öllu óbreyttu gegn toppliði Fram næstkomandi fimmtudag en FH er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar, þrátt fyrir að vera aðeins fjórum stigum á eftir Fram þegar ellefu umferðum er lokið. HANDBOLTI Heimsmeistara- mót karla í handbolta hófst í gær með opnunarleik Króa- tíu og Suður-Kóreu í B-riðli í Spaladium-höllinni í Split en þar fóru heimamenn, Króat- ar, með sigur af hólmi 27-26 í hörkuleik. Mótið stendur til 1. febrúar. Króatar leiddu 14-13 í hálf- leik en Suður-Kóreumenn bitu vel frá sér í síðari hálfleik og voru með forystu, 25- 26, þegar skammt var til leiksloka. Króatinn Petar Metlicic reynd- ist hins vegar betri en enginn á lokakaflanum og skoraði tvö síðustu mörkin og tryggði 27-26 sigur. - óþ HM í handbolta í Króatíu: Heimamenn byrja á sigri BALIC Lék með Króötum í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI KR-ingar stóðust enn eitt prófið þegar þeir sóttu níu stiga sigur í Keflavík, 88-97, í Ice- land Express deild karla í gær. KR- ingar hafa nú unnið þrettán fyrstu deildarleiki tímabilsins. Jón Arnór Stefánsson átti stórleik í liði KR og skoraði 28 stig þar af 19 þeirra í fyrri hálfleik. Keflvíkingar reyndu að klippa þá Jón Arnór og Jakob Örn Sig- urðsson úr út leiknum en KR-ingar leystu það ágætlega, hittu frá- bærlega úr þriggja stiga skotum (9 af 17 í fyrri hálfleik) auk þess sem þeir Jón Arnór og Jakob voru klókir að sækja góð skot í hraðaupphlaupum. KR náði mest 17 stiga forskoti og var fjórtán stigum yfir í hálfleik. 36- 50. Keflvíking- ar gáfust hins vegar ekki upp og með gríðar- legri baráttu og góðum leik Harðar Axels Vilhjálmssonar (15 af 17 stigum í seinni) unnu þeir sig inn í leik- inn en náðu þó aldrei að minnka muninn meira en í níu stig. KR hélt út en þurftu oft að hafa mikið fyrir hlutunum gegn hörðum leik heima- manna. Jón Arnór Stefánsson átti enn einn stórleikinn gegn Keflavík og hann og Jakob hittu saman úr 7 af 10 þriggja stiga skotum sínum. „Þeir breyttu um varnartaktík og reyndu að klippa mig og Kobba út. Við reyndum að láta boltann ganga og vorum síðan að sækja á þá í hraðaupphlaup- unum,“ sagði Jón Arnór en h a n n og Jakon skoruðu saman 49 stig í gær. „Þeir tóku vel á okkur og það var hart barist eins og við var að búast. Við vorum búnir að búa okkur undir það. Við héldum nokkurn veginn haus allan leikinn, vörnin hefði mátt vera betri en annars er ég mjög sáttur,“ sagði Jón sem hefur skorað 26,5 stig að meðaltali í fjórum leikjum á móti Keflavík í vetur. „Það er ekki erfitt að ná upp ein- beitingu fyrir leikina á móti Suð- urnesjaliðunum og ég var ánægð- ur með mig í kvöld,“ sagði Jón. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var öflugur í liði Keflavíkur í gær með 27 stig og 11 frákast. „Þetta eru mun betri tölur en í síðasta leik en það er samt allt- of mikið að fá á sig 97 stig. Við áttum að tala betur saman í vörninni því þeir voru að fá alltof mörg opin skot fyrir utan. Þeir skora mikið úr hraðaupphlaupum og það er þeirra leikur,“ sagði Sigurður sem var KR- ingum erfiður við að eiga. „Ég geri eins mikið og ég get og reyni að skila mínu. Ég gerði eitthvað gott í dag en hefði átt að spila betur varnar- megin,“ sagði hann að lokum. KR vantar nú aðeins einn sigur til viðbótar til að jafna metið yfir bestu byrjun sögunn- ar í úrvalsdeild en næsti leikur er gegn Blikum á heimavelli á morgun. ooj@frettabladid.is KR stóðst prófið í Keflavík Keflvíkingar reyndu að klippa Jón Arnór og Jakob Örn út en þeir svöruðu því með því að skora 49 stig saman og hitta úr 7 af 10 þriggja stiga skotum sínum. JÓN ARNÓR Átti sannkallaðan stórleik í sigri KR gegn Keflavík í gær og skoraði 28 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.