Tíminn - 19.12.1982, Síða 32
32
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
nútíminn
Umsjón: Fridrik Indriðason og Eirlkur S. Eiríksson
Stuðmenn/Grýlurn-
ar(Gærurnar) -Með allt á
hreinu/Bjarmaland sf.
■ Ég verð að segja að það var með
mikilli eftirvæntingu að ég beið eftir
þessari plötu. Ég hafði séð Stuðmenn í
banastuði á þjóðhátíðardaginn í Osló og
flutningur þeirra þar var í einu orði sagt
frábær, auk þess sem lögin sem þeir
fluttu gáfu góð fyrirheit. Ég varð því
fyrir nokkrum vonbrigðum fyrst eftir að
ég heyrði plötuna, því að hún er nokkuð
seintekin, en það var atriði sem lagðist
með frekari hlustun.
„Með allt á hreinu“ inniheldur lög úr
samnefndri kvikmynd sem nú er byrjað
að sýna. Þó ekki sé þetta kvikmynda-
hornið er rétt að geta þess að myndin
(og platan) fjalla um „íslenska draum-
inn“, sem er frábrugðinn þeim ameríska
að því leyti að auk hundaheppni og
glópaláns, þá felur sá íslenski í sér mikla
eftirvinnu, en það atriði hefur þó oftast
hingað til valdið martröð. Myndin/plat-
an lýsa hljómsveitunum Stuðmönnum
og Gærunum togstreitunni þeirra í milli
og hvernig þessar hljómsveitir reyna að
„meika það“ hérlendis sem erlendis.
Á plötunni er allt fullt af frábærum
lögum, sem ég get varla beðið með að
sjá í myndrænu samhengi. Einu lagi man
ég sérstaklega eftir frá Osló,„Franskar
(sósu og salat?)“ og þó það komi ekki
eins vel út á plötunni þá er þar á ferðinni
slagari sem á eftir að gera það gott.
Lagið „Maó Gling“ er með japönsku
ívafi og um tíma hélt ég að japanska
hljómsveitin Sadistic Mika Band hefði
þvælst inn á þessa plötu. Sem sagt á
plötunni eru 14 lög, hvert öðru betra og
ef þið gefið þessari plötu tækifæri til að
snúast nokkrum sinnum þá verðið þið
„Með allt á hreinu".
ESE
ÞEYR/The Fourth Reich/
Mjöt (Gramm)
■ Það kemst engin íslensk rokk/
nýbylgju hljómsveit með tærnar þar sem
ÞEYR hefur hælana og sannast það best
með nýjustu skífu Þeysara The Fourth
Reich, fjögurra laga 12 tommu plata
tileinkuð sálkönnuðinum Wilhelm Reich
og baráttunni gegn fasisma.
Hreint og beint frábær plata af hendi
þeirraiélaga, tekin upp í Kaupmanna-
höfn, en eitt lag hennar Blood sem
undirritaður telur jafnframt besta lagið
af fjórum góðum, er þegar komið á
safnplötu í Bretlandi en á þeirri plötu er
ÞEYR í ágætum félagsskap hljómsveita
á borð við Hanoi rocks, Half Japanese
og Blurt.
Miðað við plötuna Mjötviður Mær
sem ÞEYR gáfu út næst á undan þessari
hafa þeir félagar náð enn einum áfangan-
um að fullkomnun „Þeyrhljómsins“ ef
eitthvað er, er tónlistin á The Fourth
Reich kraftmeiri á heildina litið auk þess
sem mikið af hljóðeffectum er sett á
rödd Magnúsar þannig að hún hljómar
eins og eitt hljóðfærið.
ÞEYR er eina íslenska hljómsveitin
sem einhverja möguleika á erlendis á
þessum vettvangi, þ.e. nýbylgunni, en
platan er gefin út á Bretlandseyjum
samhliða útgáfunni hér. Möguleikarnir
eru ekki hvað síst fyrir hendi vegna
Killing Joke húllumhæsins hér fyrr á
árinu en þótt það hefði ekki komið til
væru þeir samt sterkir á þessu sviði
vegna tónlistarinnar.
í stuttu máli sagt er The Fourth Reich
ein af plötum ársins hérlendis, og þótt
víðar væri leitað.
-FRI
Grace Jones - Living my
life
/Fálkinn
■ Grace blessunin Jones ætti að vera
kvenmaður sem ekki þyrfti að kynna, en
mér leikur grunur á að enn hafi ekki
allir komist í kynni við þetta afbragðs-
kvendi.
Grace Jones hefur undanfarin ár sent
hverja afbragðsplötuna frá sér af fætur
annari, en ég held að ég megi fullyrða
að með nýju plötunni „Living my life“
hafi hún slegið öll met. Tónlist Grace er
reggae með skemmtilegu funk-yfir-
bragði. Sem fyrr eru það hinir frábæru
Sly Dunbar, Robbie Shakespeare og
„Mao“, sem m.a. hafa leikið með Peter
Tosh og reggae-bandinu Black Uhuru.
