Tíminn - 19.12.1982, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
Sá sem togar of snemma í bremsuna
hlýtur að falla, en sá sem gerir það af
seint skellur á jörðina með 40 km. hraða.
Klaus Heller er engin hetja. Hann
lítur heldur ekki út fyrir að vera það.
Hann er fremur smávaxinn og fremur
feitur en grannur. Hann reykir of mikið
og er mjög stressaður. Þegar hann var
að leita að heppilegum stað til þess að
stökkva og kom að gamaldags viðarbrú,
fór hann út úr bílnum og hoppaði á
brúnni, til þess að prófa hvort hún væri
nógu traust. Loks þá ók hann yfir og
hlustaði vel eftir hverjum bresti. Jafn
vandlega undirbjó hann stökkið, fram
að nýtísku hengibrú.
Það tók margar vikur að finna réttu
brúna. En víðast höfðu sjálfsmorðingjar
stokkið út af brúnni á þeim stað sem
Heller vildi stökkva og því var búið að
setja þar upp ókleif vírnet. Þannig var
það einnig hvað Olympíuturninn í
Munchen snerti, en hann kvað Heller
hafa verið alveg upplagðan. Loks rakst
hann á Kochertal-brúna. Svifdrekamenn
höfðu sagt honum að þetta væri upplagð-
ur staður.
Að tveimur mínútum liðnum er
það afstaðið
Nú taka við fallprófanir. Til þess eru
notaðir 75 kg. sandpokar, sem hanga
neðan úr fallhlífinni í stað Heller. Heller
og myndatökumenn hans höfðu farið út
á margar brýr í landinu og kastað
sandpoka út yfir handriðið. Nákvæmar
myndavélar mældu tímann á fallinu, rek
fallhlífarinnar í loftinu, opnunaraugna-
blikið og ailt annað.
Aðferð Tylers við að brjóta fallhlífina
saman var æfð í smáatriðum, til þess að
ná sem skemmstum opnunartíma. Enn
var myndavélabúnaðurinn sem nota átti
á fluginu vandlega yfirfarinn, svo og
hugsanlegur flótti frá lögreglunni. Heller
hafði kynnt sér hvort tiltæki hans kynni
að kalla yfir hann þunga refsingu, en hann
fékk engin skýr svör. Hann studdist því
við gömul sannindi: Það sem ekki er
augljóslega leyfilegt í Þýskalandi, það
hlýtur að vera bannað. En lögreglan lét
aldrei sjá sig, meðan verið var að gera
tilraunimar. Þeir sem áttu leið hjá skiptu
sér heldur ekkert af þessum mönnum,
sem þeir sáu vera að kasta einhverjum
þungum hlut yfir handriðin á brúnum.
Sunnudag nokkurn undir haust er loks
allt klappað og klárt. Heller æfir stökkið
á um það bil tveggja metra hárri brú í
„Enska garðinum" í Munchen. Hann
klifrar út yfir handriðið, festir línuna og
stekkur. Sjónvarpsmenn sem hann hefur
kallað til, mynda „stökkið." Þeir munu
mynda allan aðdraganda raunverulega
stökksins, - svo að það sjálft að vonum.
Sýna skal myndina í sjónvarpi, því
Heller telur að það „sé eftirspurn eftir
svona efni.“
Að aðalæfingunni í „Enska garðinum"
lokinni birtist læknirinn Manfred Lukas
með lítinn pakka. Hann var skurðlæknir
á sjúkrahúsi í Munchen, en þar sem það
starf tók of mikinn tíma til þess að hann
fengi sinnt eftirlætisáhugamáli sínu, -
drekaflugi, - sneri hann sér að því að
græða hár á menn.
í pakkanum er nýjasta gerð af
björgunarfallhlífum fyrir svifdreka-
menn. Læknirinn mælir með þeim.
Hann hefur þó ekki reynt þær. Hann
hefur að vísu þrívegis hrapað, en þá
notast við aðrar gerðir.
Ferðin frá „Enska garðinum" til
brúarinnar tekur fimm stundir. En þá
tekur alvaran við. Eftir vart tvær
mínútur er allt afstaðið. Failhlífin opn-
aðist eins og best var á kostið, en
einhverjar fellingar höfðu ekki lagst rétt
í brotin, því fallhlífina bar örlífið af leið
í átt að brúarstólpunum.
En Heller gat leiðrétt þetta auðveld-
lega og lenti fagurlega. Læknirinn Lúkas
fékk því neyðarfallhlíf sína ónotaða til
baka. „Sem betur fór,“ sagði Heller.
Árið 1963 stökk 17 ára gamali piltur
ofan af Mangfall brúnni við Munchen,
vegna þess að móðir hans vildi ekki lofa
honum að stökkva úr flugvél. Hann
útvegaði sér fallhlífina hjá hernum og
lét vini sína halda henni opinni og
fleygja henni á eftir sér, um leið og hann
stökk. „Þetta var ekki „base“ fallhlífar-
stökk,“ segir Heller. „Þetta var fyrst og
fremst brjálæði og þar að auki var
fallhlífin opin.“
Vönduð gjöf
fyrir börn
og unglinga
V* éSO
í rétta stólnum situr þú rétt og í réttri hæö viö borðið.
