Tíminn - 23.12.1944, Síða 21

Tíminn - 23.12.1944, Síða 21
TÍMINN 21 Börnin heyrðu rödd móður sinnar og hún gat ekki stillt sig um það að ganga inn til þeirra eitt augnablik, brosa fram- an í þau og gæla við litla-snáða, sem var tæpra þriggja mánaða. Hún grúfði andlitið niður í mjúkt og svart hár barnsins. f þeim stellingum benti hún Yunú að koma með sér. „Ég ætla að koma barninu í rúmið,“ anzaði Yunú. „Og nú er það senn búið.“ Hún fylgdist með Yunú inn í svefnher- bergi hjónanna, við hlið barnaherbergis- ins, og hélt á drengnum meðan Yunú breiddi svefnvoðirnar á gólfið. Síðan lagði hún barnið niður á milli þeirra. Hanna gekk á undan Yunú fram í eld- húsið, með hröðum skrefum og mjúkum hreyfingum. Þjónarnir tveir voru ótta- slegnir af því, sem húsbóndi þeirra hafði sagt þeim. Garðyrkjukarlinn, sem einnig var innanhússþjónn, strauk gisið yfirvar- arskegg sitt. „Herrann ætti ekki að lækna sár hvíta mannsins," sagði hann við Hönnu, óhik- andi. „Hvíti maðurinn ætti fyrir því að deyja. Fyrst verður hann fyrir skoti, síðan lendir hann í sjóinn þar á klöppunum. Ef herrann fer að lækna skotsárið og skein- urnar eftir sjóvolkið, mun okkur hefnast fyrir það.“ „Ég skal segja honum álit þitt,“ svaraði Hanna kurteislega. En sjálf -var hún ekki síður óttaslegin, enda þótt hún væri ekki eins hjátrúarfull og gamli maðurinn var. Gæti það nokkurntíma stýrt góðri lukku að hjálpa óvini sínum? Þrátt fyrir þetta skipaði hún Yunú að ná í heita vatnið og fara með það inn í herbergið, þar sem hvíti maðurinn lá. Hún tók sig til og renndi vængjahurðinni frá. Sadó var enn ekki kominn. Því næst lagði Yunú tréfötu sína frá-sér og gekk yfir að hvíta manninum. Þegar hún sá hann, geiflaðj hún þykkar varir sínar harðneskjulega. „Ég hefi aldrei þvegið hvítum manni,“ sagði hún. „Og ég kæri mig ekkert um að þvo hvítum manni “núna, — svona líka óhreinum.“ Hanna kallaði til hennar.ströngum rómi: „Þú verður nú að gera það sem húsbóndi þinn segir þér!“ „Herrann ætti ekki að skipa mér að þvo óvini okkar,“ svaraði Yunú þrákelknisleg. Það var slíkur hræðilegur mótþróasvipur á búlduleitu andliti hennar, að Hanna fylltist ótta, sem reyndar var ástæðulaust. — Ef þjónustufólkið færi nú að segja eitt- hvað, sem ekki væri sannleikanum sam- kvæmt? „Jæja þá,“ sagði Hanna af göfugmann- legri kurteisi. „Þú skilur það þó, Yunú, að við ætlum okkur aðeins að vekja hann úr rotinu, svo við getum afhent hann lögregl- unni sem fanga?“ „Já; — en ég vil ekkert vera við það rið- in,“ sagði Yunú, „ég er manneskja, sem ekkert hefir að segja og þetta stendur ekki í mínum verkahring." „Ég bið þig þá að gera svo vel og halda áfram við þín verk,“ sagði Hanna í þeim virðulega tón, sem henni var sam- boðinn. * ^ En Yunú fór hið bráðasta út úr her- berginu. ~ Hanna varð eftir ásamt hvíta mannin- um. Hún hefði þó orðið of hrædd til þesssgð verða kyrr, hefði gremja hennar yfir mótþróa Yunú ekki verið efst í huga hennar. „Mikið fífl er Yunú,“ tautaði hún önug- lega. „Eins og hann sé nokkuð annað en mennskur maður?! Og það særður og hjálparlaus!“ Sannfærð um hugrekki sitt tók hún til að leysa hinar hnýttu druslur, sem bundn- ar voru utan um manninn. Þegar hún hafði flett frá brjósti hans, deyf hún lítilli, hreinni rýju, sem Yunú hafði sótt, niður í sjóðandi vatn. Síðan þvoði hún andlit hans varfærnislega. Þrátt fyrir volkið, var húð mannsins frekar áferðarfögur, og hafði auðsjáanlega verið mjög ljós, þegar hann var barn. Það var þó ekki svo að skilja, að henni líkaði neitt betur við þennan hvíta mann nú en fyrr. Og hún hélt áfram að þvo honum, unz hann var orðinn hreinn að of- anverðu. En hún þorði ekki að snúa hon- um. Hvar var Sadó? Gremja hennar út í Yunú var nú rénuð og aftur var hún orðin áhyggjufull, stóð á fætur og þurrkað'i hendur sínar á samanböggluðu handklæði. Síðan breiddi hún voðina yfir manninn aftur til þess honum yrði ekki kalt. „Sadó!“ kallaði hún lágt. Hann hafði verið í þann veginn að koma inn, þegar hún kallaði. Hann hafði v.erið með hendina á hurðarhúninum, og nú opn- aði hann. Hún sá, að hann hafði með- ferðis töskuna með lækningaáhöldunum og hann var kominn í skurðlæknajakkann sinn. * „Þú hefir ákveðið að skera hann upp!" hrópaði hún. „Já,“ svaraði hann stuttur í spuna. Hann sneri sér við og breiddi sótthreinsað klæði á gólfið og lagði áhöld sín á það. „Sæktu handklsécfi! “ sagði hann. Hún hlýddi og gekk kviðafull yfir að tauhillunum og tók fram handklæði. Sömuleiðis þurfti að ná í gamlar mottur, til þess að blóðið skemmdi ekki áklæðið á giaupfétaQ oxg,arfjarðar, ' ^gorgarftröi, Við Ieitumst jjafnan við að hafa sem flestar þter vörur, sem viðshiptamenn vor- ir þurfa á að halda — ot/ ávallt fyrir sanngfamt verð. ‘Sö&rtm t ttittCoÖssöí'u aítar framCetösfuuörur. Þöhhum viðshipti þessa árs, og óshum öllum viðshiptamönnum ohhar gleði- legra jjóla og farsœldar á homanda ári. ^aupféfag ^SorgarfjarÖar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.