Tíminn - 19.12.1982, Blaðsíða 34
34
nútíminn
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
Hefur Sjón-
varpið ekki
efniá að
vera til?
■ - Þessi úrslitakeppni Músiktil-
rauna var tekin upp á myndband auk
þess sem við gerðum fullkomna
hljóðupptöku sem hugmyndin er að
nota til að gcfa út plötu með því
besta sem þarna kom fram, sagði
Jóhann G. Jóhannsson hjá SATT í
samtali við Nútímann, er hann var
inntur eftir þessum málum.
Jóhann sagði að Grettisgat hefði
séð um hljóðupptökuna og ísmynd
um myndatökuna og hefði Sjónvarp-
inu vcrið boðið að sýna þcnnan þátt.
Þá hefði Sjónvarpinu einnig verið
boðið að sýna sérstaklega þátt Egó á
þessu kvöldi, en Jóhann sagðist
sjaldan eða aldrei hafa séð íslenska
hljómsveit í jafn miklu stuði og Egó
þetta kvöld. Upptakan hefði heppn-
ast frábærlega og því væri það miður
að undirtektir Sjónvarpsins hefur
verið fremur dræmar og forráða-
menn þar borið því við að litlar
líkur væru á að Sjónvarpið gæti sýnt
þessa þætti.
- Þetta cr alveg óskiljanleg afstaða
sérstaklega í Ijósi þcss að Sjónvarp-
inu voru boðnar upptökur á algjöru
kostnaðarverði, sagði Jóhann G.
Jóhannsson.
Nútíminn verður að taka undir
þessi ummæli Jóhanns. Það er alkunn
staðreynd að efni af þessum toga
hefur verið grátlcga lítið í Sjónvarp-
inu og miðað við að Sjónvarp
hérlendis stenst alveg samanburð við
Sjónvarp á hinum Norðurlöndunum
varðandi afþreyingar- og mcnningar-
efni, þá er það alveg öskiljanlegt hve
vegur íslenskrar popptónlistar hcfur
verið lítill í Sjónvarpinu. -ESE
Fræbbblarnir með „country-plötn”:
„Þetta varð til fyr-
ir hreina tilviljiuin
— segir Valli í Fræbbblunum um lagið „Oh Sally”
í
Á i
■ - Það má segja að þetta hafi orðið
til fyrir hrcina tUviljun. Við vorum að
gantast í æfingahúsnæði Bodies, er
Mikki Pollock byrjaði að spila „country-
steÞ' á gítarinn. Hinir hljóðfæraleikar-
arnir tóku undir og ég fór síðan að gaula
eitthvað með. Þarna fæddist sem sagt
lagið „Oh Sally“ og platan í framhaldi
af því, sagði Valgarður Guðjónsson,
söngvari Fræbbblanna í samtali við
Tímann, er hann var spurður að því
hvernig hin nýja plata Fræbbblanna,
„Warkweld in the west“ varð til.
Warkweld in the west“, eða „Vor-
kvöld í vestrinu" hefur vakið mikla
athygli, enda er það ekki á hverjum degi
að fyrsta pönk-hljómsveit landsins sendi
frá sér plötu með bandarískum sveita-
söng.
Að sögn Valla þá voru Fræbbblarnir
bara þrír talsins er þessi ósköp skeðu og
sú ákvörðun var tekin að þessi lög sem
hljómsveitin átti á lager, skyldu gefin út
áður en nýjum mönnum yrði bætt í
hljómsveitina. Auk „Oh Sally“, eru á
plötunni, lögin „Where were you“,
„Boys“, og „Jerusalem Lights", en það
síðasttalda er fyrsta „instrumenta!“ lag
Fræbbblanna fyr'r og síðar og í þessu lagi
má meira að segja heyra smá djass-kafla,
þannig að Fræbbblunum er ekki alls
varnað á tónlistarsviðinu.
Fræbbblarnir eru nú með stóra plötu
í bígerð sem væntanlega mun koma út
fljótlega á næsta ári. Sagði Valli að
hugmyndin væri sú að taka plötuna
jafnvel upp á tveggja rása tæki, en
þannig yrði hægt að stórlækka plötuverð-
ið. Nýja platan „Warkweld in the west“
sem tekin var upp í Hljóðrita kostar 175
krónur út úr búð, en Valli sagði líklegt
að hægt yrði að ná þessu verði niður í
150 krónur með þessum hætti.
Þess má geta að tveir nýir gítarleikarar
æfa nú með Fræbbblunum, þeir Sigurður
Dagsson og Snorri gítarleikari Meinvill-
inganna og eins getur verið að hljóm-
borðleikari bætist í hópinn innan
skamms. Fræbbblarnir hyggjast brydda
upp á ýmsum nýjungum í tónlist sinni,
og meðal þess sem komið hefur til greina
■ Valgarður „kúreki" Guðjónsson
bregður marghleypunni á loft í hita og
þunga dagsins og Roy „rolla“ Rogers og
Trigger mega því fara að vara sig.
er að fara inn á soul-línu svipaða þeirri
sem The Jam og Elvis Costello hafa
brugðið fyrir sig. -ESE
Músiktilraunir SATT:
DRON SieURVEGARAR
MÚSIKTILRAUNA ’82
■ Það var DRON, Danshljómsveit
Reykjavíkur og nágrennis sem bar sigur
úr býtum í úrslitakeppni Músiktilrauna
SATT í Tónabæ. Hafði Dron sigur eftir
mikinn slag, en jafnar í öðru til þriðja
sæti voru Fflharmoníuhljómsveitin og
hin unga og bráðefnilega hljómsveit
Englabossar.