Þannig þreytist þú síður.
PE 82 er þægilegur stóll framleiddur hérlendis í tveimur
útfærslum. fyrir byrjendur (skólafólkið) og þá sem lengra
eru komnir í lífinu. PE 82 stóllinn er bólstraður. á hjólum
og með gaspumpu. Einnig fáanlegur með örmum og
veltusæti.
Og varöið er aðeins kr. 1.490.-
— ja, það ættu allir að hafa efm a að eignast slíkan stól.
Hver hefur annars efni á að eyðileggja heilsu sína vísvit-
andi með rangri setu? Sendum í póstkröfu.
HALLARMÚLA 2 - SlMI 83211
ELSE-MARIE IU0HR
I1VER ER ÉO?
i
Ástin blómstrar á
öllum aldursskeiöum
SIGGE STARK
SKÓGAR'
VÖRÐURINN
ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR,
SKEMMTISÖGURNAR FRÁ SKUGGSJÁ!
Barbara Cartland
Ástin blómstrar á öllum
aldursskeiðum
Eftir lát konu sinnar segir Malcolm Worthing-
ton skilið við starf sitt í utanríkisþjónustunni og
fer til Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að gleyma
fortíðinni og hefja nýtt líf. Þar verða tvær konur
á vegi hans og þær eru ólíkar eins og dagurinn
og nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð og óeigin-
gjörn og kennir honum að elska á ný. Marcia er
há og grönn, fögur og fönguleg, en Malcolm
metur hana einskis. En þegar Marcia er að því
komin að hverfa að fullu úr lífi hans, ske óvæntir
atburðir, sem Malcolm hafði ekki séð fyrir...
Theresa Charles
við systurnar
Althea er fögur, alvörugefin og mjög gáfuð og
stjórnar yngri systur sinni, full afbrýðisemi og
öfundar. Rósamunda er lífsglöð og skemmtileg,
aðlaðandi og kærulaus, en full af mannlegri
hlýju. Adrían er aðstoðarprestur föður þeirra og
þær eru báðar ástfangnar af honum. Hann kvæn-
ist Altheu. Cecil er frændi Adríans, glæsilegur
og sjálfsöruggur. Hann kvænist Rósamundu.
Þessar systur voru mjög ólíkar, en áttu þó svo
margt sameiginlegt í fari sínu, að mennirnir, sem
urðu á vegi þeirra hrifust af þeim báðum.
Sigge Stark
Skógarvöröurinn
Anna frá Hlíð var sautján ára og mjög þögul
og fáskiptin. Hún tjáði engum hug sinn, heldur
hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn með
hundinum sínum, sem í raun var hennar eini
félagi. En einn indælan sumardag, þegar sólin
hellti geislum sínum yfir skóginn, fjöllin og mýr-
arnar, hitti hún skógarvörðinn nýja. Þessi sumar-
dagur festist henni í minni sem einn mesti
hamingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann
bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár...
Erik Nerlöe
Hvítklædda brúðurin
Karlotta var á leið til kirkjunnar þar sem Jesper
og veizlugestirnir biðu hennar. Hún var klædd í
brúðarkjólinn hvíta, með fagran brúðarvönd í
fanginu og fyrir brúðarvagninn voru spenntir
tveir fagrir gæðingar. En hún komst aldrei alla
leið til kirkjunnar, — og enginn vissi um mennina
tvo, sem í brúðarvagninum sátu og óku á brott
með Karlottu, tvo illskeytta menn, sem til alls
voru vísir. Og þar með fékk Benedikta Liljen-
krona möguleika til að vinna ástir Jespers á ný...
Francis Durbridge
Með kveöju frá Gregory
Fáir útvarpsþættir hafa vakið jafnmikla
spennu meðal íslenzkra útvarpshlustenda sem
Gregory-þættirnir sællar minningar. Með kveðju
frá Gregory er sagan sem þessir æsilegu þættir
voru byggðir á, — og sagan er ekki síður
spennandi. Hver var hann þessi leyndardómsfulli
glæpamaður, sem skildi eftir orðsendinguna
„Með kveðju frá Gregory,“ ritaða með rauðu
bleki, sem minnti óhugnanlega á blóð, og festi
á fórnariömb sín? — Það kostar vökunótt að
byrja lestur þessarar bókar.
Else-Marie Nohr
Hver er ég?
Eva Birk er að undirbúa brúðkaup siti og
Henriks Borg, þegar hún fær þær óvæntu upp-
lýsingar, að af vígslunni geti ekki orðið, þar sem
hún sé þegar gift öðrum manni. Eva verður að
sjálfsögðu skelfingu lostin. Hún hafði orðið fyrir
bifreiðarslysi og þjáðst af minnisleysi um tíma,
en þegar hún tekur að kanna málið, kemst hún
að því að hún er þegar gift, og það manni sem
henni er ákaflega ógeðfelldur, — og að með
þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur...