Tíminn - 19.12.1982, Side 39
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982
S'iill'U
39
Hér ógnar hann systkinunum með kústi í reiðikasti.
Sjaldan er svo inniiegt á milli JoeJoe og móðir hans Efigeniu.
hann 32 daga í skólann, en skóladagar
voru 182. Hann fullyrðir að hann geti
alls ekki fylgst með kennslunni.
Frásögn Steve
15.maí hafði JoeJoe mætt dag hvern
í skólann um skeið. Hljóðið gott í
skólastjoranum og kennarinn einnig
jákvæður. En þennan dag hringdi JoeJoe
í mig frá unglingafangelsinu í Spofford
í Suður Bronx. JoeJoe og annar til höfðu
verið teknir fastir fyrir þjófnað í
vöruhúsinu Alexanders. JoeJoe sver og
sárt við leggur að hann hafi aðeins klætt
sig í peysuna, til þess að máta hana.
4.6.1982
Unglingadómstóllinn í Bronx. Af tillits
semi við unglingana eru réttarhöldin
ekki opin. Efigenia móðir hans situr ein
og yfirgefin frammi á gangi. Málin eru
afgreidd á færibandi. Dómararnir hafa
ekki undan. Fátækralögmaðurinn er
strangur á svip, en ekki gjörsneyddur
kímnigáfu. Hann sér um þeir ákærðu nái
þeim rétti sem þeim ber, - honum kemur
ekkert á óvart lengur. Við komumst að
því að Joe Joe hefur verið hér 20
sinnum áður. Tíu sinnum hefur hann
verið sendur heim eða verið dæmdur til
að vera undir eftirliti. Afbrotin hafa
oftast verið léttvæg, krot á veggi í
neðanjarðarlestinni eða þá smáþjófnað-
ur. Einu sinni vegna „meiðsla á dyra-
verði, er hann sýndi honum mót-
spyrnu.“ Lögfræðingurinn segir: Hann
er enginn afbrotaunglingur. Hann er
ekki heimskur. En djúpt í eðli hans er
alltaf þessi hvöt: „Gríptu, meðan þú
getur.“ Hvað væri hægt að gera fyrir
hann? Helst væri að koma honum á
hæfilega stranga stofnun þar sem hann
lærði að ná árangri með langtímafyrir-
höfn, fremur en miða alltaf á skyndiár-
angur.“ En er slík stofnun þá til?
„No, Sir.“
JoeJoe er fölur eftir fangavist-
ina.Hann stendur fyrir framan skrifborð
fröken Robinson, móðurlegrar svertingja
konu. Hún segir: „Þú hefur komið þér
í dálaglegt klandur. Ætlar þú að halda
áfram að gera af þér skammarstrik?"
„Nei, það ætla ég ekki að gera."
„í hvert sinn sem þér dettur það í hug,
þá skaltu hugsa um Spofford og hvað
þér leiddist þar. Finnst þér það þá
tilvinnandi?"
„Nei."
Láttu þetta þá ekki henda þig aftur,
- og nú vil ég ekki sjá þig hér framar.“
Úti á götunni er tekið á móti
frelsingjanunt eins og base-ball
hetju.Síðar er hann lagstur upp í rúm
og hjólar með fótunum. Hann segir að
sá sem var í herberginu við hliðina á
hans herbergi í Spofford hafi hengt sig
í beltinu sínu. Þeir skáru hann niður.
Andlitið á honum var svart og þrútið,
segir JoeJoe.
29.6 1982
Það er komið sumarfrí. Án aðstoðar
af okkar hálfu fær JoeJoe að setjast í
Junior High School. Hann er orðinn of
gamall fyrir barnaskólann. í nýja skóla-
num er hann þó minnstur allra vexti.
Hann mun bæta sér það upp á sirn hátt.
Við minnumst orða eftirlitsmanna ung-
lingadómstólsins: „í níu tilfellum af tíu
sigrar umhverfið."
Frásögn Steve
JoeJoe er það sent sjaldgæft er að
börn séu: kaldhæðinn. Hann hleypti mér
aldrei of nálægt sér. Það læra börnin á
götunni: Sýnið engan veikleika Treystið
engum! Þetta er voðalegt lögmál. Þetta
er lögmál sem nógu erfitt er fyrir
fullorðna að bera, - að sýna aldrei
neinum minnstu tilfinningalegar hrær-
ingar. Það er bannað að vera barn.
Einu sinni sagði ég viðJoeJoe: Þú
getur ekki spilað með mig, því ég hef
ekki minnsta áhuga á neinu sem þú gerir
og er alveg sama um þig. Svo hlálegt
sem það var, þá varpaði hann öndinni
af feginleik, þegar hann sá að ég var
honum yfirsterkari. Ekki veit ég hvað úr
honum verður. En eitt veit ég: Ef
heimurinn aetti að farast, þá mundi ég
fara til barnanna í Bronx. Þau mundu
vita hvernig ætti að lifa af!
26.10 1982
Raunar er JoeJoe hættur að fara upp
á Times Square. Hann hefur fengið sér
nýja vinnu og betri, sem hann fær fyrir
300 dollara á viku.
Þetta hefur breytt valdahlutföllunum
á heimilinu og stjúpfaðirinn hefur orðið
að setja ofan. JoeJoe er nú orðinn
hæstráðandi innan veggja í íbúðinni.
Nokkuð eraugljóst í hverju nýja vinnan
er fólgin: Kaupahéðinn nokkur telur
litla samanbrotna bréfböggla niður í
vasa hans sem hann ber á milli ýmissa
karla og kvenna, sem þurfa á innihaldi
þeirra að halda.
Þýtt úr Stern-AM
OLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN
ddddct hf.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
MYNDABÓK
PAULS GAIMARDS
r\i i
í.i/i/i/f/j
sjOVAC^
IXLA 'ndE
*
Myndir úr Islandsferðum franska vís-
indamannsins Pauls Gaimards 1835
og 1836.
Heillandi og fróðlegar teikningar sem
gefa glögga mynd af lífsháttum Is-
lendinga á þessum tímum, klæðnaði
þeirra híbylum og bæjarbrag á ís-
lenskum heimilum.
Dr. Haraldur Sigurðsson ritar fróð-
legan inngang.
Þessi fagra bók er kjörgripur og heim-
ilispryði — og auk þess tilvalin gjöf
handa hollvinum erlendis.
Við eigum fleiri góða gripi í bókum og --
viljum benda mönnum á að enn er til
nokkuð af
KORTASÖGU ÍSLANDS I—II
eftir dr. Harald Sigurðsson.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7
Sími 13652