Alls komu tíu hljómslveitir fram í
þessari úrslitakeppni, en fyrirkomulagið
var þannig að áhorfendur réðu yfir
helmingi atkvæða, en sérstakurdómstóll
sem m.a. var skipaður Bubba Morthens,.
Steinari Berg, hljómplötuútgefanda,
Pétri Kristjánssyni, tónlistarmanni, Ein-
ari „Purrki“ Benediktssyni og Sigurði
„bárujárnsrokkara" Sverrissyni, blaða-
manni, réði yfir hinum helmingnum.
Þegar atkvæði höfðu verið talin kom í
ljós að áhorfendur höfðu Fílharmoníu-
sveitina í fyrsta sæti, en dómstóllinn dró
taum Dron. Þegar endanleg röð hafði
verið reiknuð út kom í Ijós að Dron voru
efstir, Fílharmoníusveitin og Englaboss-
ar í öðru til þriðja sæti, Pass í fjórða,
þungarokkssveitin Centour í fimmta,
Strados frá Stykkishólmi í sjötta, Mein-
villingamir í sjöunda, Reflex í áttuna,
E.K. Bjarnason Band í níunda og
kvennasweitin Sokkabandið frá ísafirði í
tíunda sæti.
Þrjár efstu sveitirnar fá 20 stúdíótíma
í verðlaun frá SATT, en mörgum segir
hugur um að sveitir eins og Pass og
Centour fái einnig fljótlega tækifæri hjá
einhverri hljómplötuútgáfunni.
-ESE
Yonbrigði og
Didda í Djúpinu
■ Hljómsveitin Vonbrigði mun koma
fram í Djúpinu í kvöld, laugardags-
kvöld með þeim kemur Didda en hún
hefur samið nokkur laga þeirra. Auk
þess mun Þór Eldon og félagar fremja
tónlist undir nafninu „Heilög kvöld-
káltíð“. Fjörið hefst kl. 9, aðgangur
ókeypis.
Fram að jólum er ætlunin að UPP
OG OFAN félagsskapurinn, sem
stendur fyrir ofangreindu, verði mcð
uppákomur hvert kvöld í Djúpinu.
FALL vestur
um haf
■ Brcska hljómsveitin Thc FALL
sem nýlega sendi frg sér breiðskífuna
„Room to Vicw“ hefur nýlega verið á
hljómleikaferðalagi um Bretland en
það cr nokkurs konar upphitun fyrir
fcrð þeirra Mark Smith og félaga
vestur um haf og munu þeir halda í
mikið feröalag bráðlega um Bandarík-
in, Kanada og Mexikó.
Scabies í
Damned reiður
■ Rat Seabies t hljómsveitinni
Damned er fokillur þessa dagana, mitt
í jólatónleikahaldi sveitarinnar. Bein-
ist reiðin að Chiswick firmanu sem
hefur að undanförnu gefið út gamalt
efni með Thc Damned....Við erum
orðnir þrcyttir á Chiswick fyrir að gefa
út gamalt efni með okkur í hverri
viku“ sagði kappinn og lýsti hann cfni
sem lélegum demóum og illagerðum
B-hiiðum...Ég meina þaö, þeir hafa
jafnvel gefið út „I’m so bored" og það
var bara ég og kafteinninn að leika
okkur", sagði kappinn.
Blitz aftur
á fæturna
■ Blitzeraðkomaundirsigfótunum
aftur en þeir gáfu út í ár sölu hæsta
pönk-albúmið „Voice of a generation"
og fengu á sig töluvert harða gagnrýni
fyrir „súperstjörnu" hegðun. Hinsvcg-
ar hafa hcimildir úr vinahóp bandsins
nú sagt að þeir séu komnir af þeim
bömmer og æfi nú fimm daga vikunnar
til að koma sér í form. Lítil plata er
væntanleg í jan. og önnur breiðskífa
með vorinu.
Yinningshafar í
SATT-getrauninni
■ Dregið hefur verið í fyrsta hluta
SATT getraunarinnar. Upp komu
nöfn eftirtalinna vinningshafa.
Sigríður Brynjarsdóttir, Melbraut
19, Garði (Kawai-kassagítar). Hanna
B. Þórisdóttir, Fornós 12, Sauðárkrók-
ur (plötuvinningur). Heiðar B. Heið-
arsson. Holtsgötu 37, Reykjavík,
(plötuvinningur). Sigurður H. Sigurðs-
son, Garðaveg, Hvammstanga (plötu-
vinningur).
Schenker í fýlu
■ Michael Schenker, sá eini og
sanni, fór heldur betur í fýlu um
daginn er Sounds tímaritið birti frétt
um „drauga-gítarleikara“ hans, þ.e.
Stcve Casey sem cr rótari MSG. Átti
sá að hafa séð um gítarleikinn en
Schenker að látast á sviðinu á meðan.
Þetta reyndist algerlega út í hött,
Schenker sér sjálfur um sinn gítarleik
en vegna málsins var hljómleikaför
kappans um Bretland sett í hættu
vegna þess að hann vildi aflýsa henni
vegna fréttarinnar.
• Hið rétta er að Casey þcssi grípur
að vísu í gítar baksviðs en það er
aðeins sem uppfylling við gítarriff
Schenker sjálfs.