Allt eru þetta kappar sem kunna sitt fag
og þegar þeir fá Grace sem verkstjóra
þá er útkoman frábær. Lög eins og „The
Apple Stretching“, sem tileinkað er
New York gleymast aldrei. Hefði ég
fengið þessa plötu einni viku fyrr þá væri
hún á listanum yfir tíu bestur plötur
ársins, sem ég afhenti Gsal á DV við
hátíðlega athöfn fyrir skömmu. Meira
að segja ofarlega á þeim lista.
-ESE
Fræbblarnir/Warkweld in
the west/Fálkinn
■ „Þetta er djöfulli góður brandari hjá
þeim“ sagði einn kunningi minn um
nýjasta „flippið" hjá Fræbbblunum kán-
trýlagið Oh Sally á plötu þeirra War-
kweld in the west en að öllu gamni
slepptu þá hafa Fræbbblarnir aldrei
verið í betra formi en einmitt á þessari
plötu og ég skemmti mér konunglega við
að hlusta á Valla kyrja um heimþránna
og Memphis Tennessy í ofangreindu
Sally-lagi.
Fyrir utan kántrýlagið eru síðan tvö
keyrslulög í gamla Ramónes/Fræbbbla
stílnum og ef þau keyra ekki merginn úr
eyrum þínum beint á haugana gerir
ekkert það. Fjórða lagið er síðan það
sem kemur jafnvel enn meir á óvart en
kerlingin Sally og það er instrumental
lagið Jerusalem lights, léttjazzaður blúes
sem kemur manni í svona álíka opna
skjöldu og ef maður hefði heyrt að
Sjálfsfróun hefði troðið upp í prófkjörs-
partýinu hjá Geir Hallgrímssyni.
Ýmsir aðilar hafa staðið að gerð
þessarar plötu fyrir utan félagana í
Fræbblunum. Má þar helstan nefna
Mike Pollock en það mun einkum hafa
verið hans tilstuðlan sem olli því að Oh
Sally var þrykkt á plast.
Fræbbblarnir hafa nú verið til í ein
fjögur ár og eins og þeir segja á
vorkvöldum í vestrinu „are still going
strong“ því að mínum dómi er þetta eitt
þeirra besta verk.
sp9Síe*J
MONSTER CABLE, sérsmíöuöu hátalaravírarnir,
eru viöurkenndir af gagnrýnendum um allan heim
sem bestu hátalaravírar sem vol er á.
Fáðu „soundið“ sem þú borgaðir fyriri
p ' s
LAÍT
JlPPljítÉ
LAST er eini vökvlnn sem sérfræðingarnir mæla með á
hljómplötuna!
LAST kemur algjörlega í veg fyrir slit!
LAST minnkar afspilunarbjögun (á nýrri plötu) um ailt að 80%!
LAST eykur endingu nálarinnar.
LAST dregur úr rykmyndun.
LAST er sett aðeins einu sinni á plötuna.
LAST myndar ekki húð, heldur gengur í beint efnasamband
við vínilinn.
LAST gerir plötuna betri en nýja!
Magnús Firíksson - Smá-
myndir / Fálkinn
■ Það þarf engum blöðum um það að
fletta að Magnús Eiríksson er okkar
langfremsti dægurlagasmiður í dag. Um
það vitna lög eins og „Ég er á leiðinni“,
„Draumaprinsinn", „Gamli Skólinn“ og
ótal fleiri sem ekki verða nefnd hér.
Reyndar má segja að fram að þessu hafi
Magnús Eiríksson verið nokkurs konar
Bruce Springsteen íslands að því leyti
að hann hefur löngum samið sín bestu
lög fyrir aðra. En nú hefur Magnúsi
greinilega þótt mál að linnti og „Smá-
myndir" hans fyrsta sólóplata á örugg-
lega eftir að verða upphafið að nýjum
og glæsilegum kafla á ferli tónsmiðsins
Magnúsar Eiríkssonar.
Hér að framan eru nefnd nokkur af
þekktustu lögum Magnúsar, en það
kæmi mér ekki á óvart að á „Smámynd-
um“ fælust nokur lög sem ættu að geta
gert það álíka gott. „Þorparinn", sem
Pálmi Gunnarsson syngur, „Hvað um
mig og þig“ sem Ragnhildur Gísladóttir
syngur og „Reykjavíkurblús" sem
Magnús raular sjálfur, eru allt lög af
besta kalíber og sem fyrr hefur Magnús
Plötur
margt athyglisvert fram að færa í textum
sínum. Það er eiginlega óþarfi að segja
meira um þessa plötu. „Smámyndir“ er
plata sem greinilega hefur verið nostrað
við af álíka natni og myndlistarmenn
nostra við sínar allra smæstu og oft um
leið sínar stærstu myndir. Það er rétt að
geta þess að ég ætla ekki Magnúsi
Eiríkssyni það illt að hafa samið suðið
sem alls staðar var í bakgrunni á þessari
plötu. Þar hlýtur pressunni að vera um
að kenna og vonandi finnast ekki aðrar
slíkar suðplötur í þeim „smámynda-
pakka“ sem dreift hefur verið.
