Tíminn - 19.12.1982, Blaðsíða 27
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
27
5' 'ISll'
Dísa litla
DÍSA LITLA er pýjasta kók'11 ■ safninu:
Skemmtilegu smábarnabækurnar.
Aðrar bækur eru:
Bangsi litli, Benni og Bára, Kata, Láki, Stubbur, Stúfur,
Svarta kisa, Tralli o.fl.
Munið ennfremur:
Kata litla og brúðuvagninn -
Selurinn Snorri.
Þetta eru sígildar jólabækur litlu barnanna
Tvö ævintýri Andersens
með myndum Löfgrens
■ IÐUNN hcfur gefið út tvö ævintýri eftir
H.C. ANDERSEN með myndum eftir
sænska teiknarann Uif Löfgren. Þetta eru
LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS og
PÁPI VEIT HVAÐ HANN SYNGUR.
Ævintýrin eru hér birt í þýðingu Steingríms
Thorsteinssonar og eru þetta fimmta og
sjötta bókin í þessum flokki, ævintýrum
Andersens með myndum Löfgrens. Áður
eru komin: Eldfærin, Nýju fötin keisarans,
Svínahirðirinn og Hans Klaufi. Bækurnar
i eru settar í Prisma, en prentaðar í Bretlandi.
Ðókaútgáfan
Björk
====©===
Dísa litla
Bjöm G. Bjömsson
frá Hvammstanga.
Glæður
■ Árið 1982 eru liðin 100 ár frá fæðingu
Bjöms Guðmundar Bjömssonar, sem ýmist
var kenndur við Torfustaðahús í V-Húna-
vatnssýslu eða Hvammstanga.
Pótt Bjöm G. Björnsson væri alla tíð
ljóðelskur, hóf hann ekki yrkingar fyrr en á
miðjum aldri. Ljóðin í Glæðum koma hér
langflest:. á prent í fyrsta sinn.
í Glæðum eru 77 ljóð og stökur.
Ljóðasafnið er prentað og gefið út hjá
bókaforlagi Odds Bjömssonar, Akureyri.
FYNN
kæri herra
GUÐ
Sdkttíngsr íífíir
ims
Kæri herra Guð,
þetta er hún Anna
■ Bókaforlag ísafoldar hefur sent frá sér
bókina „Kæri herra Guð, þetta er hún Anna“
cftir Fynn í þýðingu Sverris Páls Erlendsson-
ar. Kæri herra Guð, þetta er hún Anna er
ekki skáldsaga og heldur ekki fræðirit. Samt
hafa kunnir bókmenntafræðingar og vísinda-
menn vfða um heiminn skrifað um hana
langa lofsamlega dóma. Bókin hefur verið
þýdd á fjölmargar tungur og hvarvetna verið
í röðum metsölubóka.
Höfundur sögunnar kallar sig Fynn. Það
er dulnefni, hið rétta nafn hans vita fáir aðrir
en nánustu vinir og hann mun ekki hafa
skrifað aðra bók svo vitað sé. Söguna um
Önnu ritaði Fynn á árunum 1973-74. Þetta
er sönn saga eins langt og sannleikur nær í
endurminningu. Hann hefur söguna þegar
hann er 19 ára. Á nóvemberkvöld árið 1935
er hann á næturrölti um skuggaleg hafnar-
hverfi Lundúna og hittir þar stúlkubarnið
Önnu. Hann segir frá merkilegum kynnum
þeirra og óvenjulegum stundum í lífi þeirra
meðan beggja nýtur við. Þetta eru því
endurminningar Fynns og ævisaga Önnu.
Bókin er 207 bls. að stærð, prýdd
teikningum eftir PAPAS, prentuð og bundin
í ísafoldarprentsmiðju h.f.
cööurland vort
hálft er hafiö
Út er komið annað bindi hins mikla
ritverks Lúðvíks Kristjánssonar um íslenska
sjávarhætti, en fyrsta bindi þess kom út
1980 og hlaut mikla athygli og viðurkenn-
ingu. Meginkaflar þessa bindis eru:
Verstöðvatal, íslenski árabáturinn, Vertíðir,
Verleiðir og verferðir, Verbúðir og Mata og
s mötulag.
í bátakaflanum eru 363 myndir, smíða-
teikningar og yfirlitsteikningar báta,
skýringamyndir og Ijósmyndir. Ókunnugt er,
að fyrr eða annars staðar hafi því efni verið
gerð viðlíka skil. Alls eru í bókinni 482
myndir, þar af milli 50 og 60 litmyndir.
Bökaúfgáfa
/MENNING4RSJÖÐS
Skálholtsstíg 7 - Reykjavík