-ESE
Rod Stewart/Absolutley
Live/Steinar
■ Þetta tvöfalda „live“ albúm Rod
Stewarts er einn eigulegasti gripurinn á
plötumarkaðinum í dag, rúmur klukku-
tími af velpeppuðu fjöri og algerlega
ómissandi fyrir aðdáendur kappans.
Fyrir utan gamla trausta slagara eins
og The Stripper, Passion, Young Turks
og Da Ya Think Tm Sexy eru tvö ný lög
á þessu tvöfalda albúmi þ.e Guess I’ll
Always Love You og The Great Pret-
ender en það síðamefnda þykir undirrit-
uðum besta lag albúmsins.
Þó nokkur munur er á að heyra þessi
lög „live“ með kappanum og að heyra
þau á fyrri plötum hans, einkum virka
þau frískari og tilfinningaríkari enda er
Rod öðru fremur það sem kallað er
„performer" á hinu sígilda poppmáli
enskunni þ.e. hefur mjög lifandi sviðs-
framkomu, góður í að fá áheyrendur
með sér og fá þá jafnframt til að peppa
sig upp.
Valinn maður skipar hvert sæti í
hljómsveit Rods, þeir Jim Cregan og
Robin Le Mesurier á gítara, Jay Davis
á bassa og Tony Brock á trommur svo
einhverjir séu nefndir auk þess má geta
Jimmy Zavala á saxófón og hljómborð
en hann er einnig þekktur fyrir að fara
úr buxunum á almannafæri eins og getið
er um á albúminu.
-FRI
Þú og ég - Aðeins eitt líf
/Steinar
■ Hvurnig stendur á því þegar diskó-
bylgjan er svo til dauð að menn eins og
Gunnar Þórðarson leyfa sér að senda frá
sér annað eins „trums" og er að finna á
nýjustu plötunni með Þú og ég? „Aðeins
eitt líf“ heitir platan og þrátt fyrir góðan
vilja hef ég engan fundið sem segja vill
góð orð um þessa plötu. Jafnvel eigin-
konan sem hefur gjörólíkan tónlistar-
smekk, fussar og sveiar.
Ég hélt reyndar að hinn ágæti dúett
Þú og ég væri löngu hættur en ég fékk
fregnir af þessari plötu. Síðan kom
platan og aðra eins lágkúru hvaö efni
varðar hef ég sjaldan heyrt. Jóhann
Helgason og Helga Möller, einir af
okkar ágætustu dægurlagasöngvurum
megna ekki einu sinni að gæða þessa
plötu lífi. Ef ekki nyti við laganna
„Don’t try to fool me“ (gamla Jóhanns
G.-lagið) og „Don’t go to strangers"
(gamla Gunna Þórðar-lagið) þá hefði ég
hent plötunni í öskutunnuna og er ég þó
ekki þekktur fyrir að fara illa með
plötur, hvorki á þessari síðu né heima
hjá mér. Rétt er að nefna það að eitt
lagið heitir „í kvöld“, en þar er á
lummulegan hátt verið að endurtaka „í
útilegu” af síðustu Þú og ég-plötu.
Fyrsta Þú og ég - platan fékk fimm
stjörnur þegar ég fjallaði um hana á
þessum vettvangi fyrir nokkrum árum,
en þegar þessi nýja plata er annars vegar
þá er ég fegin að stjörnugjöfin hefur
verið lögð niður.
-ESE
Phil Collins - Hello, I
must be going / Steinar
■ Phil Collins fyrrum trommari Genes-
is er sá tóniistarmaður sem kom mér hvað
mest á óvart á síðasta ári. Platan „Face
Value“ þótti mér meiri háttar afrek og
það var þvt' með tilhlökkun að ég beið
nýju plötunnar „Hello, I must be
going“. Og Phil Collins brást ekki
mínum björtustu vonum. Þessi frábæri
trommari og afbragðs góði söngvari
hefur sent frá sér enn eitt trompið. En
Collins er ekki bara trommari og
söngvari hann leikur einnig á hljómborð
og sér um öll ásláttarhljóðfæri. Þeir sem
unna fáguðu rokki ættu ekki að verða
sviknir af þessari plötu.
-FRI
-ESE